Morgunblaðið - 09.03.1999, Síða 42
MORGUNBLAÐIÐ
,42 ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999
MINNINGAR
+
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNÍNA SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Austurbrún 4,
Reykjavík,
fyrrum húsfreyja í Beykishúsi á ísafirði,
andaðist í Landspítalanum að morgni sunnu-
dagsins 7. mars.
Minningarathöfn í Reykjavík og útför frá (safjarðarkirkju verða auglýstar
síðar.
Guðmundur K. Kjartansson, Kristín F. Hermundardóttir,
Kjartan Páll Kjartansson, Sigríður Nikulásdóttir,
Jón Sigurður Kjartansson, Koibrún Karlsdóttir,
Guðfinnur R. Kjartansson, Erla Björk Axelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐBJÖRG JÚLÍANA JÓNSDÓTTIR
frá Broddadalsá,
síðast til heimilis
á Hrafnistu, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtudaginn
11. mars kl. 13.30.
Svava Brynjólfsdóttir, Kristinn Á. Guðjónsson,
Viggó Brynjólfsson, Ardís Arelíusdóttir,
Kristjana Brynjólfsdóttir, Gunnar D. Sæmundsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og langalangömmubörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTÍN SALÓMONSDÓTTIR,
áður Dalalandi 14,
lést a hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn
6. mars sl.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
12. mars kl. 13.30.
Gústav Óskarsson, Elsa Haraldsdóttir,
Sigrún Þóra Óskarsdóttir,
Rut Hallgrímsdóttir, Emil Ágústsson,
Anna Hallgrímsdóttir, Arngrímur Hermannsson,
(na Salóme Hallgrímsdóttir, Gunnar Borgarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Áskær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÚN LILJA HJARTARDÓTTIR,
Hæðargarði 6,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn
7. mars.
Þórunn J. Gunnarsdóttir,
Hjörtur Gunnarsson,
Sigrún Hjartardóttir Swimm,
Gunnar Þorgeirsson,
Unnur Þorgeirsdóttir,
Þóra Þorgeirsdóttir.
Þorgeir Sigurðsson,
Sigríður M. Markúsdóttir,
Craig D. Swimm,
+
Móðir okkar og tengdamóðir,
JÚLÍANA SILFÁ EINARSDÓTTIR,
Fremri-Langey,
lést á Hrafnistu í Reykjavík 8. mars.
Svafa Kjartansdóttir,
Selma Kjartansdóttir,
Baldur Gestsson,
Ólöf Ágústsdóttir
Unnur Kjartansdóttir,
Eggert Th. Kjartansson,
Kópur Z. Kjartansson,
Elsa Kjartansdóttir.
Hólmfríður Gísladóttir
Alda Þórarinsdóttir,
HARALDUR
HAFSTEINN
GUÐJÓNSSON
Haraldur Haf-
steinn Guðjóns-
son fæddist á
Hólmavík 11. mars
1913. Foreldrar
hans voru Kolfinna
Snæbjörg' Jónsdóttir
og Guðjón Jónsson
trésmiður á Hólma-
vík. Haraldur var
elstur sjö systkina,
Qögur lifa bróður
sinn.
Haraldur kvæntist
1. febrúar 1935
Mörtu Gunnlaugu
Guðmundsdóttur, f.
6.7. 1917 í Bæ á Selströnd. For-
eldrar hennar voru Vigdís Sig-
ríður Guðmundsdóttir frá Bæ og
Guðmundur Magnússon frá
Halakoti í Flóa, hjón í Bæ. Þau
eignuðust tólf börn, en misstu
tvö ung, dreng og stúlku. Tíu
eru á lífi. Þau eru, í aldursröð:
1) Lára: var gift Baldri Magnús-
syni, hann lést 1967, þau áttu
fimm börn, en fyrir átti Lára
einn son. M. II Sigurður E. Sig-
urðsson, þau eiga einn son, fyrir
átti Sigurður þrjá syni. Barna-
börn eru 22 og eitt barnabarna-
barn. 2) Hilmar, kvæntur Helgu
Jónsdóttur, þau eiga þrjú börn
og átta barnabörn. 3) Ragnar
Ingi, kvæntur Rósu
B. Sveinsdóttur, þau
eiga fjögur börn og
níu barnabörn. 4)
Guðjón, kvæntur
Nínu Leifsdóttur
Schjetne, þau eiga
fimm börn og átta
barnabörn. 5)
Kolfinna Snæbjörg,
hún á fimm syni og
tíu barnabörn. 6)
Friðþjófur, kvæntur
Sigríði Hauksdótt-
ur, þau eiga fimm
börn og sex barna-
börn. Hún er látin.
M. II Sigríður Armannsdóttir,
hún á þrjú börn af fyrra hjóna-
bandi. 7) Guðmundur Birgir,
kvæntur Margréti Jóhannsdótt-
ur, þau eiga tvö börn og eitt
barnabarn. 8) Garðar, kvæntur
Sólveigu Astvaldsdóttur, þau
eiga fjögur börn. 9) Helga, var
gift Engelhart, Björnssyni. Hún á
þrjár dætur og einn dótturson.
10) Jón Sveinbjörn, kvæntur Sig-
rúnu Kröyer, þau eiga eina dótt-
ur, áður átti Jón dóttur og á hún
einn son.
Utför Haraldar fer fram frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15. Jarðsett verð-
ur í Lágafellskirkjugarði.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta
A grænum grundum lætur
hann mig hvílast,
leiðh'migaðvötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakh nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um
dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
(Úr 23. Davíðssálmi.)
Hann langafí okkar fékk hvfldina
að laugardagskvöldi 27. febrúar sl.
eftir nokkurra mánaða sjúkrahús-
legu. Afi var á margan hátt mjög sér-
stakur maður. Hann velti mikið fyrir
sér ráðgátum lífsins og einnig hinu
dulda þó að hann flíkaði því ekki oft,
enda höfðum við kannski ekki skiln-
ing á því vegna æsku okkar.
,Afí“ lagði hönd á ýmislegt um æv-
ina. Hann eignaðist fyrsta vörubflinn
sem kom til Hólmavíkur þá komung-
ur maður og fékk strax ærinn starfa
fyrir bflinn. Seinna varð hann með
fyrstu mönnum hér á landi til að
eignast jarðýtu og vann næstu ár við
vegagerð í Strandasýslu sem hann
þekkti eins og fingur sina en hann
var strandamaður í húð og hár. Afi
og amma fluttu skömmu eftir stríðs-
lok frá Hólmavík til Reykjavíkur og
var það eitt út af fyrir sig talsvert
mál með stóran bamahóp á þeim
tíma og byggði hann stórt hús í vest-
urbænum fyrir fjölskylduna og
bjuggu þau þar í nokkur ár áður en
þau fluttu í Mosfellssveitina þar sem
hann keypti jörðina Markholt og rak
þar búskap ásamt ýmiss konar verk-
takastarfsemi eins og sand- og mal-
arnámi og eyðingu tundurdufla, en
hann varð með fyrstu mönnum hér-
lendis ef ekki sá fyrsti eftir stríð til
að taka að sér það starf. Einnig vann
hann að flugvallagerð, m.a. í Vest-
mannaeyjum. Seinustu starfsár æv-
innar stundaði hann hrognkelsaveið-
ar og verkaði hrogn til útflutnings.
Afi var mjög hugmyndaríkur og
gekk þá ekki alltaf troðna slóð. Hann
fékk stundum frábærar hugmyndir
en erfitt var að afla þeim fylgis og fá
fjármagn til að hrinda þeim í fram-
kvæmd á þeim tíma og nægir þar að
nefna útflutning á vatni til staða sem
höfðu ferskt vatn af skornum
skammti til umráða, en núna meira
en tuttugu árum síðar þykir þetta
ekki mikið mál. Afi var einstaklega
bamgóður maður og fagnaði okkur
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns míns,
sonar, föður okkar, tengdaföður, afa og lang-
afa,
GRÉTARS ÓLAFS SIGURÐSSONAR,
Túngötu 16,
Sandgerði.
Sérstakar þakkir til Eiríks Jónssonar læknis og
starfsfólks deildar 4A á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur.
Sígurveig Sigurjónsdóttir, Berta Steinþórsdóttir,
Berta Grétarsdóttir, Matthías Guðmundsson,
Gissur Þór Grétarsson, Salóme Guðmundsdóttir,
Ester Grétarsdóttir, Hjörtur Jóhannsson,
Sigurbjörn Grétarsson,
Jóhann Ingi Grétarsson, Margrét Ingiþórsdóttir,
Elvar Grétarsson, Sigrún Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
smáfólkinu alltaf innilega þegar við
komum. Núna þegar kveðjustundin
er runnin upp þá biðjum við þér
guðsblessunar og verndar á nýju og
æðra tilverustigi og biðjum guð að
styðja og styrkja Mörtu ömmu í
sorginni og einnig börn þeirra og
fjölskyldur.
Hvfl þú í faðmi guðs.
Barnabörn og barnabarn
Láru og Baldurs.
Haraldur Guðjónsson í Markholti
er nú látinn. Hann var í hópi þeirra
sem voru bændur í Mosfellssveitinni
um miðja öldina. Haraldur átti ættir
að rekja til Strandasýslu en bjó á
Hólmavík og hélt lítið bú til afkomu-
drýginda fyrir ört vaxandi fjöl-
skyldu, tvær kýr og nokkrar kindur.
Ævistarf hans tengdist meðfram bú-
skapnum verklegum framkvæmdum,
vegagerð, flugvallagerð og hverju
eina af því tagi.
Haraldur eignaðist fyrsta vörubíil-
inn sem kom til Hólmavíkur og síðan
annan vélakost til framkvæmda sem
hann stundaði bæði hjá opinberum
aðilum og bændum. Hann flutti til
Reykjavíkur 1946 en fannst of þröngt
um sig þar. Þá festi hann kaup á einu
nýbýlanna í Mosfellssveit, Markholti,
og flutti þangað með stórfjölskyldu
sína 1951.
Haraldur rak búskap í Markholt-
inu eftir því sem landrými leyfði, en
sneri sér meðfram að verktöku og
sandnámi. Hann eignaðist stórvirkar
vélai' og tók að sér verk af ýmsu tagi.
Hann var óvenju verklaginn og eftir-
sóttur og sinnti öllu því sem bauðst,
enda margir munnamii- sem metta
þurfti. Börnin uxu úr grasi og voru
vinnufús og vinsæl og létu sinn hlut
ekki eftir liggja.
I fáum kveðjuorðum sem hér birt-
ast er lítið sem kemst að um ævistarf
Haraldar og Mörtu. Til þess þyrfti
að skrifa heila bók. Þó vil ég nefna
að í stríðslok sótti Haraldur nám-
skeið hjá hemum í eyðingu tundur-
dufla. Hann vann við þetta fjölda ára
og þótti vel að sér og laginn við þetta
áhættusama verkefni. Þannig var um
flest það sem Haraldur starfaði, allt
lék í höndum hans og hann var verk-
hygginn og útsjónarsamur við hvers
konar störf. Á seinni áram sótti Har-
aldur á æskustöðvarnar og stundaði
ásamt konu sinni grásleppu- og há-
karlsútgerð í Kaldbaksvík á vorin og
fram á sumar, sókndjarfur að vanda.
Á kveðjustundu hvarflar hugurinn
með þökk og virðingu tfl þeirra hjóna í
Markholti sem fóra, að því er virtist,
létt með að sjá sér og bamafjölda sín-
um farborða. Þau eignuðust tólf böm
og komust tíu á legg, sem mörg hver
hafa haldið tryggð við Mosfellssveit-
ina og eiga hér sínar rætur. Fjöl-
skylda Mörtu og Haraldar blandaðist
vel heimafólki í Mosfellssveitinni.
Þetta fólk er dugmikið og samhent og
hlaut vinsældir sveitunga sinna. Þeg-
ar þéttbýli tók að myndast umhverfis
Harald og Mörtu í Markholti seldu
þau sveitarfélaginu jörðina og keyptu
eignir við Lágafell fyrir aðstöðu og
vélakost
Við samtíðarmenn Hai-aldar minn-
umst hans með vinsemd og þökk.
Mörtu, börnum Haraldar og fjöl-
skyldum þeirra sendum við samúðar-
kveðjur. Lifi minning góðs nágranna.
Jón M. Guðmundsson.
Blómastofa
Fridfinns
Suöurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.