Morgunblaðið - 27.02.1999, Page 4
4 LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu mælir með að tilboði Haraldar
Haraldssonar, framkvæmdastjóra Andra, verði tekið
Bauð 1.257 milljómr í
Ahiirðarverksmiðjiuia
HARALDUR Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Andra ehf., átti
hæsta tilboð í hlutabréf Aburðar-
verksmiðjunnar hf. í Gufunesi,
1.257 milljónir króna, en tilboð í
verksmiðjuna voru opnuð í gær.
Framkvæmdanefnd um einkavæð-
ingu hefur mælt með því við land-
búnaðan-áðherra að tilboðinu verði
tekið. Haraldur þarf að staðgreiða
kaupverðið í síðasta lagi fyrir kl. 14
næstkomandi miðvikudag. Harald-
ur segist ætla að halda áfram fram-
leiðslu áburðar í verksmiðjunni.
Að sögn Páls Péturssonar, starf-
andi landbúnaðarráðherra, mun
landbúnaðarráðherra ekki taka
ákvörðun um hvort fallist verður á
tillögu einkavæðingarnefndar fyrr
en eftir helgi. Von er á Guðmundi
Bjamasyni landbúnaðan'áðherra
til landsins um helgina.
Þrjú tilboð bárust
Þrjú tilboð bárust í Aburðar-
verksmiðjuna. Haraldur bauð 1.257
milljónir í verksmiðjuna. Eignar-
haldsfélag Alþýðubankans bauð
1.220 milljónir og Kaupfélag Ey-
fírðinga, Gufunes ehf. og Sölufélag
garðyrkjumanna buðu rösklega
1.001 milljón. í söluskilmálum kom
fram að lágmarksverð væri einn
milljarður.
Hreinn Loftsson, formaður
Framkvæmdanefndar um einka-
væðingu, sagðist vera ánægður
með tilboðin. Hann sagði að fyrir
einu og hálfu ári hefðu tvö tilboð
borist í verksmiðjuna, annað að
fjárhæð 680 milljónir og hitt að
fjárhæð 725 milljónir.
„Við höfnuðum báðum þessum
tilboðum og vorum talsvert gagn-
rýndir fyrir það af ýmsum aðilum.
Hærra tilboðið nam 725 milljónum,
en tilboð Haraldar hljóðar upp á
1.257 milljónir. Tilboðið hefur því
hækkað um sem nemur einni millj-
ón á dag á þessum tíma. Þetta und-
irstrikar að þessi ákvörðun var rétt
á sínum tíma og jafnframt undir-
strikar þetta mikilvægi þessa út-
boðsferils," sagði Hi-einn.
Hreinn sagði að Aburðarverk-
smiðjan væri seld sem fyrirtæki í
rekstri og seljandinn, þ.e. ríkið,
ætlaðist til þess að kaupandi lýsti
yfir vilja til að halda áfram áburð-
arframleiðslu. „Seljandi setur hins
vegar engin skilyrði gagnvart nýj-
um eiganda. Hann tekur sínar
rekstrarákvarðanir sjálfur um
framtíð fyrirtækisins. Eftir að ríkið
hættir afskiptum af því er það fyrst
og fremst mál nýs eiganda að taka
ákvarðanir um rekstur þess.“
Ætlar að halda áfram
áburðarframleiðslu
Haraldur Haraldsson sagðist
bjartsýnn á að hann gæti borgað
fyrir Aburðarverksmiðjuna nk.
miðvikudag. „Það liggja fyrir lof-
orð um fjármögnun á þessu bæði
frá hluthöfum og lánastofnunum."
Haraldur vildi ekki upplýsa
hverjir stæðu með honum að kaup-
um á verksmiðjunni. Hann sagði að
það yrði gert þegar frá kaupunum
yrði gengið.
„Við ætlum okkur að halda áfram
áburðarframleiðslu í verksmiðjunni
af fullum krafti. Við vonumst eftir
að viðskiptavinir í gegnum 50 ára
sögu félagsins verði tryggir einka-
rekstrinum," sagði Haraldur.
Aðspurðui' hvort hann sæi ein-
hverja nýja tekjumöguleika fyrir
verksmiðjuna sagði Haraldur að
hann sæi það ekki í dag. Hann
nefndi þó að verksmiðjan hefði að-
gang að góðri bryggju og góðu
landsvæði og því væru miklir
möguleikar á að koma þarna fyrir
nýrri hafnsækinni starfsemi.
Endanlegar tölur um afkomu
Áburðarverksmiðjunnar á síðasta
ári liggja ekki fyi’ir, en hagnaður
mun þó hafa orðið af rekstrinum.
Árið 1997 varð 1,6 milljóna hagnað-
ur af rekstrinum, en það var í
fyrsta skipti í þrjú ár sem fyrir-
tækið skilaði hagnaði.
Formaður dýraverndarráðs um háhyrninginn Keikó í kvínni við Eyjar
Hefur nóg
pláss og
líður vel
„ÞARNA er greinilega allt gert
til að háhyrningnum Iíði eins og
best verður á kosið og ég efast
stórlega um að háhyrningur í
haldi búi nokkurs staðar við eins
góðar aðstæður og þessi,“ sagði
Arni M. Mathiesen, alþingismað-
ur og formaður dýraverndar-
ráðs, en hann heimsótti kví
Keikós í Vestmánnaeyjum í gær-
morgun.
Tilgangur ferðar formannsins
var að líta eftir aðbúnaði og um-
önnun Keikós en dýraverndunar-
ráð hefur sett ákveðnar reglur
um hvernig fara skuli með
skepnur sem eru í haldi eins og á
við um Keikó. Árni sagði að farið
væri að öllum reglum og að
menn gerðu sér greinilega far
um að gera eins vel við skepnuna
og nokkur kostur væri.
„Þarna er líka allt gert til að
búa hann undir að takast á við
náttúruna og að hann finni þarna
meira fyrir náttúrunni en hann
gæti gert annars staðar sem
hann væri í haldi manna. Það
hefur örugglega áhrif og hann
hegðar sér líkar því sem háhyrn-
ingar úti í náttúrunni gera,“
sagði Árni ennfremur. Hann
sagði að honum virtist líða vel,
hann hefði nóg pláss, nýtti sér
stærð búrsins, synti mikið, væri
forvitinn og orðinn mun grennri
en þegar hann kom og styrkari.
Arni sagði háhyminginn undir
stöðugu eftirliti, hegðun hans og
allt atferli væri skráð og myndað
oft á hveijum sólarhring og
mæld væru þau hljóð sem hann
gefur frá sér.
Engin ákvörðun hefur verið
tekin um það hvenær Keikó verð-
ur hugsanlega sleppt en dýra-
verndunarráð verður að sam-
þykkja það þegar þar að kæmi.
Ami sagði hnísur, höfmnga og
jafnvel hrefnur hafa komið að
kvínni en enga háhyminga sést
nálægt henni. Einnig hafa selir
verið þar á ferð.
Morgunblaðið/Sigurgeir
ÁRNI M. Mathiesen, formaður dýraverndarráðs, klappar Keikó í kví hans í Klettsvík í gærmorgun. Með
honum em Árni Johnsen og Jeff Foster gæslumaður.
350 milljónum verði varið
í reiðleiðir á hálendinu
í NIÐURSTÖÐUM nefndar sem
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra skipaði til að gera tillögur
um uppbyggingu reiðleiða, áning-
arstaða og skiptihólfa á miðhálendi
íslands er lagt til að á næstu árum
verði 350 milljónum króna varið í
málaflokkinn.
Nefndin leggur til að gert verði
ráð fyrir þessum aukna kostnaði
við næstu endurskoðun vegaáætl-
unar. Þá leggur hún til að sérstök
áhersla verði lögð á verndun við-
kvæmra svæða við og í nágrenni
reiðleiða.
Einnig er lagt til að reiðvegir
séu flokkaðir í fjóra flokka eftir
landgerð og líklegu álagi umferðar.
Þá er gerð tillaga um að Vegagerð-
Uppbygging reið-
vega verði á
næstu vegaáætlun
in verði veghaldari reiðvega og að
um reiðvegi verði fjallað í vegalög-
um og vegaáætlun eins og aðra
þjóðvegi.
Nefnd sem fjallaði um reiðvegi
annars staðar en á hálendinu hef-
ur einnig skilað tillögum sínum.
Hún leggur til að reiðleiðir verði
flokkaðar í þrjá meginflokka,
stofnleiðir, þéttbýlisleiðir og hér-
aðsleiðir.
í tengslum við vegaáætlun
hverju sinni verði gerð áætlun þar
sem skráðar verði einstakar reið-
leiðir og flokkun þeirra. Þessa
flokkun telur nefndin að leggja
mætti til grundvallar frekari
stefnumótun um reiðvegi og í
skipulagsvinnu á vegum sveitarfé-
laga. Hún telur að reiðleiðir fari
eftir því sem ákveðið er í skipulag'
sveitarfélaga og að áætlanir um
framkvæmdir við reiðvegi verði
unnar í samráði við sveitarstjórnir
og samtök hestamanna.
Nefndarmenn álíta að skráning
og flokkun reiðleiða sé nauðsynleg
til að yfirsýn fáist yflr fyrirliggj-
andi verkefni í reiðvegagerð.
Einnig telja þeir að Vegagerðin
eigi að vera veghaldari reiðvega
samkvæmt ofangreindri flokkun.
Rán í söluturni
í Reykjavík á
fímmtudagskvöld
Atján ára
piltur var
að verki
ÁTJÁN ára piltur var hand-
tekinn laust eftir klukkan eitt
í fyiTÍnótt grunaður um að
hafa framið rán í söluturni við
Hagamel í Reykjavík um
klukkan 21 það kvöld. Hann
hefur játað verknaðinn og tel-
ur lögreglan málið upplýst.
Lögi-eglan fékk greinargóð-
ar upplýsingar um manninn,
m.a. hjá starfsstúlku sölu-
turnsins, en hann náði um 40
þúsund krónum í peningum
og nokkra af vindlingum.
Þessar upplýsingar beindu at-
hygli lögreglunnar fljótlega
að ákveðnum pilti og var hann
handtekinn á veitingastað
laust eftir klukkan 1 um nótt-
ina. Pilturinn hefur ekki kom-
ið áður við sögu hjá lögregl-
unni og telur hún málið nú
upplýst.
Snjóflóðavarnir á
Bolungarvík
Fleiri kostir
skoðaðir
FARIÐ var yfir stöðu mála
varðandi snjóflóðavarnir á
Bolungai’vík á fundi Bolvík-
inga með fulltrúum umhverf-
isráðuneytisins í gærmorgun.
Akveðið var að láta fara fram
skoðun á fleiri kostum á að
verja byggðina en með gerð
skurðar, að sögn Magnúsar
Jóhannessonar, ráðuneytis-
stjóra í umhverfisráðuneyt-
inu.
Hann sagði að lögð hefðu
verið drög að vinnuáætlun í
þeim efnum og væri stefnt að
því að mat á öðram kostum
lægi fyrir helst ekki síðar en i
lok maí eða byrjun júní. Lagt
yrði mat á hverjir þeir kostir,
sem verið hefðu í umræðunni
væra skynsamlegastir.
Obreyttir
hluthafar
fái fulltrúa
í stjórn BÍ
STARFSMANNAFÉLAG
Búnaðarbanka Islands hf. hef-
ur sent viðskiptaráðherra til-
lögu þess efnis að starfsmönn-
um og öðrum óbreyttum hlut-
höfum bankans gefist færi á
að kjósa einn fulltrúa í banka-
ráð á næsta aðalfundi bank-
ans.
í tillögunni segir: „Jafn-
framt telur fundurinn að við
val á fundarstað og tíma aðal-
fundar verði að taka tillit til
þess að Búnaðarbanki íslands
hf. er almenningshlutafélag
með tugir þúsunda hluthafa
og því óráðlegt að halda aðal-
fund, nema t.d. í Háskólabíói
fyrrihluta laugardags, í stað
Súlnasalar Hótels Sögu í
miðri viku. Því er mælst til
þess að aðalfundinum verði
frestað svo betra færi gefist
til undirbúnings."
Tillagan var samþykkt á að-
alfundi starfsmannafélagsins,
sem haldinn var á fimmtu-
dagskvöld.