Morgunblaðið - 17.01.1999, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999 23
Samfylking á
Reykjanesi
Nítján gefa
kost á sér
ALLS bjóða 19 einstaklingar sig
fram í prófkjöri Samfylkingar á
Reykjanesi sem fram fer 5.-6.
febrúar nk. en framboðsfrestur
rann út kl. 22 á fostudagskvöld.
Af hálfu Alþýðubandalagsins
taka eftirtalin þátt í prófkjörinu:
Kristín Á. Guðmundsdóttir,
Lúðvík Geirsson, Magnús Jón
Arnason, Sigríður Jóhannes-
dóttir, Skúli Thoroddsen,
Trausti Baldursson og Valþór
Hlöðversson. Af hálfu Alþýðu-
flokksins: Ágúst Einarsson,
Gestur Páll Reynisson, Guð-
mundur Árni Stefánsson, Jón
Gunnarsson, Magnús Nordal,
Rannveig Guðmundsdóttir,
Valdimar Leó Friðriksson.
Fimm kvennalistakonur taka
þátt í prófkjörinu, en það eru
Álfheiður Jónsdóttir, Birna Sig-
urjónsdóttir, Dóra Hlín Ingólfs-
dóttir, Ragna Björnsdóttir og
I’órunn Sveinbjarnardóttir.
0,6% lands-
manna skiptu
um trúfélag
1998
ALLS voru gerðar 1.622 breyt-
ingar á trúfélagsskráningu á
síðasta ári, sem svarar til þess
að 0,6% landsmanna hafí skipt
um trúfélag, samkvæmt upplýs-
ingum Hagstofunnar. 841 maður
sagði sig úr þjóðkirkjunni á síð-
astliðnu ári, eða 0,3% þeirra sem
í henni voru.
Á móti 841 brottskráðum voru
205 nýskráðir í þjóðkirkjuna og
brottskráðir voru því 636 ein-
staklingar en höfðu verið 912 ár-
ið 1997 og 2.237 árið 1996.
Brenndist af
logandi bensíni
RÚMLEGA tvítugur maður á
Bolungarvík brenndist illa á
höndum og í andliti þegar log-
andi bensín slettist á hann í iðn-
aðarhúsnæði nálægt miðnætti á
fimmtudagskvöld.
Félögum mannsins tókst að
slökkva eldinn og fjarlægja log-
andi föt af honum og var hann
fluttur á sjúkrahúsið á Isafu’ði.
Maðurinn var fluttur til Reykja-
víkur á föstudag og liggur á
lýtalækningadeild Landspítal-
ans. Lögreglan á Bolungarvík
telur að þykkur kuldasamfest-
ingur, sem maðurinn vai’ klædd-
ur í, hafí komið í veg fyrir að
hann brenndist ekki verr en
raun varð á.
Forðastu óharfa álaq
-hindraðu verki í hálsi, öxlum og höndum
• Stuðningur og hreyfanleiki eru lykilatriði á góðum skrifborðsstól.
• Hjá CKS faerðu persónulega og faglega ráðgjöf.
• Fjölbreytt úrval og verð við allra hœfi.
• Áklœði að eigin vali.
• Fimm ára ábyrgð.
Armur með musaplötu
Husgagnagerð
Smiðjuvegi 2, Kópavog
Netfang: gks@gks.is
http. www.gks.is
Stmi 567 21 10
Fax 567 1688
Útsalan hefst á morgun • Útsalan hefst á morgun
HERRAFATAVERSLUN
BIRGIS
FAKAFEN 11 • SIMI 553 1170