Morgunblaðið - 03.01.1999, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999 25
0,
0
„Reynslur og örlög I Daníelsbók
- Biblían er auðskilúari en þig grunar!
'oðunarkirkjan
mm
0,
Leiðbeinandi er dr. Steinþór Þórðarson,
sem hefur staðið fyrir slíkum námskeiðum
áratugum saman á íslandi og erlendis.
Við höfum ánægju af því að hjálpa ^ Miðvikudagar kl. 20.00.
fóiki að kynnast Biblíunni betur og Sýna HiUumst einu sinni í viku!- Við byrjum 13. janúar.
hvað hún hefur að seoia um spurningar, Þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður, er skynsamlegt að
spm Ipita á frtlk innritast sem fyrst. Meö einu sfmtali tryggir þú þér þátttöku.
sciii icna a luin. Þátttaka og litprentuð námsgögn í möppu, ókeypis.
Innritun og nánari uppiýsingar alla daga í símum 554 6850,421 4474 og 861 5371.
VIKURSKAFLAR við Eystri-Rangá ofan byggðar.
EINAR gefur seiðum í aðaltjörninni á svæði 9, þ.e.a.s. við Fiská.
andi. Það er m.a. vegna stóraukins
fjölda gönguseiða. En það er ekki
eina skýringin, því gönguseiði þarf
að meðhöndla á réttan hátt ef þau
eiga nokkru sinni að eiga mögu-
leika á að lifa af og skila sér aftur í
ána. En hvað skyldi þurfa til að
tryggja góðar heimtur úr slepp-
ingu gönguseiða?
Einar segir ekkert eitt svar til
reiðu. Á margt sé að h'ta. Eitt sem
aldrei megi gleyma er, að seiðin
eru alin í eldi fram undir sjógöngu-
þroska og því hefur náttúruval
ekki grisjað hópinn líkt og ef um
náttúrulegan laxastofn væri að
ræða. Þetta geri þau viðkvæmari
en ella og því verði meðhöndlunin
að vera markviss.
„Eitt af því fyrsta sem menn
verða að gæta að, og það er nokkuð
sem langt er frá því að tekið sé
nægilega vel á við Rangárnar og
Þverá, og það er afrán máfa. Það er
óskapleg mergð af máfum og ég hef
ekki verið ánægður að sjá hvað þeir
fá mikinn frið til að athafna sig. Ég
fór t.d. niður að ósum Hólsár í vor
og þar eru varpstöðvar hundruða
para. Mér er sérstaklega í nöp við
sílamáfinn og það er líka langmest
af honum. Hettumáfurinn er líka að
reyna en ég held að hann geri ekki
mikinn usla. En víða á svæðinu,
ekki síst þar sem Eystri-Rangá og
Þverá renna sameiginlega saman
við Ytri-Rangá, eru breiður og
grynningar sem seiðin þurfa að
komast fram hjá á leið sinni. Þar
eru máfarnir óáreittir að háma
seiðin í sig. Ef gert yrði átak í að
stugga sílamáfnum frá myndi það
skila sér strax í aukinni veiði. Það
eru fleiri afræningjar, t.d. skarfar
og súlur í ósnum og fiskiendur, en
sílamáfurinn er í sérflokki.
Varðandi göngu seiðanna til
sjávar, þá væri það dýrmætara en
orð fá lýst ef það væri hægt að
tryggja að þau færu þegar áin er
skoluð. Eystri-Rangá er ýmist
skoluð eða tær, eftir veðri og ár-
ferði. Skolað vatn myndi verja seið-
in fyrir afræningjunum, en á þetta
er ekkert treystandi. Þetta snýst
sem sagt allt um það hvemig eigi
að draga úr affóllunum og það er
vandasamt þegar verið er að
breyta eldislaxi í villtan lax, senda
hann niður úr ánni og til sjávar. Ég
hef grun um að við þær kringum-
stæður sem eru við Rangámar séu
30 til 40% seiða einfaldlega étin á
leið til sjávar. Ef seiðin gætu geng-
ið út í graggugu vatni í Eystri-
Rangá held ég að það myndi skila
50% fleiri seiðum til sjávar. En
vegna þess að ekki er á það
treystandi þarf að halda máfi niðri.
Annar möguleiki væri að þrengja
farveg Hólsár og neðrihluta Þverár
eins og gert hefur verið við efri
hluta Þverár.
Þá er ekki sama hvernig tjam-
irnar era búnar. Það er kostur að
hafa djúpar tjamir, sérstaklega í
Eystri-Rangá þar sem flóð geta
orðið. Þá geta seiði betur varið sig
og þau hafa líka lengri tíma til að
ná fóðrinu áður en það sekkur til
botns. Einn og hálfur til tveir
metrar er ágætt. Síðan er vatns-
borðið lækkað þegar seiðin eiga að
ganga til sjávar. Komist minkur í
tjörnina er það líka kostur að hafa
hana djúpa því það gerir dýrinu
erfiðara um vik.
Það er auk þessa nauðsynlegt að
geta veitt vatni af réttu hitastigi í
tjarnimar og ef það er ekki til stað-
ar virkar það einnig vel að útbúa
hitunarlón, þ.e.a.s. að taka kalt
vatn í lón og láta lofthitann hita
það. Slík lón verða þó að vera
grunn.
Allt skiptir þetta geysilega miklu
máli því einhverra hluta vegna hafa
heimtur úr hafbeit minnkað mjög
seinustu árin. Á velmegunartíma
hafbeitarinnar á íslandi náðust 6%
heimtur, en sú tala hefur hríðlækk-
að síðustu ár þannig að menn hafa
verið að fá um 1% heimtur í hafbeit
tvö síðustu ár. I Eystri-Rangá vora
heimtur um 1,3% í sumar og heild-
arheimtur að minnsta kosti 2%. Þó
verður ekki alltaf fullyrt endanlega
um heimtur hér í Rangánum. I
venjulegum hafbeitarstöðvum hef-
ur allur afli verið tekinn, en það
verður alltaf mikið eftir af laxi í án-
um héma.
Slagurinn á toppinum
Er þetta eilífðarlærdómur eða
ertu orðinn fullnuma sem sjálf-
menntaður fiskræktarmaður?
„Ætli maður verði nokkra sinni
fullnuma í þessu. Það efast ég um.
Hins vegar lærist manni margt
með reynslunni og árin með pabba
vora mjög dýrmæt. Ymis grand-
vallaratriði sldpta sköpum eins og
við höfum farið í gegnum. Það hef-
ur þó kannski farið minnst fyrir
því sem mestu máli skiptir og það
er að seiðin séu góð. Þessi fisk-
ræktarmál í Rangárþingi era nú
komin á svo góðan skrið að ég sé
ekki að það sé nokkuð því til fyrir-
stöðu að Eystri-Rangá og raunar
Rangárnar báðar, verði framvegis
í fremstu röð íslenskra laxveiðiáa
og taki þátt í slagnum á toppnum á
hverju sumri,“ segir Einar Lúð-
víksson.
Shanti
Yoga kennarahiálfun
Yoga Studio sf. f samvinnu viö Shanti Yoga Institute N.J. i Bandaríkjunum mun
halda jógakennaraþjálfun árið 1999. Kennarar eru Ásmundur Gunnlaugsson, eig-
andi Yoga Studio sf., þekktur fyrir námskeiðið „jóga gegn kvíða“, og Yogi Shanti
Desai, sem er jógameistari með yfir 45 ára reynslu af ástundun og kennslu Hatha
5 Yoga. Þjálfunin er haldin í fjórða sinn á íslandi og er fyllilega sambærileg við það
5 besta sem í boði er erlendis, auk þess tækifæri til að nema af kennurum með
mikla reynslu. Þjálfunin er ekki aðeins fyrir þá sem vilja gerast jógakennarar heldur
einnig öflugt sjálfsþekkingar- og þroskanámskeið. Hún hentar t.d. öllum sem eru í
einhvers konar vinnu með einstaklinga eða hópa. Ekki er krafist mikillar reynslu og
ástundunar af yoga, mikilvægast er áhugi og jákvætt hugarfar. Einhver grundvall-
arþekking á yoga er þó æskileg.
Kynningarfundur verður föstudaginn 8. janúar ki. 20.00.
Lokafrestur til að staðfesta þátttöku og ganga frá greiðslu er
föstudagurinn 15. janúar.
Ásmundur
Y06A#
Þjálfunin er alls 6 helgar auk skyldumætingar í jógatíma sem hér segir:
Fyrsti áfangi: 22.—24. janúar, 29.—31. janúar og 5.—7. febrúar.
Annar áfangi: 5.-7. mars, 12.—14. mars, 19.—21. mars.
Kennt er föstud. kl. 20—22, laugardaga og sunnudaga kl. 9—16.
STUDIO
Auðbrekku 14, Kópavogi,
sími 544 5560.
Raðgreiðslur til 24 mánaða.
Innritun í símum
553 6645
og 568 5045
alla daga kl. 12-19.
Skírteini afhent í Bolholti 6
sunnudaginn 10. jan. kl. 13 -1?
Kennsla hefst
mánudaginn 11. jan.
DANSSKÓLI
Jóns Péturs og Köru
Bolholti 6,105 Reykjavík, sími 553 6645/568 5045, fax 568 3545