Morgunblaðið - 09.03.1999, Síða 54

Morgunblaðið - 09.03.1999, Síða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 I DAG MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa kl. 10-14. Léttur hádegisverð- ur. Samverustund foreldra ungra bama kl. 14-16. Fundur í æskulýðs- félaginu kl. 20. Bústaðakirkja. Æskulýðsstarf kl. 20.30. Dómkirkjan. Barnastarf fýrir 6-9 ára böm kl. 10.15 og kl. 14.15 í safn- aðarheimilinu. Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Orgelleikur, ritningalestur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Hallgrfmskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk- um. Passíusálmalestur og orgelleik- ur kl. 12.15. Æskulýðsfélagið Örk (yngri deild) kl. 20. Háteigskirkja. Starf fyrir 6-9 ára böm kl. 17. Langholtskirkja. Passíusálmalestur og bænastund kl. 18. Fundur safn- aðarfélagsins kl. 20. Laugarneskirkja. Fullorðins- fræðsla kl. 20. „Þriðjudagur með Þorvaldi" kl. 21. Lofgjörðarstund. Óháði söfnuðurinn. Föstumessa kl. 20.30. Þórður Guðmundsson guð- fræðinemi prédikar. Kaffí og biblíu- lestur út frá 32. Passíusálmi í safn- aðarheimili að lokinni guðsþjónustu. Seltjarnarneskirkja. For- eldramorgunn kl. 10-12. Passíu- sálmalestur kl. 12.30. Æskulýðs- starf fyrir 8. og 9. bekk kl. 20-22. Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar í safnaðarheimilinu kl. 10-12. „Ömmu- og afakaffi“. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón- usta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænarefnum má koma til sóknar- prests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Starf aldraðra kl. 11.15 í umsjá Önnu Sigurkarlsdótt- ur. Leikfimi, léttur málsverður. Sr. Fjalar Sigurjónsson hefur helgi- stund. Hann og kona hans, Beta Einarsdóttir, segja frá vem sinni í Hrísey. Kl. 18 kyrrðar- og bæna- stund. Æskulýðsstarf kl. 20 á veg- um KFUM & K og Digraneskirkju. Fella- og Hólakirkja. Starf fýrir 9-10 ára stúlkur kl. 17.30. Æsku- lýðsstarf iýrir 8. bekk kl. 20.30. Grafarvogskirkja. Eldri borgarar, opið hús kl. 13.30-15.30. Helgi- stund, söngur, handavinna, létt spjall og kaffiveitingar. Æskulýðs- starf fýrir 8. bekk kl. 20-22 í kirkj- unni. KFUM fýrir drengi 9-12 ára Dagbók Háskóla fslands Dagbók Háskóla íslands 9.-12. mars. Allt áhugafólk er velkomið á fyrirlestra í boði Háskóla Is- lands. Dagbókin er uppfærð vikulega á heimasíðu Háskólans http://www.hi.is/hiHome.html. Miðvikudagnrinn 10. mars: Þómnn Guðmundsdóttir sópr- an og Kristinn Örn Kristinsson píanó flytja sönglög eftir Anton- in Dvorák og Gustav Mahler á háskólatónleikum í Norræna húsinu kl. 12.30. Aðgangseyrir 400 kr. Ókeypis fýrir handhafa stúdentaskírteina. Magnús Harðarson hjá Ekonomika hagfræðiráðgjöf, flytur fýrirlestur á vegum mál- stofu viðskipta- og hagfræði- deiidar um „Framleiðslujöfnun og árstíðasveiflur". Fyrirlestur- inn verður fluttur í kennarastofu viðskipta- og hagfræðideildar þriðju hæð kl. 16.15. Námskeið á vegum Endur- menntunarstofnunar HI 8.-13. mars: 9., 11. og 15. mars ki 18.15- 21.30. Vítamín, fæðubótarefni og náttúmlyf I. I samvinnu við Lyfjatæknafélag Islands. Kenn- ari: Biyndís Þóra Þórsdóttir lyfjafræðingur og kennari. 9. mars kl. 15.00-19.00. Tækninýjungar og hagnýting kl. 17.30-18.30. „Kirkjukrakkar" í Rimaskóla fyrir böm 7-9 ára kl. 17-18. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 18. Prédikunarklúbbur presta kl. 9.15 í umsjá dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar. Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í safnaðarheimilinu Borgum í dag kl. 10-12. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 7-9 ára böm frá kl. 17-18.30 í safnaðarheimilinu, Linnetstíg 6. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir 8-9 ára börn kl. 17-18.30. Aftansöngur og fyrirbænir kl. 18.30. Hafnarfjarðarkirkja. TTT-starf fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30 í Vonar- höfn Strandbergs. Kristin íhugun í Stafni, Kapellu Strandbergs kl. 21.30- 22. Heimsborgin - Rómverja- bréfið, lestur í Vonarhöfn kl. 18.30- 20. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin kl. 14-16. Starfsfólk verður á sama tíma í Kirkjulundi. Grindavíkurkirkja. Foreldramorg- unn kl. 10-12. Borgarneskirkja. Mömmumorgunn í safnaðarheimilinu milli kl. 10 og 12. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.30. Hvammstangakirkja. For- eldramorgunn kl. 10-12 á prests- setrinu. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 16-17 kirkjuprakkarar (7-9 ára) í safnaðarheimilinu. Kirkjuprakkarar glíma við fmmlegt fóndur og æfa upp brúðuleikrit fyrir foreldradag- inn. Enn er hægt að bæta við börn- um, örfá sæti laus. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Ffladelfi'a. Samvera á vegum systrafélagsins kl. 20. Lágafellskirkja. Æskulýðsstarf fermingarbarna á miðvikudögum kl. 20. Umsjón Sigurður Rúnar Ragn- arsson. Hólaneskirkja, Skagaströnd. KFUM og K fyrir 9-12 ára kl. 16. Biblíulestur í Sæborg kl. 20. KFUM og K v/Holtaveg. Á morg- un, miðvikudag k. 12.10, mun Hall- dór Elías Guðmundsson, djákni og framkvæmdastjóri Æskulýðsstarfs kirkjunnar í Reykjavíkui-prófasts- dæmum, ÆSKR, flytja stutt erindi um stöðu og þátt KFUM og KFUK í æskulýðsstarfí kirkjunnar í fortíð og nútíð. Allir áhugasamir um kristilegt æskulýðsstarf em hvattir til að fjölmenna. Allir velkomnir. orðabanka á Netinu við þýðing- ar. Kennarar: Dr. Jón Skapta- son löggiitur skjalaþýðandi og Dóra Hafsteinsdóttir ritstjóri Orðabanka Islenskrar málstöðv- ar. Þri. og fim. 9. mars-13. apríl (nema 1. apr.). kl. 18.45-20.15 (lOx). Japanska II - framhalds- námskeið. í samvinnu við Mími- Tómstundaskólann. Kennari: Tomoko Gamo BA, en hún hefur sl. 2 ár kennt japönsku á íslandi. 10. mars kl. 16.00-19.30. Virð- isaukaskattur. Kennari: Kristín Norðfjörð, lögfræðingur og skrifstofustjóri hjá Skattstjóran- um í Reykjavík. 11. mars kl. 9.00-16.00. GPS- tækni í jarðvísindum. Umsjón: Vigdís Harðardóttir, Orkustofn- un. Kennarar: Dr. Freysteinn Sigmundsson, Norrænu eld- fjallastöðinni, dr. ÞóraÁmadótt- ir, Veðurstofu fsl., dr. Páll Ein- arsson og dr. Magnús Tumi Guðmundsson, báðir hjá HÍ. 11. mars kl. 10.00-17.00. Vemdun persónuupplýsinga og tölvuöryggi: Lögfræði - siðfræði - tölvutækni. Umsjón: Þórður Helgason forstöðumaður eðlis- fræði- og tæknideildar Landspít- alans. Kennarar: Þorgeir Ór- lygsson prófessor, Sigurður Guðmundsson landlæknir og Svana Helen Bjömsdóttir verk- fræðingur. 13., 15. og 16. mars kl. 8.30- 12.30. Heilsusálarfræði. Kenn- ari: Dr. Sigurlína Davíðsdóttir lektor við HI. VELVAKAMU Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til fostudags Sígarettur úr matvöru- búðum ÞAÐ er sannað að sígar- ettureykingar valda krabbameini. Þó eru þær seldar í matvörubúðum og auðvitað í sjoppum, á kvöldsölustöðum þar sem unglingar hafa greiðan að- gang að þeim. Það er fólk sem er að bjóða því fólki sem vill hætta að reykja á námskeið og er það af hinu góða en betur má ef duga skal og best er að byrja aldrei. Áfengisútsölustaðir. Eftir að vínbanninu var aflétt og farið var að selja hér áfengi var það selt í sérverslunum og er svo enn. (Vonandi verður það ekki fært inn í matvöru- verslanir eins og sumir vilja.) Væri því ekki rétt að selja tóbakið þar líka á sama stað og að sjálf- sögðu í heilum lengjum (cartonum). Nú er seldur einn og einn pakki í búð- um sem auðveldar ung- lingum að kaupa þá. Tó- baksvamanefnd, sem berst fyrir því að draga úr reykingum, og læknar, sem vilja stuðla að bættri heilsu almennings, ættu að beita sér fyiir að koma þessu til leiðar ef það gæti orðið til að draga úr reyk- ingum, og þar með bæta almennt heilsufar. Guðmundur Bergsson. Kennarar EF nokkur stétt á skilið riðurkenningu, mann- sæmandi laun og sóma- samlegan aðbúnað, eru það kennarar. Þeir taka rið bömúm og unglingum frá hinum ólíkustu heimilum og eiga að halda áfram uppeldis- hlutverkinu. Það er liðin tíð að skólakennari sé al- mennt karl, vel stílfærður andlega og likamlega í byrjun kennsluriku. Oftai- en ekki er það þreytt kennslukona, sem á að hafa hemil á allt uppí 30 krakka í bekk og þegar heim kemur blasir stund- um ekki skárra rið, þurf- andi afkvæmi plús maki. Er illa búið að kennara- stéttinni eins og raun ber ritni, hvað skort snertir á vel menntuðu fóiki, vegna þess að kennarar eru að stórum hluta konur? Við sem erum á leiðinni niður æristigann munum tímana tvenna þegar flest- ar okkar fornmæðra áttu þetta 12 til 21 afkvæmi. Eg þekki dæmi um eina þessara skylduræknu eig- inkvenna, enda ekkert val í þá daga; hún labbaði út þegar talan var komin i 17. f dag er áreitið orðið svo mikið í samfélaginu hvað neyslu snertir í öllu formi, sem troðið er upp á fólk, að foreldri á fullt í fangi með 1-3 börn, hvað þá fleiri á ýmsum aldurs- skeiðum. Foreldrið þarf að rinna meira og minna allan sólarhringinn. Til dæmis er fermingarveisl- an ekki lengur haldin í heimahúsi, ef húsakostur er þröngur, með súkkulaði og rjómatertu, jafnhliða ræðu eins og áður var, ef völ var á ritibornum ætt- ingja innan stórfjölskyld- unnar til að halda hana. Nú er það salur úti í bæ, líkt og boðið sé til ráð- herraveislu. Hver einasti aldraður frændi eða frænka eru tínd upp,' sem rita stundum ekki hvaðan á sig stendur veðrið yfir þessu óvænta heimboði. Og gjafirnar eru ekki af „óæðri“ endanum. Fyrir- ferðarmiklar hljómflutn- ingsgræjur, vélsleðar eða mótorhjól. Enginn strák- ur á reiðhjóli nær í stelpu! Gjafimar koma ekki alltaf einstaklingnum til góða, þri rangt er gefið. Það er vonandi að sá stjórnmálaflokkur eða flokkar sem rinna í næstu kosningum búi vel að kennarastéttinni. Hún tekur rið öllum þessum kröfuhöfum - fórnarlömb- um græðginnar. Guðrún Jacobsen. Bergstaðastræti 34. SKAK UiiiNjón Margcir Pétursson STAÐAN kom upp á al- þjóðlegu móti í Yangon í Myanmar (Burma) í febr- úar. Khin Thaung (2.505), Myanmar, hafði hvítt, en landi hans Htun Htun Than (2.495) var með svart og átti leik. Hvítur var að setja á svörtu drottninguna, drap peð með hrók á b4. 24. - Hxg2! 25. Hal (Auðritað ekki 25. Hxg2 - Dfl+ og mátar) 25. - Rf3! og hvítur gafst upp. Keppendur á mótinu voru allir frá Austur-Asíu. ICfnverjinn Ye Rongguang sigraði með 13 rinninga af 14 mögulegum, en A1 Modiakhi, Quatar varð næstur með 11 rinninga. SVARTUR leikur og vinnur. HOGNI HREKKVISI - Q/rvtkA, þœr st-Ú. ræbi" Víkverji skrifar... VÍKYERJI á marga kunningja. Einn þeirra kom að máli við Víkverja og var mjög ósáttur við viðskipti sín við ákveðið trygginga- félag. Þannig var mál með vexti að kunninginn var með allar sínar tryggingar hjá sama félagi, af bíl, fasteign og fleiru og þegar af- kvæmi hans keypti sér bíl og ætl- aði að tryggja hjá sama félagi, var því bent á að væri foreldrið skráð fyrir tryggingunni, næðist lægra iðgjald og fylgdi þessu engin við- vörun frá sölumanni tryggingar- innar. Kunninginn samþykkti þetta enda umhugað um að barnið nyti sem beztra kjara. Svo fer svo illa að bíll bamsins eyðileggst í tjóni og fæst reyndar bættur, sem svo sem er ekki í frásögur færandi. Það næsta sem gerist er að kunningi Víkverja endurnýjar bif- reið sína og tryggir að sjálfsögðu áfram hjá sama félagi. Stuttu síðar kemur svo reikningur frá trygg- ingafélaginu fyrir tryggingu á nýja bílnum, þrátt fyrir að trygging af hinum gamla fyrir allt árið hafi verið greidd. Þar kemur líka í ljós að bónus hefur verið lækkaður verulega eða sem nemur um 30.000 krónum á ári næstu þrjú árin. Kunninginn var því allt í einu kom- inn í skuld við ti-yggingafélagið þótt hann væri að tryggja minni bíl en áður. Þetta kom flatt upp á kunningjann, enda hafði hann ekki valdið neinu tjóni og reyndar verið tjónlaus á 30 ára ökumannsferli. Þegar rætt var við tryggingafélag- ið var eina svarið sem fékkst: Þú áttir auðvitað að gera þér það ljóst, að þú tókst áhættu með því að skrá tryggingu barns þíns á þitt nafn. Okkur bar engin skylda til að vara þig við því! Niðurstaðan var því sú, að sá sem tjóninu olli missti engan bón- us, en sá sem ekki hafði valdið tjóni í 30 ár fékk skellinn. Kunningjan- um fannst þetta einkennileg niður- staða, því þama var tryggingafé- lagið greinilega að sveigja reglur sínar til að ná tryggingu til sín og það hefði að sjálfsögðu átt að vara við afleiðingum þess að skrá trygg- inguna með þessum hætti. Þarna seildist félagið að mati kunningjans allt of langt til að ná í eina bíla- tryggingu og var ófáanlegt til að koma til móts við hann. En kunninginn sá sér leik á borði. Öllum tryggingum við við- komandi tryggingafélag hefur ver- ið sagt upp. Þær hafa verið færðar annað, þar sem betri kostir hafa boðizt. Vafasöm leið til að ná einni tryggingu til sín hefur því kostað félagið mun meiri viðskipti, sem án efa hefðu orðið til ára eða áratuga, hefði ekki komið til þessa. Menn uppskera eins og þeir sá. X X x VÍKVERJI er ekki alveg sáttur við veitingastaðinn Pizza 67. Síðastliðið föstudagskvöld, 5. marz, dvöldust á heimili hans fjögur böm og var ákveðið að halda þeim góða pizzuveizlu. I Dagskrá Morgun- blaðsins fyrir tímabilið 3. til 16. marz sá hann tilboð frá Pizza 67. Ágætt „Fjölskyldutilboð“ þar sem tekið var fram að í kaupbæti við pizzu, hvít- lauksbrauð og gosdrykk, fengju krakkamir Pizza 67 bol frítt með. Akveðið var að taka þetta tilboð, en bömunum ekki sagt frá því að þau ættu von á bolunum, Þeir áttu að koma á óvart. Þegar spurt var um bolina þegar pöntunin var lögð inn, vai- sagt að þeir væm búnir. Það er anzi slakt að auglýsa tOboð í dagskrárblaði sem gfldir í hálfan mánuð og geta ekki staðið við það á öðram degi. Fyrii'tækið bauðst held- ur ekki til að lækka verðið, þrátt fyr- ir að engir bolir fyrir krakkana fylgdu með. Víkverji er þeirrar skoðunar að íramferði af þessu tagi sé viðkomandi auglýsanda hvergi til framdráttar og aðeins til þess fallið að tapa viðskiptum til keppinaut- anna og vekja óánægju annars ttyggra viðskiptavina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.