Morgunblaðið - 27.02.1999, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ
' 56 LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999
Grettir
t/iVóa/ifai-L- Or/
'A V/ÐAm/JG/ J
Ljóska
Smáfólk
rTHlS 15 6KEATMVE
NEVER B£6W TO AN
ART ML15EUW BEFOí?£
UÍHT AKE ^
WATERC0LCR5
50 J-ÍAKP? .
I LIKETHE
WATEKC0L0R5.
iP HOV KNOCK OVER TH6 WAT6R
6LA55, ANP IT 5PJLL5 ON THE
9B5K ANP ALLOVERTHt FLOOR,
THE TEACHER 6ET5 MAP AT HOV.,
,5>/i'&J! (-27
Þetta er frábært! Ég hef aldrei Vatnslitamyndirn Hvers vegna eru Ef þú veltir vatnsglasinu og hellir úr
áður komið á listasafn... ar eru fallegar... vatnslitir svona því á borðið og yfir allt gólfið, þá
erfiðir? verður kennarinn æfareiður út í þig...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Sjálfstæðir kot-
bændur
Frá Jóni Kjartanssyni:
SONUR minn ók mér á slysadeild
Borgarspítalans 7. jan. sl. Eg hafði
dottið á miðborgarsvellinu og
reyndist fótbrotinn. Nokkurra
stunda bið var á slysadeild með við-
komu hjá glerbúrum þar sem inn-
heimt voru nýkomugjöld, röntgen-
gjöld o.fl„ því félagsleg samábyrgð
er ekki í öndvegi lengur. Margir
voru brotnir og krambúleraðir og
starfsfólkið vann hratt og öruggiega
og undan engu að kvarta nema kap-
ítalismanum. Eg var sendur heim
eins og aðrir, en ég bý á 3. hæð í
lyftulausu fjölbýlishúsi. Bömin mín
vildu ekki að ég væri að príla þar
einn við þessar aðstæður og heimt-
uðu að ég kæmi. Þau eru þrjú og
búa öll á 3. hæð í lyftulausum fjöl-
býlishúsum. Ég varð því að staulast
með gipsið og hækjimiar uppá 3.
hæð, eins gott að ég var ekki í hjóla-
stól. Ég dvaldi lengst hjá dóttur
minni, tengdasyni og barnabömum
og skemmti mér við að kenna 4 ára
dóttursyni margföldunartöfluna svo
gróðapungamir gætu síður platað
hann þegar hann stækkar. Nú er
nefnilega siður að leyfa gróðapung-
um að plata fólk og þeir duglegustu
verðlaunaðir með skattfrelsi. Nú er
fólki sagt að það græði mest á því
að láta plata sig. Það geti nú sjálft
orðið gróðapungar með því að taka
þátt í svindlinu og enga varði um
neitt nema kannski sjálfan sig.
Reykjavík er sveit - mörg sveita-
þorp laustengd með bílvegum -
flatneskja er senn nær austanúr
Ölfusi og vesturí Leirársveit gegn-
um Hvalfjörð. Hvað ætli skítaskatt-
amir verði þá? Og landið kostar víst
ekkert! Astæða? Gróðapungum hef-
ur verið sigað á fólkið. Bygginga-
meistarar og fasteignasalar hafa
ráðið húsnæðisstefnunni. Meistar-
amir græddu ekki nóg á lyftum og
því var sett reglugerð þess efnis að
iyftur væru óþarfar í fjögurra hæða
húsum, síðar þriggja hæða. Fast-
eignasalar sjá um að viðhalda kot-
bændastefnunni hér, á meðan hún
The Savior
Frá Friðriki Á. Brekkan:
STYRJALDIR era okkur fjarlæg-
ar, en eru samt inni á gafli hjá okk-
ur í gegnum augu fjölmiðla á hverj-
um degi, mislengi eftir áhuga hvers
og eins á stjórnmálum.
A milli þess sem auglýstar eru
neyzluvörar kemur svona ein og ein
smáfrétt um einhver fjöldamorð
einhvers staðar og finnst okkur
óþægilegt að hlusta á þetta. Menn
segja að NATO muni kippa þessu
einhvem tíma í liðinn, eða hvað?
Eða ætti bara að leyfa þessu fólki
að drepa hvað annað þangað til allir
eru orðnir leiðir á því og semja frið?
Nei, þetta er ekki svona auðvelt
og sérstaklega ekki í þeim stríðum
sem við heyram mest um vegna ná-
lægðar við okkur, en það era stríð-
in, sem geisað hafa undanfarin ár á
Balkanskaga.
Óskiljanleg stríð segja flestir,
alltaf einhverjir Króatar, múslimar,
Serbar og Albanar að drepa hver
annan á hinn hrottalegasta hátt. Já,
an lyftu
leggur landbúnaðinn í rúst. Sturlað-
asta flippið er lög um fjöleignarhús
sem Alþingi hefur orðið að fresta
þrisvar, því framkvæmd þeirra
hefði stöðvað öll íbúðaviðskipti í
landinu. Þó hafa lögin kostað nokk-
ur hundrað milljónir króna þegar
og munu víst kosta nokkra milljarða
áður en lýkur, ef Aiþingi afnemur
ekki raglið. Félagslegum lausnum
hefur nú verið útrýmt og öllum gert
að versla við fasteignasala sem taka
200 þús. kr. eða meira fyrir greið-
ann. Fróðlegt er að skoða dæmi
Sófusar Bertelsen í Hafnarfirði,
sem tók 3 milljónir kr. að láni fyrir
tíu áram með 4,9% vöxtum til 40 ára
vegna íbúðarkaupa. Hann hefur
greitt 2,4 milljónir kr. af láninu en
skuldar þó 3,7 millj. kr. A 40 áram
borgar hann í 3% verðbólgu alls
13,2 milljónir kr. fyrir þær 3 millj-
ónir kr. sem hann fékk lánaðar. (í
engri verðbólgu greiddi hann um 7
milljónir kr.) Samkvæmt staðli yrði
íbúðin metin á 8,5 milljónir kr. við
greiðslulok og sömu forsendur.
Hagnaðinn geta menn svo reiknað.
Ibúðalánasjóður er ragl, enda
settur í gang til að þjóna gróða-
pungunum en ekki fólkinu. Skuldir
heimilanna eru nú um 415 milljarð-
ar kr. og vaxa helmingi hraðar en
tekjur og eignir! Hvað myndi gerast
í 10% verðbólgu? Sl. áratug hefur
ekki vantað hér annað húsnæði en
félagslegar leiguíbúðir, helst í
Reykjavík. Setja þarf upp neyðará-
ætlun um byggingu 2-3 þúsund
slíkra íbúða á höfuðborgarsvæðinu
og á Akureyri. Þeh- sem vilja kaupa
húsnæði geta talað við Veðdeild
Landsbankans eða önnur slík fyrir-
tæki. Það er ekki hlutverk ríkisins
að lána einstaklingum peninga. Lát-
um ekki börn okkar og bamabörn
verða fórnarlömb gróðapunganna.
Þau eiga það ekki skilið, en húsnæð-
isstefnan viðheldur neyð hjá fátæku
fólki.
JÓN KJARTANSSON,
frá Pálmholti, formaður
Leigjendasamtakanna.
■ Stjörnubíó
þessum drápum, að mestu á sak-
lausu fólki, heldur svo sannarlega
áfram um leið og þetta er skrifað á
meðan sjálfskipaðir „sáttaraðilar"
þvælast hver fyrir öðram ár eftir ár
og slá sig til riddara fyrir að afreka
akkúrat ekki neitt af heildstæðu viti
til hjálpar þessu fólki. Því miður.
Mynd undir stjóm bandaríska kvik-
myndagerðarmannsins Olivers Sto-
ne er nú sýnd í Stjömubíói. Hún
heitir „The Savior". Það hefur ekki
verið vani minn að hvetja menn til
þess að sjá glæpamyndir né fjölda-
framleiddar stríðsmyndir, en eftir
að hafa kynnst „verklagi" styrjald-
araðila á Balkanskaga af eigin raun
við upphaf átaka varð ég nær orð-
laus eftir að hafa upplifað myndina
The Savior. Þeir sem hafa áhuga á
að kynnast nútímasögu með mynd-
rænum hætti ættu ekki að láta
þessa mynd framhjá sér fara.
FRIÐRIK Á. BREKKAN,
Mímisvegi 6, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í uppiýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda biaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.