Morgunblaðið - 09.03.1999, Síða 2

Morgunblaðið - 09.03.1999, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Halldór Asgrímsson í almennri stjórnmálaumræðu Lagfæra þarf stöðu örorkulífeyrisþega HALLDOR Asgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í al- mennri stjórnmálaumræðu á AI- þingi í gærkvöldi, að hann teldi rétt að staða til dæmis örorkulíf- eyrisþega og ýmissa annarra hópa yrði lagfærð á næsta kjörtímabili áður en farið yrði í að lækka skatt- prósentuna frekar. Sagði hann m.a. að við þyrftum að spyrja okkur þeirrar spurning- ar hvernig hægt yrði að nota auk- ið svigrúm á næsta kjörtímabili til þess að leiðrétta kjör fólksins. „Eigum við að nota það svigrúm til að lækka prósentu tekjuskatts- ins eða eigum við frekar að nota það svigrúm að minnsta kosti fyrst í stað til þess að draga úr skerðingum á tryggingabótum, til þess að draga úr skerðingunni á barnabótum? Eg er þeirrar skoð- unar að það sé rétt að það gangi fyrir að draga úr þeim skerðing- um og lagfæra mál til dæmis ör- orkulífeyrisþega og ýmissa ann- arra áður en við förum í að lækka skattprósentu," sagði Halldór. Jóhanna Sigurðardóttir, þing- flokki Samfylkingarinnar, sagði í upphafi ræðu sinnar að fengi Sam- fylkingin jafn mikið fylgi í kom- andi þingkosningum og skoðana- kannanir gæfu vísbendingu um væri það krafa um að Samfylking- in leiddi næstu ríkisstjórn. Dregið úr skattheimtu Björn Bjarnason menntamála- ráðherra benti m.a. á að ríkisvald- ið hefði á sl. árum dregið úr skatt- heimtu undir „styrkri fjármála; stjórn Sjálfstæðisflokksins". I komandi þingkosningum gætu kjósendur hins vegar ákveðið hvort haldið yrði áfram á sömu braut. „Hvernig halda menn að annars sé unnt að framkvæma stefnu sem talið er að kosti hækk- un ríkisútgjalda um 40 til 60 millj- arða króna,“ sagði hann og átti þar við stefnu Samfylkingarinnar. Björn gerði stefnumál Samfylk- ingarinnar í öryggismálum einnig að umtalsefni. „Atlantshaf'sbanda- laginu er hafnað og réttmæti aðild- ar að því dregið í efa. Auk þess sem rykið er dustað af gamla slag- orðinu um herinn burt.“ Bæta þarf kjör öryrkja Steingrímur J. Sigfússon, þing- flokki óháðra, gerði kjör barna- fólks og öryrkja m.a. að umtalsefni og sagði að þau þyrfti að bæta. Ennfremur sagði hann: „Fyrir síð- ustu kosningar fyrir rétt tæpum fjórum árum fór Halldór Asgríms- son fyrir liði framsóknarmanna um landið og sagði þá að hann hefði í hyggju að beita sér fyrir myndun vinstristjórnar," og spurði hvernig það hefði endað eftir kosningar. „Framsóknarmenn hoppuðu upp í glóðvolgt bælið hjá íhaldinu, jafn- skjótt og búið var að bera Alþýðu- flokkinn grátandi og nauðugan á dyr og síðan hafa álver en ekki fólk verið í fyrirrúmi." VERIÐ er um þessar mundir að ganga frá undirbúningi útboðs vegna væntanlegra franikvæmda við útivistarsvæðið við Nauthólsvík. | NAUTHÓLSVÍ j SKÝRJNGAláJWÐRÁt FoysYogu /I "" ___________ULIa ,ám . /é - ' v — (V.'C' 3 Fjölbreytt útivistar- svæði í Nauthólsvík ÁÆTLAÐ er að verja um 55 milljón- um króna á þessu ári til fram- kvæmda við Nauthólsvík en sam- kvæmt deiliskipulagi er gert ráð fyr- ir að hún verði fjölbreytt útivistar- svæði þar sem áhersla verði lögð á siglingar, baðströnd og fræðslu um náttúru og sögu. Yngi Þór Loftsson landslagsaridtekt hefur teiknað skipulag svæðisins. Helgi Pétursson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, kynnti skipulag- ið á síðasta borgarstjórnarfundi en það var samþykkt í skipulagsnefnd í desember. Nú stendm’ yfir forsagna- og hönnunai-vinna og er gert ráð fyr- ir að framkvæmdir geti hafist með vorinu. Ráðgert er að gera sjóvarn- argarð og loka sjóbaðslóni, endur- nýja bryggjusporð með grjóthleðslu og timburdekki, gera nýjan sjó- varnagarð framan við siglingaklúbb ÍTR og byrja framkvæmdir við að- komu og bílastæði. Morgunblaðið/Árni Sæberg VEGNA sverleika vírsins bitu klippur Slökkviliðs Reykjavíkur ekki á hann og þurfti því að sarga hann í sundur með slípirokk til að losa hinn slasaða. Fékk sveran vír í gegnum fótinn Arnbjörg Sveinsdóttir Konum fækkar í þingliði Sam- fylkingarinnar HLUTUR kvenna í stjórnmálum var gerður að umtalsefni í ræðum nokk- urra þingmanna í almennri stjórn- málaumræðu á Alþingi í gærkvöldi. Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, benti m.a. á að konum í þingliði sjálfstæðismanna myndi að öllum líkindum fjölga eftir næstu alþingiskosningar um að minnsta kosti fjórar frá síðustu kosningum. „En á sama tíma er það sorgleg staðreynd að í þingliði Sam- fylkingarinnai’ mun sennilega fækka um þrjár konur.“ Þá lagði Siv Friðleifsdóttir, þing- maður Framsóknarflokks, áherslu á að konur væru að færast ofar á framboðslistum flokkanna og benti m.a. á að þrjár konur leiddu fram- boðslista Framsóknarflokksins fyrir alþingiskosningarnai’ í vor. --------------- Sótti slasaðan sjómann TF LÍF, þyrla Landhelgisgæslunn- ar, sótti slasaðan sjómann um borð í dragnótabátinn Arnai’ HR á tíunda tímanum í gærkvöld. Beðið var um aðstoð Landhelgis- gæslunnai- um kl. 19.30 í gærkvöld en þá var báturinn undan Skaftárós- um. Maðurinn var talinn það mikið slasaður á hendi að full ástæða væri til þess að fara í sjúkraflug. Gott veð- ur var á staðnum. STARFSMAÐUR Járnbendingar hf. var fluttur á slysadeild með 12 millimetra sveran járnvír í fæti eftir vinnuslys á vinnusvæði BM Vallár við Bfldshöfða í gærmorg- un. Hann fór í aðgerð á Sjúkrahúsi Reykjavíkur og var lagður inn á bæklunardeild að henni lokinni í gærkvöld. Verið var að strekkja svokallað- an eftirspennuvír þegar kónn, sem halda á vírnum, gaf sig með þeim afieiðingum að vírinn skaust í gegnum tjakkinn, sem vírinn er strekktur með. Starfsmaðurinn, sem vann við tjakkinn, var með fótinn aftan við hann svo vírinn gekk í gegnum fótinn. Vegna sver- leika vírsins tókst ekki að klippa manninn lausan með klippum Slökkviliðs Reykjavíkur og þurfti því að sarga vírinn í sundur með slípirokk til að losa manninn. Steypustöðin BM Vallá fram- leiðir forsteypta bita fyi’ir Járn- bendingu hf. sem nota á í Gullin- brú í Grafarvogi og vinna starfs- menn Járnbendingar að eftir- strekkingu bitanna á vinnusvæði BM Vallár. Samstarf Morgun- blaðsins og Fíns miðils Fréttir Mbl.is flutt- ar í útvarpi ÚTVARPSSTÖÐVARNAR Gull 90,9, Klassík 100,7 og Létt 96,7 sem eru í eigu Fíns miðiis munu fram- vegis flytja fréttir byggðar á efni af fréttavef Morgunblaðsins, Mbl.is. Fyrst um sinn verða fréttirnar eingöngu fluttar á morgnana. A út- varpsstöðinni Létt 90,9 verður fyrsti fréttatíminn klukkan 6:55 og síðan verða fréttir á hálftíma fresti til klukkan 8:55. Á Gull 90,9 verða fréttir fyrst lesnar klukkan sjö og eftir það á hálftíma fresti til klukk- an níu. Loks mun útvarpsstöðin Klassík flytja fréttir klukkan 7:30 og 8:30. Margrét Sigurðardóttir, mark- aðsstjóri Morgunblaðsins, sagði að með samstarfinu væri verið að auka þjónustuna við landsmenn og gefa þeim kost á vönduðum og áreiðan- legum fréttum frá Morgunblaðinu, þegar þeim hentaði, eftir þremur mismunandi leiðum, þ.e. Morgun- blaðinu, Netinu og nú í útvarpi. Bjöm Sigurðsson, dagskrárstjóri hjá Fínum miðli, segir að hugmynd- in að baki samstarfínu sé að bjóða hlustendum útvarpsstöðvanna upp á traustar og ábyggilegar fréttir. „Við nýtum okkur reynslu Morgun- blaðsins. I stað þess að fara út í ljós- vakafréttastríð viljum við vinna með fólki sem kann þetta betur en við,“ sagði Björn. Á ÞRIÐJUDÖGUM Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is Limor Mizrachi hjá KR hefur gefið ákveðið loforð/ B6 Sigurður Valur með vel hlaðna „fallbyssu‘7 B5

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.