Morgunblaðið - 03.01.1999, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Grá-
glettinn
húmor
ÍSLENSK
STUTTM¥]\D
Háskólabfó
A BLINDFLUGI
Leikstjórn og handrit: Gunnar B.
Guðmundsson. Aðalhlutverk: Hilmir
Snær Guðnason. Framleiðandi: Óskar
Þór Axelsson. Þeir tveir 1998.
ÍSLENSKA stuttmyndin Blind-
flug segir á spaugilegan og grá-
glettinn hátt frá raunum nikótín-
þrælsins sem langar að gefa reyk-
ingar upp á bátinn. Hann fer alveg
út á ystu nöf, í orðsins fyllstu
merkingu, við þær tilraunir sem
enda frekar illa.
Þetta er skemmtileg mynd sem
gerir grín að fáránleika nikótín-
þarfarinnar sem, í alvöru, er ekk-
ert grín. Það er gaman að ungir og
hugmyndaríkir athafnamenn eins
og þeir Óskar Þór og Gunnar taki
sér jafn þarft mál til umfjöllunar,
enda hafa þeir fengið stuðning
víða.
Leikstjóm Gunnars er í stíl við
handritið; öll hin léttasta; svip-
brigði leikara og allar aðstæður
ýktar, og tónlistin ýtir smekklega
undir léttleikann. Sá ágæti leikari
Hilmir Snær leikur reykingamann-
inn langt leidda og gerir það vel,
eins og hans er von og vísa, þótt
hann sé ekki að gera neina eftir-
minnilega hluti. Gunnar hefur
hingað til leikið aðalhlutverkin
sjálfur í stuttmyndum sínum, og
gert það merkilega skemmtilega,
en hann virðist hafa viljað einbeita
sér að leikstjóminni í þetta sinn.
Tæknileg vinnsla er öll hin
ágætasta en mér líkaði hljóðvinnsl-
an ekki fullkomlega. Sú ákvörðun
leikstjóra að hafa engar samræður
finnst mér skemmtileg. Eg býst við
að hann hafi viljað auka tilfinningu
fyrir vanlíðan reykingamannsins
með því að leyfa fólki einungis að
skynja stunur hans og áleitin hljóð
frá umhverfínu. En þar sem hann
kýs að halda umhverfishljóðum
eðlilegum, fínnst mér sú hugmynd
virka illa, og hefta alla leikræna
tjáningu, þar sem þetta er ekki
eðlilegt. Ef þessu hefði verið breytt
hefði ég verið alls kostar sátt við
þessa mynd.
Enn ein skemmtileg stuttmynd-
in í hóp fjölmargra sem íslenskir
kvikmyndagerðarmenn hafa sent
frá sér undanfarið.
Hildur Loftsdóttir
Lesið í málverk
ímynd Lucretíu
Lorenzo Lotto
ÞAÐ munu fáir hérlendir kannast við nafnið
Lorenzo Lotto (1480-1557), sem nú er talinn
einn sérstæðasti og hugmyndaríkasti málari
endurreisnarinnar, og var einnig framúr-
skarandi mannamyndamálari.
Kannski ekki nema von, því hann var van-
metinn um sína daga, jafnvel í þeim mæli að
hinn mikli Iistsagnfræðingur tímanna, Gi-
orgio Vasari, var honum ekki tiltakanlega
vilhallur er hann skrifaði sitt fræga yfírlit yf-
ir lífsferil fremstu málara tímanna. Og málar-
anum hefur ei heldur verið ýkja mikið haldið
fram á seinni öldum, eða allt fram á síðari ár
er gagngert endurmat hefur farið fram á lífs-
verki hans. Gleymdi meistarinn endurreistur,
og heiðrar Grand Palais í París minningu
hans með sýningu sem var opnuð 16. október
og stendur til 16. janúar. En það vegur upp,
að sjálfur bókfærði hann lífsferil sinn og dag-
legan eril og það mun víst ekki neinn
skemmtilestur. Til að mynda var framlag
hans til Sixtínsku kapellunnar í þeim grófa
mæli vanmetið af páfanum, að það var eyði-
lagt til að rýma fyrir viðbót frá hendi Rafa-
els. Lotto var þannig einn þeirra sem þurftu
að hafa mikið fyrir hlutunum um sína daga,
Iifði líkast umflakkandi hirðingja á tímaskeiði
er hvert listrænt athafnarými var fullskipað,
slíkt var framboð úrvals málara og sam-
keppnin mikil. Athafnasvæði hans markaðist
af Feneyjum, Bergamo, Treviso, Ancona,
Loreto, Róm og dreifbýlinu. Þannig fékk
Lotto verkefni hjá ýmsum munkareglum og
bræðralögum, sem hann tengdist sumum
hverjum, aðallega á Norður-Italíu, og það
tryggði honum þokkalegar tekjur á köflum.
En fyrir kom að hann hélt uppboð á verkum
sínum til að reyna að halda hlutunum gang-
andi, en þau lánuðust yfírleitt ekki nógu vel. I
fæðingarborg hans, Feneyjum, var útilokað
að leita mikils frama vegna hins alltyfir-
skyggjandi Tizians er gagntók allt og alla, og
það er helst Bergamo, norðan Mílanó, sem
hægt væri að nefna heimaborg hans, en þar
var hann búsettur 1513-26 og gerði mörg
helstu verk sín. Upphafsreit myndstfls Lottos
er að fínna í málverkum Giovanni Bellinis,
seinna varð hann fyrir áhrifum frá Rafael og
Corregio, en mótaði svo með tímanum sinn
eigin stfl, er einkenndist af lífrænum hreifan-
leika og auðugu ljós- og skuggamálverki.
Loks þróaði hann áhrifaríkt leikrænt mál-
verk, opinnar og frjálsrar tjáningar, sem í
hnotskurn mætti á stundum skilgreina sem
vitneskjuna um nærveru áhorfandans. Fólkið
sem hann málaði horfir nefnilega beint út úr
myndunum og framaní skoðandann með
augnaráði sem segir sem svo: Ég veit að þú
ert þarna.
Það kemur afar vel fram í myndinni af
Lucretíu, sem telst eitt af höfuðverkum mál-
arans og er í eigu Þjóðlistasafnsins í London,
95,9x110,5 cm. Fyrirsætan var hin feneyska
Lucrezia Valier, sem hann kvongaðist 1533,
og á hér að vera táknmynd arfsagnarinnar
um meinleg örlög Lucretíu. En menn mega
alls ekki rugla hofróðunni rómversku við
Lucrezíu Borgia (1480-1520), sem einnig var
fræg fyrir tælandi fegurð og giftist þrisvar.
Sagan segir að sú hafi myrt annan eiginmann
Bach hátíðartónleikar í Salnum
þriðjudaginn 5. janúar 1999 kl. 20:30
Hljómsveitarsvíta nr. 2 BWV 1067
Fiðlukonsert BWV 1042
Hljómsveitarsvíta nr. 3 BWV 1068
Einleikarar: Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla
Sigurbjörn Bernharðsson, fiðla
Martial Nardeau, flauta
Hátíðarhljómsveit Salarins í tilefni dagsins:
Fiðla: Sif Tulinius, Una Sveinbjarnardóttir
Láqfiðla: Móeiður Anna Siqurðardóttir
Seíló: Jón Ragnar Örnólfsson
Kontrabassi: Jóhannes Georgsson
Óbó: Peter Tompkins og Daði Kolbeinsson
Trompet: Ásgeir H. Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson
og Lárus Sveinsson
Pákur: Pétur Grétarson
Semball: Anna Magnúsdóttir
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Miðapantanir í síma: 570 0404
Tónleikar I Salnum verða framvegis auglýstir á leikhússlðu Morgunblaðsins
Almanak
Þjóðvinafélagslns
er ekki bara almanak
í því er Árbók fslands með fróöleik um
árferði, atvinnuvegi, fþróttir, stjórn-
mál, mannslát og margt fleira.
Fæst f bðkabúðum um allt land.
Fáanlegir eru eldri árgangar, allt frá 1946.
Sögufélag,
Fischersundi 3,
sími 551 4620
sinn og tekíð þátt í alræmdu svalli föður síns
blóðpáfans, Alexanders VI, og bróðurins Ces-
are Borgia, en það hefur þó aldrei verið sann-
að. Hins vegar hermir kórrétta sagan, að hin
íðilfagra Lucretía hafí verið fróm kona róm-
versks aðalsmanns, sem í upphafi fimmtu ald-
ar fyrir Krists burð, eða meira en tveim þús-
und árum fyrr, var nauðgað af Lucius
Tarquinius Super’bus, sjöunda og síðasta
konungi Rómverja, og framdi Lucretía sjálfs-
morð eftir illverkið. Tarquinius Super’bus
hrifsaði krúnuna með morði á tengdaföður
sínum, Servius Tullius, sjötta konungi Róm-
veija, og hélt áfram útþenslupólitík föður
síns, Lucius Tarquinius Priscus, fimmta kon-
ungs Rómveija. Það virðist eftir öllum sólar-
merkjum að dæma hafa verið dýrt spaug að
móðga rómverska aðalsmenn og fleka konur
þeirra á þessum tímum, því nú hófst mikið
fár í Rómaveldi sem lauk með því að
Tarquinius Super’bus var hrakinn frá völd-
um. Verknaðurinn á jafnframt að hafa stuðl-
að að endanlegu falli rómverska konungdæm-
isins árið 510 f.Kr., svo ekki var hér ein bár-
an stök frekar en fyrri daginn, nauðgunin
þannig með þeim örlagaríkustu er sagan
hermir. En maður skilur heift hins róm-
verska aðalsmanns í ljósi hins meinta hrein-
leika og fegurðar spúsunnar, sem málarinn
leggur sérstaka áherslu á. Um leið afhjúpar
málverkið einnig ást hans og aðdáun á ungri
og dásamlega fallegri eiginkonu sinni.
Málverkið af Lucretíu er einstakt, maka-
laust, því það segir svo mikla sögu, felur í sér
víðfeðma og sértæka frásögn sem eins og
streymir út frá því á vit skoðandans og tekur
hann fanginn. En þessi saga er síður sögð
með beinum ytri táknum, öllu frekar eins
konar myndrænni sálfræði. Þannig les skoð-
andinn í liti og form um leið og hann veit arf-
sögnina eins og á milli línanna í snilldarverki
á bók, og raunar fyrr, því það er einfaldlega
sallaklárt að hér dylst einhver mikil örlaga-
saga að baki. Lucretía hefur verið stolt kona,
mikil kona, eiginmanni sínum allt, og það er
eins og að hún sé að herma skoðandanum;
þannig var mín saga, og ég sé þig. Hún er
með táknræna teikningu af sjálfri sér og
hinni ógnþrungnu atburðarás í hendinni og á
dimmrauðu borðinu er brotinn uppreistur
miði, sem eitthvað á þessa leið er letrað á:
NEC VILA IMPVNICA IV CRETIÆ
EXEMPLO VIVET, og athygli beint að hon-
um með Iitlu lýsandi blómi í forgrunninum.
Þetta er hljóð og kristalstær frásögn, en felur
þóí sér mikla spurn um tilgang verknaðarins
eða réttara tilgangsleysi hans í ljósi hinnar
miklu kraftbirtingar og fegurðar sem lífið
sjálft framber. Þannig séð ristir hún dýpra og
vekur meir til umhugsunar en nokkrar gróf-
ar og sviftingasamar ögranir og umbrot á
myndfleti gætu gert. Skyldi svo ekki málar-
inn sjálfur hafa borið í sér þá frómu ósk, að
spúsa hans sjálfs væri sömu kostum búin er
hann klæddi hana upp sem ímynd Lucretíu?
Hann hefur allt í senn komið litum ástarinn-
ar, dimmrauðu tákni rennandi blóðs, tíman-
um, núinu og eilífðinni að. Það er eins og
konan hlusti á hjartslátt tímans með sálinni,
sé jafn nálæg okkur og þegar myndin var
máluð fyrir 465 árum, um leið og hún þrengir
arfsögninni um Lucretíu beint í vit okkur.
Þrátt fyrir að Lorenzo Lotto geti naumast
talist í hópi Feneyjamálaranna, vegna þess að
myndstfll hans var að stórum hluta frábrugð-
inn þeirra, jafnframt því í hve ríkum mæli
hann sótti út fyrir stflbrögð hinn-
ar feneysku erfðavenju, ber þessi
mynd í sér marga af klárustu
eiginleikum Feneyjamálverksins,
og þá einkum í hinni opnu mið-
lægu og altæku myndbyggingu,
þar sem engu er ofaukið.
Menn hafa gert þvi' skóna að
leiðir þeirra Lorenzo Lottos og
Albrechts Diirers, hins mikla
endurreisnarmeistara frá
Nurnberg, hafi legið saman, í
öllu falli er norrænni svipur yfir
málverkum Lottos en flestra
samlanda hans og augnatillit
andlitsmynda þeirra ekki ósvip-
að, þótt myndstfllinn væri frá-
brugðinn að flestu öðru leyti. En
hér kemur fram hve næmir end-
urreisnarmálararnir voru á það
sem var að gerast í kringum þá
og hve fljótir þeir voru að til-
einka sér allt það hvor hjá öðr-
um, sem þeir töldu að yrði þeirra
eigin myndstfl til góða, og þannig
hefur þetta verið með snjalla
málara allar götur til dagsins í
dag.
Með Lorenzo Lotto er gleymd-
ur meistari kominn í leitirnar.
Bragi Asgeirsson
SÖSStláS