Morgunblaðið - 27.02.1999, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Garðyrkjubændur um
gagnrýni Heimdallar
Grein sem
nýtur engra
styrkja
KJARTAN Ólafsson, formaður
Sambands garðyrkjubænda, segir að
gagnrýni félags ungra Sjálfstæðis-
manna, Heimdallar, vegna vemdar-
tolla á innflutt grænmeti hitti ekki í
mark þar sem engir tollar eru á inn-
fluttu grænmeti um þetta leyti árs.
„Pað er einkennilegt að
Heimdallur beini spjótum sínum
að þeirri grein landbúnaðar sem
nýtur engra styrkja og er í mestri
samkeppni við innfluttar garð-
yrkjuafurðir. Það er meiri sam-
keppni í þessari grein landbúnaðar
en nokkurri annarri. Við keppum
við innfluttar garðyrkjuafurðir,
hvort heldur það eru blóm eða
grænmeti, sem njóta niður-
greiðslna í sínum framleiðslulönd-
um. Á sama tíma greiðum við hátt
verð fyrir raforku til þess að fram-
leiða okkar afurðir án nokkurra
styrkja. Nýlega mótmæltu 40 þús-
und bændur því í Brússel að til
stendur að lækka styrki til bænda
í Evrópu. Bændur fá um helming
allra útgjalda Evrópubandalagsins
í formi niðurgreiðslna til landbún-
aðarins,“ segir Kjartan.
Hann segir að málfiutningur
Heimdallar um að reka eigi land-
búnað hér á landi undir formerkjum
frelsis standist ekki nánari skoðun
meðan engir styrkir eru til greinar-
innar. „Það verður að tengja hlutina
saman og skoða þá í heild sinni. Af
þessum sökum er málflutningur
Heimdellinga ósæmilegur og jaðrar
við atvinnuróg," segir Kjartan.
Fulltrúi sjálfstæðis-
manna ekki til Japans
SJALFSTÆÐISMENN í borgar-
stjórn hafa ákveðið að fulltrúi þeiiTa
fari ekki með í ferð borgarstjóra og
fulltrúa frá stjórn veitustofnana til
Japans, en ferðin hefst á sunnudag
og lýkur annan sunnudag.
Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjóm,
sagði að málið hefði komið þannig til
að borgarstjóri hefði ákveðið að fara í
ferð til Japans og heimsækja borgar-
yfírvöld í Tókýó, jafnframt því að
heimsækja m.a. fyrirtækið Mitsubis-
hi. Hún hefði óskað eftir því að tveir
fulltrúai’ úr stjóm veitustofnana
fylgdu henni á þessu ferðaiagi og fall-
ist hefði verið á að fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í stjóm veitustofnana færi
með í ferðina. Dagskrá heimsóknar-
innar hefði hins vegar ekki borist
þeim fyrr en á miðvikudagskvöld og
eftir að hafa skoðað hana og kynnt
sér umgerð þessarar heimsóknar
teldu þau ekki við hæfí að taka þátt í
henni. „Dagskráin ber það með sér
að þetta er boðsferð eða heimsókn á
vegum Mitsubishi alveg frá upphafi
til enda,“ sagði Inga Jóna.
Ekki boðsferð
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri sagði að þessi sinnaskipti
sjálfstæðismanna kæmu seint fram.
Það væri misskilningur að um boðs-
ferð væri að ræða. Ferðin væri farin
á vegum Reykjavíkurborgar og allur
kostnaður væri greiddur af borginni
en ekki af Mitsubishi-fyrirtækinu.
Hins vegar skipulegði Mitsubishi
dagskrána í Japan.
„Það að Mitsubishi myndi skipu-
leggja ferðina hafa sjálfstæðismenn
alltaf vitað og fengu þetta bréf sem
Mitsubishi sendi hingað 14. desem-
ber. Það bréf hafa þeir undir hönd-
um og vissu þetta allan tímann,"
sagði Ingibjörg Sólrún.
Hún sagði aðspurð að það hefði
aldrei staðið til að Mitsubishi greiddi
kostnað vegna ferðarinnar.
Lögreglan í Grindavík
Bæjarsjóður vill
greiða bakvaktirnar
BÆJARSTJÓRN Grindavíkurbæj-
ar hefur boðist til að greiða bak-
vaktir lögreglunnar í Grindavík í
marsmánuði þar til bæjarstjómin
nær tali af dómsmálaráðherra
vegna ástands sem skapast í lög-
gæslumálefnum Grindavíkur ef nið-
urskurðaráform ráðuneytisins um
lögi-egluembættið í Keflavík ná
fram að ganga. Bæjarstjóm sendi
formlegt bréf þessa efnis til ráðu-
neytisins á fimmtudag og býst við
svari á mánudag.
Samkvæmt áætlun ráðuneytisins
falla bakvaktir lögreglunnar í Gr-
indavík niður aðfaranótt mánudags
og er ráðgert að Keflavíkurlögregl-
an taki þær yfír.
Heyrst hafa raddir meðal bæjar-
stjórnarmanna og annarra íbúa, að
þeir hafí áhyggjur af því að áfram-
hald verði á niðurskurði ráðuneyt-
isins.
Fimm lögreglumenn starfa í Gr-
indavíkurbæ og þýðir niðurskurð-
urinn 256 þúsund króna launalækk-
un á ári fyrir hvern þeirra. Að sögn
Harðar Guðbrandssonar forseta
bæjarstjómar mun bæjarstjórnin
ekki láta stjórnvaldsaðgerðir dóms-
málaráðuneytisins yfír sig ganga án
þess að reyna að spyrna við fæti.
„Það er ljóst að við Grindvíking-
ar getum ekki sætt okkur við þessi
mál eins og þau virðast stefna
núna,“ sagði Hörður.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
RÁÐGERT er að lögregluembættið í Keflavík taki yfír bakvaktir
lögreglunnar í Grindavík.
Suðrænt og
seiðandi í MH
LAGNINGADAGAR hafa verið í
Menntaskólanum við Hamrahlíð í
vikunni. Hefðbundin kennsla var
felld niður; skólinn skreyttur, að-
aimatsal breytt í kaffíhús og fyr-
irlestrar og námskeið haldin nem-
endum til skemmtunar og
fræðslu. Þema lagningadaga í ár
var Suðrænt og seiðandi.
Eldur í veit-
ingahúsi
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
kvatt að veitingahúsi við Gnoðarvog
í gær. Þar var maður að svíða endur
í kjallai-a hússins og er talið að ofn
sem maðurinn notaði hafi bilað með
þeim afleiðingum að kviknaði í.
Þegar slökkviliðið kom á vettvang
hafði hann slökkt eldinn sjálfur.
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ og
Islensk-ameríska verslunarráðið
hafa hleypt af stað átaki í kynningu
á Islandi í Bandaríkjunum með
samningi við bandaríska ráðgjafar-
fyrirtækið Fleishman-Hillard.
Markmiðið er að skapa íslandi
sterka ímynd sem komi til með að
efla samkeppnisstöðu íslenskra
fyrirtækja í Bandaríkjunum og
fjölga ferðamönnum til landsins.
„Bandaríkin verða sífellt mikil-
vægari markaður fyrir útflutning
íslendinga auk þess sem banda-
rískum ferðamönnum hingað til
lands hefur fjölgað jafnt og þétt og,
ef rétt er á málum haldið, má gera
ráð fyrir enn fleiri tækifærum."
Þetta kom fram á blaðamannafundi
sem Halldór Blöndal, samgöngu-
ráðherra, boðaði til í gær.
Með kynningu Landafunda-
nefndar á landi og þjóð árið 2000 í
Bandaríkjunum og Kanada er m.a.
stefnt að því að efla tengsl milli
iandanna og auka meðvitund fólks
um íslenska menningu. Ferða-
mannaþjónusta og viðskipti Is-
lendinga við Bandaríkin munu
einnig eflast á þessum tímamótum,
að því er nýi samningurinn kveður
á um.
Halldór Blöndal sagði samning-
inn í stuttu máli fela í sér að „skapa
nýja og skýrari ímynd af Islandi í
fyrirtækisins, stjómar verkinu af
þeirra hálfu.
Fjöldi íslenskra iýrirtækja í
Bandaríkjunum sem aðilar eru að
íslensk-ameríska verslunarráðinu
taka þátt í þessu verkefni í sam-
starfi við stjómvöld. Gert er ráð
fyrir að um 7,2 milljónir króna fari
í þá rannsóknarvinnu sem unnin
verður með þessum samningi.
„Hér er ekkert áhlaupaverk á ferð-
inni heldur um vel skipulagða og
markvissa vinnu sérfræðinga að
ræða,“ sagði Halldór.
Áhrif hvalveiða
á átakið
Mikið hefur verið fjallað um
hugsanleg áhrif hvalveiða á ferða-
mannaþjónustu Islendinga og
hafa sumir gengið svo langt að
segja íslenskan efnahag í hættu
hefji þjóðin hvalveiðar á ný. Að-
spurður um hvort hvalveiðar geti
hugsanlega eyðilagt kynningar-
átakið, sagði Einar það ekki ólík-
legt.
„Markaðsstaða Islendinga mun
líklega versna. Ég tel að ef hval-
veiðar verði hafnar að nýju án þess
að kynna afstöðu okkar Islendinga
og skýra stöðu okkar með almennu
átaki, muni það hafa mjög slæm
áhrif, engin spurning," sagði Ein-
ar.
Morgunblaðið/Þorkell
HALLDOR Blöndal samgönguráðherra kynnti nýtt kynningarátak á ís-
landi í Bandaríkjunum á blaðamannafundi í gær. Við hlið hans situr Jul-
ia Gliddcn, aðstoðarforsljóri ráðgjafarfyrirtækisins Fleishman-Hillard,
sem vinnur undirbúningsramisóknir til að byggja kynningarátakið á.
Vesturheimi sem við getum byggt
á í okkar staifí hvort sem um ræðir
ferðaþjónustu eða útflutning.“
Skipulögð og markviss vinna
I samningnum við Fleishman-
Hillard, sem er meðal fremstu ráð-
gjafafyrirtækja heims, er gert ráð
fyrir að fyrirtækið geri nauðsyn-
legar undirbúningsrannsóknir tfi
að byggja íslandskynningu fram-
tíðarinnar á og setji fram kynning-
aráætlun fyrir árið 2000.
Þeir fulltrúar Islands sem starfa
með Fleishman-Hillard eru Einar
Gustavsson, forstöðumaður Ferða-
málaráðs í New York, og Magnús
Bjamason, viðskiptafulltrúi í
sendiráði ísiands í Washington.
Julia Glidden, aðstoðarforstjóri
Atak í kynningu á Islandi í Bandaríkjunum
Þurfum að skapa Is-
landi sterka ímynd