Morgunblaðið - 27.02.1999, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.02.1999, Blaðsíða 10
10 LAUGAKDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Geir H. Haarde fjármálaráðherra Ákveður að veita upplýs- __ ingar um viðskipti við VSO GEIR H. Haarde fjármálaráð- heira tilkynnti þingheimi í gær að hann hefði ákveðið að láta vinna ný svör við fyrirspurn Ögmundar Jón- assonar, þingflokki óháðra, um við- skipti VSÓ-verkfræðistofunnar og ríkisins. Umrædd fyrirspumin var lögð fram á Alþingi í nóvember sl. og er þar spurt hvaða verkefni VSÓ-verkfræðistofan hafí sinnt fyrir opinberar stofnanir frá árinu 1991. Þá er spurt hvað verkfræði- stofan hafí fengið fyrir verk sín í heild og hvemig sú fjárhæð hafi skipst eftir einstökum verkefnum. I svari fjármálaráðherra sem lagt var fram á Alþingi í síðustu viku kemur m.a. fram að fjármálaráðu- neytið telji ekki rétt að afhenda Al- þingi umbeðnar upplýsingar, m.a. með hliðsjón af 5. gr. upplýsinga- laga, er snertir einka- og fjárhags- málefni einstaklinga og fyrirtækja. Auk þessa tilkynnti fjármálai’áð- herra að hann hefði ákveðið að láta vinna ný svör við áþekkri fyrir- spum Guðmundar Hallvarðssonar, þingmanns Sjálf- stæðisflokks, en í svari við henni, sem lagt var fram á Alþingi í síðustu viku, kemur einnig fram að ekki sé hægt að veita umbeðnar upp- lýsingar m.a. með hliðsjón af 5. gr. upplýsingalaganna. „Eins og ég gat um í umræðum um stjórn þingsins fyrir viku þegar rætt var um svör mín við þessum fýrirspumum [...] fer því fjarri að það liggi í augum uppi hvort skylt sé eða jafnvel hvort óheimilt sé að veita umbeðnar upplýsingar af þessu tagi,“ sagði fjámnálaráð- hema í upphafi þingfundar gær. „Þarna koma við sögu ákvæði stjómarskrár, upplýsingalaga og stjómsýslulaga sem lúta að þeim grandvallaratriðum, sem mál þetta snýst um. Ekki er enn um að ræða neina einhlíta eða óumdeilda túlkun á þessum atriðum. í því efni togast ann- ars vegar á sjón- armið um rétt Alþingis til að krefjast upplýs- inga um opinber málefni, þar sem inn í fléttast meðal annars túlkun á hugtakinu opinbert málefni og hins vegar réttur einkaaðila, bæði einstak- linga og lögaðila til þess að upplýs- ingar um einkamálefni þeirra, þar með talin fjárhags- og viðskipta- hagsmuni, séu ekki birtar með þeim hætti að það valdi viðkomandi tjóni. Það var á grandvelli hinna síðari sjónarmiða sem mín svör við spumingum háttvirtra þingmanna, Ögmundar Jónassonar og Guð- mundar Hallvarðssonar, um kaup ríkisins á verkfræðiþjónustu byggðust." Ráðherra kvaðst hins vegar síð- an umræðan fór fram um svörin á Alþingi fyrir viku hafa farið ítar- lega ofan í málið og að í þeim til- gangi hefði verið rætt við ýmsa sérfræðinga og lögfróða menn. „Eg hef á grandvelli frekari skoðunar breytt um afstöðu í þessu máli. Eg tel rétt að Alþingi njóti þess vafa sem er í málinu, þar sem það er ekki augljóst að í húfí séu svo mik- ilvægir viðskiptahagsmunir þeirra fyrirtækja sem í hlut eiga,“ sagði hann. „I ljósi þessa mun ég á næst- unni láta vinna ný svör við fyrir- spurnum háttvirtra þingmanna, þar sem reynt verður að svara þeim spurningum sem fram eru bornar." Ögmundur Jónasson og fleiri þingmenn stjómarandstöðu fógn- uðu þessari ákvörðun ráðherra. Sagði Ögmundur m.a. að fjánnála- ráðherra hefði bragðist við af ábyrgð og sanngimi og að fýrir það bæri að þakka. ALÞINGI Fyrrverandi flokksfélagar karpa um E SB TIL snarpra orðaskipta kom á milli fyrrverandi flokksfélaga í Alþýðubandalaginu, þeirra Hjörieifs Guttormssonar, þing- flokki óháðra, og Margrétar Frímannsdóttur, þingflokki Samfylkingarinnar, í umræðum um utanríkismál á Alþingi á fimmtudag. Hjörleifur spurði Margréti, talsmann Samfylkingarinnar, m.a. að því hver afstaða Sam- fylkingarinnar væri til aðildar að Evrópusambandinu (ESB). „Mun Samfylkingin útiloka að- ild að Evrópusambandinu eða mun Samfylkingin hafa uppi hliðstæðan málflutning og hæstvirtur utanríkisráðherra [Halldór Ásgrímsson], og halda þar öllum dyrum opnum?“ spurði hann. Margrét svaraði því til að það væri ekki „á dagskrá“ hjá Sam- fylkingunni að sækja um aðild að ESB, en benti jafnframt á að „ýmislegt gæti breyst“ og það væri óábyrg afstaða að taka ekki tillit til þess. „Getur ein- hver [...] útilokað aðild að sam- starfí þjóðanna um alla fram- tíð?“ spurði hún og sagði að hagsmunir þjóðarinnar hlytu að verða hafðir að leiðarljósi þeg- ar ákvarðanir væru teknar. Áður hafði hún tekið fram í ræðu sinni að hún teldi nauð- synlegt að hér á landi ætti sér stað lýðræðis- Ieg umræða um stöðu Is- lands meðal Guttormssona Evrópuþjóð- anna. „Við þurfum að auka hlut okkar í samstarfí þjóðanna og það gerum við ekki öðruvísi en staðið sé fyrir opinni og lýðræð- islegri umræðu um þessi mál- efni...“ sagði hún. Eftir að Margrét hafði út- skýrt þessi sjónarmið sín til Evrópusam- bandsins kom Hjörleifur upp í pontu og sagði þetta eitt: „Herra forseti. Það hefur ýmislegt breyst.“ Mar- grét kom einnig í ræðu- stól og svaraði að bragði: „Virðulegi forseti. Já, það hefur ýmislegt breyst í pólitík og mér þykir það gott ef háttvirtur þingmaður Hjörleifur Gutt- ormsson hefur nú gert sér grein fyrir því.“ Hjörleifur hafði áður en til þessarar orðasennu kom lýst því yfir að hann vildi að íslend- ingar ættu góð samskipti við Evrópusambandið, en lionum hugnaðist það hins vegar ekki að Islendingar gerðust aðilar að sambandinu. „Það er ekki nokkur spurning að það er Is- landi mjög mikilvægt [að eiga góð samskipti við ESB]. Og við hljótum að leggja á það áherslu. En hugmyndin um það að ætla sér inn í þetta væntan- lega stórrfld, sem er á öruggu spori í þá átt, hugnast mér ekki.“ Síðar í sömu ræðu sagði Hjörleifur að það vekti athygli að áherslur Framsóknarflokks- ins væru um margt farnar að líkjast þeim áherslum Samfylk- ingarinnar að halda öllum dyr- um opnum fyrir hugsaidegri aðild fslands að ESB. „Það er mjög athyglisvert að þessar áherslur eru ekki bundnar við alþýðuflokksmenn heldur koma fram hjá þeim sem enn kalla sig alþýðubandalagsmenn [...]. Þar á meðal nánum ráðgjafa for- manns Alþýðubandalagsins, eins og Ara Skúlasyni, sem eins og menn hafa heyrt í fréttum nú síðustu daga liggur ekkert á því að hugur hans stefnir að að- ild að Evrópusambandinu.“ Margrét Frímannsdöttir Skýrsla Halldórs Ásgrímssonar um utanríkismál Einhugur um að halda varnarsamstarfí áfram HALLDÓR Ásgrímsson utanrík- isráðherra segir að íslensk og bandarísk stjórnvöld séu einhuga um að halda varnarsamstarfi und- anfarinna áratuga áfram og að það verði staðfest með nýrri bókun ár- ið 2001. Vel hafi tekist til við fram- kvæmd síðustu bókunar frá árinu 1996. Varnarviðbúnaður hér á landi sé fullnægjandi að mati ís- lenskra stjórnvalda miðað við nú- verandi aðstæður. Þetta kom m.a. fram í yfirlits- ræðu ráðherra um utanríkismál sem hann flutti á Alþingi á fimmtudag. í máli ráðherra kom fram að öryggismál nú á tímum spönnuðu mun breiðara svið en áður. Breytt hættumat í kjölfar loka kalda stríðsins hefði haft í för með sér umtalsverðan niðurskurð til varnarmála í okkar heimshluta og því bæri að fagna, en engu að síður stæðu ríki heims frammi fyr- ir hættum sem ógnarjafnvægi risaveldanna hélt í sumum tilfell- um í skefjum. „Má þar nefna auk- inn aðgang útlagaríkja og öfga- samtaka að gereyðingarvopnum og hátæknihergögnum, átök þjóð- arbrota, trúarvíg, flóttamanna- straum, ólöglega fólksflutninga, alþjóðlega glæpastarfsemi, alþjóð- lega hryðjuverkastarfsemi og hrun ríkisvalds í mörgum heims- hlutum." Ráðherra sagði að sú staðreynd að öryggismál spönnuðu nú mun breiðara svið en áður endurspegl- aðist ekki síst í þeim breytingum sem nú ættu sér stað innan Atl- antshafsbandalagsins. „Aðild að bandalaginu skipar íslandi í flokk þeirra ríkja sem hafa hvað mest áhrif á mótun hins nýja öryggis- kerfis Evrópu, nokkuð sem ríki utan bandalagsins eiga ekki kost á í sama mæli. Þessa staðreynd ættu þeir að hafa í huga sem telja að forsendan fyrir vamarsam- starfinu við Bandaríkin og aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu hafi fallið með Berlínarmúrnum. Einangranarstefna, hvort heldur er í varnar- eða efnahagsmálum, er vísasta leiðin til að gera Island að áhrifalausu jaðarríki á hjara heims. Utanríkis- og varnarstefnu íslands verður að meta í heildar- samhengi, enda eru öryggismál, efnahagsmál og stjórnmál sam- tvinnuð sem aldrei fyrr á alþjóða- vettvangi,“ sagði ráðherra meðal annars. Ráðinn til Lánasjóðs landbún- aðarins GUÐMUNDUR Stefánsson, hagfræðingur Bændasamtaka Islands, hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Lána- sjóðs landbún- aðarins. Tek- ur hann við starfinu í byrjun aprfl. Guðmundur starfaði um árabil sem hagfræðingur Stéttarsambands bænda og síðan framkvæmdastjóri fóð- urverksmiðjunnar Laxár á Akureyri. Guðmundur var bæjarfulltrúi á Akureyri í eitt ár og varaþingmaður Fram- sóknarflokksins. Fyrir hálfu öðru ári var hann ráðinn hag- fræðingur Bændasamtakanna. Lánasjóður landbúnaðarins hefur aðsetur í Reykjavík en verið er að undirbúa flutning hans út á land ef samþykkt verður nauðsynleg lagabreyt- ing á Alþingi en í lögum um sjóðinn í dag segir að aðsetur hans sé í Reykjavík. Guðmundur Stefánsson sagðist aðspurður því gera ráð íýi'ir að Lánasjóður landbún- aðarins verði fluttur út á land og hefur verið rætt um Selfoss í því sambandi. Stai-fsmenn sjóðsins eru sjö. Eiginkona Guðmundar er Hafdís Jónsdóttir og eiga þau tvo syni. Lögregla stöðvaði bjórsölu LÖGREGLA stöðvaði sölu Heimdallar á Ingólfstorgi á bjór á kostnaðarverði í gær. Björgvin Guðmundsson, stjórnarmaður í Heimdalli, sagði að um einn kassa af bjór hefði verið að ræða. í tilkynningu frá félaginu segir að óeðlilegt sé að ríkið reki umfangsmiklar smásölu- verslanir og að afnema beri einkaleyfi þess á sölu áfengra drykkja. Þar segir ennfremur að áfengi sé lögleg neysluvara hér á landi og einstaklingum í verslun sé jafnvel treystandi til að seija þessa vöru á lögleg- an hátt og opinberam aðilum. Bjórsalan, var hluti af átaki, sem Heimdallur hefur staðið fyrir í vikunni undir slagorðinu „Lausnarorðið er frelsi.“ Gagnrýna vinnubrögð félagsmála- ráðherra ALÞÝÐIISAMBAND íslands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hafa í sameiningu mótmælt formlega þeirri ákvörðun félagsmálaráðherra að leysa upp starfshóp um starfsmat áður en hann hefur lokið störfum. í bréfi ASÍ og BSRB til ráð- herra er bent á að fulltrúum þessara samtaka, auk fulltrúa fjármálaráðuneytisins, sé meinuð eðlileg aðkoma að mál- inu á lokasprettinum og því verði niðurstaðan algerlega á ábyrgð ráðherra og samtökun- um óviðkomandi. Varað er við afleiðingum þessara vinnu- bragða sem geti haft neikvæð áhrif á framkvæmd kynhlut- lauss starfsmats í framtíðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.