Morgunblaðið - 17.01.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999 47'
3
AFMÆLI
BRYNJOLFUR
JÓNSSON
Brynjólfur Jónsson,
fyrrverandi skipstjóri,
Droplaugarstöðum í
Reykjavík, fæddist á
Höfðabrekku í Mýrdal
17. janúar 1899, en þar
bjuggu foreldrar hans:
Jón Brynjólfsson frá
Litlu-Heiði, fæddur
1865, og kona hans,
Rannveig Einarsdóttir
frá Strönd í Meðal-
landi, f. 1867. Jón
Brynjólfsson átti m.a.
ættir að rekja í Rang-
árvallasýslu til sr. Ög-
mundar Högnasonar
og Salvarar Sigurðardóttur, einnig
til Sigríðar Sturludóttur frá Þóru-
stöðum í Grímsnesi. Rannveig frá
Strönd átti ættir að rekja til Ka-
ritasar Jónsdóttur, stjúpdóttur sr.
Jóns Steingi-ímssonar, og eigin-
manns hennar, Þorsteins Eyjólfs-
sonar, bónda á Vatnsskarðshólum.
Frá þeim hjónum er mikill ættbogi
kominn.
Rannveig og Jón Brynjólfsson
áttu níu börn. Af þeim komust 7 á
legg og er Brynjólfur sá eini af
systkinunum sem enn er á lífi. Hin
voru: Ólafur, f. 1895, var giftur
Elísabetu Ásbjörnsdóttur, bæði lát-
in, Magnús, f. 1893, var giftur Hall-
dóru Asmundsdóttur, bæði látin,
Þorgerður, f. 1897, var gift Einari
Erlendssyni, bæði látin, Guðrún,
fædd 1900, gift Guðmundi Þor-
steinssyni, bæði látin. Einar, f.
1902, hann missti fyrri konu sína en
giftist síðari konu sinni, Kristínu
Pálsdóttur, bæði látin. Yngsta barn
þeirra Rannveigar og Jóns Brynj-
ólfssonar var Steinunn, f. 1905, var
gift Valmundi Björnssyni, þau eru
bæði látin.
Árið 1906 fiuttu foreldrar Brynj-
ólfs frá Höfðabrekku til Víkur í
Mýrdal, en Jón Brynjólfsson sem
hafði lært trésmíði, hafði byggt
íbúðarhús undir Víkurbökkum, fyr-
ir fjölskyldu sína. Þorpið í Vík var
þá í örum vexti. Eignarhlut sinn í
Höfðabrekkunni höfðu þau hjónin
selt Björgvini Vigfússyni sýslu-
manni, sem hafði aðsetur á Höfða-
brekku þau þrjú ár, sem hann
gegndi þar sýslumannsembætti.
Það varð að ráði, að Brynjólfur
Jónsson yrði eftir hjá sýslumanns-
hjónunum, en hann var þá átta ára
gamall. - Frá Höfðabrekku lá leið
Brynjólfs að Hemru í Skaftár-
tungu, þar sem hann var í sveit sem
léttadrengur um nokkurt skeið.
Var Brynjólfur síðar í Mörk undir
Eyjafjöllum, á annað ár. Þaðan lá
svo leiðin til Víkur í foreldrahús.
Brynjólfur Jónsson dvaldi heima
fram yfir áramótin.
Á fyrstu áratugum þessarar ald-
ar var lífsbaráttan hörð hjá mörg-
um. Enda þótt menn væru farnir að
sjá móta fyrir skímu betri tíma. Sá
sem þessar línur ritar man vel, þeg-
ar ungir menn héldu úr Víkinni í
verið, til Reykjavíkur eða á Suður-
nesin, skömmu eftir áramótin, fóru
þeir æði oft gangandi með pokann
sinn á bakinu. Slíkar ferðir tóku oft
nokkra daga, enda fáar ár brúaðar.
Brviijólfur Jónsson dvaldi heima
fram yfir áramót 1916, þá seytján
ára, en honum fannst nú mál komið
að hleypa heimdraganum. Hann
slóst í hóp með mönnum á leið í ver-
ið og var ferðinni heitið til Reykja-
víkur. Lagt var upp á hestum, en
þegar kom að Bitru í Flóa, voru
hestarnir fluttir til baka. Var þá
ekki um annað að ræða en að halda
ferðinni áfram á tveimur, jafnfljót-
um, með pokann sinn á bakinu. Gist
var á Kolviðarhóli og daginn eftii-
var komið til Reykjavíkur.
Eftir að hafa gist eina nótt í
Reykjavík, hélt Brynjólfur til Suð-
urnesja. Fékk hann þar skiprúm á
litlum mótorbáti. Var hann ráðinn
til vors árið 1916. Að vertíð lokinni
fékk Brynjólfur greitt vertíðar-
kaupið: Eitt hundrað krónur. Það
þótti gott fyrir óvaning. Hann flutti
síðan til Reykjavíkur og komst í
skiprúm á togaranum
Mars. Var hann skip-
verji á honum á vertíð-
inni og síðan á síld um
sumarið. Brynjólfur
fór svo austur í Vík um
haustið með dýrmætar
krónur í veskinu. Aft-
ur var haldið til
Reykjavíkur eftir ára-
mótin 1917. Brynjólfur
fékk þá skiprúm á tog-
aranum Ingólfi Arnar-
syni. Fór hann heim til
Víkur um vorið og
dvaldi þar fram í janú-
ar 1919. Vann þar við
ýmis störf, m.a. sjóróðra. Eftir ára-
mótin lagði Brynjólfur af stað fót-
gangandi frá Vík ásamt öðrum fé-
laga og var ferðinni heitið til
Reykjavíkur.
Þessi ferð gekk slysalaust, hún
tók nokkra daga og var þá gist á
bæjum. í Reykjavík átti Brynjólfur
víst skipiúm, hjá Hjalta Jónssyni
(Eldeyjar-Hjalta) hann hafði tryggt
honum ráðningu á togarann
Belgaum. Var Brynjólfur á þessu
skipi fram á haust 1919, en hóf nám
í Stýrimannaskólanum haustið 1920
og tók þaðan skipstjórapróf, vorið
1921. Brynjólfur kostaði að öllu
leyti sjálfur námið í Stýrimanna-
skólanum.
Eftir að námi lauk hafði hann
fasta búsetu í Reykjavík og stund-
aði sjómennsku. Hann var á ýmsum
togurum á vetuma og var eftirsótt-
ur, enda harðduglegur og ósérhlíf-
inn. Á sumrin var hann skipstjóri á
síldarskipum og aflaði vel, var
stundum í hópi þeirra sem mest öfl-
uðu.
Á árinu 1932 urðu mikil þáttaskil
í lífi Brynjólfs, er hann giftist Mar-
inu Guðmundsdóttur (Maju). Hún
var dóttir Guðmundar Guðmunds-
sonar sjómanns og konu hans, Jó-
hönnu Magnúsdóttur, ættaðrar úr
Álftaveri. Þau voru systkinabörn
Maja og Jón Gíslason alþingismað-
ur í Norðurhjáleigu. Maja og
Brynjólfur eignuðust ekki börn en
Brynjólfur átti soninn Svein Hilm-
ar, f. 1930, með Svanhvíti Sveins-
dóttur. Maja og Brynjólfur ólu upp
tvö börn, Brynjólf Má, son Sveins
Hilmars og Guðríði dóttur Ólafs
bróður Maju. Guðríður giftist
bandarískum manni, Doyle Bisbee.
Þau eiga heima í Oklahoma í
Bandaríkjunum og eiga tvö upp-
komin börn, dótturina Mary og
soninn Donald. Sveinn Hilmar gift-
ist Láru Hafliðadóttur og eignuðust
þau þrjú börn: Kolbrúnu, Svanhvíti
Matthildi og Brynjólf Má. Þá átti
Sveinn Hilmar soninn Hilmar með
Þuríði Jónsdóttur. Brynjólfur Már
giftist Jóhönnu Fjeldsted, þau eiga
einn son, Brynjólf Rafn. Áður átti
Jóhanna einn son, Hjört Fjeldstd.
Maja og Brynjólfur byi-juðu bú-
skap sinn í smekklegri íbúð á Bar-
ónsstígnum, gegnt Landspítalnum.
Eg minnist heimsókna þangað með
foreldrum mínum þegar þau áttu
leið til Reykjavíkur. Hamingja ný-
giftu hjónanna setti mikinn svip á
andrúmsloftið innan dyra. Gestrisni
var svo sjálfsögð, að ósjálfrátt fyllt-
ust menn vellíðan meðan á heim-
sókninni stóð. Þannig hélst þetta
líka eftir að hjónin fluttu í íbúðina á
Bergþórugötu 57 árið 1934 og svo
eftir að þau höfðu flutt í Barmahlíð
árið 1947. Þetta hlýja og einlæga
viðmót fylgdi þeim alla tíð. Heimil-
ishaldið hvíldi að sjálfsögðu mest á
húsmóðurinni. Þar vann Maja mik-
ið og gott verk. Mikill gestagangur
fylgdi þeim hjónum og oft var Maja
ein heima þar sem húsbóndinn var
önnum kafinn á sjónum. Ættingjar
af landsbyggðinni fengu oft húsa-
skjól hjá Maju og Brynjólfi. Sá sem
þessar línur ritar fékk að reyna
hina miklu gestrisni frænda síns og
hinnar góðu konu hans, reyndar
fjölskylda hans öll úr Víkinni. Við
stöndum því í mikilli þakkarskuld
við Maju og Brynjólf frænda minn
fyrir þá gestristni sem þau veittu
okkur á árum áður.
Eftir að styrjöldin skall á í sept-
ember 1939, var Brynjólfur á tog-
urum sem sigldu með fisk til Bret-
lands. Ferðir þessar voru stór-
hættulegar enda grönduðu Þjóð-
verjar ekki svo fáum togurum og
manntjón varð mikið. Nokki-u eftir
að Bretar hertóku ísland réðst
Brynjólfur til þeirra sem lóðs við
strendur landsins. Hann var síðar
skipstjóri á bát Bandaríkjamanna í
Hvalfirði, er annaðist flutninga á
varningi, ekki síst vistum og pósti,
skipa í skipalestum sem komu inn í
Hvalfjörð á leið sinni til Sovétríkj-
anna. Hann starfaði fyrir Banda-
ríkjaher fram að stríðslokum 1945.
Árin á eftir var Brynjólfur skip-
stjóri á fiskibátum, bæði á síldveið-
umog trollveiðum.
Árið 1954 hafði Brynjólfur fengið
nóg af sjósókninni og honum var þá
boðið starf á Keflavíkurflugvelli,
fyrst hjá Hammilton-fyrirtækinu og
síðan hjá Islenskum aðalverktök-
um. Gegndi hann þar starfi birgða-
stjóra lengst af og lét ekki af störf-
um fyir en árið 1984, þá áttatíu og
fimm ára að aldri. Þessi langi
starfsferill sýndi tvennt: velmetin
störf Brynjólfs og góða heilsu hans.
Það er með ólíkindum hve lengi
Brynjólfur hélt starfsorku og var
vel á sig kominn. Það sést meðal
annars á því, að hann bjó einn í íbúð
sinni í Barmahlíð til ársins 1994, en
sjöunda nóvember það ár flutti
hann á hjúkrunar- og dvalarheimilið
Droplaugarstaði. Þar hefur hann
unað vel hag sínum, enda nýtur
hann mjög góðrar umönnunar hjá
öllu því góða fólki, sem þar starfar.
Á þessum merku tímamótum í
lífi frænda míns, eigum við Margrét
enga ósk heitari honum til handa,
en að hann fái að halda þeirri góðu
heilsu sem hann hefur, til síðasta
dags.
Erlendur Einarsson.
ff^n FASTEIGNA tf
fHJ MARKAÐURINN
OÐINSGOTU 4. SIMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-18. Netfang: http://habil.is/fmark/
ÁLAGRANDI
Mjög góð 112 fm 4ra herb. íbúð á 3. hæð í nýlegu
fjölbýlishúsi í vesturbænum. Góð stofa, 3 rúmgóð
svefnherbergi. Stórar suðursvalir. Þvottaherbergi í íbúð.
GÓÐ EIGN.
%
OÐINSGOTU 4. SIMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-18. Netfang: http://habil.is/fmark/
Nesbali - Seltjarnarnesi
Einstaklega vandað og vel skipulagt 160 fm einbýlishús
ásamt 43 fm tvöföldum bílskúr. Saml. stofur, 3-4 svefn-
herbergi. Arinn. Gufubað. Stór og falleg ræktuð lóð,
verðlaunagarður. Heitur pottur.
%
EIGN I SERFLOKKI.
J
EIGNAMEDIUMN
__________________________ Startsmenn: Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali, sölustióri,
Þorleiíur SLGuömundsson.B.Sc.. sölum., Guömundur Sigurjónsson lögfr. og lögg.fasteignasali, sl
Stefán Hrafn Stefánsson lögfr., sölum., Magnea S. Sverrisdóttir, lögg. fasteignasali, sölumaður,
Stefán Ámi Auöólfsson, sölumaöur, Jóhanna Valdimarsdóttir, auglysingar, gjaldkeri, Inga Hannesdóttir,
símavarsla og ritari, Ólöf Steinarsdóttir, öflun skjala og gagna, Ragnheiöur D. Agnarsdóttir.skrifstofustört.
Sími 5811 9090 • Fax öítíí 9095 • Síðumúla 2 I
'AR
Um 500 eignir kynntar á alnetinu -www.eignamidlun.is
Opið í dag sunnudag kl. 12-15.
HÚSNÆÐIÓSKAST .flKj
íbúð í lyftuhúsi óskast. Traustur
kaupandi óskar eftir 140-170 fm góðri íbúð í ný-
legu lyftuhúsi miðsvæðis með stæði í bíla-
geymslu. Gott útsýni og húsvörður æskilegt.
Þorragata - staðgreiðsla.
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega
íbúð við Þorragötu. Staðgreiðsla (einn tékki) í
boði.
Klapparstígur - Skúlagata -
staðgreiðsla. Traustur kaupandi óskar
eftir 3ja herb. góðri íbúð með útsýni. Stað-
greiðsla í boði.
íbúð við Kirkjusand óskast.
íslenskur framkvæmdastjóri sem býr í útlöndum
hefur beðið okkur að útvega 100-150 fm íbúð
við Kirkjusand. Staðgreiðsla í boði. Nánari uppl.
veitir Sverrir.
Seltjarnarnes - einbýlishús
ÓSkaSt. íslendingur sem veitir forstöðu
stofnun í útlöndum og verður staddur hér um jól
og áramót óskar eftir 130-150 fm einb. á einni
hæð á Seltjamamesi. Staðgreiðsla í boði.
Einbýli óskast - stað-
greiðsla. Höfum fjársterkan kaupanda að
góðu einbýlishúsi í Þingholtum, vesturborginni
eða miðborginni. Húsið má kosta 25-30 millj.
Staðgreiðsla (ein ávísun) í boði.
FYRIR ELDRI BORGARA £§§
Dalbraut 20 - þjónustuíbúð
Erum með í einkasölu 52 fm 2ja herb. þjónustu-
íbúð á 3. hæð í vinsælu lyftuhúsi, steinsnar frá
Laugardalnum. Ýmiss konar þjónusta í húsinu.
V. 6,9 m. 8295
EINBÝLI WBÍ
Tómasarhagi - hæð (sér-
inng.) Vorum að fá í sölu vandaða um 113
fm neðri sérhæð í traustu steinhúsi. Hæðin
skiptist m.a. í tvær stofur og þrjú herb. Fallegt u*
sjávarútsýni. V. 12,0 m. 8384
Grenimelur - neðri hæð. Snyrti-
leg og björt u.þ.b. 100 fm neðri hseð. íbúðin
skiptist í tvær stofur og tvö herb. Parket. Endur-
nýjað bað. Gjaman skipti á 2ja-3ja í vesturbæ.
Afhending er samkomulag. 8388
4RA-6 HERB. Hfi
Brekkugerði - vandað. Glæsi-
l legt 263 fm einb. á tveimur hæðum. Auk þess
j fylgir 34 fm bílsk. Húsið skiptist m.a. í tvær góð-
i ar saml. stofur með ami og 6-7 herb. Húsinu
hefur verið mjög vel við haldið. V. 23,0 m. 7861
RAÐHÚS
Fjallalind. Vorum að fá í einkasölu um
180 fm tvílyft raðhús. Húsið afhendist í núver-
andi ástandi, tæplega fullbúið að utan en fok-
helt að innan. V. 9,2 m. 8357
Dalsel m. sólstofu. Vandað um
234 fm endaraðhús ásamt stæði í bílag. Á 1.
hæð er snyrting, herb., hol, eldhús, búr og stof-
ur. Á 2. hæð eru 3 herb. , sjónvarpsh., baðherb.
og sólstofa. í kjallara er þvottah., tómstherb.,
bað m. sauna o.fl. Ákv. sala. V. 12,5 m. 6914
HÆÐIR
Sigtún - glæsihæð. Vorum að fá í
einkasölu glæsilega u.þ.b. 120 fm neðri sérhæð
ásamt u.þ.b. 30 fm bílskúr. Aukaherbergi í kjall-
ara. Hæðin hefur öll verið endumnýjuð frá
grunni, parket o.fl. Arinn í stofi. V. 13,3 m. 8387
Ránargata - glæsileg. 4ra-5
herb. nýleg íbúð á 3. hæð í nýlegu húsi. íb.
skiptist í 3 herb., stofu, eldhús, bað, sérþvottah.
og baðstofuloft. Mikil lofthæð er í íbúðinni. Suð-
ursvalir. Afgirtur góður garður. Áhv. 5,3 m. Ákv.
sala. V. 9,7 m. 8383
Efstaland - Fossvogur. Erum
með í einkasölu fallega og bjarta 4ra herb. íbúð
á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi. Suðursvalir. Hús
og sameign í góðu ástandi. V. 8,3 m. 8312
3JAHERB. |
Reynimelur. Vorum aö fá í einkasölu 70 |
fm 3ja herb. á 1. hæð á einum eftirsóttasta f
svæði í Reykjavík. Áhugasamir hafi samband ív
sem allra fyrst. 8377
Kópavogur. Vorum að fá í einkasölu 3ja |
herb. 88 fm íbúð í fjölbýli nálægt verslunarkjarna \j
í Kópavogi. Íbúðín skiptist í forstofu, hol, tvö
svefnherb., eldhús og stofu. Mjög fallegt útsýni ((
til norðurs yfir í Nauthólsvíkina. 8381
2JA HERB. |gg§
Bræðraborgarstígur. Snyrtileg og
björt u.þ.b. 28 fm einstaklingsíbúð í traustu
steinhúsi. Vestursvalir. Ósamþykkt. V. 2,5 m.
8389
Vesturbær. Vorum að fá í einkasölu 50
fm 2ja herb. íbúð á jarðhæð á Gröndunum í
vesturbæ ásamt sérgeymslu á sömu hæð.
Þvottahús og þurrkherb. í sameign á sömu
hæð. Nánast öll parketlögð. Fín fyrir háskóla-
nemann. 8386
Kópavogur. Vorum að fá í einkasölu 2ja
herb. 63 fm íbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli í aust-
urbæ Kópavogs. Snyrtileg og falleg íbúð sem
skiptist í forstofu, svefnherb., baðherb., eldhús
og stofu. Sérgarður til suðurs. Mjög góð sér-
geymsla á sömu hæð. V. 6,2 m. 8385
ATViNNUHÚSNÆÐI f§§
Stórhöfði - atvinnupláss. vor-
um að fá í einkasölu gott iðnaðar- og lager-
húsnæði á götuhæö við Stórhöfðann. Plássið er
u.þ.b. 200 fm og er með ca 3 m lofthasð. Inn-
keyrsludyr. Afstúkuð kaffistofa, snyrting og
skrifstofa. Lóðin er malarborin. V. 10,5 m. 5510