Morgunblaðið - 07.01.1999, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 07.01.1999, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg Vorverk að vetri MEÐ hækkandi sól er rétt að garðyrkjumaður hjá Kirkjugörð- huga að vorverkunum. Á mynd- um Reykjavíkur, runna í Foss- inni snyrtir Þorgeir Adamsson, vogskirkjugarði. Málflutningur gegn eiganda Gallerís Borgar hefst í dag Ákærður fyrir fjár- svik og skjalafals MÁLFLUTNINGUR hefst í dag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í máli embættis ríkislögreglustjóra á hendur Pétri Þór Gunnarssyni framkvæmdastjóra og eiganda Gallerís Borgar. Pétri Þór er gefið að sök að hafa staðið að fjársvikum og skjalafalsi með því að hafa sem framkvæmda- stjóri og eigandi Gallerís Borgar blekkt þrjá viðskiptavini gallerísins til að kaupa hver eitt málverk sem hann bauð til sölu með röngum upplýsingum í uppboðsskrám um að þau væru eftir Jón Stefánsson og með falsaðri höfundarmerkingu þar um á málverkin, á tveimur list- munauppboðum á vegum Gallerís Borgar. I fyrsta lagi er Pétri Þór gefið að sök að hafa á uppboði fimmtudag- inn 1. september 1994 selt málverk eftir danska málarann Wilhelm Wils, sem ákærði hafði sjálfur keypt á listmunauppboði Bruun Rasmussen í Vejle á Jótlandi í Danmörku 18. ágúst 1994, auk kostnaðar og virðisaukaskatts, eft- ir að hafa afmáð höfundarmerk- ingu danska listmálarans og blekkt ónefndan kaupanda til að kaupa málverkið sem málverk eftir Jón Stefánsson á 396 þúsund krónur. Einnig er Pétri Þór gefið að sök að hafa á sama uppboði selt mál- verk eftir Wilhelm Wils, sem ákærði keypti sjálfur á listmuna- uppboði Bruun Rasmussen í Kaup- mannahöfn 7. júní 1994 og greiddi fyrir það ásamt öðru verki á upp- boðinu 4.500 danskar ki-ónur, auk kostnaðar og virðisaukaskatts, eft- ir að hafa afmáð höfundarmerking- una og blekkt ónefndan kaupanda til að kaupa málverkið sem mál- verk eftir Jón Stefánsson á 473 þúsund krónur. Einnig er Pétri Þór gefið að sök að hafa á uppboði fyrirtækisins sunnudaginn 21. maí 1995 á Akur- eyri, selt málverk eftir danska mál- arann Wilhelm Wils, sem ákærði keypti sjálfur á listmunauppboði Bruun Rasmussen í Vejle á Jót- landi, á 1.600 danskar krónur, auk kostnaðar og virðisaukaskatts, eft- ir að hafa afmáð höfundarmerking- una og blekkt ónefndan kaupanda til að kaupa málverkið sem mál- verkið sem málverk eftir Jón Stef- ánsson á 50 þúsund krónur. Telst þessi háttsemi ákærða varða við 3. málsgrein 159. greinar og 248. greinar almennra hegningai'laga númer 19 frá 1940. Meint brot á bókhaldslögum Þá er Pétri Þór gefið að sök að hafa brotið lög um bókhald og lög um sölu notaðra lausafjái-muna með því að hafa vegna kaupa í júní og ágúst 1994 á áðumefndum lista- verkum, ekkert fært í bókhaldi fyr- irtækisins um kaup þeirra eða mót- töku og ekkert fært um kaup eða sölu þeirra listmuna sem seldir voni á uppboði á vegum fyrirtækis- ins á Akureyri í maí 1994. Þá hafi hann rekstrarárin 1994 til 1996 rekið sölu notaðra lausafjármuna án tilskilins leyfis og látið undir höfuð leggjast við móttöku og sölu listmuna að halda skipulega skrá þeirra listmuna sem bárust fyrir- tækinu og færa uppgjör í samræmi við það. Þá hafi hann rekstrarárin 1995 og 1996 látið undir höfuð leggjast að skrá viðskipti fyrirtæk- isins þegar keyptir voru listmunir erlendis og halda til haga tekju- skráningargögnum árið 1996 og færa bókhald það rekstrarár. Alþingi fslendinga kom saiiian til fundar á ný í gær Ovissa um afgreiðslu fiskveiðifrumvarpa ALÞINGI Islendinga kom saman að nýju í gær eftir rúmlega tveggja vikna jólahlé en í upphafi þingfundar gagnrýndu stjórnar- andstæðingar m.a. að frumvörpin tvö um breytingar á lögum um stjóm fiskeiða, sem lögð voru fram í kjölfar dóms Hæstaréttar í des- ember sl., skyldu ekki vera tilbúin til annarrar umræðu. Fmmvörpin væm enn til umfjöllunar í sjávar- útvegsnefnd Alþingis og óljóst hvenær meirihlutinn myndi skila nefndaráliti. Bentu stjómarand- stæðingar m.a. á að þing hefði ver- ið kallað saman óvenju snemma í janúar að þessu sinni til þess eins að ræða um og afgreiða fyrrnefnd fiskveiðiframvörp en þegar til kastanna kæmi væra þau ekki til- búin úr sjávarútvegsnefnd. „Með þessu ráðslagi er verið að sóa tíma þingmanna," sagði Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður þingflokks óháðra, í samtali við Morgunblaðið og benti m.a. á að þingmenn not- uðu gjarnan jólahlé til þess að fara út í kjördæmin. Hann útskýrði ennfremur að starfsáætlun Alþing- is gerði ráð fyrir því að þingið kæmi ekki saman að nýju fyrr en 19. janúar nk. en að stjómarliðar hefðu íyrir jól samþykkt, án sam- ráðs við stjórnarandstæðinga, að fresta þingi tii 6. janúar til þess eins að fjalla um fiskveiðifram- vörpin. Steingrímur, sem og fleiri stjórnarandstæðingar, var auk þessa ósáttur við það í gær að ekki lægi fyrir hvaða breytingartillögur meirihluti sjávarútvegsnefndar hygðist leggja fram á framvörpun- um tveimur þótt vitað væri að þær yrðu einhverjar. Skýringin á því væri þó líklega sú að meirihlutinn hefði ekki enn náð saman um breytingamar. Steingrímur taldi Morgunblaðið/Kristinn JÓLAFRÍ þingmanna var tveimur vikum styttra en áætlað hafði verið. Uttekt á nýting-u lítilla orkuvera ÁRNI Johnsen, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, hefur lagt fram á AI- þingi tillögu til þingsályktunar um úttekt á nýtingu lítilla orkuvera. Meginefni tillögunnar er að Alþingi álykti að fela ríkisstjóminni að láta gera úttekt á nýtingu og þróunar- möguleikum lítilla orkuvera þar sem kannað verði hvort hagkvæm uppbygging lítilla sjálfstæðra orku- vera gæti samanlagt jafnast á við stóra virkjun. „Á Islandi eru nú um 300 lítil orkuver, flest við býli í sveitum. Hefur þeim fækkað nokkuð á und- anfömum áram, en þau voru um 1.000 fyrir 30 árum,“ segir þing- maðurinn í greinargerð. „Fram- leiðslugeta litlu orkuveranna er um- talsverð, eða yfir 4 megavött, og yf- irleitt meiri en einstök býli geta nýtt. Hefur nýting orku frá þeim því ekki verið sem skyldi. Menn sjá sér þó hag í því að setja upp slík orkuver og era túrbínusmiðir hlaðn- ir verkefnum fram yfir aldamót." Árni segir ennfremur að virkjanir og orkumál séu nú mikið til umræðu og því þyki honum rétt áður en ráð- ist verði í framkvæmdir við stóra virkjun á hálendinu að það verði kannað hvort ekki sé hagkvæmara að styrkja lítil orkuver vítt um land- ið og nýta betur það rafmagn sem þau framleiða og geta framleitt. „Líklegt er að með tiltölulega litlum tilkostnaði væri hægt að framleiða 30-60 megavött í litlum orkuveitum við bæjarlækinn heima, eins og sagt er, eða á við það sem Nesjavalla- virkjun eða Hitaveita Suðurnesja framleiða.“ fiá ALÞINGI eðlilegt að fundum Alþingis yrði frestað í samráði við stjórnarand- stöðu og að þing hæfist ekki að nýju fyrr en framvörpin væra til- búin úr nefnd. Annað væri einfald- lega tímasóun. í umræðum um þessar athuga- semdir Steingríms og annarra þingmanna stjórnarandstöðunnar við upphaf þingfundar í gær benti Davíð Oddsson forsætisráðherra m.a. á að stjórnarandstöðunni hefði verið umhugað um að af- greiða títtnefnd sjávarútvegsfrum- vörp sem fyrst. Þá benti Olafur G. Einarsson, forseti Alþingis, á að ekki yrði boðað til þingfundar í dag nema fyrir lægju nefndarálit frá sjávarútvegsnefnd. Þingsályktunartillaga Orkuverð lækki til garðyrkju ÁRNI Johnsen og Sturla Böðvars- son, þingmenn Sjálfstæðisflokks, hafa lagt fram á Álþingi tillögu til þingsályktunar um lækkun orku- verðs til íslenskrar garðyrkju. Meginefni tillögunnar er að Alþingi álykti að ríkisstjórnin beiti sér fyr- ir lækkun orkuverðs til íslenskrar garðyrkju. „Garðyrkja, sérstaklega ræktun í gróðurhúsum, er vaxandi atvinnugrein á Islandi og mikill vaxtarbroddur er í faginu sem kalla má græna stóriðju," segir í tillögunni. „Það stendur þó í vegi fyrir frekari vexti gi-einarinnar að orkuverð til garðyrkjunnar er of hátt. Með lækkun orkuverðs til garðyrkju má gera ráð fyrir að notkun aukist og þá opnast fjöl- margir mögleikar. Til dæmis verð- ur markaðssetning erlendis á ís- lensku grænmeti raunhæf með lækkuðu orkuverði, en eiturefna- notkun í garðyrkju á íslandi er sú minnsta í allri Evrópu. Garðyrkju- bændur eru nú stórkaupendur raf- orku og þegar orkunotkun þeirra er borin saman við orkunotkun stóriðju verður að hafa hliðsjón af því að íslensk garðyrkja er mjög umhverfisvæn og hefur jákvæð áhrif á loftslagsbreytingar og dreg- ur úr neikvæðum áhrifum. Þá er garðyrkjan vaxtarbroddur í dreifð- ari byggðum landsins og stuðlar þannig að byggðajafnvægi." Katrín Fjeldsted Magnús Árni Magnússon Tveir nýir þingmenn TVEIR nýir þingmenn tóku form- lega sæti á Alþingi við upphaf þing- fundar á Alþingi í gær. Katrín Fjeld- sted er orðin þingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík en hún kemur inn á þing í stað Friðriks Sophusson- ar sem tekið hefur við starfi forstjóra Landsvirkjunar. Þá hefur Magnús Árni Magnússon tekið sæti á Alþingi fyrir jafnaðarmenn í Reykjavík, en hann kemur inn á þing vegna fráfalls Ástu B. Þorsteinsdóttur. Þórunn Sveinbjömsdóttir sat sem varaþing- maður Magnúsar fram til áramóta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.