Morgunblaðið - 09.03.1999, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.03.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 23 Dreifing: Logaland ehf. Loftárásir á Irak EINN særðist í loftárásum bandarískra herflugvéla á fjóra staði í Irak í gær. Tals- maður varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna sagði orr- ustuflugvélar hafa varpað sprengjum á loftvamastöðvar íraka á nyrðra flugbanns- svæðinu eftir að Irakar mið- uðu flugvélamar út í ratsjá. Réð sér bana í réttarsal Helsinki. Reuters. FINNSKUR maður réð sér bana er hann sprengdi sjálfan sig í loft upp í réttarsal í bæn- um Hamina í Austur-Finn- landi í gær. Greip maðurinn til þessa örþrifaráðs í sama mund og dómarar lásu upp úr- skurð í máli sem maðurinn var málsaðili að. Engar skýringar fengust á verknaðinum en maðurinn mun hafa verið á sextugsaldri. Sjö aðrir særð- ust í sprengingunni, að sögn lögreglu, þar af einn alvar- lega. Hann mun þó ekki vera í lífshættu. Þrír miðjuflokkar tryggðu sér nauman þingmeirihluta í kosningum í Eistlandi Forsetakosningar í E1 Salvador Reuters KONA gengur ásamt hundi sínum fram hjá áróðursauglýsingum vegna þingkosninganna í Eistlandi, sem fram fóru á sunnudag. herra. Fréttaskýrendur segja hins vegar að þar sem svo litlu munaði á fylgi flokkanna, og þar sem ýmis hneykslismál plaga nokkra af þeim sem helst koma til greina, gæti farið svo að þessi samningur kæmi ekki til framkvæmda. Segja þeir að svo gæti farið að leitað yrði til Anders Tarands, leiðtoga Hóf- samra, jafnvel þótt flokkurinn hafi fengið einu þingsæti minna en hin- ir flokkarnir tveir. Ekki er heldur útilokað að flokkarnir muni skipt- ast á um að eiga forsætisráðherr- ann. Kjörsókn var ekki nema 55% í þessum kosningum, en var 70% í kosningunum árið 1995. Bíður nýrrar ríkisstjórnar að takast á við staðnandi efnahag og semja við Evrópusambandið um inngöngu Eistlands í ESB, sem talið er að muni eiga sér stað snemma á næsta áratug. Þar sem allt snýst umfólk Flores lýsir yfír sigri San Salvador.JReuters. FRAMBJÓÐANDI stjórnarflokks- ins í E1 Salvador, Fransisco Flores, lýsti í gær yfir sigri sínum í forseta- kosningunum sem fóru fram á sunnudag. Þúsundir stuðnings- manna Flores fögnuðu sigri á göt- um San Salvador í gær. Þegar 79% atkvæða höfðu verið talin hafði Flores hlotið 51,9% atkvæða en næstur honum kom Facundo Guar- dado, frambjóðandi FMLN, með 29% greiddra atkvæða. Sjö manns buðu sig fram til forseta. Haldi Flores ekki einföldum meirihluta atkvæða þarf að kjósa á milli hans og Guardado að rúmum mánuði liðnum. Fransisco Flores er frambjóð- andi hægri flokksins ARENA, sem haldið hefur um stjórnartaumana í E1 Salvador í tíu ár. ARENA var eitt sinn tengdur svokölluðum dauðasveitum salvadoríska hers- ins, sem sakaðar voru um mörg grimmdarverk í borgarastyrjöld- inni í E1 Salvador, en hefur tekið stakkaskiptum og þykir nú hefð- bundinn íhaldsflokkur. Guardado fer fyrir stjórnarandstöðuflokkn- um FMLN, sem áður var her skæruliða er háði 13 ára blóðuga borgarastyi-jöld við yfírvöld í E1 Salvador. Er friður komst á í land- inu árið 1992 lágu 75.000 manns í valnum. Fréttaskýrendur sögðu dræma kosningaþátttöku, um 40%, endur- spegla litla tiltrú almennings á for- setaframbjóðendunum og hæfileik- um þeirra til að glíma við hinn gríð- arlega vanda er blasir við E1 Salvador, fátækt, tíðum glæpum og 40% atvinnuleysi. GOUGLEÐl jOf Fískbúð Hafliða HEILDVERSLUN Reuters FRANSISCO Flores ávarpar stuðningsmenn eftir að hafa lýst yfir sigri í forsetakosning- unum í E1 Salvador. Það mælir allt með Kyolic Áratuga notkun og fjöldi vísindarannsókna staðfesta hollustu Kyolic. ÉÉlheÍlsuhÚSÍð Heimasíöa: mælir meö KYOLIC www.kyolic.com Nú ætlum við að koma fiskiþjóðinnl ó óvart með ótal góm- sætum fiskréttum. Sturla 8irgisson einn af 5 bestu matreiðslumeisturum í heimsmeistarakeppninni Bocuse d'Or 99 er höfundurinn að fiskréttunum. Furðuheimur fiskréttanna í Perlunni kemur þér vissulega ó óvart! Borðapantanir í síma 5620200 Hyggjast úti- loka Savisaar frá ríkisstjórn Tallinn. Reuters. ÞRÍR miðjuflokkar í Eistlandi hófu í gær stjórnai-myndunarvið- ræður þrátt fyrir að þeir muni a.m.k. þurfa að bíða í viku áður en þeim verður foi-mlega boðið að mynda ríkisstjórn. Miðflokkur Ed- gars Savisaars, fyrrverandi forsæt- isráðherra í landinu, vann flest þingsæti í kosningum sem fram fóru um helgina, eða 28 af 101, en miðjuflokkarnir þrír, sem höfðu lýst því yfir fyrir kosningamar að þeir hygðu á stjórnarsamstarf, tryggðu sér hins vegar nauman meirihluta, eða 53 þingsæti. Hafa leiðtogar flokkanna þriggja áður lýst yfir tregðu sinni til að eiga samstarf við Savisaar og því er ekki talið að Savisaar setjist í ríkis- stjóm, þrátt fyrir kosningasigur- inn. Hófsami hægriflokkurinn Pro Patria fékk 18 þingsæti, eins og Umbótaflokkurinn en miðjuflokkur Hófsamra fékk 17 þingsæti, ef marka má bráðabirgðaniðurstöður kosninganna, sem era þær þriðju síðan Eistland fékk sjálfstæði frá Sovétríkjunum gömlu á nýjan leik árið 1991. Tryggir þetta flokkunum nauman meirihluta á þingi. Endanlegar niðurstöður kosn- inganna verða kunngjörðar 17. mars næstkomandi og mun Lenn- art Meri, forseti Eistlands, þá af- henda leiðtoga einhvers stjóm- málaflokkanna umboð til stjórnai’- myndunar. „Ekkert hefur enn ver- ið ákveðið hvað þetta varðar,“ sagði Savisaar í gær. „En ég tel að forsetinn ætti að biðja leiðtoga flokksins sem vann sigur í þessum kosningum að mynda ríkisstjóm. Meri er hins vegar ekki skyldug- ur til að afhenda leiðtoga stærsta þingflokksins stjórnarmyndunar- umboðið og hefur ekki falið andúð sína á Savisaar. Þykir enda ekki augljóst til hverra Savisaar ætti að leita með stjórnarsamstarf, þar sem hann nýtur lítilla vinsælda meðal annarra stjórnmálaflokka í Eistlandi. Ovíst hver verður forsætisráðherra Aðrir flokkar á þingi verða Bændaflokkurinn, sem er til vinstri í stjómmálum, með 7 þingsæti, Samfylking Marts Siimanns, nú- verandi forsætisráðherra, með 7 þingsæti og Samstöðuflokkur rúss- neska minnihlutans með 6 þing- sæti. Vora uppi getgátur um það í gær að miðjuflokkamir þrír, sem hyggja á samstarf, myndu leita til Siimanns til að tryggja sér öflugri þingmeirihluta. Ljóst virðist þó að Siimann verður ekki áfram forsæt- isráðherra. Flokkarnir þrír, sem hyggja á samstarf, vora búnir að semja um að sá þeirra sem flest atkvæði fengi myndi tilnefna forsætisráð-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.