Morgunblaðið - 17.01.1999, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
*
PEUCEOT
Ljón 4 ve.3in.vmrt
Samband Ijóns og steingeitar er algjör
perla. Þótt steingeitin eigi þaö til aö vera
full jarðbundin tekst Ijóninu að lyfta henni
verulega upp. í dag ætti steingeitin aö
fara aðeins út, vera á meöal fólks og finna
sér rétta Ijónið.
J ö F U R NÝBÝLAVEGI S I M I 554 2600
Garðbraut 69a, Garði
Félagsheimili með góðri aðstöðu til að leigja hópum undir fundi eða
annað. Húsið er 274 fm að stærð. Húsnæðið gefur mikla möguleika á
ýmsri starfsemi í húsinu.
Upplýsingar um verð og greiðsluskilmála á Fasteignasölunni, Hafn-
argötu 27, Keflavík, símar 421 1420 og 421 4288.
Túngata 1, Keflavík
Kvikmyndahúsið Félagsbíó, sem er 720 fm að stærð ásamt 1,72 ffn
eignarlóð. Einnig fylgir 600 fm eignarlóð við Tjarnargötu 6 í Keflavík.
Eignir sem gefa mikla möguleika á stækkun eða einhvers annars.
Selst í einu lagi.
Upplýsingar um verð og greiðslukjör á Fasteignasölunni, Hafnargötu
27, Keflavík, símar 421 1420 og 421 4288.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hver þekkir myndina?
ER einhver sem veit hvaðan þessi vatnslitamynd er? Ef
einhver getur gefið þessar upplýsingar þá vinsamlega
haíið samband í síma 568 6277.
Söfnum til
mögru áranna
Norðmenn fundu nýlega
þriðju stærstu olíulind í
Evrópu að því er talið er.
Þeir fundu fjall þar sem er
kíló af gulli í tonninu og
þeir geyma það til mögru
áranna. Það er 100 sinnum
yfir vinnslumörkum að það
borgi sig að vinna það. Nú
ættum við íslendingar að
gera svolítið sniðugt.
Sprengja og búa til stórar
hvelfmgar sem væi-u
margfalt stærri en öll jarð-
göng á íslandi og fara að
fjöldaframleiða vetni út af
allri þeim vatnsorku sem
við eigum. Fara að safna
til mögru áranna eins og
Norðmenn og eiga nægar
vetnisbirgðir þegar fram
líða stundir. Ég spái því að
íslendingar geti farið að
selja straum í kapal hér á
næstu árum og ég held að
ljósleiðarar geti fljótiega
farið að flytja rafeindir
eins og fólk notar ljósleið-
ara í sambandi við síma-
samskipti. Þetta yrðu eng-
in náttúruspjöll ef af slík-
um framkvæmdum yrði.
Nú eru Þjóðverjar byrjað-
ir að nota vetni á bíla.
Jónas B. Gunnarsson.
Eru selir húsdýr?
NU er búið að skila hinum
fræga hval Sigga, Willý
eða Keikó til heimkynna
sinna, enda finnst mörgum
andstyggilegt að fanga
villt dýr og setja þau í búr
mannskepnunni tii
„ánægju“.
Mér verður oft hugsað
til þessarar „ánægju" þeg-
ar ég fer í húsdýragarðinn
og skoða selina þar. Mér
finnst ömurlegt að skoða
selina í rammgirtum,
hreinmáluðum litlum polli,
þar sem búið er að fanga
þá í búr og ekkert eftir af
náttúi’ulegu eðli dýranna
eins og t.d. að afla sér
fæðu eða náttúrulegum
heimkynnum þeirra.
Mér líður iðulega illa við
að staldra við hjá selunum
og skil ekki hvers vegna
villt sjávarspendýr eru höfð
í búri í húsdýragarði. Síðan
hvenær eru selir húsdýr?
Ég skora á þá sem málið
varðar að hlífa mér og
fleirum við ógeðfelldri sýn
í húsdýragarðinum, sleppa
selunum til heimkynna
sinna eða aflífa dýrin í
líknarskyni.
Glódís K.E. Hannesd.,
Hábergi 7.
Stutt bréf til Jóhönnu
Sigurðardóttur
ÁGÆTI þingmaður
Reykvikinga. Þú hefur
verið skelegg í umræðunni
um bankahneykslið og um
bankastjóra sem veiddu
villtan lax í ýmsum stórám
landsins. Ég vil benda þér
á að það er full þörf á að
taka fyrir eldislax-
hneykslið, sem vh’ðist alit
vera hið furðulegasta svo
ekki sé meira sagt. Að
minnsta kosti virðist þörf á
að það verði tekið til ræki-
legi’ar skoðunar og ég
treysti þér best til að
hrista upp í þessu öllu þeg-
ar þing kemur saman.
Með kveðju,
Guðmundur Bergsson,
Sogavegi 178.
SKAK
limsjón Margeir
Pélurxxou
ÞETTA endatafl kom upp á ár-
legu alþjóðlegu móti í Reggio
Emilia á Italíu um síðustu áramót.
Rússinn Evgení Solosjenkfn
(2.535)^ var með hvítt og átti leik
gegn Italanum Vittorio Anceschi
(2.285).
37. Bxb6!! _ Bxb6 (Svartur lendir
nú í töpuðu peðsendatafli, en eftir
37. _ axb6 38. a6 vekur hvítur upp
nýja drottningu) 38. axb6 _ axb6
39. Kf2 _ Ke6 40. Ke3 _ Kd5 41.
c4+ _ Kc5 42. g4! _ b5 43. f5 _
gxf5 44. gxf5 _ Kd6 45. Kxe4 _
bxc4 46. Bxc4 _ Ke7 47. Ke5 _ h5
48. c5 og svartur gaf þessa von-
iausu baráttu.
Úrsiitin í Reggio urðu: 1.
Solosjenkín 7 v. af 9 mögulegum,
2._3. Komarov, Úkraínu og Lputj-
an, Armeníu 6V2 v., 4. Aldrovandi,
Italíu 5 v., 5. Efimov, Italíu 4lÆ v.
o.s.frv.
„Fullorðinsmöt" Hellis. Fyrsta
fullorðinsmót Hellis verður haldið
mánudaginn 18. janúar kl. 20. Aid-
urstakmark er 25 ár. Teflt verður í
Hellisheimilinu, Þönglabakka 1,
Mjódd.
Tefldar verða 7 skákir eftir
Monrad-kerfi. Tefldar verða 10
mínútna skákir. Engin þátttöku-
gjöld verða á þessu fyrsta móti.
HVÍTUR leikur og vinnur
FASTEIGN ER FRAMTÍD /Yl SIMI 568 77 68
FASTEIGNA JMIÐLUN
Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík, Sverrir Kristjánsson
fax 568 7072 lögg. fasteignasali II
Atvinnuhúsnæði
Miðhraun — Garðabæ
Til sölu mjög vandað vandað atvinnuhúsnæði í smíðum. Heildar-
stærð hússins er 1.350 fm. Hægt er að selja húsið í minni einingum
frá ca 300 fm. Mjög gott útipláss verður frágengið og malbikað.
Lofthæð 5,4 m við vegg en 7,3 við mæni. Gert ráð fyrir millilofti.
Stórar innkeyrsludyr. Þetta er einstaklega vel staðsett hús og kem-
ur til með að auglýsa sig sjálft. Vertu snöggur að ákveða þig og fá
hús aðlagað að þínum óskum.
Vesturvör — Kópavogi
Til sölu mjög gott steinhús byggt 1980, ca 420 fm með milliloftum.
Mikil lofthæð. Þrjár stórar rafdrifnar innkeyrsludyr. Góð aðstaða fyr-
ir starfsmenn og skrifstofur. Mjög góð aðkoma og stór lóð þar sem
hægt er að byggja allt að 800 fm hús.
Faxafen — verslun — lager
Til sölu ca 670 fm verslunarhæð og í sama húsi ca 700 fm kjallari
og ca 600 fm kjallari. Góð innkeyrsla í kjallarann.
Skúlatún — skrifstofuhæð
Til sölu ca 180 skrifstofuhæð, 5—6 herb. o.fl. Laus fljótt. Gott
verð.
Faxafen — skrifstofa — lager
Til sölu ca 700 fm kjallari með góðri lofthæð, stórri innkeyrsludyr.
Húsnæðið skiptist í skrifstofu, sýningaraðstöðu, lager o.fl.
Gamli vesturbærinn
I einkasölu hornið á Vesturgötu og Bræðraborgarstíg, ca 200 fm
verslunarhæð. Var áður matvöruverslun. Kælar og allar innréttingar
geta fylgt. Stórir gluggar. Ca 70 fm íbúð á 2. hæð og ca 112 fm
geymsluskúr á baklóð. Mögulegur byggingarréttur. Verslunar-
húsnæðið er laust.
Víkverji skrifar...
INGÓLFUR Hannesson hjá
íþróttadeild Sjónvarps sendi
Víkverja eftirfarandi bréf:
„Víkverji sl. sunnudags gerir að
umtalsefni aðstoð Kristins Svan-
bergssonar, framkvæmdastjóra
Skíðasambandsins, við beinar út-
sendingar frá Heimsbikarmótum í
skíðaíþróttum í vetur og spyr hver
sé munur á skíðum annars vegar og
hins vegar knattspyrnu og hand-
knattleik hvað þetta varðar. Vissu-
lega geta hagsmunaárekstrar átt
sér stað í slíku tilfeili og er báðum
aðilum ijós sú hætta sem slíku fylg-
ir. Hér er um undantekningu að
ræða við nokkuð sérstakar aðstæð-
ur þegar samningar voru gerðir við
5 fyrirtæki um 18 útsendingar frá
heimsbikarmótum í vetur þar sem
Kristinn Björnsson er settur í sviðs-
ljósið. En Sjónvai'pið hefur ekki
áformað að gera það að reglu að
starfsmenn sérsambanda aðstoði
við lýsingar, þó að slíkt tíðkist t.d.
varðandi landsliðsþjálfara í knatt-
spyrnu og handknattleik.
Kristinn Svanbergsson var
keppnismaður í alpagreinum skíðaí-
þrótta um árabil og m.a. 6 ár í
landsliði Islands. Hann er menntað-
ur skíðaþjálfari og var tvö ár í
íþróttaháskóla í Svíþjóð. Kristinn
hefur séð um þjálfaranámskeið og
verið á fjölmörgum heimsbikarmót-
um og öðrum stórmótum. Kristinn
hefur þannig prýðilega innsýn í
íþróttina og er henni kunnugur frá
mörgum hliðum. Það er meira en
hægt er að segja um ýmsa þá sem
fást við að fjalia um íþróttir á opin-
berum vettvangi."
TILGANGUR Víkverja með því
að minnast á að framkvæmda-
stjóri Skíðasambandsins tæki þátt í
að lýsa heimsbikarmótum í svigi á
RÚV var ekki sá að kasta rýrð á
Kristin Svanbergsson, sem gegnir
embættinu. Víkverji tekur heilshug-
ar undir að hann býr greinilega yfir
mikilli þekkingu, en það kemur mál-
inu einfaldlega ekki við. Hagsmuna-
árekstrar geta vissulega átt sér
stað, segir Ingólfur, en „báðum aðil-
um [er] Ijós sú hætta sem slíku fylg-
ir,“ segir hann! Hvað kemur það
málinu við þó gerðir hafi verið
samningar við fimm fyrirtæki um 18
útsendingar? Var það krafa fyrir:
tækjanna að framkvæmdastjóri SKÍ
tæki þátt í lýsingunum? Jafnvel að
hann tæki viðtal við þjálfara Krist-
ins Bjömssonar, en ekki íþróttaf-
réttamenn RÚV? Gott er til þess að
vita að starfsmenn sérsambanda
muni ekki aðstoða reglulega við lýs-
ingar. Ingólfur segir slíkt reyndar
tíðkast t.d. varðandi landsliðsþjálf-
ara í knattspymu og handknattleik,
en þar er bara alls ekki um sam-
bærilegt atriði að ræða. Guðjón
Þórðarson, landsliðsþjálfari í knatt-
spymu, lýsir t.d. iðulega á Stöð 2 og
Sýn en þá er um leiki erlendra iiða
að ræða. RÚV myndi aldrei fá fram-
kvæmdastjóra KSÍ til að aðstoða við
lýsingu frá leik með landsliði Islands
í knattspyrnu. Eða hvað?
xxx
INGÓLFUR klykkir svo út með
því að segja að Kristinn hafi
prýðilega innsýn í íþróttina - sem
Víkverji hefur þegar tekið undir -
og sé henni kunnugur frá mörgum
hliðum. „Það er meira en hægt er að
segja um ýmsa þá sem fást við að
fjalla um íþróttir á opinberum vett-
vangi.“ Hverja á Ingólfur við með
síðustu setningunni? Sína eigin und-
irmenn, kannski?
x x x
VÍKVERJI snæddi á Kaffivagn-
inum fyrir skemmstu. Þar er
heimilislegt að koma og maturinn
góður „mömmumatur" eins og ein-
hver tók til orða. Eitt vakti sérstaka
athygli Víkverja; við peningakass-
ann lá neftóbaksdós, sem hann hélt
að einhver hefði ef til vill gleymt.
En nei, svo var ekki: gestir gátu
einfaldlega fengið sér nokkur korn í
nefið í boði hússins, ef þá fysti, og
dósin er nokkuð vinsæl að sögn.
Sams konar dós stendur viðskipta-
vinum Olís-bensínstöðva til boða,
eftir því sem Víkverja er sagt. Óli
heitinn, kenndur við Olís, er sagður
hafa tekið þennan sið upp.
xxx
UNG vinkona Víkverja veltir
stundum fyrir sér lífinu og til-
verunni á annan hátt en fullorðna
fólkið. A dögunum kom hún, einu
sinni sem oftar, með svolítið annað
sjónarhorn en vant er: „Veistu af
hverju systkin mega ekki giftast?"
Já, Víkverji taldi sig vita það, en
svaraði að sjálfsögðu neitandi, til að
heyra hennar hlið málsins - sem
hún hafði bersýnilega velt talsvert
fyrir sér. „Vegna þess að þá ættu
börnin bara eina ömmu og einn
afa!“ svaraði stúikan.