Morgunblaðið - 07.01.1999, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.01.1999, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Uppreisnarmenn í Sierra Leone bjóða skilyrt vopnahlé Segjast hafa náð Freetown á sitt vald Abidjan, Freetown. Reuters. UPPREISNARMENN í Afríku- ríkinu Sierra Leone, sem í gær- morgun gerðu atlögu að höfuð- borginni Freetown, buðust til að lýsa yfir vopnahléi ef Foday San- koh, einum helsta leiðtoga upp- reisnarmannanna, yrði sleppt úr haldi. Sagði Sam Bockarie, liðsfor- ingi í her uppreisnarmanna, að þeim hefði tekist að ná mestum hluta Freetown á sitt vald og að Ahmad Tejan Kabbah, forseti landsins, hefði sennilega flúið borgina. Allir starfsmenn Samein- uðu þjóðanna í Freetown voru fluttir þaðan í gær vegna átak- anna. Haft var eftir í íbúum í borginni að kveikt hefði verið í lögreglustöð borgarinnar, auk sendiráðs Níger- íu og öngþveiti virtist ríkja í borg- inni. Staðfestu fulltrúar hjálpar- stofnana í landinu í gær að upp- reisnarmenn hefðu náð forsetahöll- inni á sitt vald en þó var nokkuð óljóst hvort þeir hefðu tryggt sér yfirráð í borginni að fullu. Fyrr um daginn höfðu talsmenn ECOMOG- friðarsveitanna, en liðsmenn þeirra koma flestir frá Nígeríu, sagst hafa hrandið atlögu uppreisnarmanna, sem hófst í fyrrinótt. Hvöttu þeir íbúa borgarinnar að halda sig inni við og hafa sig hæga á meðan bar- dagar geisuðu. Herforingjastjóm sú sem velti Kabbah úr sessi í maí 1997 naut stuðnings Sankohs og uppreisnar- manna hans en í febrúar 1998 hrifsuðu ECOMOG-friðarsveitirn- ar völdin úr greipum herforingja- stjómarinnar og skipuðu Kabbah forseta á nýjan leik. Var Sankoh síðan dæmdur til dauða iyrir land- ráð i réttarhöldum sem lauk í októ- ber á liðnu ári. „Ef Sankoh er sleppt úr haldi og leyft að snúa aftur til manna sinna þá eram við reiðubúnir til að lýsa yfir vopnahléi,“ sagði Bockarie í gær. Þegar Sankoh er orðinn frjáls maður, sagði Bockarie, „mun leið- toginn segja þjóðinni hvað ber næst til bragðs að taka.“ Vísindamenn upp- götva innbyggða vekjaraklukku London. Reuters. VÍSINDAMENN við háskólann í Liibeck í Þýskalandi sögðust í gær hafa uppgötvað hvað veldur því að sumt fólk virðist hafa inn- byggða vekjaraklukku, sem gerir því kleift að vakna af sjálfsdáðum nálægt fyrirfram ákveðnum tíma. Vísindamennirnir segja að þeg- ar fólk búist við að vakna á ákveðnum tíma verði skömmu áð- ur aukning á magni hormónsins adrenókortikótrópins í blóðinu, sem líkaminn er vanur að losa til að bregðast við streitu. Leiða þeir getum að því að losun horm- ónsins skömmu fyrir lok svefns endurspegli ómeðvituð viðbrögð líkamans við áiaginu sem felst í því að vakna. I rannsókninni voru fimmtán ungir og hraustir sjálfboðaliðar sendir í háttinn á miðnætti. Eitt kvöld var fólkinu sagt að það yrði vakið klukkan sex að morgni. Hin kvöldin tvö var þátttakendum sagt að þeir fengju að sofa til klukkan níu, en annan þeirra morgna var svindlað á þeim, og þeir vaktir þremur klukkustund- um fyrr, eða klukkan sex. í ljós kom að magn hormónsins byijaði að aukast mun fyrr þegar fólkið bjóst við að vakna klukkan sex en þegar það hélt sig geta sofið til níu. Greint er frá niðurstöðum rannsóknarinnar í breska vís- indatímaritinu Nature. Fjöldamorð í lýðveldinu Kongó Skæruliðar segja bardaga hafa átt sér stað Goma. Reuters. SKÆRULIÐAR í lýðveldinu Kongó, sem berjast gegn stjórn Laurents Kabilas í lýðveldinu Kongó, neituðu í gær fregnum þess efnis að þeir hefðu myrt um 500 óbreytta borgara um áramót- in. Þeir sögðust hins vegar hafa drepið hundrað Hútúmanna í hörðum bardaga sem háður hefði verið þar sem meint fjöldamorð áttu að hafa átt sér stað. Fyrr um daginn höfðu leiðtogar skæraliðanna íyrh-skipað rann- sókn á fullyrðingum þess efnis að Franskur lögmaður kærir Castro París. Reuters. FRANSKUR lögmaður lagði í gær fram kæru á hendur Fidel Castro, forseta Kúbu, fyrir glæpi gegn mannkyninu, pynt- ingar, ólöglegar handtökur og eiturlyfjasmygl. Lögmaðurinn, Serge Lew- isch, vill draga Castro fyrir rétt vegna aftöku herforingj- ans Antonios de la Guardia, sem var sakaður um aðild að eiturlyfjahneyksh er skók kommúnistastjórnina á Kúbu árið 1989, og leggur hann kærana fram í umboði ekkju hans, Ileönu. Lewisch fer einnig með mál Frakkans Pi- erres Golendorfs og Kúbu- mannsins Lazaros Jordanas, sem sátu í fangelsi í fjögur ár á 8. og 9. áratugnum fyrir að gagnrýna stjómvöld á Kúbu. Lewisch fetar í fótspor spænska rannsóknardómarans Baltazars Garzóns, sem krafð- ist framsals Augustos Pin- ochets, fyrrverandi einræðis- herra í Chile. Kæran gegn Ca- stro var lögð fram við embætti æðsta rannsóknardómara Parísar, sem þarf að taka af- stöðu til hennar áður en unnt er að hefja rannsókn málsins. fjöldamorð á borguram hefði verið framið. Sagði Wamba di Wamba, foringi skæraliðanna, við frétta- menn að ef fréttimar væra sannar þá yrði hinum seku refsað. Hafði fréttastofa á vegum kaþ- ólskra trúboða í Kongó, MISNA, skýrt frá því á þriðjudag að skæraliðar af ættbálki tútsa hefðu ráðist á íbúa þorpsins Makabola í Kivu-héraði með sveðjum og byss- um, og myrt að minnsta kosti 500 óbreytta borgara, þar á meðal konur, böm og gamalmenni. Morðin hefðu verið framin dagana 30. desember til 1. janúar, í hefnd- arskyni vegna árásar manna af Mai Mai-ættbálknum á tútsa skömmu áður. I yfirlýsingu frá samtökum skæraliða (RCD) í gær var því hins vegar haldið fram að 400 Hútúmenn frá Búrúndí hefðu farið inn í austurhluta Kongó á gamlárs- dag og að skollið hefði á mikill bar- dagi þar sem skæraliðar RCD felldu meirihluta Hútúmannanna. Reuters Á ferð til fljótsins helga INDVERSKI hindúamunkurinn Mahanta Shi- vagiri ekur hér bifhjóli í Kalkútta. Munkurinn hefur ekið rúma 2.000 km frá Kanya Kumari, syðst á Indlandi, og er á leið til Gangasagar, þar sem Ganges-fljót rennur í Bengalflóa. Munkar og fleiri hindúar fara þangað á hverju ári til að baða sig í Ganges, sem er heilagt fljót í augum hindúa. Þjóðverjar teknir við formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins Utanríkisráðherra Þýzka- lands hvetur til umbótaátaks Segir að Þjóðverjum sé umhug- að um stækkun ESB til austurs Bonn. Reuters. JOSCHKA Fischer, utanríkisráð- herra Þýzkalands, hvatti á þriðju- dag leiðtoga Evrópusambandsríkj- anna til að grípa tækifærið sem skapazt hefði við hina vel heppn- uðu stofnun hins sameiginlega gjaldmiðils til að koma mikilvæg- um innri endurbótum ESB í höfn í snatri. Þjóðverjar tóku við formennsk- unni í ráðherraráði ESB af Austur- ríkismönnum um áramótin, og fóru formennskuskiptin formlega fram í Vín á mánudag með því að Fischer „tók við keflinu“ á táknrænan hátt úr hendi Wolfgangs Schiissels, utanríkis- ráðherra Austurríkis. Sem framvörður þýzku stjórnarinnar á meðan á formennsku- misseri Þýzkalands stendur sagði Fischer á blaðamannafundi í Bonn að glufa hefði opnazt til að taka hinn óleysta ágreining um uppstokkun fjármála ESB fóstum tökum, en endurskoð un fjármálanna er ekki sízt nauð synleg til að samband- ið verði í stakk búið til að taka inn ný aðildar- ríki. En ef ekki skyldi takast að ná sam- komulagi um umbóta- tillögumar, sem oftast era nefndar „dagskrá 2000“ (Agenda 2000) og snúa að uppstokk- un landbúnaðar- og byggðasjóðakerfis ESB, auk fjárlagara- mma þess fyrir tíma- bilið 2000-2006, á Josclika Fischer þýzka formennsku- misserinu má gera ráð íyrir að það verði erfiðara - og dýr- ara - að stækka ESB síðar. Telur Tyrki eiga kost á aðild að ESB Fischer vísaði því á bug að hin nýja ríkisstjórn jafnaðarmanna og Græningja væri lítið umhugað um að nýjum aðildarríkjum verði hleypt inn í ESB fljótlega. „Hver er valkosturinn við stækkun til austurs? Enginn,“ tjáði Fischer fréttamönnum. Hann tók einnig fram að Tyi-kland ætti að hans áliti kost á ESB-aðild í framtíðinni. Hann ítrekaði ennfremur þá skoðun þýzkra ráðamanna, að Efnahags- og myntbandalag ESB væri ekki markmið í sjálfu sér heldur væri það „einn áfangi til viðbótar á leið til pólitísks sam-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.