Morgunblaðið - 09.03.1999, Side 16

Morgunblaðið - 09.03.1999, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 H- MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ LÆKJARGATA 7B. Trésmiður á Akureyri fékk 300.000 kr. greiddar með húsinu, sem hann hyggst gera upp. Morgunblaðið/Sigríður TÚNGATA 18. Bærinn eignaðist húsið nýlega en það hefur staðið autt í nokkur ár. Húseignir fást gefins á Siglufirði Siglufirði - Siglufjarðarkaupstaður aug- lýsti fyrir nokkru húseignina á Lækjar- götu 7b gefins og að það yrði jafnvel borg- að með húsinu. Þær kvaðir fylgdu að hús- ið skyldi gert upp að utan fyrir ákveðinn tíma. Að sögn Guðmundar Guðlaugssonar bæjarstjora sýndu margir málinu áhuga og leituðu upplýsinga um eignina. Frestur til að skila umsóknum rann út 20. febrúar og nú hefur verið ákveðið að smiður frá Akureyri fái húsið og mun hann fá 300 þús. kr. borgaðar með því. Forsaga málsins er sú að umhverfis- og tækninefnd bæjarins hafði markað þá stefnu að gömul hús í eigu bæjarins skyldu ekki rifin nema þau væru auglýst fyrst og einstaklingum gefinn kostur á að eignast húsin og fá jafnvel borgaðan með þeim þann kostnað sem bærinn þyrfti hvort sem er að leggja í niðurrifið. En skilyrt væri að nýir eigendur gerðu húsin upp fyrir ákveðinn tíma. Nefndarmenn sáu fyrir sér að það yrði sjónarsviptir fyrir bæinn ef mörg gömul hús hyrfu, aftur á móti bæjarprýði ef þeim væri komið í gott stand aftur. Því var far- ið út í þessa tilraun nú með Lækjargötu 7b og líklegt má teljast að svo verði með fleiri hús, t.d. eignaðist bærinn Túngötu 18 fyrir skömmu, en það hús hefur staðið autt um nokkurra ára bil. Fjárhagsáætlun Stykkis- hólmsbæjar samþykkt Stykkishólmur - Á fundi bæjar- stjórnar Stykkishólms 22. febrúar var samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 1999. Helstu niðurstöðutölur eru þessar: Sameiginlegar tekjur eru áætlaðar 217,5 milljónir króna og þar af er út- svar 168 milljónir króna eða 77% af tekjum. Varðandi gjöldin kostar rekstur bæjarsjóðs 202,3 milljónir króna eða 93% af tekjum. Helstu gjaldaliðir eru: Fræðslumál 86,6 milljónir króna, 40% af tekjum, fé- lagsþjónusta 23,7 milljónir króna, 11% af tekjum og æskulýðs- og íþróttamál 23,6 milljónir króna, 10,6% af tekjum. I fjárhagsáætlun kemur fram að tekjur hækki 5% á milli ára. Lítið svigrúm til Qárfestinga I viðtali við Olaf Hilmar Sverris- son bæjarstjóra kom fram að hann telur að reksturinn taki alltof stóran hluta af tekjunum. Svigi-úm til fjár- festinga er lítið. Hann telur að þurfi að bæta tekjustofn sveitarfélaga eða draga úr rekstri, en ekki hefur tekist að koma auga á hvar eigi að skera niður. „Við þurfum á þessum rekstri að halda og frekar að auka við hann heldur en hitt,“ segir Ólafui-. Hann segir að áætlað hafi verið minna til reksturs skóla og leikskóla í ár, en fór í rekstur þeirra á síðasta ári. Fjárfestingar hjá bæjarsjóði á ái’inu eru áætlaðar 117 milljónir króna og þar af fara til byggingar sundlaugar 100 milljónir og er það langstærsta framkvæmd á vegum bæjai-ins á ár- inu. Áætlað er að taka sundlaugar- mannvirkin í notkun í júní nk. FJÖLMENNI var á 77. héraðsþingi HSK sem haldið var á Laugalandi í Holtum fyrir stuttu. Um 90 fulltrúar frá 40 aðildarfélögum HSK og 2 sér- ráðum sambandsins mættu á þingið auk gesta og starfsmanna þingsins. Á þinginu var lögð fram 80 blað- síðna skýrsla um starfsemi Héraðs- sambandsins Skarphéðins (HSK) á liðnu ári og urðu nokkrar umræður um starf hreyfingarinnar á liðnu ári, enda starfið víða þróttmikið. Á þing- inu var fjallað um fjölmörg mál sem framundan eru, en alls voru 18 tillög- ur samþykktar og ýmis mál rædd í nefndum þingsins. M.a. var lögð fram tillaga um að sækja um að Landsmót ungmennafélaganna verði haldið í Ár- borg árið 2004 eða 2007. íþróttamaður ársins 1998 Fjölmörg verðlaun voru veitt á þinginu til einstakra félagsmanna fyrir góðan árangur á árinu en 10 íþróttamenn voru tilnefndir til íþróttamanns ársins. Efstur með 140 stig var frjálsíþróttamaðurinn Magnús Aron Hallgrímsson úr Umf. Selfoss. Hann er 22 ára kringlukastari og einn af afreks- mönnum framtíðarinnar í frjálsum íþróttum. Hann er fimmti Islend- ingurinn í sögunni sem kastað hefur kringlu yfir 60 metra og jafnframt sá yngsti. Magnús kastaði lengst 60,62 metra á síðasta keppnistíma- bili sem er aðeins 38 cm frá lág- Iþróttamaður ársins valinn marki á Evrópumeistaramótið í Búdapest. Magnús varð Norður- landameistari í flokki unglinga 22 ára og yngri í Finnlandi sl. sumar og sýndi þar með að hann er lang- besti kringlukastarinn í sínum ald- ursflokki á Norðurlöndum. Morgunblaðið/Gunnlaugur BYGGING nýrrar sundlaugar er aðalíjárfesting Stykkishólmsbæjar á þessu ári. Morgunblaðið/Hafdís Erla Bogadóttir FISKMJÖLSVERKSMIÐJAN Búlandstindur. Fjallið Búlandstindur er í baksýn. Gautavik hf. á Djúpavogi Gott gengi þrátt fyrir verðfall Djúpavík - Útgerðarfyrirtækið Festi hf. í Grindavík keypti fyrir nokkru fiskmjölsverksmiðju Búlandstinds hf á Djúpavogi og heit- ir nýja iyrirtækið Gautavík hf. Fyr- irtækið á skipið Þórshamar GK 75. Vertíðin hefur gengið ágætlega og hefur nú verið landað um 20.000 tonnum og hafa 15.000 tonn þegar verið brædd. Þrátt fyrir að verð á af- urðunum fari lækkandi er eigandi Gautavíkur hf., Sigmar Björnsson, þó bjartsýnn á framtíðina. „Framtíðin leggst ágætlega í mig, nema verð á afurðunum fer lækk- andi. Viðskiptin hafa gengið vel og samskipti við bæjarbúa og allt starfsfólk hafa verið sérlega ánægju- leg,“ segir Sigmar. „Ég sé þó framundan að það þarf að gera lítils- háttar endurbætur á verksmiðjunni með tilliti til reynslunnar í vetur. Mjög mikil þörf er úrbóta varðandi geymslu á mjölinu. Geymslurými er mjög takmarkað og mikilvægt að ráða bót á því, ásamt úrbótum á tæknilegum búnaði verksmiðjunnar. Allar líkur eru á að hafnarfram- kvæmdh- hefjist fljótlega og að við- leguhæfur kantur verði til staðar fyrir næstu vertíð. Við erum bjart- sýnir á framtíð verksmiðjunnar á Djúpavogi, þrátt fyrir verðfallið,“ sagði Sigmar Björnsson, eigandi fiskmjölsverskmiðju Gautavíkur hf. á Djúpavogi. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir MARGIR fengu viðurkenningar á Héraðsþingi HSK en fyrir miðju er Guðmundur Kr. Jónsson frá Umf. Selfoss sem tók við verðlaunum fyrir íþróttamann ársins 1998, Magnús Aron Hallgrímsson kringlu- kastara, sem einnig er í Umf. Selfoss, en hann var staddur erlendis við æfingar. Héraðssamband Skarphéðins j

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.