Morgunblaðið - 07.01.1999, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 07.01.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 4gf. BJORN MAGNUS ARNÓRSSON + Björn Magnús Arnórsson fæddist í Reykjavík 16. janúar 1945. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 24. desember og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 5. janúar. Kveðja frá Alþýðu- sambandi Islands Fyrir hönd Alþýðu- sambands Islands vil ég kveðja góðan fé- laga og samverkamann í starfi ís- lenskrar verkalýðshreyfíngar. Björn Arnórsson, hagfræðingur Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, var mörgum félögum okkar og starfsfólki ASÍ að góðu kunnur enda lágu leiðir víða saman. Fjöl- margir úr hreyfingu okkar kynnt- ust Birni fyrst fyrir alvöru þegar hann tók þátt í gerð þjóðarsáttar- samninganna árið 1990. Þau kynni voru upphaf að farsælu samstarfi sem einkenndist alla tíð af vináttu og heilindum. Björn var félagi og vinur í baráttunni og skiptu þá skipulagslínur hreyfíngarinnar engu máli. Björn var einlægur áhugamaður um að efla samtök launafólks og treysta með auknu samstarfi. Öll störf hans báru vott um þennan áhuga. Við minnumst samstarfsins við Björn með hlý- hug og þakklæti. Mannkostir Björns léttu margt verkið, ekki síst síkvik kímnigáfa hans og til- svör. Hann var óhræddur við and- streymi og skjótur til svara. Það skarð sem myndast hefur með fráfalli Björns Arnórssonar er vandfyllt. Fjölskyldu Björns, ástvinum og samstarfsfólki votta ég mína dýpstu samúð. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ. Við Björn erum búin að vera samstarfsmenn um langt skeið. Fljótlega eftir að ég kom að trún- aðarstörfum fyrir Starfsmannafé- lag ríkisstofnana og stétt mína var Björn ráðinn hagfræðingur hjá SFR. Hann var eldhugi og mjög góður kennari, en hann kenndi m.a. á trúnaðarmanna- námskeiðum hjá SFR. Það hafði ekki verið kennt mikið um vísitöl- ur og önnur flókin samningakerfi í sjúkraliðanáminu, en eitt vissum við þá eins og nú, að nám okkar væri vanmetið og meiri laun þyrftum við að fá fyrir vinnu okk- ar. Björn kenndi okkur að fleiri stéttir væru til en við ein og öll yrðum við að taka tillit hvert til annars. Hann var einlægur verka- lýðssinni, vel að sér í sögu verka- fólks, og vann af heilindum fyrir hugsjónina um bætt kjör verka- fólks alla tíð. Okkur greindi stundum á um leiðir en þó held ég að við höfum alltaf haft sömu markmið. Oft var heitt í kolunum í BSRB- húsinu, mikið þjarkað og kannski stór orð látin falla á stundum, en aldrei lét Björn mig gjalda þess þó ég hafi á stundum verið full stóryrt í hita leiksins og oftar en ekki veit ég að hann tók málstað minn þegar öðrum þótt nóg um orð mín. Það var líka oft glatt á hjalla í BSRB-húsinu og átti Björn sinn þátt í að skapa það andrúmsloft. Eins og gefur að skilja var þar oft spenna þegar tekist var á um jafn, mikivæg at- riði og kaup og kjör, sem er mjög þýðingarmikið fyrir lífsframfæri fólks, en alltaf gat Björn fundið flöt á því að slaka á þessari spennu með glaðlegum orðum sín- um, ef til vill fundið okkur eitt- hvað annað til að rífast um, svo sem hvort Fram væri besta íþróttafélagið, eða sagt eitthvað í hálf- kæringi um jafnan rétt kvenna og karla, en með því vissi hann að hann gat komið á heitum og líflegum umræðum. Björn var afskap- lega barngóður mað- ur og hafði mikla þol- inmæði gagnvart börnum. Það má segja að hann hafi varðveitt barnið í sjálfum sér. Hann tal- aði til barna af mikilli virðingu og dáðist ég oft að því að þótt hann hafi haft mikið að gera hafði hann aldrei svo mikið að gera að hann hefði ekki tíma fyrir börnin sem komu inn í BSRB- húsið eins og oft kom fyrir þegar um slíka félagsmiðstöð er að ræða. Oft voru börn þeirra sem voru að vinna við samningagerð þreytt og pirruð. Ég vil þakka Birni fyrir mín börn og hlýju hans í þeirra garð í gegnum tíðina og jafnframt þakka Birni samfylgd- ina og sendi konu hans, móður og börnum og öðrum í fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Sigríður Kristinsdóttir sjúkraliði. Góður ferðafélagi er fallinn í valinn. Björn Arnórsson, hag- fræðingur Bandalags starfs- manna ríkis og bæja, lést á að- fangadag, skömmu eftir að hann greindist sjúkur af krabbameini. Björn var snar til verka, ráðagóð- ur og hugmyndaríkur maður, sem gott var að leita til. Honum voru því falin fjölmörg verkefni til úr- lausnar í þágu opinberra starfs- manna, gekk hann þeirra erinda bæði hérlendis sem erlendis, af mikilli samviskusemi. Skömmu eftir að Björn kom heim frá hagfræðinámi í Svíþjóð 1974 hófst samstarf okkar hjá St- arfsmannafélagi ríkisstofnana. Reyndist hann góður félagi sem vann sér traust allra sem kynnt- ust verkum hans, ljúfu viðmóti og framúrskarandi greiðvikni. Verk- efni hans jukust því stöðugt, ekki aðeins fyrir félagsmenn SFR heldur og ekki síður fyrir aðra op- inbera starfsmenn. Þegar svo var komið réðst Björn til heildarsam- takanna BSRB, sem var starfs- vettvangur hans til æviloka. Ég sakna vinar í stað. Björn var skemmtilegur, pínulítið kald- hæðinn sögumaður sem naut þess að vera til. Alls staðar þar sem hann var á vettvangi ríkti gleði yf- ir frásögnum hans og hnyttnum tilsvörum, sem komu vinnufélög- um hans oft til að brosa og kæt- ast. Björn skorti aldrei söguefni og tók sjálfan sig mátulega alvar- lega. Þær vora ófáar sögurnar sem hann skemmti okkur með af samskiptum sínum við Stínu sína. Eiginkonuna sem reyndist honum góður samferðamaður og félagi til æviloka. Það skorti því ekki um- ræðuefnið eða viðmælendur þar sem hann skipaði sér til borðs og bekkurinn ævinlega þéttsetinn. Björn var kappsmaður mikill og gaf sig ógjarnan fyrr en í fulla hnefana. Hann var eldhugi og tók óskiptan þátt í stúdentapólitík ,,‘68-kynslóðarinnar“, sem setti óumdeilanlega mark sitt á sam- tímann. Hann og Kristín áttu margar góðar stundir saman sem spilafélagar, en Björn var góður og kappsfullur bridgespilari og tók þátt í fjölmörgum spilakeppn- um, með góðum árangri. A yngri árum var Björn þátttakandi í keppnisíþróttum, þar til námið kom í veg fyrir framhald þess. Hann var til æviioka óbilandi Framari og einn af „Framherj- um“ þess félags, áhugasömum hópi manna er styðja í blíðu sem stríðu við bakið á keppnisliðum Fram. Hann var lífsnautnamaður, sem naut þess að vera til og gleðj- ast á góðri stundu. Þær voru ósviknar gleðistundirnar á vellin- um, þegar félaginu hans vegnaði vel, ekki síst ef höfuðandstæðing- arnir, Valur eða KR, áttu hlut að máli. Börn hans og Kristínar voru honum mjög hjartfólgin. Þrátt fyrir að þau Kristín ættu ekkert barn saman voru börnin sem þau áttu hvort um sig honum mjög kær. Það var ósvikin væntum- þykja og ást sem lýsti sér í hverju orði og öllum athöfnum Björns, er hann minntist á afabörnin sín. Oft urðu þau honum að umræðuefni, ekki síður en stoltið yfir eigin börnum og framgangi þeirra. Ég votta Kristínu, börnum þeirra, öðrum ættingjum og vin- um mína innilegustu samúð. Okk- ur verður það til huggunar að hafa notið návistar við góðan dreng, minning hans mun lýsa okkur veginn um ókomin ár. Gunnar Gunnarsson. Er okkur barst sú harmafregn að Björn Amórsson, vinur okkar til margra ára, hefði látist á að- fangadagskvöld helltist yfir okkur mikill söknuður. Við vissum að hann hafði verið mjög veikur að undanförnu en engan bilbug var á honum að finna og hann var reiðu- búinn að berjast til þrautar eins og alltaf. Að vonum hrannast upp minningar frá mörgum ferðum okkar saman í Munaðarnes og á Laugarvatn, að ógleymdri Sví- þjóðarferðinni, ávallt var Björn með sinn óbilandi húmor og spila- gleði og kom ósjaldan öllum í kringum sig í gott skap. Björn og kona hans Kristín voru svo lánsöm að hafa sömu áhugamál, sem voru golf og brids, en við þekktum betur hans mikla áhuga og keppnisskap við bridsborðið, sem ævinlega fylgdi kímni og hlýja. Við minnumst hans með þakklæti fyrir allar samveni- stundirnar og skondnu athuga- semdirnar um lífið og tilveruna. Kristín mín, þú og fjölskyldur ykkar hafa misst mikið, megi Guð styrkja ykkur og blessa í framtíð- inni. Litli hjónaklúbburinn. Kveðja frá Landssanibandi kúabænda Fljótlega eftir að þjóðarsáttar- samningarnir voru gerðir hófst samstarf aðila vinnumarkaðarins og bændasamtakanna. Af hálfu BSRB varð Björn Arnórsson fljótt virkur í þessu starfi, bæði í stefnumörkunarnefndum og verð- lagsnefndum. Það liggur í hlutar- ins eðli að oft var verulegur ágreiningur innan þessara nefnda og á stundum hékk samstarfið á bláþræði. Það var á þessum vett- vangi sem við kynntumst Birni Arnórssyni. Hann var fær hag- fræðingur, sem jöfnum höndum taldi að landbúnaðurinn hlyti að lúta sömu grundvallarlögmálum og annar atvinnurekstur, og var tilbúinn að viðurkenna þá sér- stöðu sem eðli atvinnugreinarinn- ar hlýtur að skapa henni. Vissulega færðu bændur fórnir í tengslum við þjóðarsáttina, en tæpast leikur vafi á að kúabænd- ur njóta nú þessarar þátttöku. Hæfileikar Björns Ai’nórssonar áttu umtalsverðan þátt í að þetta samstaf hélst og fyrir það eru honum færðar þakkir. Hann var traustur maður sem aldrei hvikaði frá gefnu loforði og ekkcrt var fjær honum en að leita eftir stundarvinsældum með því að fela þann vanda sem við var að glíma hverju sinni. Við þökkum Birni Arnórssyni samfylgdina og vottum fjölskyldu hans samúð. Guðmundur Lárusson og Þórólfur Sveinsson. GUÐMUNDUR ÍSAR ÁGÚSTSSON + Guðmundur ís- ar Ágústsson fæddist í San Francisco í Kali- forníu hinn 16. október 1985. Hann lést af slysförum á Snæfellsnesi 27. desember síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Dóm- kirkjunni 4. janúar. Kveðja frá Melaskóla Það var fríður hópur sex ára barna sem hóf skólagöngu í Mela- skóla haustið 1991. í þeim hópi var tápmikill snáði, bjartur yfirlitum og fríður sýnum. Þetta var Guðmundur Isar Ágústsson, eða Gúndi eins og hann var ætíð kallaður. Guðmundur átti eftir að vera hjá okkur í sjö vetur, og á þeim tíma vann hann hug og hjörtu okkar allra sem kynntust honum. Hann var vænn drengur, gæddur góðum gáf- um og naut vinsælda í hópi skólafé- laga sinna. Guðmundur hafði ekki síst ágæta tónlistarhæfileika og naut sín meðal annars vel þegar þurfti að undirbúa og æfa skemmtiatriði. Eftinninnan- leg er ferð sjöundu bekkinga að Úlfljótsvatni í janúar fyrir tæpu ári. Þar stóðu Guðmundur og félagar hans fyrir kvöldvöku sem varð hin frábærasta á allan hátt. Þá var í síð- astliðnum aprílmánuði haldin árleg vorskemmtun fyrir allan skólann og skemmtu Guðmundur og bekkjarfé- lagar einnig í það sinn með kvar- tettsöng. Var gerður sérstaklega góður rómur að söng þeirra. I maílok kvöddum við ái’gang Guðmundar. Börnunum var þökkuð góð samvinna árin sín í skólanum og óskað velfamaðar á unglingsárun- um sem blöstu við rík af íyrirheit- um. Stutt er á milli Melaskóla og Hagaskóla sem nú tók við efnileg- um nemendahópi. Sáum við Guð- mund því oft með skólafélögum sín- um. Hann heilsaði jafnan glaðlega og var ævinlega bjart yfir honum. Það er erfiðara en orð fá lýst að sjá á eftir ungum efnispilti sem átti framtíðina fyrir sér, en minning hans lifir í hugum okkar er áttum því láni að fagna að vera samvistum við hann. Fyrir hönd allra í Melaskóla sendum við ástvinum Guðmundar ísars innilegustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þá í sorg þeirra. Helga Þorkelsdóttir, Kristjana Skúladóttir og Svanlaug Vilhjálmsdóttir kennarar og Ragna Ólafsdóttir skólastjóri. Maður er enn ekki farinn að trúa því að hann Gúndi sé látinn. En þar sem maður verður að trúa því telur maður sér trú um að hlutverki hans sé ekki lokið heldur sé honum ætlað eitthvert annað hlutverk sem guð einn veit hvað er. Hann gaf mikið af sér og færði manni mikla fyllingu með návist sinni, eins fann maður það að honum leið vel hjá mér og við sóttum hvor í annan. Við hjónin buðum honum að vera hjá okkur á hverju sumri á Þórs- höfn eftir að við fluttum þangað 1994 og var hann alltaf hjá okkur í mánuð. Ymist með mér í starfi eða inni í sveit hjá systursyni konunnar minnar. Hann tók þátt í ungmenna- félagsstarfinu með umf. Langnes- inga, en þar var ég yfirleitt að þjálfa fótbolta og frjálsar á sumrin. Það var eitt af því skemmtilegasta hjá honum að keppa með krökkun- um á Ásbyrgismóti og Króksmóti í fótbolta. Þetta eru skemmtileg mót sem taka heila helgi og voru svona útilegur okkar áhugamál. Eins tók hann virkan þátt í skátastarfinu hér á Þórshöfn með skátafélaginu Goð- um. Þegar við vorum að undirbúa okkur fyrir mót reynd- um við að koma því við að Gúndi gæti verið með okkur á þeim. Hann var til dæmis með okkur Goðum á skátamótinu í Öxnadal 1995 og Landsmótinu á Úlfljótsvatni 1996! Síðastliðið sumar fór- um við í útilegu út á Langanes þar sem við ásamt systursyni kon- unnar minnar og viríÞ mínum úr Borgarfirð- inum fylgdumst með eggjamönnum við störf og aðstoðuðum þá við talningu eggja. Við gerðum tilraun til að veiða í heiðavötnunum og fylgd- umst með fálkanum veiða sér til matar. Gúndi var fljótur að læra hjá mér skátasöngvana þótt að þeir væru með fióknum texta sumir. Á leiðinni norður á Þórshöfn, hvort sem það var úr Reykjavík sem hann kom með mér eða þegar ég sótti hann inn á Akureyri, sungum við saman þessi lög og í uppáhaldi var lagið „Bakpokinn" eftir Ti-yggva Þorsteinsson, svo og lagið ,Afi minn dó úr kvefi í gær“, se»i var svona ekta „skáta-rugllag“ sem hann hætti ekki að syngja fyrr en hann var búinn að ná öllum textan- um. Gúndi kom alltaf með fiðluna með sér og hélt stundum tónleika inni í Hvammi fyrir krakkana þar. Hann hafði gott tóneyra og var fljótur að ná lögum á fiðlu eða pí- anó. Einu sinni kom hann í heim- sókn til okkar norður um páska því hann vildi fá að sjá Þórshöfn í vetr- arbúningi og koma með okkur í vélsleðaferð. . Þegar ég starfaði hjá Fjölnii Grafarvogi sem þjálfari í knatt- spyrnu sótti hann knattspymuskóla hjá mér og þannig fylgdi hann mér oft í starfi. I vetur höfum við skrif- ast á í gegnum tölvunetið þar sem hann fékk tölvu svona fyrirfram í fermingargjöf. Ég fann að Gúnda leið orðið vel í skólanum og var far- inn að eignast magrga góða vini sem hann sagði mér frá. Litla systir Gúnda sagði mér að ef hún setti lítið ljós í kistuna hjá Gúnda þá myndi hann vakna aftur. Það væri óskandi að það væri satt. Ég læt því að lokum fylgja skáta- sálm eftir Hrefnu Tynes sem er svona: r P**- Tendraðu lítið skátaljós, láttu það lýsa þér. Láttu það efla andans eld og allt sem göfúgt er. Pá verður litla Ijósið þitt ljómandi stjarnan skær. Lýsið lýð alla. tíð nær og fjær. Okkur hjónunum þótti Gúndi al- veg einstakur persónuleiki og kurt- eis. Hann gleymdi aldrei að þakka fyrir sig. Var svo nægjusamur með peningana sína og sparsamur. Guð gefi foreldrum, systkinum, fjöl- skyldum og vinum hans Gúnda styrk til þess að yfirstíga söknuð- inn. Stefán Már Guðmundsson og Dagbjört Aradóttir. ^ Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, .<• hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- _ um. ■*,}
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.