Morgunblaðið - 09.03.1999, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
____________________FRÉTTIR________
Tvær tillögur koma til greina
við stækkun Leifsstöðvar
HALLDÓR Ásgi’ímsson utanríkisráðheira af-
henti í gær verðlaun í hönnunarsamkeppni um
stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Dóm-
nefnd bárust 15 tillögur og var samkeppnin
auglýst á hinu evrópska efnahagssvæði.
Þar sem samstaða náðist ekki hjá dómnefnd
um tillögu í fyrsta sæti voru tvær tillögur vald-
ar í annað sæti. Verður Framkvæmdasýslu rík-
isins falið að taka upp viðræður við höfunda
þeirra og í framhaldi af því ákveða í samráði við
verkkaupa við hvorn aðilann skuli samið um
hönnun byggingarinnar. Þá fékk ein tillaga
þriðju verðlaun. Auk þess voru tvær tillögur
keyptar á 500.000 kr. hvor. Veittar voru 3 millj-
ónir króna í verðlaun fyrir 2. sæti samkeppn-
innar og 2 milljónir fyrir 3. sæti.
Ríkisstjórn Islands tók ákvörðun í byrjun árs
1996 um að Flugstöð Leifs Eiríkssonar skyldi
stækkuð. Arlegur fjöldi farþega um stöðina er
nú um 1,2 milljónir og er reiknað með að vöxt-
urinn næstu ár verði a.m.k. 6% á ári. Stefnt er
að því að ísland taki fullan þátt í Schengen-
samstarfinu á næstu árum og þar með verða
landamæri aðildarlanda ESB og EES, að Bret-
landi og Sviss undanskildu, í flugstöðinni. Fyr-
irhuguð stækkun flugstöðvarinnar verður í
tveimur áföngum þar sem stefnt er að því að
hafist verði handa við fyrri áfangann næsta
haust.
Við nánari skoðun tillagnanna þótti ljóst að
dómnefnd kæmist ekki að samdóma niðurstöðu.
Var þá gripið til þess ráðs að fara með gögn
samkeppninnar í annað þrep. Þrjár tillögur
voru valdar í annað þrep og einnig var ákveðið
að kaupa inn tvær tillögur. Höfundar þeirra eru
annars vegar Teiknistofa Garðars Halldórsson-
ar og hins vegar Björk Haraldsdóttir og Keith
Brownlie.
Raunhæf tillaga
Tillaga merkt 16181 var önnur tveggja sem
hlutu 2. verðlaun. Höfundar hennar eru ARC -
Airport Research Center, Aachen, Enervision,
Aachen, TRIADE-arkitektar, Diisseldorf,
VisArch, Aachen. Dómnefnd þótti höfundum
takast að koma til móts við óskir á flestum svið-
um. Tillagan þykir orðin raunhæf hvað stærðir
varðar og glæsileiki byggingarinnar haldist.
Hin tillagan sem einnig hlaut 2. verðlaun, er
merkt 71154. Höfundar hennar eru Andersen &
Sigurðsson I/S, Holm & Grut A/S. Að baki til-
lögunni eru Þórhallur Sigurðsson arkitekt og
dönsk eiginkona hans. Þykir dómnefnd tillagan
enn í stærra lagi þótt höfundum hafi tekist að
minnka bygginguna nokkuð. Form byggingar
þykir dómnefnd enn óskýrt og fyrsta áfanga
megi bæta. Utlit þykir ekki í jafnvægi en flæði
innan byggingar þykir mjög gott.
Höfundar tillögu sem merkt er 16559, og
hlaut 3. verðlaun, eru Birgir Teitsson arkitekt
og Pálmar Kristmundsson arkitekt. Dómnefnd
þykir höfundum takast að leysa tæknilega upp-
byggingu bui'ðai'virkis á viðunandi hátt og út-
færsla á veggskermi sé með ágætum. Afanga-
skipting byggingar hafi þó ekki tekist.
I dómnefnd sátu Steindór Guðmundsson, for-
maður, Halldór Guðmundsson, Sigurður
Gústafsson, Gunnar Olsen og Omar Ingvars-
son.
• •
Orninn kom-
inn fram
DULARFULLA arnarhvarfið í
Vestur-Skaftafellssýslu virðist
upplýst með því að örninn er
kontinn frain í Mýrdalnum.
Myndin var tekin af honum unt
helgina.
Örn sem verið hefur í Mýrdal
og nágrenni í vetur hvarf í síð-
ustu viku frá þeim stað sem hann
hafði niest haldið sig á að undan-
förnu. Tófuskyttur sáu blóð og
vængjaför hjá æti sem þeir
höfðu borið út á Hrífunesheiði í
Skaftártungu og vegna þess að
ný bflför fundust var talið hugs-
anlegt að erninum hefði verið
banað. Lögreglan í Vík rannsak-
aði málið og tók meðal annars
skýrslu af mönnunum sem verið
höfðu á bflnum. Hins vegar sást
aftur til arnar nú um helgina,
meðal annars hjá Brekkum í
Mýrdal og segir Reynir Ragnars-
son lögreglumaður að það hljóti
að vera sami fuglinn. Lögreglan
telur málið upplýst og ætlar ekki
að gera meira í dularfulla arnar-
hvarfinu.
Farmur af súráli kominn til Norðuráls
Framleiðsla skert
í 30 stundir
FLUTNINGASKIP með um 19
þúsund tonn af súráli á vegum
Norðuráls kom til hafnar á Grund-
artanga um miðjan dag á sunnudag,
en ferð skipsins hafði tafist um þrjár
vikur. Björn S. Högdal, fram-
kvæmdastjóri Norðuráls, segir að
álverið hafi neyðst til að skerða
framléiðslu versins í um þrjátíu
klukkustundir áður en farmurinn
kom en þó hafi skerðingin aðeins
numið 8%, eða sem svarar 25 tonn-
um.
Skipið sigldi frá Surínam í Suður-
Ameríku og var þess vænst í fyrstu
um 15. febrúar síðastliðinn. Marg-
háttaðar tafir urðu hins vegar á ferð
þess, bæði vegna erfiðleika við lönd-
un og leiðinlegs veðurs. Skipið kom
síðan til hafnar um klukkan 4.30 á
sunnudag og var umsvifalaust hafist
handa við að afferma það, að sögn
Björns.
„Við vonum svo sannarlega að
þetta endurtaki sig ekki og munum
reyna að búa svo um hnútana að það
gerist ekki,“ segir Björn. „Þetta var
ekki eðlilegt ástand og við þurftum
að ná upp súráli úr neðri hluta
súrálsgeymis okkar, sem okkur er á
móti skapi. Við fengum sérútbúna
bifreið með dælu sem náði upp því
súráli sem við náðum ekki með
venjulegum aðferðum."
ÍSAL bauðst til að lána Norðuráli
súrál ef frekari dráttur yrði á komu
skipsins en til þess kom ekki. Björn
kveðst kunna vel að meta framtak
ISAL og hafi hann í gær gengið frá
þakkarbréfi til fyrirtækisins.
Ollu tjóni á bifreið og
umferðarmann virkj um
ÞRÍR unglingar á aldrinum 14-16
ára, tveir piltar og ein stúlka, voru
fluttir á slysadeild til aðhlynningar
eftir að hafa ekið stolinni bifreið á
ljósastaur á Sæbrautinni skömmu
eftir miðnætti aðfaranótt mánudags.
Lenti bifreiðin á umferðarskilti og
girðingu og endaði loks á
ljósastaumum sem skemmdist mikið
sem og bifreiðin.
Við áreksturinn kviknaði í bifreið-
inni og slökkti lögreglan eldinn með
slökkvitæki. Tveir unglinganna fiýðu
af vettvangi, en einn varð eftir þar
sem hann hafði handleggsbrotnað.
Lögreglan náði þeim, sem flýðu og
flutti unglingana þrjá á slysadeild.
Mál þeirra verður lögum sam-
kvæmt afhent bamaverndaryfirvöld-
um, eins og gera ber þegar börn
undir 18 ára aldri gerast brotleg við
lög.
Ljósmyndir eftir Sigurgeir Sigurjónsson. Texti eftir Sigurð Steinþórsson
jarðfræðing og formáli eftir frú Vigdísi Finnbogadóttur.
Fæst á íslensku, ensku,
þýsku, frönsku og sænsku.
ÍSLAN,E§és E'fstakt íilbsð
uó»
(I
k
FORLAGIÐ
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500
Allt gengur á afturfotunum við gerð auglýsingakvikmyndar
Kviknaði í færanlegri
rafstöð Saga Film
Morgunblaðið/Ingvar
ENGIN slys urðu þegar eldur kom upp í rafstöðinni í Oskjuhlíð.
ÞAÐ hefur ekki gengið áfallalaust
hjá Saga Film að taka upp auglýs-
ingu sem fyrirtækið er að vinna að
um þessar mundir. Um helgina
kviknaði til dæmis í færanlegri raf-
stöð þannig að senda varð um þrjá-
tíu manns heim um miðja nótt. Ætl-
unin var að reyna á ný í nótt.
Að sögn Jóns Bjarna Guðmunds-
sonar, framleiðanda hjá Saga Film,
hefur allt gengið á afturfótunum
varðandi auglýsinguna. „Það hefur
mikið gengið á við tökur á þessari
auglýsingu sem við emm mjög
spenntir fyrir enda höfum við unnið
í nokkra mánuði að gerð handrits-
ins. Þetta er 60 sekúndna auglýsing
sem skipt er í fjóra hluta. Við vorum
búnir að taka fyrstu tvo og það gekk
ágætlega nema hvað leikstjórinn
veiktist í öðrum hlutanum og hætta
varð við tökur,“ sagði Jón Bjarni.
Sendir heim
um miðja nótt
Hann sagði að vel hefði gengið
með þriðja atriði auglýsingarinnar
um helgina. Eftir það var farið í
Keiluhöllina þar sem taka átti fjórða
og síðasta hlutann. ,Við vorum að
fara að kalla „ACTION!" þegar ljós-
in slokknuðu. Það kviknaði í rafstöð-
inni okkar, sem var í síðasta verk-
efni sínu íýrir Saga Film. Við urðum
því að senda alla heim en þetta var
um klukkan fjögur um nóttina,“ seg-
ir Jón Bjarni.
Hann bætti því við að það hefði
verið lán í óláni að þetta gerðist
þarna en ekki þegar rafstöðin stóð
fyrir utan Hagkaup í Smáranum
fyir um nóttina því þá hefði hún ver-
ið við hliðina á stórum ruslagámi.
„Þá hefðum við fengið allt slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins á okkur.“
Saga Film er að leysa rafstöðvar-
bíl út úr tolli og vonaðist Jón Bjarni
að það tækist í tæka tíð svo hægt
yrði að ljúka við gerð auglýsingar-
innar í nótt. Áformað er síðan að
sýna auglýsinguna í sjónvarpi eftir
um það bil tvær vikur.
„Menn hafa nú verið að spauga
með orðatiltækið „Allt er þá þrennt
er“. Við vonum hins vegar það besta
og erum ekki hjátrúarfullir," sagði
Jón Bjarni.