Morgunblaðið - 07.01.1999, Síða 1

Morgunblaðið - 07.01.1999, Síða 1
STOFNAÐ 1913 4. TBL. 87. ÁRG. FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Fréttir um starfsemi UNSCOM í Irak valda miklu uppnámi högun réttarhaldanna Washington. Reuters. TRENT Lott, leiðtogi repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, sagði í gær að réttarhöldunum yfir Bill Clinton Bandaríkjaforseta, sem hefj- ast formlega í dag, yrði fram haldið í næstu viku jafnvel þótt ekki hefði enn fengist niðurstaða um hvernig þeim yrði nákvæmlega háttað, hversu lengi þau myndu standa og hvort eða hversu mörg vitni yrðu kölluð fyrir. Kvaðst Lott þó vonast til að geta „innan tuttugu og fjög- urra klukkustunda" kynnt hver verður tilhögun réttarhaldanna. Sagði Joe Lockhart, talsmaður Hvíta hússins, að það lægi í augum uppi að forsetinn og ráðgjafar hans væru heldur ósáttir við að vita ekki enn hvert fyrirkomulagið yrði. Lock- hart kvaðst hins vegar algerlega sannfærður um að Clinton myndi vinna sigur í málinu. Réttarhöldin hefjast formlega í dag þegar Henry Hyde, formaður dómsmálanefndar fulltrúadeildarinn- ar, sem sækja mun málið fyi'ir hönd fulltrúadeildarinnai-, les ákæruatrið- in gegn Clinton. Síðan verður Willi- am Rehnquist, forseti hæstaréttar, svarinn í embætti en hann stýrir þessum sögulegu réttarhöldum en þeim gæti mögulega lokið með emb- ættissviptingu Clintons. Að öðru leyti er alveg óljóst hvernig málum verður fram haldið. Hét Tom Daschle, leiðtogi demókrata í öldungadeildinni, að þeir myndu standa „algerlega sam- einaðir“ gegn því að vitni yrðu kölluð fyrir, enda væri alger óþai’fi að draga málið á langinn með þeim hætti. Sagði hann að um leið og fyrsta vitnið yrði kallað fyrir væru allir samningar milli demókrata og repúblikana um framgang málsins í uppnámi. Deildu repúblikanai’ einnig innbyrðis en þó virtist líklegt í gær- kvöld að þeir myndu kalla um fimm- tán vitni, þ.m.t. Monicu Lewinsky og Vernon Jordan, einkavin Clintons, og jafnvel Betty Currie, einkaritara forsetans. ■ Óljúf skylda /24 Butler neitar Reuters Konunglegt brúðkaup í vændum LJÓSMYNDARAR þyrpast að Ját- varði prins, yngsta syni Elísabet- ar Englandsdrottningar, og Sophie Rhys-Jones eftir að þau opinberuðu trúlofun sína og til- kynntu væntanlegt brúðkaup í gærmorgun. Prinsinn og unnusta hans til fimm ára hafa reynt að halda sig utan sviðsljóssins eins og kostur er en ekki varð hjá at- hygli fjölmiðlanna komist í gær. Bæði starfa hjá einkafyrirtækjum og hyggjast halda því áfram eftir brúðkaupið, sem á að verða í vor eða snemmsumars. „Það skilur enginn hvers vegna þetta hefur tekið mig svona langan tíma,“ sagði Ját- varður við blaðamenn í gær. „En ég held ekki að tíminn hafi verið réttur fyrr en nú og ég er ekki viss um að Sophie hefði sagt já. Vonandi gefur jáyrði hennar til kynna að tímasetning mín hafi verið rétt.“ Sophie sagðist í gær alveg reiðubúin að giftast inn í bresku konungsQöIskylduna þótt tilhugs- unin gerði hana „nokkuð óstyrka“. ■ Hyggja á látlaust/23 ásökunum um njosmr Sameinuðu þjóðunum, Washington. Reuters. KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, neitaði í gær fregnum þess efnis að hann hefði í höndum órækar sannanir fyrir því að starfsmenn vopnaeftirlitsnefndar SÞ (UNSCOM) í írak hefðu stund- að njósnir í landinu fyrir hönd Bandaríkjamanna. Jafnframt harð- neitaði Richard Butler, yfirmaður UNSCOM, staðhæfingum í þessa veru og hið sama gerðu fulltrúar bandarískra stjómvalda en dag- blöðin The Washington Post og The Boston Globe héldu þessu fram um morguninn. Sagðist fýrrnefnda blaðið hafa fréttimar eftir nánum samstarfsmanni Annans. „Ekki aðeins höfum við engar órækar sannanir fyrir þessum staðhæfingum heldur er stað- reyndin sú að við höfum ekki sann- anir fyrir nokkrum sköpuðum hlut. Það eina sem við höfum er orðróm- ur,“ sagði í yfirlýsingu Annans. Annan viðurkenndi þó að væra ásakanirnar réttar væri það mikill álitshnekkir fyrir afvopnunarstarf SÞ í Irak, sem og annars staðar. Talsmaður Annans neitaði því ennfremur að framkvæmdastjór- inn hefði þrýst á Butler að segja af sér og sagði að í öllu falli væri það aukaatriði hver væri yfirmaður UNSCOM. „Aðalatriðið er hvernig tryggt verður að Irak fargi gereyð- ingarvopnum sínum.“ „Þetta er einfaldlega ekki satt,“ sagði Richard Butler er hann kom til höfuðstöðva SÞ. Seinna um dag- inn hélt hann blaðamannafund þar sem hann harðneitaði staðhæfingun- um. Sagði Butler að UNSCOM hefði vissulega notið aðstoðar um fjöratíu aðildarlanda SÞ, þ.m.t. Bandai-íkjanna, en að í engum tilfell- um hefði verið staðið að söfnun upp- lýsinga fyiir þeirra hönd um vopna- búr Iraka og sannarlega hefðu eng- ar reglur SÞ verið brotnar. Var því haldið fram í frétt bandarísku blað- anna tveggja að upplýsingum, sem safnað hefði verið með aðstoð UNSCOM, hefði verið beitt í því skyni að grafa undan stjóm Sadd- ams Husseins íraksforseta. Heita að „verjast til síðasta manns“ Þrátt fyrir yfirlýsingar Annans og Butlers töldu fréttaskýrendur í gær líklegt að umræða um framtíð vopnaeftirlits í írak yrði nú enn há- værari en áður. Þrjú aðildarlanda öryggisráðs SÞ, Kína, Frakkland og Rússland, hafa um langa hríð krafist endurskoðunar á starfsemi UNSCOM og jafnframt gagnrýnt Butler harðlega fyrir hlut hans. Enn fremur gæfi þetta uppnám stjórnvöldum í Bagdad byr undir báða vængi en þau hafa lengi hald- ið því fram að Butler stundaði njósnir í Irak á vegum Bandaríkja- manna. Sagði Nizar Hamdoon, sendiherra Iraks hjá SÞ, einmitt að fréttir gærdagsins kæmu þeim sannarlega ekki á óvart. Sagði Sultan Hashim Ahmed vamarmálaráðherra í gær að Irakar hefðu orðið fyrir óréttlætanlegri árás Breta og Bandaríkjamanna og hvort sem öðram líkaði betm’ eða vem myndu þeir „verjast til síðasta Lipkin-Shahak tilkynnir framboð sitt í Israel Netanyahu harð- lega gagnrýndur Tel Aviv, Jerúsalem. Reuters. AMNON Lipkin-Shahak, fyi-rver- andi yfirmaður ísraelshers, lýsti því yfir í gær að hann hygðist bjóða sig fram gegn Benjamin Netanyahu for- sætisráðherra í kosningunum 17. maí sem hann sagði stofna Israel í hættu. Lipkin-Shahak tilkynnti ennfi-emm- að hann hygðist fara fyrir nýjum mið- flokki, sem hefur ekki fengið nafn. „Netanyahu stofnar ísrael í hættu. Hann verður að hafa sig á burt,“ sagði Lipkin-Shahak og fréttaskýrendur sögðu ummæli hans benda tÖ þess að hann hygðist gera persónuleika forsætisráðherrans að kosningamáli. Nýja forsætisráðherraefnið sagði að til greina kæmi að semja um stofn- un sjálfstæðs Palestínuríkis. Hann réð hins vegar Palestínumönnum frá því að standa við þá hótun sína að lýsa yfir sjálfstæði ef ekki næðist Réttur settur í máli Bills Clintons í öldungadeild í dag Enn mikil óvissa um til- samkomulag um það í lokafriðarvið- ræðum þeirra við Israela sem á að ljúka 4. maí. Hann kvaðst ennfremur vera hlynntur því að reynt yrði að ná málamiðlunarsam- Lipkin-Shahak komulagi við Sýr- lendinga í deilunni um Gólan-hæðirnar og sagði að semja þyrfti um framtíð öryggissvæða Isra- elshers í suðm’hluta Líbanons. Lipkin-Shahak sagði að Netanyahu gerði sér fulla grein fyrir þeim hætt- um, sem Israelum stafaði af innbyrðis ági’einingi þeiira um friðarsamning- ana við Palestínumenn, en hefði kosið að notfæra sér klofninginn í pólitísk- um tilgangi. „Eitt Yom Kippur-stríð er nóg,“ sagði hann og skírskotaði til átakanna árið 1973 sem komu ísrael- um í opna skjöldu. Netanyahu var fljótur að svara gagmýni Lipkins-Shahaks og sakaði hann um „grófar persónulegar árás- ir“ sem jöðraðu við hatursáróður. Afkvæmið vék fyrir sjónvarpinu TILRAUN starfsmanna dýi’a- garðsins í Sankti Pétursborg til að kenna órangútan-apapari hvernig ala skyldi upp nýfædd- an unga þeirra hefur farið alger- lega út um þúfur. Varð hún til þess að karlinn er orðinn sjón- varpssjúklingur og kvenapinn hefur ekki hirt um afkvæmið, að því er segir í Moscow Times. Þegar órangútanapai’nir Monika og Rabu eignuðust af- kvæmi datt starfsmönnunum það snjallræði í hug að kenna þeim umönnun þess með því að sýna þeim myndbönd um apa- uppeldi. Monika og Rabu urðu hins vegar svo hugfangin af skjánum að þau hættu að sinna afkvæminu og Rabu varð raunar svo upptekinn af tækninni að hann hirti heldur ekki um frúna. Því reiddist hún svo mjög að starfsmennimir sáu sig til- neydda til að draga úr sjón- varpsglápi apanna til að halda heimilisfriðinn og tryggja að fjölskyldan leystist ekki upp.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.