Morgunblaðið - 27.02.1999, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 27.02.1999, Blaðsíða 52
* 52 LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR____ SIGRÍÐUR KRISTÍN JÓNSDÓTTIR Vídalínskirkja. forystu Kristínar steig kvenfélagið sín fyrstu spor. Þar vann hún ávallt heil og hollráð. Þess skal getið og þakkað að ávallt var aðstaða til félagsstarfa látin í té með velvilja og drenglund í Núpsskóla, bæði fyrr og síðar. Lífsstíll Kristínar var léttleiki og æðruleysi og kom það ekki síst fram er þau hjón urðu fyrir þeirri sáru raun að missa næstelsta son sinn barnungan. A þessum árum voru barnmörg heimili á Núpi. Einstakt var hve barnahópurinn var samrýndur, enda myndaðist milli þeirra órofa vinátta, sem lifir enn í dag þrátt fyrir fjar- lægðir og stopula samfundi. Bernskuheimili þeirra voru ávallt opin öllum hópnum til leikja og starfa og nutu þaujjess í áhyggju- leysi bernskunnar. Arið 1960 bauðst sr. Eríki staða þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum og flutti þá hin stóra prestsfjölskylda frá Núpsskóla eftir áratuga farsælt starf. Á nýjum stað var Kristín hin mik- ilhæfa móðir og húsmóðir. Starfs- vettvangur hennar mun þó síst hafa orðið minni. Við hlið manns síns stóð hún ávallt sterk sem hollvinur og ráðgjafi. Vinátta og minningar sem ein- kennast af samhug og gagnkvæmum einhug varpa birtu á farinn veg. Kær vir.kona er kvödd. Ekki er framar ræðst við í síma og styrkur sóttur þar sem trú og hlý lífssýn voru i fyr- irrúmi. Efst í huga er þakklæti. í hugann kemur brot úr versi á sálmi sem sr. Eiríkur lagði fyrir ferming- arböm sín vestra: Heimslán er valt sem hrökkvi strá, hamingjan skjótt vill bresta. Sæll er því hver sem öruggt á ástvina skjólið besta. Því munu prestshjónin frá Núpi hafa miðlað börnum sínum og þau endurgoldið með mannkostum sínum og farsælum ferli. 3örnum og öðrum ættingjum Kristínar og séra Eiríks eru færðar innilegar samúðarkveðjur frá okkur hjónum og börnum okkar. Áslaug S. Jensdóttir, Núpi. Hún var að vestan - hún Kristín með öll beztu einkenni harðduglegs vestfirzks fólks, sem er mótað af náinni snertingu við lífið og náttúruna. Það er raunar ekki hægt að skilja andann og hugarfarið í manneskju eins og Kristínu Jóns- dóttur frá Gemlufalli í Dýrafirði nema hafa verið langtímum saman innan um vestfirzkt fólk og tekið þátt í kjörum þess og skynjað hvern- ig gildismat þess er byggt upp. Kristín var ofar öllu eins og sam- nefnari fyrir sjálfsvirðingu og heið- urskennd - og sýndi af sér slíkan dugnað, að það var einstakt - eigin- lega var hún, ef svo má að orði kom- ast, margra manna maki. Skaphöfn hennar - karakter hennar, bar vitni um ómælanlegan manndóm. Þannig var hún. Ung var hún gefin (eins og sagt var til foma) síra Eiriki J. Eiríks- syni skólamanni, andans manni, sem stýrði Núpsskóla við orðstír. Hann varð síðar þjóðgarðsvörður á Þing- völlum, í hjarta þjóðarinnar. Síra Eiríkur var hafsjór, gæddur lífsólgu, gneistandi af andagift. Ræður hans hrifu fólk. Þær voru flestar gæddar neista hugsjónamanns. Kristín var alla tíð eins og klettur sem lífsföru- nautur manns síns. Þau hjón eign- uðust ellefu börn og misstu eitt. Komu þeim til manns með fallegum blæ. Heimili Kristínar ojg síra Eiríks var gætt innri fegurð. Eg var þeirr- ar gæfu aðnjótandi að kynnast þeim hjónum og fjölskyldu þeirra - náið. Gaf slíkt hugljómun í myndverkum, sem ég vann að á Þingvöllum hér á árum áður. Eiginlega reyndi ég ekki að fá anda í nýja málverkasýningu nema fara á Þingvöll og hitta Kristínu og sira Eirík og blanda geði við þau. Síðan þau hurfu þaðan hef ég ekki borið það við að mála ■ þar. Hvert nýtt tímabil í list undir- skráðs var mótað af heimsókn til Þingvalla, þar sem þau þjóðg- arðsvarðarhjónin sátu mikinn garð með reisn samfara tillitssemi við sögu lands og þjóðar. Það þarf skyn- semi og sterka skaphöfn til að gegna jafnháu embætti og þjóðgarðsvarð- arstarfi á Þingvöllum. En þau hjónin frú Kristín og síra Eiríkur stóðust það próf með ágætiseinkunn án nokkurrar sýndai-mennsku. Þau voru eins pjattlausir fulltrúar hjarta þjóðarinnar og hugsazt getur. Kristín, sem nú er farin héðan, var ein mest lifandi manneskja, sem ég hef kynnzt, jafnframt einhver mesta manneskja sem ég hef kynnzt, laus við allar fyrirsagnir eins og hetja í sögu eftir Hamsun - svo innilega ótilbúin. Henni fylgdi sterkt heilbrigt andrúmsloft, sem bætti umhverfið. I frásöguþætti í einni bók Guð- mundar Daníelssonar er fjallað um bernsku, unglingsár og uppvöxt Kristínar á heimaslóðum hennar fyrir vestan. Hún hafði að mestu leyti skrifað þennan lífsþátt sjálf í eldhúsinu heima hjá sér á Selfossi. Lýsingar hennar „komu alskapaðar úr höfði Seifs“. Algjör snilld. Andrés Kristjánsson bókmenntarýnir sagði í ritdómi um bók Guðmundar, þar sem Kristínar-kafli birtist: „Það bezta kemur úr Dýrafirðinum". Þessi frásögn, sem Kristín hripaði niður í eldhúskróknum heima hjá sér, hefði getað verið eftir stórrit- höfund - langtum betri bókmenntir og náttúrulegri og nær sjálfu lífínu en tíðkast í dag. Hún orkti, en fór dult með. Þegar hún var sextug, þá þakkaði hún öll heillaóskaskeytin, sem henni voru send, með bundnu máli, og sendi hverjum um sig visu í þakkaskyni. Svona varð allt að sköpun í lífí henn- ar. Eitt sinn gaf hún dóttur minni Halldóru, þegar hún var pínulítil, sjal, sem hún hafði prjónað og gætt lífskrafti og sál. Þannig varð allt lif- andi í höndum hennar. Og nú hefur hún kvatt okkur án þess að yfirgefa okkur, sem söknum henna —minn- ingin lifir til eilífðarnóns. Guð blessi minningu hennar. Steingrímur St.Th. Sigurðsson. Kveðja frá íbúum Árborgar Við fráfall Ki-istínar Jónsdóttur minnast íbúar Árborgar hennar og manns hennar, séra Eiríks J. Ein'ks- sonar, fyrir þann einstæða atburð, er þau gáfu Bæjar- og héraðsbókasafn- inu á Selfossi bókasafn sitt á afmæl- isdegi Kristínar, 5. október 1984. Var hér um að ræða stærstu bóka- gjöf í sögu þjóðarinnar, alls um 30 þúsund bindi. Hljóðaði gjafabréfið á þessa leið: „Hér með gefum við undhrituð bókasafn okkar Bæjar- og héraðs- bókasafninu á Selfossi. Gjöf þessi er til minningar um kennara okkar á Eyrarbakka og í Dýrafirði og fermingarfeður okkar, þá sr. Gísla Skúlason og sr. Sigtrygg Guðlaugsson á Núpi. Með beztu óskum og þökkum í trausti þess að safnið megi verða al- menningi til nota og þroska." í fyrstu var þessi merka bókagjöf hýst á heimili þeirra hjóna á Hörðu- völlum 2 á Selfossi en var síðan færð í bókasafnið við flutning þess að Austurvegi 2 á Selfossi, þar sem það er nú varðveitt og öllum aðgengilegt. Með stuðningi Kristínar tókst séra Eiríki að koma upp þessu ótrúlega stóra einkabókasafni sem íslending- ar fá nú að njóta um ókomin ár. Við fráfall hennar minnumst við þessara stórhuga hjóna og ítrekum þakkir okkar til þeirra fyrir þetta mikla menningarframlag. F.h. sveitarfélagsins Árborgar, Ingunn Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar. • Fleiri minningargreinar um Sigríði Kristínu Jónsdóttur bíða birtingar og munu birtast { blaðinu næstu daga. Safnaðarstarf Heimsókn frá Glerársókn í Vídalínskirkju SUNNUDAGINN 28. febrúar munum við fá skemmtilega heim- sókn frá Glerársókn á Akureyri. Þá mun Gunnlaugur Garðarsson, sóknarprestur Glerársóknar, koma í heimsókn ásamt kirkjukór sókn- arinnar. stjórnandi kórs Glerár- sóknar er Hjörtur Steinbergsson. Það er sérstaklega skemmtilegt, að sr. Gunnlaugur, sem starfaði sem prestur fyrir nokkrum árum hér í Garðasókn, skuli koma í heimsókn til okkar með samstarfsfólki sínu. Kirkjukór Vídalínskirkju mun taka á móti norðanmönnum ásamt und- irrituðum. Munum við sameinast í guðsþjónustu í Vídalínskirkju kl. 11 28. febrúar. Þar munum við undirritaður og sr. Gunnlaugur þjóna, ásamt þvi að kórarnir munu báðir syngja fyrir fullum styrk við guðsþjónustuna. Mætum vel og styðjum við skemmtilegt kirkju- starf. Ungt fólk stjórn- ar guðsþjónustu í Fríkirkjunni í Hafnarfírði NÆSTKOMANDI sunnudag verð- ur unga fólkið í söfnuðinum áber- andi við guðsþjónustu kl. 14. Auk kirkjukórs safnaðarins sem leiðir almennan safnaðarsöng mun barnakór kirkjunnar syngja undir stjórn Sigríðar Ásu Sigurðardótt- ur. Söngur barnakórsins hefur vakið mikla athygli undanfarin ár og er fólk hvatt til að koma til kirkjunnar og hlýða á fallegan söng kórsins. Við guðsþjónustuna mun ung kona í söfnuðinum, Sig- ríður Kristín Helgadóttir, predika en hún lýkur guðfræðinámi nú í vor. Sigríður Kristín hefur haft umsjón með sunnudagaskólastarfi í Fríkirkjunni í Hafnarfirði í vetur og tekið þátt í fjölbreyttu safnaðar- stai-fi kirkjunnar á liðnum árum. Að lokinni guðsþjónustu verða kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eins og venjulega. Barnasamkoma verður í kirkjunni kl. 11 að venju. Tónlistarmessa í Hjallakirkju TÓNLISTARMESSA verður í Hjallakirkju á sunnudag kl. 11. Um er að ræða nýbreytni í guðsþjón- ustuhaldi kirkjunnar, en fyrsta tónlistarmessa vetrarins var í nóv- ember síðastliðnum. Að þessu sinni mun málmblásarakvintett leika verk eftir J.S. Bach o.fl. Jóhann Stefánsson og David Nooteboom leika á trompet, Jóhann Björn Ævarsson á horn, David Bobroff á básúnu og Þórhallur Halldórsson á túbu. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti og kórstjóri er Jón Ólaf- ur Sigurðsson. AJlir eru hjartan- lega velkomnir. Fimm ára börn og TTT-vöfflur í Landakirkju AF SÉRSTÖKU tilefni býður Landakirkja öllum bömum í Vest- mannaeyjum, sem eru fimm ára á þessu ári, að koma í barnaguðs- þjónustu sunnudaginn 28. febrúar kl. 11. Allir eru velkomnir í barna- guðsþjónustuna eins og alltaf en hún er venjuleg samverustund með söngvum, sögum, leik og söng. En strax eftir stundina, kl. 11:45, er fimm ára bömum boðið að þiggja fallega bók að gjöf frá sóknamefnd og prestum. Gaman verður að sjá sem flest böm og foreldra þeima, afa, ömmur eða aðra fullorðna. Eftir messu í Landakirkju kl. 14 bjóða krakkarnir í TTT-starfinu vöfflur með kaffinu. Vöfflumar era bornar fram gegn vægu gjaldi til að safna í ferðasjóð fyrir TTT-mót í Vatnaskógi í vor. TTT-krakkarnir hafa verið að æfa merkilegt leikrit, sem þau setja á svið í safnaðar- heimilinu við þetta tækifæri. Allir em hjartanlega velkomnir. Heimsókn til fósturbarna á Indlandi Á FRÆÐSLUMORGNI næstkom- andi sunnudag kl. 10 mun Guð- mundur Hallgrímsson lyfsaii segja frá heimsókn til íslenskra fóstur- barna á Indlandi. Um árabil hefur nokkur hópur fólks hér á landi tekið að sér að greiða fyrir menntun og fram- færslu allmargra indverskra barna. Á síðastliðnu ári fór hópur íslenskra fósturforeldra í heimsókn til Indlands til að kynnast börnun- um persónulega og fræðast um að- stæður þeirra og þjóðfélagið sem þau búa í. Ferð þessi var þeim sem hana fóra ógleymanleg reynsla og mun Guðmundur Hallgrímsson deila þeirri reynslu á fræðslu- morgninum og sýna skyggnur úr ferðinni. Neskirkja. Biblíulestur kl. 10.30. Lesið úr Matteusarguðspjalli. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórs- son. Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyr- ir unglinga kl. 21. Grafarvogskirkja. Safnaðarfundur Grafarvogskirkju verður haldinn í safnaðarsal kirkjunnai- mánudag- inn 1. mars kl. 20.30. Fundarefni: „Skáldin í Grafarvogi“. Anna S. Björnsdóttir, Einar Már Guð- mundsson, Gyrðir Elíasson og Sig- mundur Ernir Rúnarsson. Kaffi- veitingar. Mætum vel og hlustum á skáldin okkar. Allir velkomnir. Stjórnin. Hafnarljarðarkirkja. Kl. 11-12.30 opið hús í Strandbergi. Trú og mannlíf, biblíulestur og samræður. Leiðbeinendur sr. Gunnþór Inga- son og Ragnhild Hansen. KFUM og KFUK v/Holtaveg. Samkoma verður á morgun, sunnu- dag, í aðalstöðvum KFUM og KFUK við Holtaveg kl. 17. Upp- hafsorð hefur Friðrik Jensen Karlsson, formaður KSS. Ræðu- maður sr. Jón Helgi Þórarinsson. Boðið upp á samverar fyrir börn meðan á ræðunni stendur. Skipt í hópa eftir aldri. Létt máltíð seld á fjölskylduvænu verði að lokinni samkomu. Allir velkomnir. KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi. Al- menn samkoma kl. 14. Ræðumenn Guðrún Hlín Bragadóttir og Stein- unn Steinþórsdóttir. Karlabæna- stund mánudag kl. 20.30. Þriðju- dag brauðsbrotning og bænastund kl. 20.30. Miðvikudagskvöld sam- verustund unglinga kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Akraneskirkja. Kirkjuskóli yngri barna (6 ára og yngri) kl. 11. TTT- starf í safnaðarheimilinu Vina- minni kl. 13. Krossinn. Unglingasamkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel- komnir. Pjóðlagamessa í Hafnar- fjarðarkirkju NÆSTKOMANDI sunnudag verð- ur haldin svokölluð þjóðlagamessa í Hafnaifjarðarkii-kju. Þjóðlaga- messuna samdi sænska tónskáldið og presturinn Per Harling og heit- ir hún „mássa i viston“ á frummál- inu. Þjóðlagamessan er byggð á norrænni þjóðlagahefð þar sem texti og tónar tengjast norrænum vísnasöng. Vísan og vísnasöngur- inn eru eitt aðaleinkenni norrænn- ar alþýðusönghefðar. Um öll Norð- urlönd era sungnar vísur og rímur. Vísurnar segja sögur af venjulegu fólki og hetjum og tónlistin á sér ævafornar rætur í dölum og skóg- um Svíþjóðar, Noregs og Finn- lands. I þjóðlagamessunni er vísan og vísnatónlistin gerð að undir- stöðu helgihalds kirkjunnar. Allir hinir hefðbundnu messuliðir era á sínum stað, en þeir hafa verið end- ursamdir að hætti vísunnar. I stað hefðbundinnar miskunnarbænar, dýrðarsöngs, undirbúnings undir altarisgönguna og annarra liða messusöngsins, hefur Per Harling samið nýja tónlist og nýjar vísur. Auk þessa tengjast nýir sálmar messunni, sálmar sem að sjálf- sögðu era byggðir á vísnahefðinni. Að þessu sinni flytur sönghópur á vegum kórs Hafnarfjarðarkirkju messuna undir stjórn Natalíu Chow. Prestur er sr. Þórhallur Heimisson en hann þýddi messuna og sálmana er sungnir verða, en þeir era einnig eftir Per Harling. Hefðbundin guðsþjónusta er kl. 11. Prestur þá er sr. Gunnþór Ingason. Brandtex fatnaður -----5 Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Nýbýlavegi 12, sími 5544433
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.