Morgunblaðið - 03.01.1999, Side 50
50 SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
Misheppnað
jólaspaug
Frá Ragnari Geir Brynjólfssyni:
SPAUGSTOFUFLOKKURINN
hittir yfírleitt í mark þegar um er
að ræða spaugilegar hliðar landans
samanber „óráðsíuna", „laufa-
brauðsmynstrið" og „trashaway
bréfalúguna" svo nýleg vel heppnuð
dæmi séu nefnd en spaugstofuþátt-
urinn sem ríkissjónvarpið sendi út
19. des. sl. staðfestir þann grun
minn að þeim fellur illa að draga
fram spaugilegar hliðar á því sem
-« tengist trúmálum. Þáttur hins svo-
kallaða „slapstick" skops hefur farið
vaxandi í atriðum spaugstofunnar á
þessum vetri, eflaust við lítinn fógn-
uð landans og jólasagan í umrædd-
um þætti í „slapstick“ búningi var
því miður gersneydd spaugi, að
mínu mati. Þegar kemur að þessari
tegund skops gætu spaugstofumenn
lært af þáttum Dave Allen sem
sýndir voru við miklar vinsældir á 8.
áratugnum í ríkissjónvarpinu en ein
af hans sterku hliðum var einmitt sú
að kalla fram spaugilegar hliðar
trí mála. Mörgum eru eflaust minn-
isstæð enn í dag fyndin atriði og
orðtæki Allen. Ekki minnist ég þess
að spaug Allen hafi valdið jafn
miklu róti og hliðstæðir tilburðir
spaugstofuflokksins í þessa veru á
liðnum árum.
Þeim sem vilja gera jólin eftir-
minnileg börnum sínum er enginn
gi-eiði gerður með því að draga
helgi jólasögunnar á jafn átakanleg-
an hátt í svaðið eins og gert var með
þessu misheppnaða spaugi. Þetta
leiðir hugann að því að efni á borð
við þetta væri sennilega óhugsandi
á einhverri annarri stöð því þar hafa
áskrifendur þann valkost að geta
sagt upp áskrift að stöðinni ef þeim
ofbýður og sýnir þetta svo ekki
verður um villst að sterkustu rökin
með skylduáskrift að ríkisútvarp-
inu-sjónvarpi, nefnilega þau að vit
þurfi að hafa fyrir fólkinu í landinu í
menningarlegum efnum hafa enga
merkingu. Eg er kominn á þá skoð-
un að einkavæða þurfi ríkisútvarpið
sem ailra fyrst svo það geti brugðist
við sjálfsögðum og eðlilegum kröf-
um neytenda sinna að mega segja
upp eða panta áskrift að því.
RAGNAR GEIR BRYNJÓLFSSON,
Baugstjörn 33, Selfossi.
Dauðans alvara
Frá Samúel Inga Jónssyni:
NEYSLA barna á fíkniefnum verð-
ur mun algengari og eykst sá vandi
hröðum skrefum. Það má líkja því
við sprengingu, afleiðingarnar eru
skelfilegar og eiga eftir að versna
mikið. Þetta byrjar oft á sakleysis-
legan hátt, reykingar eru oftast það
fyrsta og eru þær kallaðar „Gate
way, leiðin inn um hliðið". Síðan
áfengisneysla og þaðan í fíkniefna-
neyslu, hass og sterkari efni. Þetta
er að sjálfsögðu ekki einhlítt en al-
ge.ig leið. Börnum, sem verða að
virkum neytendum á aldrinum 12
ára til 18 ára „undir sjálfræðis-
alc!ri“, er sérstök hætta búin. Þau
eri mjög móttækileg og auðvelt að
hafa áhrif á þau, fá þau til að trúa
og gera það sem er ekki rétt. Börn á
þessum aldri falla auðveldlega og
geta á mjög skömmum tíma orðið
að hörðum neytendum. Sálræn
áhrif láta þá ekki á sér standa, svo
sem ofsóknarkennd, kvíði, ótti,
reiði, þunglyndi, sinnuleysi,
sjálfseyðingarhvöt og jafnvel ein-
kenni um geðklofa. Ekkert þeirra
barna sem verða virkir fíklar ætl-
uða sér að lenda svo. Þessi börn eru
auðveld skotmörk fíkniefnasalanna,
þau eru notuð til að flytja fíkniefni
fyrir sölumennina til annarra neyt-
enda og jafnvel að sjá um sölu.
Mörg leiðast fljótt út í afbrot, þjófn-
að, ofbeldi og vændi. Heimur þeirra
er ekkert miskunnsamari en þeiira
sem eldri eru nema síður sé og jafn-
vel mun verri þar sem þau missa
alla stjórn mjög fljótt vegna þroska-
leysis.
Ofbeldi og hótanir eru daglegt
brauð hjá þessum börnum, bæði
það sem þau nota hvert á annað og
einnig það sem notað er á þau af
þeim sem eldri eru. Ekki er óal-
gengt að þau séu misnotuð kynferð-
islega, þá í formi vændis og nauð-
gana sem aldrei eru kærðar þar
sem börnin þora því ekki. Og einnig
að eldri aðilar nota þau og halda
þeim úti á efnum í staðinn. Afleið-
ingarnar af þessu eru sjálfshatur,
sjálfsfyrirlitning og sjálfsvíg þar
sem börnin eru fóst og komast
hvergi, uppgjöfm verður algjör.
SAMÚEL INGI JÓNSSON,
Hlíðarsmára 5, Kópavogi.
Ásmundur
Danlel
Bergmann
Efni:
Jóga gegn kvíða
með Ásmundi Gunnlaugssyni.
Uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við
kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í
gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða
leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og
lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga
nauðsynleg.
Þri. og fim. kl. 20.00. Hefst 7. jan.
Yoga - breyttur Iffsstfll
7 kvölda grunnnámskeið með
Daníel Bergmann.
Mán. og mið. kl. 20-21.30. Hefst 6. jan.
Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri, reynsla af
jóga er ekki nauðsynleg. Frír aðgangur að tækja-
sal og opnum jógatímum fylgir meðan á nám-
skeiðinu stendur.
* jógaleikfimi (asana)
* mataræði og lífsstíll
* öndunaræfingar
* slökun
YOGA^
STUDIO
Auðbrekku 14, Kópavogi,
sími 544 5560.
★ andleg lögmál
sem stuðla að
velgengni, jafnvægi
og heilsu.
í DAG
VELVAKANDl
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Áheitasjóður
Þorláks biskups
helga
GEGNUM tíðina hafa
ýmsir heitið á Strandar-
kirkju og gefist nokkuð
vel. En ekki er verra að
heita á Þorlák biskup
helga, sem einu sinni var
klerkur í Odda og síðar
biskup í Skálholti. Hann
var fæddur að Hlíðarenda
árið 1133.
Þeim sem hafa við ein-
hver vandamál að stríða
eða óska sér einhverra
hagsbóta er bent á að heita
á Þorlák.
Til er Áheitasjóður Þor-
láks helga sem ávaxtaður
er í Búnaðarbankanum á
Hellu. Með stjórn hans
fara bankastjóri Búnaðar-
bankans á Hellu, sóknar-
presturinn í Odda og
sýslumaður Rangæingja á
Hvolsvelli.
Fjármagn sem sjóðnum
kann að berast verður not-
að til lagfæringar á mann-
gerðum hellum í Rangár-
þingi.
Sá sem þetta ritar, hefur
af og til heitið á Þorlák
helga, og fengið óskir sínar
uppfylltar. Auðvitað geta
menn um það deilt hvort
það sé að þakka hinum
forna Skálholtsbiskupi eða
öðrum góðum öflum. En
ekki skaðar að heita á Þor-
lák, bara að prófa það.
Eyjólfur Guðmundsson.
Lokaðir
póstkassar
VELVAKANDA barst
eftirfarandi:
Ég þurfti fyrir áramót að
koma bréfi í póst og ætlaði
að setja það í póstkassa
sem er á Laugavegi en
þegar setja átti bréfið í
kassann kom í ljós að hann
var læstur, þ.e. ekki var
hægt að setja bréf i hann.
Gekk ég þá niður í aðal-
pósthús í Pósthússtræti en
þar voru einnig báðir póst-
kassarnir lokaðir. Þetta
var eftir kl. 17 og búið að
loka öllum pósthúsum. Hr-
ingdi ég daginn eftir í
póstinn til að fá upplýsing-
ar um hvers vegna póst-
kössunum væri lokað. Var
mér þá sagt að það væri
vegna sprengjufaraldurs
um áramótin. Er svo kom-
ið í þjóðfélaginu að þetta
þurfi að gera? Hvað með
ferðamenn sem þurfa að
koma pósti í póstkassa?
Ekki er þetta góð auglýs-
ing fyrir Reykjavík sem
menningarborg.
Vegfarandi.
Dýrahald
Persneskur köttur í
óskilum
LJÓSGRÁR persneskur
köttur hefur verið í óskil-
um í Hafnarfirði í rúman
mánuð. Merktur inni í
eyra með bláu. Upplýsing-
ar í síma 555 1899 og
565 5701.
Kettlingur
óskast
ÓSKA eftir þrifnum, gul-
um og hvítflekkóttum kett-
lingi, fressi. Upplýsingar í
síma 566 6036.
Tapað/fundið
Jólagjafir
í óskilum
FÓRUM í Grafarvogs-
kii'kju á aðfangadag.
Fundum plastpoka með 3
litlum jólagjöfum. Þeir
sem kannast við þetta hafi
samband í síma 553 2999.
SKÁK
Hnisjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp í opnum
flokki á skákmóti í Gron-
ingen í Hollandi fyrir ára-
mótin. Aviv Friedman
(2.370), ísrael, var með
hvítt, en Bartosz Socko
(2.475), Póllandi, hafði svai't
og átti leik.
24. _ Bxh3! 25. gxh3
Rxh3+ 26. Kg2 _ Rf4+ (Enn
sterkai'a var 26. _ Rg4! sem
er líka meira fyrir augað)
27.Kfl _ Rg4 28. He4 _ Dh6
29. Kel _ Dh3 30. Dd2 _
Dg2 31. Bdl _ Rd3+ og
hvítui' gafst upp.
Taflfélagið Hellir heldur
fyrsta atkvöld ái'sins mánu-
daginn 4. janúar 1999 og
hefst mótið kl. 20 í félags-
heimilinu Þönglabakka 1 í
Mjódd (hjá Bridgesamband-
inu). Fyrst eru tefldar 3
hraðskákir þar sem hvor
keppandi hefiir 5 mínútur til
að ljúka skákinni og síðan
þijár atskákir, með tuttugu
mínútna umhugsun. Sigm'-
vegaiinn fær verðlaun,
kvöldverð fyrir tvo frá
Pizzahúsinu. Þá hefur einnig
verið tekinn upp sá siður að
draga út af handahófi annan
keppanda, sem einnig fær
máltíð fyrir tvo hjá Pizza-
húsinu. Þar eiga aliii' jafna
möguleika, án tillits tÚ ár-
angurs á mótinu.
Þátttökugjald eru 300 kr.
fyrir félagsmenn (200 kr.
iyrir 15 ára og yngri) og 500
kr. fyrir aðra (300 kr. fyrir
15 ára og yngri).
SVARTUR leikur
og vinnur.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
ISLAND hefur vaxandi aðdrátt-
arafl á erlenda ferðamenn. Það
er ekki út í hött að segja að ferða-
þjónustan sé vaxtarbroddurinn í ís-
lenzku atvinnulífi, með og ásamt
orkufrekum iðnaði. Flestir nytja-
stofnar á Islandsmiðum eru þegar
fullnýttir, sumir ofnýttir. Búvörur
eru þegar framleiddar umfram inn-
lenda eftirspurn. Vaxandi þjóð, sem
skilar hundruðum nýrra einstak-
linga út á vinnumarkaðinn ár hvert,
hefur ekki í mörg horn að líta með
ný störf fyrir nýtt fólk á vinnumark-
aði, nýja verðmætasköpun til að
bera uppi batnandi lífskjör - og
sjálft velferðarkerfíð.
Sitt hvað atvinnugefandi hefur þó
rekið á fjörur samtímans og sumt
meiri háttar: hugbúnað margs kon-
ar, lífefnaiðnað, ferðaþjónustu,
orkuiðnað o.fl. Það er hægt, ef
hyggindi ráða meiru en öfgar, að
samræma sjónarmið þeirra sem
vilja breyta óbeizlaðri orku fall-
vatna og jarðvarma í störf, verð-
mæti og lífskjör - og hinna, sem
vai'ðveita vilja víðerni landsins og
náttúruperlur. Við verðum i senn að
lifa í sátt við landið og umhverfi
okkar og á auðlindum láðs og lagar.
En höfum það í huga að sérhver
góður málstaður á sér varhugaverð-
ustu „óvinina“ í öfgafyllstu stuðn-
ingsmönnunum!
Þjóðhagsstofnun ætlar að um 127
þúsund ferðamenn hafi komið til
landsins á nýliðnu ári, sem er um
15% aukning frá árinu á undan.
Hagvísar Þjóðhagsstofnunar segja
orðrétt:
„Þetta er meiri aukning en hefur
verið undanfarin ár, en á þessum
áratug hefur aukningin verið að
meðaltali 5% til 6% á ári. Þjóðhags-
stofnun áætlar... að útgjöld þeirra
[erlendra ferðamanna] hér innan-
lands nemi rúmlega 14 milljörðum
króna.“
Ferðaþjónusta er sýnilega „mat-
arhola", sem leggja verður rækt við.
Hún er hinsvegar vaxandi atvinnu-
grein hvarvetna á jarðarkringlunni.
Samkeppnin er því hörð og fer
harðnandi.
xxx
NYTT ÁR er hafið og ný öld í
nánd. Á slíkum tímamótum
horfa menn bæði um öxl og fram á
veg. Það liðna liggur í grófum drátt-
um ljóst fyrir í heimildum og minni
manna. Myndin, sem við blasir þeg-
ar horft um öxl, er þó síður en svo
ein og söm hjá öllum. Sitt hvað veld-
ur, margs konar og mismunandi
lífsreynsla, mismunandi menntun
og sérhæfing, sem og ólík viðhorf til
lífsins og tilverunnar. Menn horfa
m.ö.o. ekki um öxl af sama sjónar-
hólnum.
Sýnin sem við blasir þegar horft
er til framtíðar, nýrrar aldar, er þó
trúlega enn margbreytilegri. Eng-
inn sér að vísu framtíðinna fyrir,
ekki einu sinni morgundaginn.
Sumir eiga jafnvel engan morgun-
dag. Reynslan og þekkingin gera
okkur samt sem áður kleift að leiða
líkur að framvindunni næstu mán-
uði, jafvel næstu ár. Þar að auki
verður ekki fram hjá því komizt að
við erum sjálf, að drjúgum hluta,
smiðir eigin framtíðar, bæði sem
heild og einstaklingar.
XXX
HVER er sinnar gæfu smiður,
segir máltækið. Fleira kemur
þó til. Það er ekki sama inn í hvers
konar samfélag böm fæðast. Meðal-
ævi Islendinga er mörgum áratug-
um lengri en fólks í þróunarlöndum
- og mörgum áratugum lengri en áa
okkar íyn' á tíð. Aðstaða fólks í ver-
öldinni er og gjörólík hvað varðar
menntunarmöguleika, en menntun
og þekking eru lyklar að hagsæld
og velferð.
Það er heldur ekki sama inn í
hvers konar fjölskyldu barn fæðist.
Það getur skipt öllu máli fyrir fram-
tíð þess og velferð, hvert fjölskyldu-
umhverfi þess er, hvers konar upp-
eldi það fær, en þar skipta hlýja og
hóflegur agi miklu máli.
Það er drjúgur sannleikur fólginn
í spakmælinu: Hver er sinnar gæfu
smiður, en ytri aðstæður ráða og
meiru en margur hyggur. Þau vopn
sem bezt bíta í lífsbaráttu næstu
framtíðar eru menntun og þekking,
bæði almenn og sérhæfð, agað líf-
erni og jákvætt lífsviðhorf.