Morgunblaðið - 07.01.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.01.1999, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur fellt úr gildi ákvörðun Barna- vemdarnefndar Reykjavíkur og Barnavemdarráðs um að svipta konu í Reykjavík forræði yfír 4 ára bami sínu. Telur dómurinn, sem var fjölskipaður, að úrskurðir barna- vemdai’yfíi’valda í máli konunnar hafí brotið gegn ákvæðum barna- verndarlaga og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga, þar eð ekki hafí verið fullreynt hvort önnur og væg- ari úrræði en forsjársvipting hefðu verið vænleg til árangurs. Pá hafí við ákvörðun um sviptinguna verið byggt á þeim álitum læknis og sál- fræðings sem komu móðurinni illa en litið fram hjá jákvæðum umsögn- um geðlæknis, sem hafði stundað hana um 8 ára skeið, og tilsjónar- manns, sem hafði reglulega komið á heimilið meðan barnið bjó hjá móð- ur sinni, án þess þó að þeim um- sögnum hefði verið hnekkt. Pví var fóstursamningur sem bamavernd- aryfirvöld höfðu gert við hjón vegna bamsins felldur úr gildi með dómin- um og forsjá falin móðurinni að nýju. Öryrki af geðrænum ástæðum í endurriti dómsins, þar sem nöfn aðila og dagsetningar sem snerta málið hafa verið máð út, kemur fram að afskipti bamavemdaryfir- valda hafí hafist á meðgöngutíma vegna þess að móðirin hafí verið 75% öryrki af geðrænum ástæðum og átt sér sögu um misnotkun áfengis og lyfja. Tilsjónarmaður hafði eftirlit með heimilinu eftir fæðingu barnsins, en eftir að lögregla kallaði til barna- vemdaryfirvöld vcgna. ölvunará- stands á heimilinu ákvað formaður bamavemdamefndar að barnið yrði tekið úr umsjá móður sinnar og kyrrsett hjá móðurömmu sinni. Vegna heilsuleysis ömmunnar Forsjársvipting og fóstursamningur felld úr gildi Barnaverndaryfírvöld talin brotleg í héraðsdómi gagnvart móður sem svipt var forræði barns síns allt þar til barnið var tekið af henni. „Þá er það svo, að mati dómsins, að gögn, sem telja verður þýðingar- mikil og stefnanda í hag, hafi nær algjörlega verið sniðgengin af bamavemdaryfirvöldum við úr- lausn málsins og það án þess að efn- islegu gildi þeirra hafi verið hnekkt,“ segir dómurinn, sem telur að vegna þess að álit læknisins sem hafði stundað konuna stangaðist á við álit sálfræðings og geðlæknis á vegum barnavemdaryfirvalda hafi borið að afla frekari gagna í málinu áður en ákvörðun um forsjársvipt- ingu yrði tekin. Þá segir að dómurinn telji að ekki hafi verið sýnt fram á það undir rekstri málsins að hugað hafi verið nægilega að því að beita öðr- um og vægari úrræðum gagnvart konunni en forsjársviptingu, „en fráleitt verður að telja að slíkar að- gerðir hafí verið fullreyndar," segir dómurinn og telur að í ljósi grein- argerðar félagsráðgjafa til barna- verndarnefndar og fyrrgreindra já- kvæðra umsagna hefði vægari meðferð en forsjársvipting getað verið vænleg til árangurs. Nær- tækt sé að álykta að með góðu móti hefði verið unnt að koma heimilis- lífi móðurinnar og barns hennar í betra horf. ákvað nefndin síðan að koma barn- inu á vistheimili barna og þar var það síðan kyrrsett eftir að fyrir lá skýrsla geðlæknis, sem barna- verndarnefnd lagði þann skilning í, að andlegt atgervi móðurinnar væri með þeim hætti að efasemdir væra um að hún gæti alið upp barn. í framhaldinu undirgekkst móðir- in rannsóknar- og kennsluvistun fyrir sig og bamið í íbúð á vistheim- ili barna, en var síðan svipt forsjá á árinu 1997 og veittur umgengnis- réttur 5 sinnum í viku á vistheimil- inu í klukkustund í senn. Umgengn- in var síðan minnkuð í klukkustund einu sinni í viku en loks eina og hálfa klukkustund, einu sinni á ári, að sumarlagi í húsakynnum Félags- málastofnunar, undir eftirliti. Barn- inu hafði þá verið komið til fóstur- foreldra, en þangað var móðurinni bannað að hringja og senda gjafír nema í tengslum við jól og afmælis- dag. Fjölskipaður dómur Móðirin krafðist þess að forsjár- sviptingin yrði felld úr gildi, en til vara að umgengnisréttur hennar yrði aukinn. I niðurstöðum dómsins segir að samkvæmt athugasemdum í grein- argerð við þá lagagrein, sem nú er Kanaríveisla í febrúar ira 39.932 með Heimsferðum Sem fyrr tryggja Heimsferðir þér besta verðið til Kanaríeyja í vetur og nú höfum við tryggt okkur viðbótargistingu á þessum vinsælasta áfangastað íslendinga í sólinni á hreint frábærum kjörum hvort sem þú vilt skreppa f viku í sólina eða dvelja í tvær eða þrjár vikur við bestu aðstæður. Miðborgargisting á Paraiso íbúðarhótelinu á ensku strönd- inni, þar sem þér býðst nú vikuferð á hreint ótrúlegum kjörum. Að auki bjóðum við viðbótargistingu á Vista Faro í Sonnenland. Bókaðu til Kanarí í vetur meðan enn er laust. 25. grein barnaverndarlaga, skuli úrskurður um forsjársviptingu því aðeins kveðinn upp, að ekki sé unnt að beita öðram aðgerðum til úrbóta, eða að þær hafí verið fullreyndar án nægilegs árangurs. Þar sé um að ræða stuðningsúrræði í samvinnu við heimili barnsins eða eftirlit án samþykkis, sem geti falið í sér fyrir- mæli um aðbúnað og umönnun bams, svo sem dagvistun, skóla- sókn, iæknisþjónustu, meðferð eða þjálfun. Markmið bamavemdar sé að tryggja börnum og ungmennum við- unandi uppeldisskilyrði. Skuli það gert með því að styrkja uppeldis- hlutverk fjölskyldunnar og beita úr- ræðum til verndar einstökum böm- um þegar það eigi við. Jafnan skuli taka það ráð í bamavemdarstarfi sem ætla megi að bami eða ung- menni sé fyrir bestu og því þann veg hagað að stuðli að stöðugleika í upp- vexti bama og ungmenna. Þess skuli jafnan gætt að almenn úrræði til stuðnings við fjölskyldu séu reynd áður en komi til þvingunarúrræða. Síðan segir að dómurinn telji að niðurstaða sálfræðimats, sem for- ræðissviptingin hafi m.a. verið studd við, hafi verið lítt afgerandi og byggst um of á vangaveltum um framtíðarhæfni móðurinnar til að veita barninu eðilegt uppeldi, en ekki komi fram að hún hafi verið óhæfur uppalandi þegar matið var gert. Þá komi hvergi fram í geð- rannsókn geðlæknis á móðurinni að hann telji hana ófæra um að hafa uppeldi bams með höndum, aðeins hugmyndir um líklega vanhæfni nema veralegur stuðningur komi til. Geðlæknir sem þekkti til lagðist gegn sviptingu Dómurinn telur að niðurstöður þessara sérfræðinga verði ekki lagðar til grundvallar forsjársvipt- ingu; allra síst þegar fyrir liggi um- sagnir annars geðlæknis, þar sem áherslur í niðurstöðum eru mjög á annan veg. I þennan geðlækni hafi barnaverndarráð vitnað í úrskurði um forræðissviptingu á þann hátt að í andstöðu sé við gögn frá lækn- inum og vitnisburð hans fyrir dómi. Dómurinn segir að hafa beri í huga að þessi læknir hafi haft móðurina til læknismeðferðar frá 1989, en rannsóknir hinna tveggja hafi verið gerðar á mjög skömmum tíma. Þá segir að samkvæmt stjórn- sýslulögum hvíli skylda á stjórn- völdum að sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörð- un er tekin í því. Barnaverndaryfir: völd séu bundin af þessari reglu. í ljósi þeirra ríku hagsmuna, sem í húfi eru þegar til álita kemur að taka ákvörðun um forsjársviptingu, sé mjög brýnt að vandað hafi verið til rannsóknar máls í hvívetna og að ákvörðun um sviptingu forsjár sé að því leyti byggð á einkar traustum grunni. Byggt á neikvæðum umsögnum en jákvæðar sniðgengnar Að mati dómsins styðst ákvörðun barnaverndarnefndar og Barna- vemdarráðs um að móðirin skyldi svipt forsjá barns síns ekki við slíka rannsókn. Þá segir að ekki verði betur séð en að „ýmis atriði sem höfðu neikvæð áhrif á stöðu stefn- anda í málinu, hafi verið lögð til grundvallar við úrlausn þess án þess að leitast hafi verið við að færa viðhlítandi sönnur fyrir þeim,“ segir í dóminum. Rakin eru atriði sem séu í beinni andstöðu við lýsingu, sem tilsjónarmaður heimilis kon- unnar hafði gefið, en tilsjónarmað- urinn hafí haft regluleg samskipti við hana um eins og hálfs árs skeið, Áfrýjað til Hæstaréttar Auk þess að brjóta gegn 10. grein stjómsýslulaga telur dómurinn að við meðferð málsins hafi hjá barna- vemdaryfirvöldum verið brotið gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórn- sýslulaga og gegn ákvæðum 17. og 25. gr. barnaverndarlaga. Krafa móðurinnar um að hnekkja forsjár- sviptingunni var því tekin til greina og fóstursamningi barnaverndaryf- irvalda og hjóna, sem tekið höfðu við barninu, rift. Oskar Thorarensen, héraðsdóms- lögmaður, flutti málið fyrir hönd móðurinnar, en Hjörleifur Kvaran, borgarlögmaður, tók til varna fyrir barnaverndaryfirvöld. Dóminn kváðu upp héraðsdómar- arnir Þorgeir Ingi Njálsson, dóms- formaður og Finnur Toi-fi Hjörleifs- son, ásamt meðdómsmanninum Tómasi Zoéga, geðlækni. Gunnar Sandholt hjá Félagsmála- stofnun Reykjavíkur, sagði í samtali við Morgunblaðið, að barnaverndar- yfirvöld hefðu áfrýjað þessum dómi héraðsdóms til Hæstaréttar. Verð kr. 39.932 M.v. hjón með 2 böm, 2 -11 ára, í Paraiso, 1 vika, 1. febrúar. Verð kr. 49.960 M.v. 2 fullorðna í Paraiso, 1 vika, 1. febrúar. Verð kr. 59.960 Ferðir til Kanarí í vetur: 1. feb. 8. feb. 22. feb. 1. mars. 15. mars. 22. mars. 29. mars. 5. apríl. 19. apríl. M.v. 2 fuilorðna f Vista Faro- smáhýs- unum, 2 vikur, 8. febrúar. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is . HÁVAÐAMÆLINUM hefur verið komið upp á þaki Hljómskálans. Morgunblaðið/Golli HÁVAÐAMÆLIR, sem mæla á hávaða frá flugvélum í aðflugi inn á norður-suður braut Reykjavíkurflugvallar, hefur verið komið fyrir á þaki Hljóm- skálans. Annar mælir verður settur upp innan tíðar við end- ann á Suðurgötunni. Að sögn Brands Guðmundssonar, deildar- verkfræðings hjá flugleiðsögu- sviði Flugmálasfjórnar, var unn- ið að uppsetningu búnaðarins í desember og tengingu lokið í gær og má búast við fyrstu nið- Hávaðamælir í Hljómskála- garðinum urstöðum innan skamms. „Verkfræðistofnun Háskóla Is- lands mun sjá um reksturinn á mælitækjunum og úi’vinnsluna. Niðurstöður verða bornar saman við útreiknuð hljóðspor, sem er fræðileg vinna og gerir ráð fyrir að ákveðið mikill hávaði komi frá ákveðnum tegundum flug- véla. Mælar af þessu tagi eru notaðir til að kvarða hljóðsporin og staðfesta að þau séu rétt,“ sagði Brandur. Mælirinn við Suðurgötu verð- ur hreyfanlegur og verður flutt- ur til eftir þörfum. Mælarnir mynda nokkurs konar geisla yfir flugbrautina og þann hávaða sem vélarnar mynda þegar þær fljúga yfir flugbrautina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.