Morgunblaðið - 27.02.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 21
Góð veltuaukning og afkoma hjá Teymi hf.
Hagnaður ársins nam
15 milljónum króna
w wniwwimir jr nn ” fí ið
VIÐ utlondH ■w
Verðmæti innflutnings og útflutn ings P
janúar1998 og 1999 1998 1999 Breyting á
(fob virði í milljónum króna) jan. jan. föstu gengi*
Útflutningur alls (fob) 10.122,6 8.245,6 -18,3%
Sjávarafurðir 6.857,0 5.229,0 -23,5%
Landbúnaðarvörur 151,8 165,2 +9,1%
Iðnaðarvörur 3.030,4 2.126,4 -29,6%
Ál 1.938,1 1.599,3 -17,3%
Kísiljárn 341,1 - -
Aðrar vörur 83,3 725,0 -
Skip og flugvélar - 656,9 -
Innflutningur alls (fob) 15.803,3 10.783,8 -31,6%
Matvörur og drykkjarvörur 1.094,9 842,3 -22,9%
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 3.858,7 2.661,0 +30,8%
Óunnar 148,8 58,4 -60,6%
Unnar 3.710,0 2.602,5 -29,7%
Eldsneyti og smurolíur 1.328,9 498,1 -62,4%
Óunnið eldsneyti 55,6 0,4 -
Bensín, þ.m.t. flugvélabensín 258,5 118,8 -53,9%
Annað unnið eldsn. og smurolíur 1.014,8 378,8 -62,6%
Fjárfestingarvörur 2.973,3 3.550,5 +19,7%
Flutningatæki 4.885,9 1.455,8 -70,1%
Fólksbílar 713,5 947,2 +33,1%
Flutn.t. til atv.rek. (ekki skip, flugv.) 200,8 227,0 +13,3%
Skip 213,1 12,9 -
Flugvélar 3.492,2 0,2 -
Neysluvörur ót.a. 1.635,1 1.764,9 +8,2%
Vörur ót.a. (t.d endursendar vörur) 26,5 11,3 -57,4%
Vöruskiptajöfnuður -5.680,08 -2.538,3
* Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog; á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris
ijanúar 1999 0,3% lægra en árið áður. Heimild: HAGSTOFA ÍSLANDS
Vöruskiptin í janúar
*
Ohagstæð um 2,5
milljarða króna
VORUSKIPTIN við útlönd voru
óhagstæð um 2,5 milljarða ki'óna í
janúar, en þá voru fluttar út vörur
fyrir 8,2 milljarða og inn fyrir tæpa
10,8 milljarða.
I fréttatilkynningu frá Hagstofu
Islands kemur fram að í janúar 1998
voru vöruskiptin óhagstæð um 5,7
milljarða á fóstu gengi. Verðmæti
vöruútflutnings í janúar síðastliðnum
var 18% minna á föstu gengi en á
sama tíma árið áður og verðmæti
innflutnings var 32% minna á föstu
gengi en á sama tíma árið áður.
Forstjóri CBS
vill kaupa NBC
New Orleans. Reuters.
MEL KARMAZIN, stjórnarfor-
maður CBS Inc., kveðst vilja
kaupa NBC sjónvarpsnet General
Electric fyrirtækisins og vera fús
til að greiða of hátt verð til að
komast að samningum.
Ummæli Karmazins komu
fram þegar hann svaraði gagn-
rýni framkvæmdastjóra Saatchi
& Saatchi Plc, Allen Banks, á
samþjöppun í fjölmiðlaiðnaði, sem
hann kvað ógna auglýsendum og
auglýsingaskrifstofum. Karmazin
sagði að samþjöppun yrði aug-
lýsendum og auglýsingaskrifstof-
um til góðs. „Hví get ég ekki
keypt NBC, ef Exxon og Mobil
geta sameinazt?“ spurði hann.
Karmazin telur líklegt að eitthvað
muni gerast hjá NBC, ef til vill
með aðskilnaði frá GE. Hann lét
líka í ljós áhuga á að kaupa ABC
sjónvarp Walts Disney og FOX
sjónvarpskerfí News Corp.
Afkoma Hlutabréfamarkaðarins 1998
18,1 milljón
króna í hagnað
TEYMI hf. Ársuppgjör 1998
Rekstrarreikningur 1998 1997 Breyt.
Rekstrartekjur Milljónir króna 237,7 169,0 +41%
Rekstrargjöld 217,6 152,7 +43%
Hagnaður fyrir afskriftir 20,1 16,3 +23%
Fjármagnstekjur 2,4 2,3 +4%
Áætlaðir skattar -7,2 -6,6 +9%
Hagnaður ársins 15,3 12,0 +28%
Efnahagsreikningur 3i.des. 1998 1997 Breyt.
I Eignir:
Veltufjármunir Milljónir króna 135,1 100,8 +34%
Fastafjármunir 12,9 7,1 +82%
Eignir samtals 148,0 107,9 +37%
| Skuldir og eigið fé:
Skammtímaskuldir 107,0 82,1 +30%
Langtímaskuldir 0,0 0,0 0%
Eigið fé 41,0 25,8 +59%
Skuldir og eigið fé samtals 148,0 107,9 +37%
Kennitölur 1998 1997 Breyt.
Eiginfjárhlutfall 28% 24%
Veltufjárhlutfall 1-27 1,23
HAGNAÐUR hlutabréfasjóðsins
Hlutabréfamarkaðarins hf., sem
Verðbréfamarkaður Islandsbanka,
VÍB, rekur, nam 18,1 milljón króna á
síðastliðnu ári. Hagnaður fyrir skatta
nam 30,2 milljónum króna. Hreinar
fjármunatekjur námu 33,1 miiljón
króna. Ekki liggja fyrir samanburðar-
tölur fyrir árið 1997 þar sem félagið
hóf ekki starfsemi í núverandi mynd
íyrr en um mitt ár 1997.
Tilgangur Hlutabréfamarkaðarins
er að opna einstaklingum, stofnana-
íjárfestum og öðrum aðilum leið til að
verða þátttakendur á hlutabréfamörk-
uðum í iðnríkjunum. Féiagið fjárfestir
aðallega í hlutdeiidarskírteinum eða
hlutabréfum erlendra verðbréfa- og
hlutabréfasjóða sem fjárfesta i hluta-
bréfum fyririækja í iðnríkjunum.
Markaðsverð inneignai- félagsins
hjá erlendum hlutabréfasjóðum í árs-
lok 1998 nam 274,6 milljónum króna.
Þar af nam markaðsverð inneignar í
CICM-Global Equity Fund 149,3
milljónum króna, 59,4 milljónum í
Scudder Global Themes, 19,2 milljón-
um króna í Vanguard - Europe Stock
Ind., 33,3 milljónum í Vanguard -
Global Stock Ind. og 13,3 milljónum
króna í Vanguard - S&P 500 Stock
Ind.
Hluthafar í Hlutabréfamarkaðinum
voití 458 í árslok og átti enginn einn
hluthafí mefra en 10% hlut í félaginu.
Stjórn féiagsins leggur til að enginn
arður verði greiddur til hluthafa. Að-
alfundur félagsins verður haldinn
fimmtudaginn 4. mars í húsnæði Is-
landsbanka á Kirkjusandi.
HAGNAÐUR Teymis hf. 1998 nam
rúmum 15 milljónum króna eftir
skatta, og veltuaukning varð 41%
frá árinu á undan. Ai-ðsemi eigin
fjár var 58% og innra virði fyrir-
tækisins jókst um 59% milli ára.
Teymi hf. var stofnað árið 1995
með það að markmiði að þjónusta
íslensk fyrirtæki á sviði gagnameð-
höndlunar hvers konar. Teymi
þjónustar nú hátt í 100 íslensk fyr-
irtæki í almennri gagnavinnslu,
gagnaskemmum, gagnasmiðjum og
Internet-lausnum. Hjá fyrirtækinu
starfa í dag 25 manns, þar af 16 við
ráðgjöf og þjónustu. Fyrirtækið
starfar sjálfstætt og vinnur með
öllum helstu söluaðilum vélbúnaðar
og hugbúnaðar. Helstu hluthafar í
Teymi hf. eru Opin kerfi hf. með
36%, Elvar Steinn Þorkelsson með
29%, íslenski hugbúnaðarsjóðurinn
með 20% og Fjárfestingarbanki at-
vinnulífsins með 5%.
Veltuaukning Teymis varð um
41%, hagnaður jókst um 28% og
skuldir og eigið fé hækkaði um
37% milli ára. Elvar Steinn Þor-
kelsson, framkvæmdastjóri Teym-
is, segir að eftir að hafa verið langt
yfir hagnaðaráætlunum á fyrri
helmingi ársins hafi verið ákveðið
að fjárfesta í mannskap og þekk-
ingu og starfsmönnum verið fjölg-
að úr 11 í 25 á árinu.
„Við hyggjumst auka veltu og
hagnað, og fjölga starfsmönnum
um 30-40% á árinu 1999, en jafn-
framt halda niðri kostnaði sem
hlutfalli af veltu. I vor flytjum við í
nýtt húsnæði sem er sniðið að þörf-
um okkar til næstu ára, en núver-
andi húsnæði hefur verið okkur
viss þröskuldur í frekari framgangi
fyrirtækisins," segir Elvar.
Hann segir að miðað við áætlanir
sé gert ráð fyrir 32% aukningu í
veltu og hagnaði, og til lengri tíma
sé ætlunin að ná 40-50% vexti á
milli ára. Segir hann ekki fjarri
lagi að Teymi hf. verði komið á al-
mennan hlutabréfamarkað eftir
2-3 ár ef svo fari fram sem horfir.
Á aðalfundi Teymis sem haldinn
var 25. febrúar var kosin ný stjórn
félagsins og skipa hana þeir Frosti
Bergsson, Sigurður Smári Gylfa-
son og Heimir Sigurðsson. Sam-
þykkt var á fundinum að greiða nú-
verandi eigendum 2 milljónir króna
í arð..