Morgunblaðið - 09.03.1999, Page 49

Morgunblaðið - 09.03.1999, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 49 HESTAR Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson í UPPHITUN er hesturinn langur en knapinn virkjar afturpartinn og ein- beitingu hestsins. Hægt og sígandi hefst svo söfnun þar sem knapinn færir með bendingum sínum þyngdarpunkt hestsins aftar þannig að hesturinn ber meirihluta þyngdarinnar á afturfótum, því meir sem söfnunin verður meiri. ATLI ríður hér stóðhesti á fimmta vetur frá Dallandi, vel söfnuðum, með þyngdarpunktinn aftarlega, í góðu framgripi og góðum höfuðburði. Þarna sést árangur af markvissri uppbyggingu á vöðvakerfi hestsins þar sem þess hefur verið gætt að leggja ekki mikið á hinn unga hest fyrr en getan hefur verið orðin næg. Söfnun - stigmagnaðir þyngdarflutningar Stoltur og frjáls í framgöngu, skrefamikill og fjaðrandi töltari. Eitthvað í þessa veru ----------------—7---- hljómar lýsing á þeim hesti sem Islending- ar vildu helst eiga og ríða. En til þess að svo verði þarf knapinn að framkvæma hlut sem á reiðmennskumáli kallast söfnun. Valdimar Kristinsson heimsótti Atla Guð- mundsson sem fræddi hann um þennan mikilvæga hlekk í þjálfun reiðhests. EITT helsta markmið í þjálfun reið- hests er að færa þyngdarpunkt hestsins aftar, með öðrum orðum að burður þyngdar hests og knapa fær- ist meir yfir á afturfætur hestsins. Þegar hesturinn er óþjálfaður í haga bera framfætur ríflega meirihluta þyngdar hestsins en markviss tamn- ing og þjálfun miðar að því að breyta þessu. Þessi breyting gerist ekki í einu vetfangi heldur stig af stigi. Bæði þai-f hesturinn að læra að skilja óskir knapans og þjálfa þarf vöðvakerfi hestins til að bera eigin þyngd og knapans á nýjan máta. Þegar knapi sest á ungan hest fer meirihluti þyngdar knapans einnig yfir á framfætur. Rétt uppbygging gnindvallaratriði Vöðvai- sem hesturinn hafði áður notað lítið fá nýtt og veigameira hlut- verk og þarf því að styrkja þá til að bera meiri þunga en þeir höfðu áður gert. A þetta sérstaklega við um bak- og kviðvöðva hestsins. Vöðvakerfið þarf að styrkja sem heild og undir- búa svo það vinni rétt saman. Allar ótímabærai' kröfur um söfnun eða þyngdarflutninga stuðla að rangri uPPbyggingu og óhjákvæmilegur fylgifiskur er svo spenna, bæði and- leg og líkamleg. Þyngdai'flutningar hefjast í raun þegar farið er að ríða ungu hrossi með þeim hætti að knapinn fer að virkja afturpart hestsins. Öll hvatn- ing hans miðast við að hesturinn noti afturpai'tinn meir en hann myndi gera frjáls á hlaupum. Knapinn reyn- ir að auka spyrnu afturfóta. í allri slökun og upphitun virkjar knapinn afturpartinn og einbeitingu hestsins sem undirbúning fyrir söfnun. Söfnun næst með samspili hamlandi og hvetjandi ábendinga. Þá er umbunin ákaflega mikilvæg þegar farið er að safna hesti saman, hún tryggir sjálfstæði og framtak og kemur í veg fyrir að hesturinn spennist um of. Þegar hestur svarar ábendingu rétt er honum umbunað. Sem dæmi má nefna þegar hestur er hvattur fram að beisli og hesturinn gefur eftir í stað þess að fara á beisl- ið og auka hraðann. Umbunin felst í því að knapinn gefui' tauminn eitt augnablik áður en hann endurtekur sömu ábendingar. Ef hesturinn fær ekki umbun fyrh' rétt viðbrögð finn- ur hann engan tilgang í að gera rétt og sýnir flóttaviðbrögð, hálsinn of- reisist og bakið verður fatt. Rétt uppbygging bakvöðva er ekki lengur fyrir hendi. Hvatningin auki hreyfmgar en ekki hraða Söfnun byggist á hvatningu fram án þess þó að hesturinn auki hrað- ann. Hreyfingar hestsins aukast og afturhlutinn gengur meir undir þyngdina. Knapinn finnur þá vel hvemig afturfætur ganga inn undir þyngdina og bak hestsins lyftist. Söfnun er best að kenna hestinum í rólegheitum og fylgja þeirri megin- reglu að það sem hesturinn á erfitt með að gera á feti mun reynast hon- um enn erfiðara á hraðari gangi. Einnig er gott að taka stutta spotta í byrjun og nota örlitla slökun á milli þegar byrjað er að ríða hestinum söfnuðum á tölti. Kröfur um söfnun stigmagnast eftir því sem hestinum eykst styrkur og áræði til að ganga vel samansafnaður, samspora í góðri hreyfingu. Hinn ákveðni en sanngjarni leiðtogi Ástæða er til að minna á leiðtoga- hlutverkið sem áður hefur verið get- ið um í þessum þáttum. I söfnun þarf knapinn að vera ákveðinn og vita ná- kvæmlega eftir hverju hann er að leita. Algengt er að hestarnir reyni að komast undan öllu því sem þeim kann í upphafi að þykja óþægilegt. Þá gildir að vera fylginn sér í kröfum en þó um leið sanngjarn til leiða hestinn framhjá spennu og kvíða. I markvissri þjálfun þarf knapinn oft að leita til baka í þá grunnvinnu sem hestinum hefur áður verið kennd. Al- gengt er að of geyst sé farið og þá er gott að fara örlítið til baka og þar er slökunarþátturínn mikilvægur eins og reyndar í gegnum allt þjálfunar- ferlið. í erfiðri þjálfun þarf hesturinn alltaf að sjá fyrir endann á erfiðinu og oft getur örstutt slökun endurnýj- að vinnugleðina. Að kenna í rólegheitum Lausnir á ýmsum vandamálum sem upp kunna að koma liggja ekki endilega í því verkefni sem verið er að fást við heldur getur reynst ár- angursríkt að staldra við og fara jafnvel örlítið til baka og halda síð- an áfram frá þeim punkti. Við gang- skiptingu fet á tölt hættir hestum gjarnan til að fara í gamla farið, þ.e. hjartarháls og fatt bak. „Al- gengt er,“ segir Atli, „að ekki hafi verið losað nóg um hestinn til hlið- anna. Hann leitar þá gjarnan í að setja sig á beislið.“ I upphafi söfn- unar mælir Atli með því að hestin- um sé safnað vel saman á feti áður en farið er að ríða til dæmis tölt. Hestinum er þá riðið í töltstillingu á feti og verður skiptingin þá til- tölulega auðveld bæði fyrir hest og knapa. Hesturinn ekki fældur upp á töltið heldur lyftir sér mjúklega af feti yfir á tölt. Ríða síðan stuttan spotta og hægja mjúklega niður áð- ur en hesturinn leitar í gamla farið og síðan endurtaka æfinguna nokkrum sinnum. Megininntakið hjá Atla er að kenna hestinum í ró- legheitum jafnframt því sem knap- inn nær betri tökum á því sem að honum snýr. Knapinn fær ráðrúm til að hugsa og framkvæma rétt við- brögð á réttum tíma, þar á meðal hvatningu, hömlun og umbun. Yfir- færa síðan það sem lærst hefur á hægi-i ferð yfir á meiri hraða og fá hestinn til að ganga með þyngdar- punktinn aftarlega með góðum hreyfingum og framgripi. Lesendum hestaþáttarins er frjálst að koma spurningum eða at- hugasemdum á framfæri við hesta- þáttinn í tölvupósti á vakr@vor- tex.is. Sörli með fyrsta alvörumót ársins FÁKSMENN héldu sitt fyrsta mót á árinu síðasta laugardag í febrúar þar sem keppt var í tölti og flugskeiði. Þátttaka var nokkuð góð miðað við veður að sögn mótshaldara. Alls voru skráningar 83 sem skiptust þannig að í flokki atvinnumanna voru 8 keppendur, 17 í karlaflokki, 19 í kvennaflokki, 13 ungmenni, 8 unglingar, 4 í barnaflokki, 5 pollar og 9 mættu til leiks í 100 metra fljúg- andi skeið. Sama dag var Sörli í Hafnarftrði með annað mót sitt á árinu í reiðhöll- inni Sörlastöðum. Var þar um að 5 ræða hið árlega PON-open þar sem keppt var í tölti með forkeppni og úrslitum þar sem gefnar voru ein- kunnir og er það líklega fyrsta al- vörumót ársins ef svo má að orði komast. Mótið tókst hið besta og var góð stemmning í höllinni. En úrslit mótanna urðu annars sem hér segir, fyrst mót Fáks og síðan PON- Open:Atviiiiiumcnn 1. Sigurður Marínusson á Snotri frá Bjargs- hóli. 2. Auðunn Kristjánsson á Baldri frá Bakka. 3. Ragnar Hinriksson á Heljari frá Neðra- Asi. 4. Kristbjörg Eyvindssdóttir á Blika frá Kollaleii'u. 5. Helgi L. Sigmarsson á Breka frá Reykjavík. Karlar 1. Vilhjálmur Skúlason á Roða frá Akurejri. 2. Kristinn Skúlason á Funa frá Blönduósi. 3. Ragnar Tómassson á Hlyn frá Forsæti. 4. Höskuldur Hildibrandsson á Garpi frá Garðabæ. Konur 1. Svava Kristjánsdóttir á Dára frá Keldudal. 2. Kristín Þórðardóttir á Glanna frá Vindási. 3. Ásta Bjömsdóttir á Guma frá Krossi. 4. Ragnhildur Matthíasdóttir á Bínusi frá Reykjavik. 5. Ánna Markus á Vafa frá Kjarnholtum. Ungmenni 1. Birgitta Kristinsdóttir á Lauki frá Feti. 2. Matthías Bárðarson á Ljóra frá Ketu. 3. Sigurður R. Sigurðsson á Reyk frá Skarðshlíð. 4. Erla Sigurþórsdóttir á Kreiki frá Ártúni. 5. Kristján Ðaðason á Ögra frá Syðra- Skörðugili. Unglingar 1. Unnur B. Vilhjálmsdóttir á Hrafni frá Ríp. 2. Viðar Ingólfsson á Glaumi frá Bjaraanesi. 3. Sigurþór Sigurðsson á Feng frá Haf- steinsstöðum. 4. Hrefna M. Ómarsdóttir á ísold frá Álfhól- um. 5. Þórunn Kristjánsdóttir á Rökkva frá Hvolsvelli. Börn 1. Ásdís B. Guðmundsdóttir á Gullfaxa frá Svignaskarði. 2. Unnur G. Ásgeirsdóttir á Dögg frá Þúfu. 3. Þóra Matthíasdóttir á Össuri frá Auðs- holtshjáleigu. Pollar 1. Sara Sigurbjörnsdóttir á Húna frá Torfu- nesi. 2. Valdimar Bergstað á Sóloni frá Sauðár- króki. 3. Vigdís Matthíasdóttir á Nótt frá Reykjavík. 4. Rúna Helgadóttir á Tvisti frá Ási. 5. EUý Tómasdóttir á Vafa frá Kjarnholtum. Mjiigamii skcið 100 metrar 1. Logi Laxdal á Ýr frá Hafnarfirði á 8,59 sek. 2. Sveinn Ragnarsson á Framtíð frá Runn- um á 8,65 sek. 3. Sigurður Marínusson á Diljá frá Hvammstanga á 8,99 sek. 4. Alexander Hrafnkelsson á Berki frá Akranesi á 9,12 sek. 5. Hjörtur Bergstað á Lukku frá Gýgjarhóli á 9,20 sek. PON-open, einkunnir lír forkeppni og úr- slitum Opinn flokkur 1. Logi Laxdal Fáki, á Flugu frá Breiðaból- stað, 6,43/6,67. 2. Snorri Dal Sörla, á Hörpu frá Gljúfri, 6,40/6,51. 3. Fríða H. Steinarsdóttir Fáki, á Húna frá Torfunesi, 6,37/6,35. 4. Sigurbjöm Bárðarson Fáki, á Blesa, 6,07/6,33. 5. Adolf Snæbjörnsson Sörla, á Síak frá Hæringsstöðum, 5,93/6,22. Ungmenni 1. Birgitta D. Kristinsdóttir Gusti, á Ósk frá Refsstöðum, 5,20/5,69. 2. Ingólfur Pálmason Sörla, á Gyðju frá Búlandi, 5,37/5,59. 3. Daníel I. Smárason Sörla, á Ösku frá Krossi, 4,87/5,12. 4. Hinrik Þ. Sigurðsson Sörla, á Val frá Litla-Bergi, 5,17/5,09. 5. Pétur Sigurjónsson Sörla, á Óttari frá Þingnesi, 4,67/4,96. Unglingar 1. Sigurður S. Pálsson Herði, á Rimmu frá Bægisá, 5,83/6,38. 2. Sylvia Sigurbjörnsdóttir Fáki, á Garpi frá Krossi, 5,50/6,17. 3. Berglind R. Guðmundsdóttir Gusti, á Feng frá Kópavogi, 5,33/5,49. 4. Eyjólfur Þoreteinsson Sörla, á Dröfn frá Þingnesi, 5,13/5,38. 5. Bryndís K. Sigurðardóttir Sörla, á *" Skruggu frá Hala, 5,10/5,23. Börn 1. Rósa B. Þorvaldsdóttir Sörla, á Arvakri frá Sandhóli, 4,03/4,71. 2. Ómar Á. Theódórsson Sörla, á Rúbín frá Ögmundarstöðum, 3,40/4,06. 3. Sandra L. Þórðardóttir Sörla, á Feng frá Skammbeinsstöðum, 2,73/3,50. 4. Margrét F. Sigurðardóttir Sörla, á Skildi frá Hrólfsstöðum, 2,80/3,26. -.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.