Morgunblaðið - 09.03.1999, Síða 58

Morgunblaðið - 09.03.1999, Síða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM ■ ■I11III H 11111111.11 m II11III UJLMrlJJ Nr. var vikur Mynd ; Útgefandi Tegund 1. 2. 2 Mask 01 Zorro ! Skífan Spenna 2. 1. 3 Perfect Murder | Warner myndir Spenna 3. NÝ 1 Blode I Myndform Spenna 4. 3. 2 Odd Couple II ; CIC myndbönd Gaman 5. NÝ 1 Smoll Soldiers ; CIC myndbönd Gaman 6. 4. 3 Palmetto ; Warner myndir Spenna 7. 6. 3 Kissing A Fool ; Myndform Gaman 8. 5. 4 The X-files Movie ; Skífon Spenna 9. 8. 2 Sporloust 1 Hóskólabíó Spenna 10. 10. 8 Six Doys Seven Nights ; Sam myndbönd Gaman 11. 11. 3 Disturbing Behovior I Skífan Spenna 12. 13. 7 Senseless ; Skífan Gaman 13. 7. 4 Deep Rising ■ Myndform Spenna 14. 12. 5 Mofio! ; Sam myndbönd Gaman 15. 9. 4 Avengers i Warner myndir Gaman 16. 14. 9 Sliding Doors i Myndform Gaman 17. NÝ 1 Les Miserables : Skífan Drama 18. A.I. 2 Since You've Been Gone : Skífan Gaman 19. 15. 10 Red Corner | Warner myndir Spenna 20. A.I. 10 Hush ; Skifan Spenna VINSÆLUSTU íyiYNDBÖNDIN A ISLANDI v , Myndbandalistinn Gríma Zorrós á toppnum ANTONIO Banderas og Catharine Zeta-Jones tróna á toppi listans þessa vikuna í myndinni Grímu Zor- rós, en í öðru sæti er endurgerð gömlu Hitchcock myndarinnar Dial M for Murder, eða Fullkomið morð með þeim Michael Douglas og Gwyneth Paltrow í aðalhlutverkum. Þrjár nýjar myndir koma inn á listann þessa vikuna, þær Blade með Wesley Snipes sem fer í þriðja sætið og Litlir hermenn sem fer í fjórða sætið. Vesalingarnir með þeim Liam Neeson og Umu Thur- A/' % /Y fDe ZeteT Ho?ki,,s °g Cathar- Zeta-Jones i Grímu Zorrós. man kemur einnig ný inn á lista og fór í 17. sætið. Tölvunámskeið Windows, Word og Excel, frábært byrjendanámskeið..................15 klukkust. Windows 95/98, stýrikerfið og tölvan................................6 klukkust. Word ritvinnslan, ítarlegt námskeið, jafitvel fyrir vana..........12 klukkust. Excel töflureiknirinn, maigt sem kemur á óvart....................15 klukkust. PowerPoint, glærugerð og notkun.....................................9 klukkust. Internetið og Outlook Outlook, dagbók, verkefnayfirlit, tölvupóstur og tengiliðir....6 klukkust. Intemetið, upplýsingahraðbrautin.........................................6 klukkust. Intemetið frá A til 0 með heimasíðugerð.................................15 klukkust. Heimasíðugerð með FrontPage, gmnnur......................................9 klukkust. Heimasíðugerð með FrontPage, framhald....................................9 klukkust. Gagnagrunnar, netstjórnun og framhaldsnámskeið Access, frábært hönnunamámskeið fyrir byrjendur........15 klukkust. FileMaker, byijendanámskeið og framhald.............15/12 klukkust. Access framhaldsnámskeið............................. 15 klukkust. Visual Basic forAccess, fonritun.......................24 klukkust. Windows NT netstjómun..................................21 klukkust. Windows NT netstjómun, ffamhald........................18 klukkust. Excel framhaldsnámskeið fyrir þá kröfuhörðu............12 klukkust. Word framhaldsnámskeið fyrir lengra komna..............12 klukkust. GÓÐAR ÁSTÆÐUR FYRIR ÞVÍAÐ KOMAÁ NÁMSKEIÐIN OKKAR: • Þátttakendur fá aukinn afslátt eftir því sem þeir sækja fleiri námskeið. • Innifalin er símaaðstoð í heilan mánuð eftir að námskeiði lýku r. • Góð staðsetning, næg bflastæði. • íslensk námsgögn og veitingar innifalið í þátttökugjaldi. Tölvu- og verkfræðiþjónustan Grensásvegi 16 • Reykjavík jEURO • Raðgreiðslur • VISA[ Stanley Kubrick fallinn frá Leikstjóri af Guðs náð KVIKMYNDASMIÐURINN St- anley Kubrick lést sjötugur að aldri úr hjartaáfalli á sunnudag aðeins örfáum dögum eftir að hafa rekið smiðshöggið á kvik- myndina Eyes Wide Shut sem sumir höfðu spáð að hann lyki aldrei við. Það rímar við skapgerð leik- stjórans sérlundaða að hann skyldi koma mönnum í opna skjöldu með skyndilegu fráfalli sínu og var það ekki hans síðasta óvænta útspil ef marka má þann orðróm sem gengur um myndina Eyes Wide Shut; hún er sögð allt að því klámfenginn spennutryllir sem fjallar um afbrýðisemi og kynferðislega þráhyggju tveggja geðlækna. Kubrick tók sinn tíma eins og alltaf í gerð myndarinnar og hætti ekki fyrr en hann var ánægð- ur. Ef til vill gildir það sama um lífshlaup leikstjórans. „[Hann var] uppfinninga- maður nýrrar gerðar ljóðlist- ar, tónlistarmaður kvikmynd- anna... sem hefur mótað sam- tímann," sagði Jacques Chirac, Frakklandsforseti, í eftirmælum um Kubrick. Annar þungavigtarmaður, sem gæti kallast forseti í landi kvikmyndanna, Steven Spielberg, sagði til minningar um Kubrick: „Hann stældi engan á sama tíma og við átt- um fullt í fangi með að stæla hann.“ Munúð myndavéla Stanley Kubrick kom í heiminn 26. júlí árið 1928 og var uppalinn í Bronx. Faðir hans gaf honum myndavél þegar hann var 13 ára og þurfti ekki meira til að kveikja ástríðu Kubricks. Ári síðar fékk hann 100 dollara greiðslu frá tímaritinu Look fyrir fyrstu myndina af mörgum sem leiddu til þess að hann var fast- ráðinn við blaðið 17 ára. Ljós- myndin var af syrgjandi blaðasala umkringdum fyrirsögnum sem til- kynntu andlát Franklins Roos- evelts Bandaríkjaforseta. „Eg elskaði myndavélar," sagði Ku- brick eitt sinn. „Sú ánægja sem fylgir fallegri vél er áþreifanleg, nánast munúðarfull." Eftir að hafa verið blaðaljós- myndari hjá Look í nokkur ár keypti .Kubrick 35mm upptökuvél ásamt vini sínum Alex Singer. Einn dáðasti og jafn- framt umdeildasti kvik- myndaleikstjóri sam- tímans, Stanley Kubrick, lést á sunnu- dag. Pétur Blöndal fjallar stuttlega um æviferil Kubricks og myndirnar sem sköp- uðu honum sérstöðu. -s*V.. 5 KOMIN AFTUR © Husqvarna Husqvarna heimilistækin eru komin aftur til landsins. Þau taka á móti gestum í verslun okkar alla virka daga frá 9:00 -18:00. Endumýjum góð kynni! R Æ O U R N I R STANLEY Kubrick í fangelsiskapellunni A Clockwork Orange. Hann gerði tvær stuttar heimild- armyndir; aðra um hnefaleika- kappann Walter Cartier sem nefndist Dagur bardagans og hina Föðurínn fljúgandi um prestinn Fred Stadtmeuller sem ferðaðist á flugvél milli sóknarbarna sinna í Nýju-Mexíkó. Þá leikstýrði Ku- brick stuttmyndinni Sjófarendun- um árið 1953. Fyrstu myndir Kubricks í fullri lengd voru stríðsmyndin Fear and Desire og Koss morðingjans en það var ekki fyrr en með þriðju mynd Kubrieks The Killing að hann vakti hrifningu gagnrýnenda og hélt hann henni til æviloka. Forkólfar MGM hrifust einnig af myndinni og buðu Kubrick samn- ing sem skilaði sér í áratuga löngu samstarfi; eftir gerð 2001: A Space Odyssey varð hann einn fárra leik- stjóra í Hollywood sem fékk alfar- ið að ráða lokaklippingu mynda sinna. Óskarinn fyrir tæknibrellur En nú fór fyrst að kveða að Ku- brick fyrir alvöru. Hann gerði kvikmynd eftir skáldsögu Hump- hreys Cobb Paths of Glory með Kirk Douglas í aðalhlutverki. Hún fjallaði um uppreisn í franska hernum í fyrra stríði og var bönn- uð þar í landi í rúman áratug; sem hefiir ef til vill haft sitthvað að segja um gífurlegar vinsældir Ku- bricks í Frakklandi. Þegar leik- stjórinn Anthony Mann hætti við að leikstýra Spartacusi árið 1960 fékk Douglas Kubrick til að leik- stýra myndinni. Kubrick vann um tíma með Marlon Brando að Eineygðum gosum árið 1961 en hætti í mynd- inni; Brando tók sjálfur við stjórn- artaumunum á vestranum. Ku- brick tók þá ákvörðun að til þess að þrauka Hollywood þyrfti hann að flytjast þaðan. Hann settist að í Englandi, þar sem hann bjó til æviloka, og gerði umdeilda mynd eftir skáldsögu Vladimirs Na- bokovs Lolitu. í kjölfarið fylgdu myndirnar Dr. Strangelove og 2001 Space Odissey en Kubrick var tilnefndur til Óskarsverðlauna sem besti leikstjóri fyrir þær báðar. Hann vann raunar Óskarinn fyrir hina síðarnefndu en það var fyrir bestu tæknibrellur. Þykir það gott dæmi um hversu takmarkaðar verðlaunaveitingar geta verið að einn rómaðasti leikstjóri eft- irstríðsáranna skyldi aldrei fá Óskarinn fyrir bestu leik- stjórn. Myndirnar gerast stopulli Kubrick var einnig tilnefnd- ur sem besti leikstjóri eftir gerð hinnar kolsvörtu A Clockwork Orange og 19. ald- ar myndarinnar Barry Lyndon frá árinu 1975. Aðal- leikari fyiTnefndu myndarinn- ar, Malcolm McDowell, sagði er hann frétti af andláti Ku- bricks að hann hefði verið einn af „þungavigtarmönnun- um“ í lífi sínu og að hann væri „miður sín“ yfir tíðindunum af fráfalli hans. Myndir Kubricks gerðust nú sífellt stopulli. Spennu- tryllirinn Shining var gerð árið 1980 eftir sögu Stephens Kings og stríðsmyndin Full Metal Jacket árið 1987. Síðan er liðinn rúmur áratugur án þess að Kubrick hafi sent frá sér nýja mynd og er alda- mótamyndarinnar Eyes í Wide Shut, sem tekið hefur tvö ár í framleiðslu, beðið með óþreyju af kvik- myndaunnendum um heim allan en hún verður frumsýnd 16. júlí í sumar. „Stanley Kubrick er hæfileika- ríkur skíthæll," var haft eftir Kirk Douglas. Víst er að hann var ákaf- lega sérlundaður og ekki mikið fyrir samneyti við fjölmiðla; hann bjó í rammgirtum kastala úr al- faraleið og hafði ekki veitt viðtal í tvo áratugi þegar hann lést sem leiddi til þess að honum var oft líkt við Gretu Garbo og Howard Hug- hes. Líkt við Howard Hughes Spielberg sagði engu að síður eftir andlát Kubricks að orðspor- ið sem fór af honum hefði verið óverðskuldað og að í raun hefði hann verið „frábær í samskipt- um“. „Þegar við töluðum saman í síma stóðu samræður okkar yfir í fleiri klukkustundir. Hann var stöðugt í sambandi við hundruðir manna um allan heim,“ sagði Spi- elberg. Þegar Kubrick fékk D.W. Griffith-verðlaunin árið 1997 sagði hann í þakkarávarpi á myndbandi: „Allir sem hafa notið þeirra for- réttinda að leikstýra kvikmynd vita einnig, þótt það geti verið eins og að skrifa Stríð og frið í klessubíl í skemmtigarði, að þegar það loks- ins tekst eru ekki margar gleði- stundir í lífinu sem jafnast á við það.“ Kubrick var fyrst giftur Tobu Metz, fyrrverandi bekkjarfélaga í gagnfræðaskóla, og síðan dansar- anum Ruth Sobotka. Hann skilur eftir sig eiginkonuna Suzanne Christine Harlan, sem var söng- kona í lok myndarinnar Paths of Glory, þrjár dætur, Katharine, Anyu og Vivian.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.