Morgunblaðið - 17.01.1999, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 17.01.1999, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Gardínuefni frá 100 ki. pr. meter Tilbúnir kappar frá 500 kf. pr. meter Lofthá stofuefni frá 750 kf. pr. meter Falleg ný tvíofin efni - 20% afsláttur og margt fleira. GARDIMBUÐIN Skipholti 35 - sími 553 5677 Opió kl. 10-18 Opió laugardaga kl. 10 -14 I NÁMSKEIÐ Á VORÖNN 1999 TUNGUMÁL BÓKBAND 11 vikna námskeið 10 vikna námskeið 22 kennslustundir 40 kennslustundir Kennt er í byrjenda-, framhalds- og GLERLIST talæfingaflokkum 10 vikna námskeið ENSKA 40 kennslustundir Enska I Enska I frh Enska II Enska II frh KÖRFUGERÐ 1 viku námskeið 10 kennslustundir Enska IV frh LEIRMÓTUN Tal- og leshópur 6 vikna námskeið DANSKA Danska I - II 25 kennslustundir Tal- og leshópur SKRAUTRITUN I NORSKA 9 vikna námskeið Norska I - II 18 kennslustundir Tal- og leshópur LJ ÓSMYNDATAKA SÆNSKA 3 vikna námskeið Sænska I - II Sænska III 9 kennslustundir FRANSKA FRAMKÖLLUN OG Franska I STÆKKANIR Franska I frh. 2 vikna námskeið Franska III 16 kennslustundir ÍTALSKA ítalska I ítalska frh SILFURSMÍÐI (skartgripagerð) 9 vikna námskeið SPÆNSKA 36 kennslustundir Spænska I Spænska I frh TRÉSMÍÐI Tal- og leshópur 9 vikna námskeið ÞÝSKA 36 kcnnslustundir Þýska I TRÖLLADFIG Þýska I frh. 4 vikna námskeið Tal- og leshópur KATALÓNSKA 16 kennslustundir ÚTSKURÐUR ÍSLENSKA 9 vikna námskeið íyrir útlendinga 36 kennslustundir Byrjendur Framhald VATNSLITAMÁLUN 11 vikna námskeið 8 vikna námskeið 22 kennslustundir 32 kennslustundir VIDEOTAKA INTERNETIÐ OG 1 viku námskeið TÖLVUPÓSTUR 14 kennslustundir 1 viku námskeið 8 kennslustundir BÚTASAUMUR 6 vikna námskeið POWER POINT 24 kennslustundir 1 viku námskeið 8 kennslustundir BÚTASAUMSTEPPI 4 vikna námskeið GÓMSÆTIR 18 kennslustundir bauna-, pasta- og FATASAUMUR grænmetisréttir 6 vikna námskeið 3 vikna námskeið 24 kennslustundir 12 kennslustundir KÁNTRÝ - FÖNDUR FITUSNAUTT 6 vikna námskeið GRÆNMETISFÆÐI 24 kennslustundir 3 vikna námskeið 12 kennslustundir BÓKHALD smærri fyrirtækja FRÖNSK MATARGERÐ 4 vikna námskeið 2 vikna náinskeið 24 kennslustundir 8 kennslustundir VÉLRITUN ÍTÖLSK MATARGERÐ 9 vikna námskeið 2 vikna námskeið 18 kennslustundir 8 kennslustundir RÉTTRITUN OG HÖNNUN Á ELDHÚSI MÁLFRÆÐI OG BAÐI 8 vikna námskeið LITUR OG LÝSING 16 kennslustundir 2 vikna námskeið 12 kennslustundir T ölvunámskeið: WORD og WINDOWS GÖNGUFERÐIR í fyrir byrjendur 4 vikna iiámskeið ÓBYGGÐUM 20 kennslustundir 2 vikna námskeið 8 kennslustundir WORD II 3 vikna námskeið HEIMILISGARÐURINN 20 kennslustundir 2 vikna námskeið 8 kennslustundir EXCEL fyrir byrjendur TRJÁKLIPPINGAR 3 vikna námskeið 1 viku námskeið 20 kennslustundir 6 kennslustundir Starfsmenntunarsjóðir ýmissa stéttarfélaga styrkja félagsmcnn sína til náms í Kvöldskóla Kópavogs, t.d. BSRB, BHMR, Dagsbrún og Framsókn - stéttarfélag, VR og Starfsmannafélag Kópavogs. Kennsla hefst 25. janúar. Innritun og upplýsingar um námskeiðin II.- 2I.janúar kl. 17-21 í símum 564 1507, 564 1527 og 554 4391 og á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandsskóla. Frelsi og velferð „Engin hætta væri á, að menn lítilsvirtu frelsið, efalmenn tilfinning væri fyrir því, að frjáls þroski einstaklingseðlisins sé ekki aðeins einn þáttur menningar, lærdóms, menntunar og andlegs lífs, heldur einnig nauðsynleg forsenda alls þessa. “ John Stuart Mill: Frelsið. Algengustu rökin sem nú heyrast fyr- ir nauðsyn frelsis og samkeppni í við- skiptum eru þau að frelsið komi á endanum öllum einstaklingum til góða. Þetta eru ekki mjög sannfærandi rök. Ekki er þar með sagt að frelsi í viðskiptum sé ekki af hinu góða. Þetta eru bara ekki góð rök. Sterkustu rökin fyrir því að frelsi í viðskiptum - sem og á öðrum sviðum - sé eftirsóknar- vert eru þau, VIÐHORF að frelsi er -------- forsenda vel- Eftir Kristján ferðar fólkg. G. Amgrímsson að f61k fáj að gera það sem hugur þess og sköpunargáfa stendur til og þroska þannig sjálft sig. Fátt er manni óheil- næmara en að framkvæmda- gleði manns sé heft. Fáir hafa gert þessum rök- um betri skil en John Stuart Mill gerði í Frelsinu. En hvers vegna eru þessi rök svona sannfærandi? Vegna þess, að þau skírskota til velferðar sem hinna æðstu gæða, og ekki verður séð að neitt geti skipt meira máli en velferð. „Því hvað verður meira eða betra sagt um nokkra skipan mann- lífsins, en að hún geri mönnum kleift að öðlast sem mestan þroska? Og hvað er verra en að varna mönnum þessa?“ spurði Mill. Hér eru því lögð að jöfnu velferð og þroski. Að það, að fá að þroskast sem einstaklingur á eigin forsendum sé það sem mestu skipti í lífinu. Líklega verða fáir til að neita þessu, en þetta eru ekki þau rök sem oft- ast er haldið fram fyrir nauð- syn þess að auka frelsi á sem flestum sviðum mannlífsins. Oftar er talað um neytandann og það hvað hann hagnist mik- ið á frelsinu. Það er að segja, frelsið er núorðið talið vera fyrst og fremst spuming um hagnað. Sennilega er þetta bara eitt einkennið á neyslusamfélaginu. Kannski er þetta meginein- kenni þess. Æðsta gildi neyslu- hyggjunnar er hagnaður. Æðsta gildi í þeirri merkingu að önnur gildi - til dæmis vel- ferð - eru einungis eftirsóknar- verð að því marki sem þau ' stuðla að þessu æðsta gildi, hagnaði. Sama á nú orðið við um frelsið, það er eftirsóknar- vert vegna þess að það stuðlar að hagnaði. Af einhverjum ástæðum grunar mig að Mill hafi snúið sér við í gröfinni. Það er manni varla til aukins þroska að geta keypt sem mest; eða geta valið úr sem flestum vörumerkjum (þótt slíkt sé auðvitað gaman). Að geta þroskað sjálfan sig sem neytanda er ekki það sama og að geta þroskað sjálf- . an sig sem einstakling. Nema kannski í samfélagi þar sem neysluhyggja er ríkj- andi lífsviðhorf og hagnaður er það sem á endanum er eftir- sóknarverðast af öllu og allt miðar að. Það er kannski þarna sem misskilningurinn hefur orðið til; maður er farinn að setja jafnaðarmerki á milli „einstaklings“ og „neytanda“. Það sem Mill kallaði „einstak- lingseðli“ er farið að jafngilda „neyslumunstri“; það er að segja, það sem mann langar til að kaupa er orðið skilgreining- in á því hver maður er. En vandinn við þetta er bara sá, að markaðurinn stuðlar alls ekki að fjölbreytni, heldur öf- ugt. Það er óhagkvæmt að neytendur séu mjög ólíkir. Best er ef þeir eru allir eins að eðlisfari - það er að segja, kaupa allir það sama - því þá þarf ekki að rogast með úi*val á lager. Þess vegna eru hvers- konar metsöluvörur hið mesta þarfaþing. Þannig stangast markaðshyggjan á við það grundvallaratriði í allri frels- isumræðu að maður eigi að geta ráðið því sjálfur hvað maður gerir, í hvaða átt maður þroskast. Oheft markaðs- hyggja - rétt eins og allar „hyggjur" sem verða algildar - leitast á endanum við að steypa alla einstaklinga í sama mót, og með vægðarlausri kröfu sinni um hagkvæmni spornar hún gegn óheftum og fjölbreyttum þroska einstak- linganna. Og ef nánar er að gáð kemur í ljós að markaðurinn tryggir ekki einu sinni afkvæmi sínu, neytandanum, eiginlegt frelsi: Eina leiðin til að geta þroskast á sinn eigin máta sem neytandi er að geta keypt hvað sem mann langar í. En til að geta það þarf maður að vera ríkur - ef maður er fátækur hefur maður bara efni á sömu ódýru fjöldaframleiðslunni og allir hinir og steypist þar með í sama mótið og þeir. Maður hefur þá ekki keypt vöruna af því að mann langaði í nákvæm- lega hana, heldur einfaldlega vegna þess að maður hafði ekki efni á öðru. Valið var alls ekki frjálst. Þannig gildir það sama um hagkvæmniskröfu markað- arins og Mill sagði um tískuna: „Jafnvel þegar að því kemur að gera sér eitthvað til skemmt- unar, er fyrst hugsað um, hver venjan sé. [...] Menn verða ófærir um að láta í ljósi ein- lægar óskir eða njóta náttúr- legrar ánægju. Þeir glata eigin skoðunum og tilfinningum.“ Frelsi á markaði er engu að síður af hinu góða. Það er af hinu góða af því að það gerir þeim fjölmörgu sem hafa áhuga á og/eða vit til að stunda viðskipti kleift að þroska hæfi- leika sína og gera það sem þá langar til. En það eru ekki allir þannig.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.