Morgunblaðið - 27.02.1999, Blaðsíða 58
» 58 LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Þorri er liðinn og skildi við með látum
segir Kristín Gestsdóttir, sem gekk
að morgni konudags frá húsi sínu
gegnum djúpar snjótraðir og sá
einmana fiðrildi berjast um í sjónum.
Skyldi þetta boða betri tíð nú
þegar góa hefur tekið völdin?
ÉG SÁ mynd af kíví í fyrsta
skipti í þýsku matarblaði fyrir
réttum tuttugu árum en skömmu
síðar var farið að flytja það inn.
Þótt kíví sé fyrsta framandi aldin-
ið sem hingað fluttist er það nú
orðið eins algengt eg epli og app-
elsínur og er því ekki lengur talið
með framandi ávöxtum. Kíví er
mjög vítamínrikt, í þvi er u.þ.b.
helmingi meira C- og E-vítamín
en í appelsínum. Aldinið er upp-
runnið í Kína og voru fræ þess
flutt til Nýja-Sjálands árið 1906
og ræktuð á norður-eynni og
nefnd Chinese gooseberi-y
(Kínastikilsber). Um miðja öldina
vai- farið að rækta það í Ameríku
af nýsjálensku fræi, en Ameríkön-
um fannst nafnið of austrænt og
kölluðu það „Melonette" (smá-
melóna) en þá datt einhverjum
snjallyrðingi í hug nafnið „Kiwi-
fruit“ (Kívíaldin) og það sló svo
sannarlega í gegn og aldinið
rokseldist. Þetta nafn hentar
mjög vel, enda líkist aldinið tals-
vert þjóðarfugli Nýsjálendinga,
kívífuglinum. Hann er á stærð við
smáan kjúkling, líkur aldininu á
litinn, væng- og stéllaus, með
fjaðrir líkar hári, hann hefur
sterkar fætur og er duglegur að
hlaupa og er með langt nef og
veiðihái- eins og köttur.
Grænt
ávaxtasalat
'/2 pk. Toro-kívíhlaup
1 V2 dl vatn (minna en segir
á umbúðum)
1 límóna (lime)
2 '/2 dl eplasafi
4 kíví
Vá-l melóna helst með grænleitu
_________aldinkjöti
_______200 g græn vínber______
__________1 -2 græn epli______
1. Leysið hlaupduftið upp í
sjóðandi vatni, hellið á fat með
sléttum botni og látið stífna. Dýfíð
þá fatinu augnablik í heitt vatn og
hvolfið á bretti. Skerið hlaupið í
teninga á stærð við sykurkola.
2. Skerið hýðið af límónunni
örþunnt í langa þræði, gætið þess
að það hvíta fari ekki með. Sér-
stakt áhald er til þessara nota, en
nota má kartöfluhníf með rauf og
klippa síðan hýðið í ræmur með
skærum.
3. Afhýðið kívíaldinin og takið
af harðan hnúð við annan endann,
notið ekki endasneiðar, skerið
aldinin í tvennt langsum og síðan í
þykkar sneiðar þversum.
4. Mótið kúlur úr melónunni
með þar til gerðri skeið, nota má
tsk. af mæliskeiðum. Skera má
melónuna í teninga.
5. Skerið vínberin í tvennt, fjar-
lægið steina ef eru í.
6. Skerið hvort epli í 4 báta,
fjariægið kjarnhús, og skerið bát-
ana í þunnar sneiðar þversum.
7. Setjið alla ávextina í skál.
Kreistið nokkra dropa úr límón-
unni saman við eplasafann og
hellið yfir. Stráið hlaupteningun-
um yfir og loks límónuræmun-
um.
Kíví-jógúrt-
búðingur
Notið djúpa skól
með hallandi börmum.
1 pk. súkkulaðikextingur,
__________fóst í pökkum_______
2 litlir bikarar jógúrt með
kíví og perum
2 meðalstór egg
1 pk. kívíhlaup
2 '/2 dl vatn (helmingi minna
______en segir ó umbúðum)_____
1 dl brytjað súkkulaði
1 dl saxaðar döðlur
1 peli rjómi
2-3 kíví
1. Setjið plastfilmu inn í skál-
ina, raðið síðan súkkulaðifingrun-
um upp með barminum allt í
kring.
2. Leysið hlaupduftið upp í
sjóðandi vatninu, kælið síðan án
þess að hlaupi saman.
3. Þeytið eggin lauslega út í
jógúrtina, setjið súkkulaði og
döðlur út í og blandið saman við
kaldan hlaupsafann. Kælið þar til
þetta er hálfhlaupið, blandið þá
þeyttum rjóma út í. Hellið varlega
í skálina. Látið stífna í kæliskáp í
minnst 6 klst.
4. Hvolfið á fat, fjarlægið plast-
filmuna.
5. Afhýðið kívíin, skerið í sneið-
ar og raðið ofan á.
Athugið: Hvatar eru í fersku
kíví sem valda því að matarlím
hleypur ekki. Þeir eru óvirkir í
hlaupinu.
Útsölulok
í dag, laugardag
Aukaafsláttur
Nýjar sumarpeysur á mánudag
Glugginn .augavegi 60, sími 551 2854
í DAG
VELVAKAJMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Morgunblaðið/RAX
Fölsk
skilaboð
FRÉST hefui- af frum-
varpi fyrir Alþingi um ætt-
leiðingarmál. Þar mun
m.a. vera gert ráð fyrir að
fólki í óvígðri sambúð verði
heimilað að ættleiða böm.
Þetta hljómar undarlega.
Yrði þetta ákvæði lögfest
væru stjórnvöld að senda
almenningi fölsk skilaboð.
Verið væri að staðfesta
þann algenga misskilning
að réttarstaða fólks í
óvígðri sambúð verði með
tímanum eins og um hjón
væri að ræða, t.d. hvað
varðar erfðarétt.
Rökin fyrir þessu
ákvæði þekki ég ekld en
þau hljóta að vera léttvæg.
Ættleiðing barns er mikil-
væg skuldbinding. Er farið
fram á mikið þótt sambúð-
arfólki sem hygðist ætt-
leiða barn væri gert að
gangast undir skuldbind-
ingu hjónabandsins áður
en til slíks gæti komið?
Vigfús Ingvar Ingvarsson.
Hættum allri hræsni
ÉG skora á ríkisstjórnina
að hætta alhi hræsni og
stöðva allar styrkveitingar
til tóbaksvarna á meðan
þeir hika við að skrifa und-
ir Kyoto-samkomulagið.
Tóbaksvarnir svokallaðar
hafa yfirleitt miðað að því
að úthýsa reykingamönn-
um hvarvetna á þeim for-
sendum að óbeinar reyk-
ingar væru hættulegar
hinum reyklausu. Hvar
eru þessi rök þegar spáð
er í stóriðju, bílainnflutn-
ing og annað sem veldur
svo mörgum ama, bæði
reyklausum og þeim sem
reykja? Ég legg svo til að
peningurinn sem hætt
verðm- að veita í
tóbaksvarnir verði nýttur í
eitthvað jákvætt s.s. menn-
ingu og listir, enda hættu-
legt heilsunni að staðna í
höfðinu.
Kristín Jónsdóttir.
Leiðinlegar auglýsingar
ÉG er ekki ánægð með bl-
eyjuauglýsingarnar sem
verið hafa í sjónvarpinu
þar sem lítil stúlka er gerð
að hálfgerðu fífli og sýnd
berrössuð. Eins finnst mér
dömubindisauglýsingarnar
afskaplega leiðinlegar og
finnst þær óviðeigandi.
Reið móðir.
Geymaflutningaskip?
ÞAÐ KOM mér undarlega
fyrir sjónir að sjá frétt í
blaðinu sl. fimmtudag á
bls. 7. Þar var talað um
„geymaflutningaskip“.
Þetta kemur mér undar-
lega fyrir sjónir, hélt að
þessi skip væru venjuleg-
ast kölluð tankskip. Ert
þetta eitthvert nýyrði?
Friðleifur.
Dregið of snemma?
ÉG ætlaði að borga happ-
drættismiða hjá SEM, en
auglýst hafði verið að
dregið væri 24. febrúar.
Þann 23. febrúar ætlaði ég
að hringja og athuga hvort
nóg væri að borga miðann
minn að morgni 24. en þá
kom bara símsvari sem
sagði: Dregið hefur verið í
happdrætti SEM, svo ég
hætti við að borga miðann.
Sigga.
Tapað/fundið
GSM-sfmi týndist
ALCATEL GSM-sími
týndist í miðbæ Reylqa-
víkur sl. laugardagskvöld.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 588 1428.
Lyklakippa í óskilum
LYKLAKIPPA, Nike,
fannst fyrir utan List-
húsið, Engjateig í Laugar-
dal. Lyklakippan liggur
inni á kaffistofunni.
Hringur týndist
OXIDERAÐUR silfur-
hringur með tiguliaga
brúnum og túrmah'nsteini,
með gulli í kringum stein-
inn, týndist laugar-
dagsnótt 20. febrúar.
Merking ÁF innan í
hringnum. Hringurinn er
eigandanum mikils virði.
Finnandi vinsamlega hafið
samband í síma 566 8835.
Giftingarhringur
í óskilum
GIFTINGARHRINGUR
með áletruninni „Þín
Nína“ fannst fyrir ca. 3
vikum síðan íyrir utan
verslunarmiðstöð í
Hverafold. Upplýsingar í
síma 567 6110 og 560 0119.
Gullarmband týndist
GULLARMBAND með
hangandi smáhlutum á,
m.a. barnatönnum og
áhangandi gullplötu með
ágröfnu HM og KK, týnd-
ist fyrir 4 árum síðan. Þeir
sem kannast við armband-
ið hafi samband í síma
568 2383.
„ EXTREMITIES “ flís-
húfa á Café Milano
SVÖRT kven-flíshúfa
gleymdist á snyrtingunni á
Café Milano 16. febrúar sl.
eða týndist á Skeifu-
svæðinu. Skilvís finnandi
vinsamlega hafið samband
í síma 562 5407. Fundar-
laun.
G-Schock úr týndist
SVART G-Schock úr með
frönskum rennilás týndist
í Sundlaugunum í Laugar-
dal, mánudaginn 22. febrú-
ar. Finnandi hafi samband
í síma 553 1402.
Krúsi þarf nýtt heimili
VEGNA óviðráðanlegra
orsaka þarf Krúsi að eign-
ast nýtt heimili. Krúsi er
þriggja ára blendingur,
blíður og barngóður. Upp-
lýsingar í síma 565 0169.
Kettlingur óskar
eftir heimili
KETTLINGUR, kassa-
vanur, óskar eftir heimili.
Upplýsingar í síma
551 8621.
Snúlla er týnd
SNÚLLA er svört með
hvítar loppur og hvítt
trýni, hún týndist frá
Flyðrugranda sl. miðviku-
dag. Þeir sem hafa orðið
hennar varir hafi samband
í síma 899 3663.
Víkverji skrifar...
FRÉTT frá Danmörku í fimmtu-
dagsblaði vakti sérstaka athygli
Víkverja. Þar var sagt frá viðbrögð-
um stjórnmálamanna í Danmörku
við dómi hæstaréttar landsins sem
úrskurðaði að lög sem þingið hafði
samþykkt væru stjórnai-skrárbrot.
Víkverja þótti þessi niðurstaða
hljóma kunnuglega.
Hið sama reyndist þó ekki eiga
við um viðbrögð forsætisráðherra
Danmerkur, Poul Nyrup Rasmus-
sen þegar niðurstaðan lá fyrir.
Nyrup lýsti því yfir að dómurinn
væri „fullkomlega skýr og eindræg-
ur“. Jafnframt sagði forsætisráð-
herra Dana að ríkisstjórnin og
þingið bæru skýra ábyrgð á því að
lög er brytu gegn stjórnarskránni
hefðu verið samþykkt. Hafnaði
hann öllum tilraunum til að koma
ábyrgðinni yfir á embættismenn og
sagði: „Við stjórnmálamennirnir
vissum fullvel hvað við vorum að
gera.“
I Danmörku líta menn svo á að
þessi niðurstaða hæstaréttar eigi að
vera áminning fyrir þingmenn um að
þeim beri fyrst og fremst að fylgja
eigin samvisku í stað þess að lúta
flokksaga. Afgreiðsla laganna á þingi
Dana hafi einkennst af litlu sjálf-
stæði þingheims gagnvart ríkis-
stjórninni enda hafi flokkslínur verið
látnar ráða.
Ólíkt hafast menn að þótt skyldir
séu.
GREIN er Hreggviður Jónsson,
fyrrverandi alþingismaður, rit-
aði og birtist í miðvikudagsblaði
þótti Víkverja einnig forvitnileg. I
henni hvetur Hreggviður Jónsson til
þess að sá gjörningur að skipa
Svavar Gestsson sendiherra i
Kanada verði afturkallaður. Þing-
maðurinn íyrrverandi rökstyður mál
sitt með því að fullyrða að Svavar
Gestsson hafi á stjómmálaferli sín-
um verið einn helsti andstæðingur
utanríkisstefnu íslenskra stjórn-
valda. „I hvaða landi heimsins myndi
yfirlýstur andstæðingur allra helstu
málaflokka landsins í utanríkismál-
um þjóðarinnar verða skipaður
sendiherra?" spyr greinarhöfundur.
Mál sitt styður hann með dæmum og
tiltekur að sendiherrann tilvonandi
hafi verið andvígur útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar í 200 mílur, á móti
aðildinni að EFTA og Evrópska
efnahagssvæðinu. Þá hafi Svavar
Gestsson verið á móti NATO og and-
vígur veru varnarliðs Bandaríkja-
manna á íslandi.
Víkverji telur að Hreggviður
Jónsson veki hér athygli á máli, sem
verðskuldi umræðu. Ber að meta
hæfni manna til að gegna tilteknum
embættum á vegum ríkisins með til-
liti til alkunnra skoðana þeÚTa? Er
það ekki skilgreiningaratriði um
sendiherrastarfið að viðkomandi er
einungis ætlað að halda fram opin-
berri stefnu? Víkverji fær ekki séð
að Svavar Gestsson sé síður fær um
það en aðrir fyrrverandi stjórnmála-
menn.
Með sömu rökum mætti spyi-ja
hvort Halldór Ásgrímsson sé hæfur
til að gegna embætti utanríkisráð-
herra. Að minnsta kosti treysti hann
sér ekki til að greiða atkvæði með
aðild að Evrópska efnahagssvæðinu
er málið var afgi-eitt á Alþingi en
flestir eru sammála um að þar ræði
um mikilvægasta samning sem Is-
lendingar hafa gert_ síðustu áratug-
ina. Getur Halldór Ásgrímsson, með
rökum Hreggviðs Jónssonar, talist
sannfærandi fulltrúi íslenskra
stjórnvalda erlendis?
xxx
AUGLÝSINGAR frá Heimdalli,
félagi ungra sjálfstæðismanna,
eru ágæt pýbreytni í stjórnmálaum-
ræðunni. I þeim er mótmælt ýmsum
þeim höftum sem stjórnvöld beita
t.a.m varðandi innflutning á land-
búnaðarafurðum. Umfangsmiklum
ríkisrekstri á Islandi er andmælt og
þess krafist að aukið frelsi fái að
ríkja á sem flestum sviðum. Þessum
auglýsingum hafa ungu sjálfstæðis-
mennirnir síðan fylgt eftir með
greinaskrifum m.a. um einkasölu
ríkisins á áfengi og ríkisrekna fjöl-
miðla.
Víkverji á reyndar við viðvarandi
minnisleysi að stríða en hann hélt að
pólitískir leiðtogar og lærifeður
þessa unga fólks hefðu verið í stjóm
á Islandi síðustu átta árin.