Morgunblaðið - 09.03.1999, Síða 10

Morgunblaðið - 09.03.1999, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sólveig Pétursdóttir formaður allsherjarnefndar um skaðabótafrumvarpið Umræða um frumvarpið á misskilningi byggð SÓLVEIG Pétursdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður alls- herjarnefndar Alþingis, sagði á þing- fundi á laugardag að gagnrýni sú sem fram hefði komið í fjölmiðlum um frumvai-p til skaðabótalaga væri á misskilningi byggð. „I fjölmiðlaumfjöllun að undan- förnu hefur komið fram gagnrýni á þá tillögu meirihlutans að 60% af greiðslum vegna tímabundins at- vinnutjóns skuli dregin ft-á bótum vegna tímabundinnar örorku og telja sumir að þar sé vegið að sjúki-asjóð- um stéttarfélaganna," sagði hún. „Þessi umræða er hins vegar á mis- skilningi byggð. Staðreynd málsins er sú að engar lagareglur eru um hvernig fjármunum sjúkrasjóða stéttarfélaganna skuli varið heldur setja félögin sjálf slíkar reglur. Þeg- ar þær reglur eru skoðaðar kemur í ljós að réttur til bóta úr sjóðunum er almennt bundinn þvi skilyrði að ann- ars konar bótaréttur sé ekki fyrir hendi. Sólveig nefndi sem dæmi að sjúkrasjóður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur greiddi 80% meðallauna fyrii' slys enda komi ekki til greiðslna vegna tímabundinnar ör- orku samkvæmt ábyrgðartryggingu íyrir sama tímabil. „Meirihlutinn tel- ur mikilvægt að þær aðstæður skap- ist ekki að hinn slasaði hafi af því beina fjárhagslega hagsmuni að veikindi hans vari sem lengst. Væri til að mynda ekki vænleg regla að hinn slasaði ætti bæði rétt á fullum skaðabótum fyrir launamissi og jafn- framt greiðslum frá sjúkrasjóði sem næmi 80% af launum. Það mundi einfaldlega þýða að hinn slasaði hefði af því fjárhagslega hagsmuni að láta sér ekki batna. Ef þeir sem fara með sjúkrasjóðina teldu hins vegar að slík regla væri vænleg væri þeim Morgunblaðið/Golli SÓLVEIG Pétursdóttir f ræðustól Alþingis. ALÞINGl sjálfum í lófa lagið .að setja slíkar reglur.“ Rætt uin dóm héraðsdóms Sólveig benti á í ræðu sinni að með- an frumvarp til skaðabótalaga hefði verið til umfjöllunai' í allsherjarnefnd, nánar tiltekið í febrúai' á þessu ári, hefði dómur fallið í Héraðsdómi Reykjaness þar sem eitt ákvæði skaðabótalaganna var talið brjóta gegn 65. gr. stjómarskrárinnar. „Um er að ræða ákvæði þar sem kveðið er á um að eftir að 60 ára aldri er náð lækki miskabætur tjónþola um 5% á ári næstu tíu árin en haldist síðan óbreyttar." Sólveig sagði að nefndin hefði tekið dóminn til sérstakrar skoðunar en niðurstaða meirihlutans hefði verið sú að ekki væru efni til að láta hann hafa áhrif á afgreiðslu um- rædds frumvarps. „í fyrsta lagi er að- eins um héraðsdóm að ræða og alls ekki víst að Hæstiréttur komist að sömu niðurstöðu. Þá er lagt til í frum- varpinu að skerðing þessi verði með öðrum hætti, byrji við 50 ára aldur og verði 1% á ári til 75 ára aldurs. Skerð- ingin verði því bæði minni og dreifist á lengri tíma. Er því alls ekki víst að dómurinn hefði komist að sömu nið- urstöðu ef lögin væru með þeim hætti sem lagt er til í frumvarpinu,“ sagði Sólveig. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjaneskjördæmi Framboðs- listi ákveðinn Á FUNDI kjördæmisráðs Sjálf- stæðisflokksins í Reykjaneskjör- dæmi 4. mars sl. var framboðslisti flokksins við alþingiskosningarn- ar 8. maí nk. samþykktur sam- hljóða: 1. Árni M. Mathiesen, alþingis- maður, Hafnarfirði. 2. dr. Gunnar I. Birgisson, verkfræðingur, Kópavogi. 3. Sigríður Anna Þórð- ardóttir, alþingismaður, Mosfells- bæ. 4. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, lögft-æðingur, Hafnarfirði. 5. Kristján Pálsson, alþingismað- ur, Reykjanesbæ. 6. Árni Ragnar Árnason, alþingismaður, Kópa- vogi. 7. Helga Guðrún Jónasdótt- ir, stjórnmálafræðingur, Kópa- vogi. 8. Sturla D. Þorsteinsson, kennari, Garðabæ. 9. Hildur Jóns- dóttir, landfræðingur, Seltjarnar- nesi. 10. Jón Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri, Kópavogi. 11. Olaf- ur Torfason, verkamaður, Hafn- arfirði. 12. Hólmfríður Skarphéð- insdóttir, húsmóðir, Sandgerði. 13. Hervör Poulsen, bókari, Bessastaðahreppi. 14. Hjördís Hildur Jóhannsdóttir, skrifstofu- maður, Garðabæ. 15. Stefán O. Stefánsson, húsasmiður, Seltjarn- arnesi. 16. Kristjana H. Gunnars- dóttir, íþróttakennari, Reykjanes- bæ. 17. Jóna Rut Jónsdóttir, leik- skólakennari, Grindavík. 18. Mar- ía Anna Eiríksdóttir, sjúkraliði, Garði. 19. Alfa R. Jóhannsdóttir, kennari, Mosfellsbæ. 20. Helgi Jónsson, bóndi, Kós. 21. Árni Þór Þorgrímsson, fv. flugumferðar- stjóri, Reykjanesbæ. 22. Súsanna Gísladóttir, skrifstofumaður, Kóp- vogi. 23. Mjöll Flosadóttir, for- stöðumaður, Hafnarfírði og 24. Olafur G. Einarsson forseti Al- þingis, Garðabæ. Svavar Gestsson hefur afsalað sér þingmennsku Guðrún Helgadóttir fer í þing- flokk óháðra SVAVAR Gestsson afsalaði sér þingmennsku á Alþingi á laugar- dag, þar sem liann hefur verið skipaður sendiherra í utanríkis- þjónustunni. Guðrún Helgadóttir settist á þing í hans stað í gær og verður hún 17. þingmaður Reykvíkinga. Hún tilkynnti jafn- framt þingheimi að hún væri geng- in til liðs við þingflokk óháðra. Þegar Svavar flutti þingheimi boðskapinn á laugardag kvaðst hann telja að starfsemi Alþingis hefði þróast í skynsamlega átt á undanförnum árum. „Það er ekki hægt að neita því að oft er þingið gagnrýnt fyrir að vera of veikt andspænis framkvæmdavaldinu. Um það geta menn margt sagt en um það er of Iítið talað að þingið hefur sjálft styrkst mjög verulega. Þingið er að mörgu leyti mun sterkara en það var fyrir þeim tuttugu árum sem liðin eru frá því að ég tók sæti á þessari stofnun." Síðar þakkaði Svavar fyrir ánægjulegt samstarf og afhenti forseta Alþingis formlegt bréf þess efnis að hann hefði afsalað sér þingmennskunni. Á fóstudagskvöld hélt Alþýðu- bandalagið kveðjuhóf fyrir Svavar og Guðrúnu Ágústsdóttur, eigin- konu hans, f GuIIhömrum við Hall- veigarstíg. Voru þeim færðar þakk- ir fyrir mikil störf fyrir flokkinn, en Svavai' var m.a. formaður hans um skeið. Morgunblaðið/Golli Fyrsti framboðs listi VG birtur GENGIÐ var frá framboðslista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðurlandskjördæmi eystra á félagsfundi á Akureyri á sunnudag. Er þetta fyrsti listi sam- takanna fyrir næstu kosningar sem birtur er. Listinn er þannig skipaður: 1. Steingrímur J. Sigfússon, al- þingismaður, Svalbarðshreppi. 2. Ámi Steinar Jóhannsson, umhverf- isstjóri, Akureyri. 3. Helga Arn- heiður Erlingsdóttir, oddviti, Ljósa- vatnshreppi. 4. Valgerður Jónsdótt- ir, garðyrkjufræðingur, Akureyri. 5 Helgi Kristjánsson, framkvæmda- stjóri, Húsavík. 6. Anna Helgadótt- ir, kennari, Eyjafjarðarsveit. 7. Stefán Tryggvason, bóndi, Sval- barðsströnd. 8. Dagbjörg Hrönn Jónsdóttir, bóndi, Dalvíkurbyggð 9. Hilmar Dúi Björgvinsson, nemi, Húsavík. 10. Hulda Hrönn Karls- dóttir, bóndi, Öxarfirði. 11. Björn Þór Ólafsson, kennari, Ólafsfirði og í 12. sæti er Málmfríður Sigurðar- dóttir, fyrrv. alþingismaður, Akur- eyri. Hlutur kvenna á Alþingi réttur þriðjungur ÓLAFUR G. Einarsson, forseti Al- þingis, vakti athygli á því í upphafi þingfundar á Alþingi í gær, á al- þjóðlegum baráttudegi kvenna, að hlutur kvenna á Alþingi væri réttur þriðjungur alþingismanna. Þetta sagði hann eftir að hafa tilkynnt að Guðrún Helgadóttir hefði tekið sæti Svavars Gestssonai' á þingi. Nítján konur „í dag, 8. mars, er alþjóðadagur kvenna. Hinn nýi þingmaður er 19. konan í þingmannahópnum og sem stendur sitja tvær konur á Alþingi sem varamenn, þannig að hlutur kvenna er réttur þriðjungur.“ Varaþingmennirnir sem Ólafur minntist á eru þær Elín R. Líndal, fyrsti varaþingmaður Framsóknar- flokksins í Norðurlandskjördæmi vestra og Svanhildur Árnadóttir, fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra. „Þegar sá okkar þingmanna, sem lengsta setu hefur átt á þingi, kom fyrst til þings árið 1963, að afstöðn- um alþingiskosningum þá um sum- arið, var ein kona í hópi 60 þing- manna. Má því segja að nokkuð hafi þokast síðan. Sex þjóðir hafa hærra hlutfalþ kvenna á löggjafarþingi,“ sagði Ólafur og sendi samtökum kvenna góðar kveðjur úr þingsaln- um. Tilskipun um endurreisn Alþingis Forseti Alþingis minntist þess einnig að Kristján 8. hefði gefið út tilskipun um endurreisn Alþingis hinn 8. mai's árið 1843 eða fyrir 156 árum. Tilskipun sem að efni svaraði til kosningalaga og þingskapa. „Loks má nefna að 55 ár eru nú liðin frá því að Alþingi afgreiddi frumvarp um stjórnarskrá fyrir lýðveldið Island. Frumvarp sem síðar var samþykkt við þjóðaratkvæðagreiðslu síðari hluta maímánaðar 1944.“ Álþingi fellir til- lögu um brott- för hersins ALÞINGI felldi í gær þingsályktun- artillögu Steingríms J. Sigfússonar og Kristínar Halldórsdóttur, þing- flokki óháðra, og Ragnars Arnalds, þingflokki Samfylkingarinnai', um að gengið verði til viðræðna við banda- rísk stjóiTivöld um brottfór hersins og yfh'töku íslendinga á rekstri Keflavíkurflugvallar. Atkvæði féllu þannig að 47 þing- menn höfnuðu tillögunni, þeirra á meðal Bryndís Hlöðversdótth', Sam- fylkingunni. Sjö vora fylgjandi. Þar á meðal Kristinn H. Gunnai'sson, Framsóknai'flokki. Tveir sátu hjá, Sigríður Jóhannesdóttir, Samfylking- unni, og Guðni Ágústsson, Framsókn- arflokki. Sjö þingmenn vora fjar- staddh', þeirra á rneðal Margrét Frímannsdóttir, fonnaðm- Alþýðu- bandalagsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.