Morgunblaðið - 03.01.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999 31
leysum þá öll heimsins vandamál.
Við erum ekki einir, því að við tök-
um börnin með - þannig að þau hitt-
ast reglulega. Þessir laugardags-
morgnar eru ómissandi því að við
náum þá að rífa okkur frá vinnunni
og taka lífinu með ró.
Mikið lagt upp úr hópvinnu
Jakob hefur verið bæði fyrirliði
hjá Val og landsliðsins í handknatt-
leik. Hefur þá gamla fyrirliðastarfíð í
íþróttum borið ávöxt í atvinnulífinu.
Hvað segii' Jakob? „Það hljómar
kannski svolítið væmið, en ég er þó
viss um að fyrirliðastaðan hefur
hjálpað mikið. Eg er þó sannfærður
um að íþiúttimar vega þungt í
fjöldastarfi. Ég er alinn upp við það
að vera hluti af sterkri liðsheild. Þar
af leiðandi hef ég öðlast mikla
reynslu að vinna með fólki í hóp.
Fyrirtækið sem ég vinn hjá, eins og
mörg önnur fyrirtæki, er byggt upp
á hópvinnu. Valdapíramítanir eru
orðnir flatari, það er lagt meira upp
úr hópvinnu. Það að geta unnið sam-
an í hóp er mikils virði fyrir bæði
einstaklinga og fyrirtæki. Það að
geta leitt hópa er einnig mikils virði.
Það að fólk vinni saman í hóp
þýðir ekki endilega að það sé eng-
inn sem stjómi, eða að enginn þurfi
að vera í forsvari fyrir hópinn.
Þvert á móti, aukin þörf fyrir hóp-
vinnu útilokar alls ekki stjórnendur,
eða þá sem geta leitt hópa. Ég geri
mér fyllilega ljóst að reynsla mín af
íþi'óttum hefur hjálpað mikið. Upp-
eldið sem ég hef fengið í gegnum
íþróttir hefur reynst mér vel. Þegar
aftur er litið er ekki hægt að loka
augunum fyifr því að íþróttirnar
gegna ákveðnu uppeldishlutverki.
Það uppeldi hefur gagnast mér í því
starfi sem ég vinn við nú.
Stjórnvöld á Islandi og víða verða
að líta á íþróttir í því samhengi,
íþróttirnar gegna geysilega miklu
hlutverki í sambandi við uppeldi í
þjóðfélaginu.
Þú verður að geta höfðað til fólks
án þess að skipa þeim fyrir. Tilskip-
anir eru ekki sá stjórnunaraðferð
sem skilar mestu eða bestu. Það er
miklu mikilvægara að fá fólk til að
vinna saman og með þér, án þess að
vei'a með tilskipunarvald.
Til að gera langa sögu stutta, er
ég viss um að íþróttirnar hafa veitt
mér mikla hjálp í krefjandi starfi.“
Pú sagðir áðan að Frankfurt væri
miðsvæðis, þannig að það væri stutt
að fara í allar áttir. Hvað ertu lengi
í ferðum þegar þú heimsækir verk-
smiðjurnar fímm ?
„Að undanförnu hef ég reynt að
ferðast á milli verksmiðjanna fimm
á einni viku. Fer héðan frá Frank-
furt á sunnudagskvöldi eða snemma
að morgni mánudags, kem síðan
heim á föstudagskvöldi. Fer til
dæmis til Svíþjóðar er það mánudag
og þriðjudag, kem síðan aftur til
Frankfurt og gisti eina nótt, fer síð-
an aftur til Strassborgar og verð
það í tvo til þrjá daga. Síðan fer ég
til Italíu, Spán og Englandi í vik-
unni á eftir. Þessa rútu tek ég að
minnsta kosti fjórum sinnum á ári.
Svo kemur fyi'ir að ég fer sérstakar
ferðir til staðanna fimm og er þar í
einn til tvo daga í mesta lagi.
Erum ósýnilegir
Jakob sagði að hann væri að
vinna með fjögur hundruð mismun-
andi vörutegundir, sem allar byggð-
ust þó á sömu tækni. „Eitt af því
sem við erum að fást við er að
minnka þetta vöruval og jafnframt
að sjá til þess að varan sé rétt kost-
uð. Menn verða að geta réttlætt
hverja vörutegund fyrir sig. Málið
er það að fjögur hundruð vöruheiti
er of mikið. Við erum að vinna í því
að fækka þeim.“
Hverjir kaupa vörur fyrirtækis-
ins?
„Stærstu viðskiptavinir okkar eru
fyrirtæki í pappírsiðnaði, málning-
ariðnaði og byggingariðnaði. Fyrir-
tæki sem framreiða leðui-vörur,
vefnaðarvöruframleiðendur og svo
mætti lengi telja.“
Hér er ekki um að ræða vörur
sem seldar eru í verslunum?
„Nei, það era mjög fáir sem
þekkja fyrirtækið Rohm and Haas.
Ef þú telur þá hluti sem þú notar í
daglegu lífi, þá era miklar líkur á því
að þeir innihaldi efni sem við fram-
leiðum. Það era mjög miklar líkur á
því að efnið sem er í stefnuljósunum
á bílnum þínum sé frá okkur, fyrir
utan að allt plast sem er inni í bílnum
komi frá okkur. Það efni sem er not-
að í leðursófasettið, til að gefa því yf-
irborðsáferð, gæti hugsanlega komið
frá okkur. Efnið er einnig í málning-
unni á veggjunum í íbúð þinni, í
tímai'itunum sem þú lest. Fyi-irtækið
er ekki mjög þekkt á neytendamark-
aði, þar sem það er fyrst og fremst
iðnaðarfyrirtæki. Fyrii'tæki sem sel-
ur efni til iðnaðamota. Við seljum
efni til að húða tölvukubba, rafrásir,
harða diska og allt mögulegt. Við er-
um ósýnilegir í rauninni, en eram
samt mjög víða.“
Er Jakob á heimleið?
Þegar Jakob hélt til náms í
Bandaríkjunum stóð aldrei annað til
að hann kæmi heim aftur fljótlega.
Hann ætlaði að vera við nám í tvö ár
og koma síðan heim. „Ég fór út með
það í huga að læra meira í sambandi
við viðskipti. Ég var efnafræðingur
og tæknistjóri hjá málningaverslun
Slippfélagsins, en hafði mikinn
áhuga á viðskiptum. Ég vissi það að
ég hafði enga menntun sem gæti
gagnast mér á því sviði. Ég hafði
tækniþekkinguna, reynslu - bæði
reynslu í vinnu og einnig mikla
reynslu sem íþróttamaður. Með það
í huga fór ég út í námið í markaðs-
og rekstrarfræði."
Nú ert þú kominn í gott starf,
sem mig óraði aldrei fyrir. Ert þú
þá ekki á leiðinni heim?
„Eins og staðan er í dag er það
algjörlega óráðið. Ég er í mjög
spennandi starfi, en það er einnig
margt spennandi að gerast heima á
Islandi. Atvinnulífið heima er á
réttu róli, mörg ný og spennandi
fyrirtæki að spretta upp. En spurn-
ingin hvort ég sé á heimleið, er
spuming sem verður alltaf erfitt að
svara. I sannleika sagt veit maður
aldrei hvað gerist," sagði Jakob Sig-
urðsson.ingin hvort ég sé á heim-
leið, er spurning sem verður alltaf
erfitt að svara. I sannleika sagt veit
maður aldrei hvað gerist," sagði
Jakob Sigurðsson.
Risastórt efnahagsveldi
ROHM og Haas-fyrirtækið á
sér langa og merka sögu, sem
teygir anga sína víða um heim
og á upptök sín í borginni
Darmstad í Þýskalandi árið
1909.
Ungur vísindamaður, dr.
Otto Rohrn að nafni, fékk þá til
liðs við sig ungan kaupahéðin,
Otto Haas, og saman stofnuðu
þeir fyrirtæki um rannsóknir
og nýjungar í vísindum og
tækni og framleiðslu hráefna
fyrir vinnslu í sérhæfðari verk-
smiðjum, einkum í efna- og
vefnaðariðnaði.
Smám saman þandist rekst-
ur fyrirtækisins út. Systurfyr-
irtæki þess var sett á laggirn-
ar í Bandarikjunum nokkrum
árum síðar og fluttist Haas þá
til Bandaríkjanna, en Rohm
varð eftir í Þýskalandi. í
Bandaríkjunum voru settar
upp verksmiðjur og fram-
leiðsla fyrirtækisins var aðal-
lega seld til leður- og textíl-
gerðar þar sem frekar var
unnið úr henni.
Algjörlega var skilið á milli
fyrirtækjanna 1917 er Banda-
i íkjamenn urðu þátttakendur í
fyrri heimsstyrjöldinni og
sögðu Þjóðverjum stríð á
hendur. Hið bandariska fyrir-
tæki óx svo og dafnaði undir
stjórn Haas, en í Þýskalandi
vann Rohm að rannsóknum,
einkum í akrílefnaiðnaði.
Haas fékk einkaleyfi f
Bandaríkjunum á uppfinning-
um fyrirtækisins í Þýskalandi
og áranguriim af því samstarfí
varð eitt helsta tromp fyrir-
tækisins fyrr og síðar, hið víð-
fræga plexiglass eða plexígler
eins og það hefur verið nefnt á
fslensku. Plexigler hefur ein-
kenni venjulegs glers, en þolir
miklu meira, er auðmótan-
legra og mun léttara.
Nú er Rohm og Haas stórt
eftiahagsveldi á alþjóða mæli-
kvarða, verksmiðjur þess og
rannsóknarstofur skipta hund-
ruðum um heim allan og salan
á sfðasta ári nam um fjórum
milljörðum Bandaríkjadala,
eða sem nemur tæpum 300
milljörðum íslenskra króna. Þá
er ótalinn arður af fjölmörgum
hliðar- og dótturfyrirtækjum
víða um heini, jafnt á sviði hrá-
og hátækniiðnaðar. Starfs-
menn þess eru nú ríflega
11.000 í yfir hundrað löndum
og framleiðslan er afar fjöl-
breytileg, allt frá sérhæfðum
efnaiðnaði til nýjunga í gerð
þrívíðra tölvumynda og allt
þar á milli.
Nafn fyrirtækisins er ekki á
vörum fólks daglega, einkum
þar sem mestur hluti fram-
leiðslu þess og nýjunga fer til
fullvinnslu annarra fyrirtækja
og endar því undir vörumerkj-
um þeirra.
Tölvuskóli Reykjavíkur býður ítarlegt nám í skrifstofutækni fyrir alla þá sem hafa hug á
að ná góðum tökum á fjölbreyttri starfsemi á nútíma skrifstofu. Ásamt markvissu
tölvunámi er einnig lögð rík áhersla á alhliða kennslu í skrifstofugreinum eins og
bókhaldi og verslunarreikningi. Að námi loknu eru nemendur færir um flest
skrifstofustörf.
Námið er 345 stundir að lengd og eru þar með taldar 45 stundir í þremur valgreinum. Auk
þess fylgir tveggja vikna starfsþjálfun í fyrirtæki. Námið og starfsþjálfunin tekur um
16 vikur. Mikil áhersla er lögð á að hafa vönduð íslensk námsgögn í öllum greinum.
Viðskiptagreinar Tölvugreinar
Annað
Tjáning, hópvinna, framsögn,
útlit, þjónusta viðskiptavina,
vinnustellingar, útlit, framkoma,
símsvörun, atvinnuumsóknir.
Valgreinar
Tölvubókhald isstundir
Vélritun 15stundir
Viðskiptaenska isstundir
Tollskýrslugerð iSstundir
Internet vefsíðugerð 15 stundir
Gagnagrunnur isstundir
ENTGR
Tölvuskóli
bmd ■ Reyl<javíkur
Borgartúni 28, sími 561 6699
www.tolvuskoli.is
tolvuskoli @ tolvuskoli.is
165 stundir
Bókfærsla
Verslunarreikningur
Almenn
bókhaldsverkefni,
víxlar og skuldabréf
Launabókhald
Lög og reglugerðir
Virðisaukaskattur
Raunhæf verkefni,
fylgiskjöl og
afstemmingar
Tölvubókhald
Bókhald sem
stjórntæki
Ritvinnsla
Word
Töflureiknir
Excel
Tölvufjarskipti
Internetið
Glærugerð
PowerPoint
100 stundir
Almenn tölvufræði
35 stundir
íslenska og verslunarbréf