Morgunblaðið - 09.03.1999, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 31
ræmi við þessar hugmyndir til að
tryggja öllum jafnan aðgang að
góðri aðstöðu. Svæðaskiptingin er
svo miðuð út frá því að börnin þurfi
ekki að fara yfir þungar umferðar-
götur.
Faglegt og íjárhagslegt
sjálfstæði
Guðbjörg segir að í Heiðarskóla
verði fjörutíu starfsmenn og þar af
35 kennarar. Nokkrir muni koma
úr öðrum skólum í bænum en ráða
verði 20 nýja. Hún segir að í sér-
samningum bæjarins við kennara
felist meðal annars greiðsla fyrir
starf með foreldrum. Gylfi segir að
reynslan hafi strax sýnt að sú
greiðsla skili sér margfalt til baka.
Böðvar segir að skólamálin séu
stærsta einstaka verkefni þessa
kjörtímabils og það snerti mörg
svið bæjarfélagsins, til dæmis
bókasöfn og samgöngur. Gylfi seg-
ist sannfærður að það sé líka
áhrifamikil breyting fyrir alla að
breyta skólum úr annars vegar
bama- og hins vegar unglingaskóla
í fjóra heildstæða skóla.
Skúli segir að gerð verði tilraun
með nýja stjórnun í skólunum eftir
að framkvæmdum sé lokið og vísar
í Afangaskýrslu um samnings-
stjómun eða „Kontraktstyring" í
skólum bæjarins. Hún felur m.a. í
sér að skólamir fá fjárhagslegt
sjálfstæði. Hugmyndin er að gagn-
sætt samband verði milli nemenda,
skólans og skólaskrifstofunnar.
„Skólastjómir em styrktar innan
frá og ábyrgðin er færð til þeirra
sem í raun bera hana,“ segir Skúli.
Samningsstjómun felur í sér að
gerður er tvíþættur samningur við
stofnun, annars vegar um rekstur-
inn þar sem tilgreindar em stjóm-
unarlegar og fjármálalegai' heim-
ildir og hins vegar innri samningur
um markmið og kröfur um árang-
ur. Fyrirmyndin er sótt til Dan-
merkur en reynslan þar er góð og
hefur samningsstjómun sem
stjómtæki verið yfirfærð á aðra
þjónustu sveitarfélaga eins og
þjónustu aldraðra.
Samningsstjómun er um faglegt
og fjárhagslegt sjálfstæði skóla
gegn mælanlegum árangri. Meðal
annars er gert ráð fyrir þróunar-
áætlun. „Mér líst mjög vel á þessa
tilraun,“ segir Gylfi, ,,þróunarstarf
er mjög mikilvægt." I samningnum
stendur t.d.: „Markmiðið er að auð-
velda nemendum og foreldram að
átta sig á gæðum og árangri skóla-
starfsins, að tekið verði upp gæða-
mat/gæðastjórnun innan skólans,
að þróunarverkefni sem unnið er
verði hluti af daglegu starfi skólans
og skili bættu skólastarfi."
Til að börnum líði vel
Skúli, Gylfi, Böðvar og Guðbjörg
segjast vera ánægð með stöðu
mála. Sveitarfélagið hafi tekið af
skai'ið um hvemig skólinn á að
vera og að hverju skuli stefnt. Allt
er gert til að börnum líði vel í skól-
anum og að þau hljóti góða og upp-
byggilega menntun. Eða eins og
stendur í skólastefnu bæjarins:
„Bóknámi og verknámi sé gert
álíka hátt undir höfði í grannskól-
um og stuðlað skal að góðu tóm-
stunda- og listuppeldi þannig að
hvert barn eigi kost á menntun við
sitt hæfi.“
skólar/námskeið
ýmisiegt
■ Tréskurdarnámskeið
Örfá pláss í mars og aprfl.
Hannes Flosason, sími 554 0123.
I Kynning á námi í hómópatíu.
^eée Um er að ræða 4ra ára
nám, sem byrjar í maí
nk. Mæting 10 helgar
' á ári. Chris Hammond,
skólastjóri, kynnir.
Stjórnunarskólinn,
Sogavegi 69.
Lau. 20/3 kl. 1730.
Upplýsingar gefur Martin í s. 567 8020 og
567 499 L
Skíða- og sleða-
ferð á Fróðárheiði
Ólafsvík. Morgunbtaðið.
FÖSTUDAGINN 5. mars var
hefðbundið skólastarf í Grunn-
skólanum í Ólafsvík brotið upp
og efnt til skíða- og sleðaferðar á
Fróðárheiði, en þar er skíðalyfta
og ágæt aðstaða til útivistar.
Jákvæð áhrif á hópinn
Nýlega er lokið 2. námsönn í
skólanum, og því var það nem-
endum og starfsfólki kærkomið
að breyta út af venjunni og kom-
ast út í blíðviðrið og hreyfa sig
hressilega eftir vel unnin störf
og erfíði prófanna sem jafnan
fylgja annarlokum.
Heilnæmt fjallaloftið er einnig
líklegt til að efla nemendur og
starfsfólk til áframhaldandi
átaka við erfíða námsvinnu og
gleði leikjanna ætti að hafa já-
kvæð áhrif á öll samskipti hóps-
ins, utan skóla sem innan.
A heimleiðinni varð það óhapp
að önnur langferðabifreiðin sem
flutti krakkana ók út af veginum.
Sem betur fer urðu engin slys, en
atvikið jók á ævintýri dagsins.
Morgunblaðið/Friðrik
NEMENDUR og starfsfólk létt á brún, meðan beðið er eftir rútunni.
á Fosshálsi og því seljum við allan lagerinn með allt að
Ulpur frá kr. 4.950
Dúnúlpur frá kr. 5.950
Öndunarflíkur frá kr. 7.450
Hettupeysur frá kr. 1.990
Háskólapeysur frá kr. 750
Pólóbolir frá kr. 745
Sundbolir frá kr. 598
Joggingbuxur frá kr. 750
Golfhanskar frá kr. 690
Allir bolir kr. 650
Barnajoggingbuxur frá kr. 690
2 stk. barna pólóbolir kr. 990
Barna-fleecepeysur frá kr. 1.990
Skyrtur, buxur,
stuttbuxur og
veiðivesti
MINNST
afsláttur
Bahpokar og töskur
_ 30-50%
afsláttur
♦Columbia
Sportswear Company*
wBBamam
——— sportvömthús BTI IV
Fosshálsi 1 - Sími 577-5858 Opið miðvikud. kl. 11
M I U I M V E R m
_ looo □□ □□□□□ 00000 ooaao 00000 oooao oaooai