Morgunblaðið - 17.01.1999, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 17.01.1999, Blaðsíða 58
|8 SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ ■ ' ■ ■ m ^JJóte ÍreLá tur, oótury drómáiy óuLLufciði... .. .SuiáóÉenclincjum er murc^l ti( Íisla Íacjl Kynntu þér spennandi hótelnám við IHTTI hótel- skólann í Sviss. Fulltrúi frá skólanum heldur upplýsingafund í þingsal 1 á Hótel Loftleiðum mánudaginn 25. janúar kl. 16:30. : IHTTI býður upp á: 3ja ára BA nám í alþjóðlegum hótelfrceðum ó 2 1/2 árs nám í hótelstjórnun ; 1 árs framhaldsnám í hótelrekstri j 1 árs grunnnámskeið ^ ^ : 1 School of Hotel Management, Neuchatel, Sviss Qfrdlf'lfD z Heimasída: http://www.ihtti.ch —y ■ i£ : ■ _ byrjar I. febrúar Innntun hafin j Sími 562 6844 1 email: oddura@itn.is Þorrablót.á Fosshótel Örk Góðra vina fundur eins og þorrablót er órjúfanlegur hluti af okkar menningu og viljum við gjarnan vanda þar til. Fosshótel Örk býður til blóts 23. janúar og verða þar í boði fyrsta flokks skemmtiatriði og að sjálfsögðu frábær matur. Veislunni stjórnar Flosi Ólafsson en Ómar Ragnarsson skemmtir gestum. Matur og dansleikur verö 3.700,- Gisting, þorrablót og morgunverðarhlaöborð verð 6.200,- fOftHúTfi Afþreying þin - okkar ánægja Fosshótel Örk, Breiðumörk 1 • 810 Hveragerði • Sími: 483 4700 • Fax: 483 477S 1% vj>mbl.is I LLTAf= e/TTH\SA£) /VÝ/ i FÓLK í FRÉTTUM Leikstjórar Sögunnar um Brandon Teena eru þær Gréta Olafs- dóttir ogj Susan Muska sem báðar eru búsettar í New York. Dóra Ósk Halldórs- dóttir hringdi í þær og spurðist fyrir um myndina og hvert framhaldið væri. SUSAN Muska og Gréta Ólafsdóttir. KYNGERVISUSLI BRANDON TEENA DAG verður opnunarsýning á heimildarmyndinni Sagan um Brandon Teena, eða „The Brandon Teena Story“ á Kvik- myndahátíðinni. Heimildarmyndin hefur vakið mikla athygli þar sem hún hefur verið sýnd og var m.a. kosin besta heimildarmynd kvik- myndahátíðarinnar í Berlín á síð- asta ári auk þess að vera valin besta myndin af áhorfendum. Pegar Gréta og Susan eru spurð- ar um hver eftirleikurinn hafí orðið eftir að myndin hlaut tvenn verð- laun á kvikmyndahátíðinni í Berlín segir Susan að „allt hafí orðið vit- laust.“ Hún bætir við að myndin hafi verið sýnd víðs vegar um heim- inn og unnið alls til sjö verðlauna. „Við fengum símhringingar hvaðanæva úr heiminum og okkur var boðið að sýna myndina. Við höf- um líka selt sýningarréttinn til bandarísku sjónvarpsstöðv- arinnar HBO og hún verður sýnd þar í júní,“ segir Sus- an. „Það má segja að allt síð- asta ár hafi verið full vinna við að kynna myndina. Við höfum ferðast út um allan heim, verið í viðtölum," bæt- ir hún við og hlær. „Núna erum við farnar að fá ennþá fleiri tilboð um sýningar," bætir Gréta við, ekki síst vegna allrar þeirrar um- ræðu um hatursglæpi sem varð í kjölfar morðsins á samkynhneigða nemandan- um í Wyoming á siðasta ári.“ Teena Brandon var stúlka í Nebraska sem klæddi sig eins og strákur og naut mikillar hylli í hlut- verki karlmannins Brandons. Þegar tveir kunningjar ástkonu Brandons komust að líffræðilegu kyni Brandons urðu þeir ævareiðir og nauðguðu henni. Brandon kærði nauðgunina en fékk litla samúð og stuttu síðar réðust þeir John Lotter og Thomas Nissan inn í hús þar sem Brandon var gestkomandi og myrtu hana og tvö önnur ungmenni. Brandon var 21 árs þegar hún lét lífið. - Hver hafa fyrstu viðbrögð áhorfenda verið við myndinni? „Venjulega höfum við umræður eftir myndina og oft hafa þær dreg- ist því fólk sýnir sögunni mikinn áhuga.“ Gréta bætir við að margir spyrji mikið um fólkið í myndinni. Hvað það sé að gera núna og hverjir eftirmálar morðsins hafi verið. „Evrópskir áhorfendur eru líka mjög forvitnir um dauðarefsinguna sem vekur ekki eins margar spurn- ingar í Bandaríkjunum. Hérna sýn- ir fólk kynferði Brandons mun meiri áhuga og hvaða hlutverki kyn- gervisusli spili í atburðarásinni.“ Susan og Gréta unnu að mynd- inni um Brandon Teena í fjögur ár og fóru margar ferðir til Nebraska og töluðu margoft við fólkið sem á hlut að máli. „Við kynntumst fólk- inu í myndinni mjög vel, og gerðum okkur far um að vinna traust þeirra. Við vildum gera myndina sem eðli- legasta og að fólkið myndi gleyma veru okkar þarna og myndavélinni. Einnig unnum við mikla undirbún- ingsvinnu og lásum allt sem við komumst yfir sem tengdist málinu og sambærilegum tilfellum," segir Susan. „Við vildum ekki að áhorfendur upplifðu að verið væri að troða ein- hverjum skoðunum inn á þá með frásagnarhætti myndarinnar. Frek- ar reyndum við að láta fólkið í myndinni koma sínum skoðunum á framfæri og segja söguna eins og hún gerðist. En sagan er svo sterk að hún talar alveg fyrir sig sjálf.“ Sagan af Brandon Teena hefur hlotið mikið lof þar sem hún hefur verið sýnd og Susan segir að þegar myndin hafi verið sýnd í New York hafi nánast öll blöð birt dóma sem voru mjög lofsamlegir. „Líklega voru hjartnæmustu viðtökurnar í Nebraska þegar við sýndum mynd- ina þar í nóvember. Málið tengdist fólkinu þar á persónulegri máta heldur en annars staðar. Okkur þótti mjög vænt um þær viðtökur," segir Gréta. Diane Keaton keypti kvikmynda- réttinn að bókinni um Brandon Teena sem kom út fyrir þremur ár- um og á tímabili var talað um að Drew Barrymore hefði sóst eftir hlutverki Brandons. Susan og Gréta segja að ekkert hafi gerst í því máli enn, og eru þær heldur vantrúaðar á að leikin kvikmynd verði gerð eft- ir sögunni. - Hvers vegna ekki? „Þetta er eiginlega ekki svona Hoilywood-saga," segir Gréta og hlær. „Ég held að þetta gæti orðið frábær „óháð“ kvikmynd, en ég veit ekki hvað stendur í veginum," bætir hún við. „Ég hugsa að Diané Keaton sé ekki tilbúin að nota greiðslukortið sitt fyrir myndina," segir Gréta og Susan rifjar upp fjármál myndar þeirra sem þær fjármögnuðu úr eigin vasa. - A kyngervisusli Brandons kannski ekki upp á pallborðið í Hollywood? „Ja, ég veit það ekki. Við vitum í raun og veru ekkert um Hollywood," segir Gréta. „Samkyn- hneigðar persónur í Hollywood- myndum verða yfirleitt að vera einsleitar. Annaðhvort gerðar skrípalegar svo fólk geti hlegið, eða þá að þær deyja úr eyðni. En sagan um Brandon Teena ögrar stöðluð- um ímyndum er ögrað. Til þess að leikin kvikmynd gengi upp þyrfti að byggja upp raunverulega samúð með persónunni. Ég er ekki viss um að vilji sé til þess í Hollywood af því það er of flókið og hentar ekki þeirri oft einföldu heimsmynd sem þaðan kemm-.“ Þegar Gréta og Susan eru spurðar hvort ekki eigi að setja Söguna um Brandon Teena í Óskarsverðlauna- samkeppnina í heimildar- myndum springa þær úr hlátri. „Það væri gaman að vinna Óskarinn..." reynir Susan að segja en hláturinn hefur yfirhöndina. Þær hafa greinilega ekki velt þeim möguleika mikið fyrir sér. En þær segja að það sé tals- vert fyrirtæki að koma myndinni í keppnina mörg skilyrði þui-fi að uppfylla. Þegar Susan og Gréta eru spurð- ar um hver staða morðingjanna tveggja sé í dag, segja þær að annar þeirra, John Lotter, hafi fengið dauðadóm en Thomas Nissen hafi fengið þrefalt ævilangt fangelsi. „Kvöldið afdrifaríka, 30. desember 1993, glötuðu fimm ungar mann- eskjur lífi sínu, hvernig sem á það er litið,“ segfi- Susan. Susan og Gréta vilja lítið gefa upp um væntanleg verkefni. „Við getum eiginlega ekki rætt mikið um þetta því annars verður hugmyndum okk- ar stolið,“ segir Susan og hlátur Grétu heyrist í bakgrunni. „Nei, annars erum við með þrjú verkefni í gangi núna, en þau eru ekki búin að taka á sig endanlega mynd. En eitt þeirra tengist Islandi,“ segir Susan með stríðnisiegri röddu en vill ekki gefa neitt frekar upp. Óneitanlega er forvitni blaðamanns vakin en þeirrí forvitni verður ekki svaiað í þessu samtali og verður því tíminn að leiða í ljós væntanlega heimildar- mynd þeirra um íslensk málefni. Brandon Teena
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.