Morgunblaðið - 27.02.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
eyri í úrvalsdeildinni. í fyrra varð
KA um miðja 1. deild og Pórsai'ar
féllu og það er langt frá því að vera
viðunandi," segii' Rúnar. Nefnir svo
atriði sem hann er ósáttur við, atriði
sem getur komið harkalega niður á
félagi sem fellur. „Samningsreglur
gera liðum erfítt fyi-ir. Falli lið, eins
og til dæmis Þór í fyrra, eru allir
strákarnir með lausa samninga og
önnur lið gætu hirt alla leikmennina
án þess að greiða félaginu neitt fyrir
þá. Mér fínnst þetta einkennilegt.
Baslið er alveg nógu mikið á liðum
sem falla. Það væri örlitlu skárra ef
þau fengju eitthvað fyrir þá leik-
menn sem færu.“
En hvað er til ráða vegna slaks
gengis Akureyrarliðanna? Skyldu
áhugamenn velta því mikið fyrir sér?
„Eg held, því miður, að það sé ekki
nógu mikið. Eg held það vanti meiri
félagsanda. Fólk er ábyggilega ekki
nógu duglegt að segja sína meiningu
og þegar það gerist virðast alltaf ein-
hverjir aðrir fara í íylu. Eg held að
fólk sé allt of viðkvæmt fyrir gagn-
rýni. Menn hætta því að gagnrýna,
sem er slæmt, því hún er af hinu
góða. Annað atriði er aðstaðan sem
knattspyrnumönnum hér í bænum
er boðið upp á. Það er auðvitað göm-
ul tugga, en við erum dálítið langt á
eftir, til dæmis þeim fyrir sunnan.
Það er kannski meginskýringin á
slöku gengi liðanna því ég held að
hér sé alveg hægt að gera góða
hluti.“ Sem dómari hefur Rúnar svo
líka kynnst atriði sem hann segir að
betur megi fara. „Það er oft vanda-
mál með unga drengi, sem eru að
byi'ja í meistaraflokki, að þeir ein-
beita sér ekki nóg vel að því sem þeir
eiga að vera að gera - að spila fót-
bolta. Þeir eru allt of mikið að hugsa
um annað, til dæmis okkur, þessa
vesalinga sem erum að reyna að
stjórna leikjunum. Þeir nudda allt of
mikið í okkur, en ég held satt að
segja að þeim veiti ekkert af þvi að
einbeita sér að fótboltanum og láta
okkur í friði. Þetta truflar marga
þeirra nefnilega mjög mikið.“
Nú eru báðir orðnir saddir og bún-
ir að tala nóg; greinarhöfundur gerir
því upp við þjónustustúlkuna til að fá
ekki rautt spjald. Rúnai' flautar
síðan af og við göngum af velli.
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 31
sjónvarpsútsendingar á fímmtu-
dag þessa viku til að vekja enn
frekar athygli á þeirri sérvisku er
einkenndi þjóðina á árum áður.
Búist er við að 60-70 veitinga-
staðir um allt land taki þátt í góu-
gleðinni, jafnt pöbbar sem betri
veitingahús á borð við La Prima-
vera og Perluna. Tilboð verða á
mat og drykk, skipulögð skemmti-
atriði og ýmislegt annað. Þá eru
báðir islensku bjórframleiðend-
umir, Egils og Viking, með í ráð-
um auk innflytjenda nokkurra er-
lendra bjórtegunda, Flugleiða,
Reykjavíkui'borgar og Akureyrar-
bæjar.
Vonandi heppnast þetta vel. Há-
tíð á borð við góugleði getur ekki
orðið til annars en að lífga aðeins
upp á tilveruna og gera lífíð á Is-
landi ögn fjölbreyttara.
Tíu ár eru liðin um þessar mundir frá því
að sala á bjór var leyfð hér á landi. Stein-
grímur Sigurgeirsson kynnti sér sér-
staka hátíð sem efnt verður til á veitinga-
húsum um allt land af því tilefni.
þorrablótum. Útlendingum kann
að þykja foi-vitnilegt að lesa um
þon-amat en varla verður sá lestur
til að kynda undir áhuganum á fs-
landsferð. Svo er spuming hvort
ekki sé þjóðráð að leggja niður
Sælkerinn
GÓUGLEÐI hefst
á veitingastöðum
um allt land eftir
helgi en hinn 1.
mars verða tíu ár
liðin frá því að sala
bjórs var leyfð á
fslandi. Þótt hið ís-
lenska heiti gefi
það ekki til kynna
er ljóst af hinu enska heiti hátíðar-
innar („The Icelandic Beer and
Food Festival") að stefnt er að því
að tengja hana rækilega við þessi
tímamót. Ekki er þó einungis um
eina „afmælisveislu“ að ræða held-
ur er markmiðið að góugleðin
verði að varanlegri uppákomu.
Þeir sem standa að góugleðinni
setja markið hátt og stefna að því
að hátíðin verði fastur liður um
þetta leyti árs í framtíðinni, rétt
eins og þorrablót og jólahlaðborð
eru nú. Fyrsta vika marsmánaðar
yrði því eins konar bjórhátíðarvika
á íslenskum veitingastöðum.
Það kann að virka sem mikil
bjartsýni að ætla að ákveða það
fyrirfram að fyrsta vika marsmán-
aðar verði haldin hátíðleg með
slíkum hætti. Hins vegar eru auð-
vitað fordæmi fyrir því að „hefðir“
geta verið fljótar að festa sig í
sessi. Hvað er til dæmis langt síð-
an að jólahlaðborðin fóru fyrst að
skjóta upp kollinum? Það er líka
greinilegt af listanum yfir þau fyr-
irtæki er standa að hátíðinni að
ætlunin er að höfða til erlendra
ferðamanna. Fara þar saman
hagsmunir veitingamanna og
ferðaþjónustu þar sem marsmán-
uður er öllu jafna mánuður þar
sem fremur lítið er í gangi. Og ef-
laust er það líklegra til árangurs,
þegar reynt er að ná athygli er-
lendra ferðamanna, að segja frá
þjóðinni sem til skamms tíma var
ekki leyft að kaupa bjór af ráða-
mönnum sínum en að laða fólk að
CÓUCLEÐl
ig!
MATUR
DRYKKUR
MENNING
Opið iaugardag 13-17
FiUGEOT
Ljón 4 vegiwntl
1600 cc vél • 1" upphækkun • 14" álfelgur • fjarstýrðar samlæsingar • þjófavörn • útvarp stillt í stýri • rafmagn í rúðum • þokuljós * hjóla- og skíðagrind * dráttarkrókur
JíOIFlUiR
Ævintýralegur bíll á ögrandi verði!
1.450.000 k
Frábært verð fyrir
ótrúlega vel
útbúinn ferðabíl