Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Viðræður Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks Stefnt að því að kynna niðurstöð- ur á fímmtudag dag. Halldór ræddi við þingmenn síns flokks fram eftir kvöldi í gær. Aætlað er að formennimir hittist í dag til þess að ræða málefnagrund- völlinn og framgang viðræðna um áframhaldandi stjómarsamstarf en að sögn Davíðs er stefnt að því að kynna þingflokkunum niðurstöður viðræðnanna á fimmtudag. Flokks- ráð Sjálfstæðisflokksins var í gær boðað til fundar á fimmtudagskvöld og er fundarefnið ákvörðun um þátt- töku í ríkisstjóm. Þegar Davíð er inntur eftir því hvort ákveðið hafi verið að hafa tólf ráðherra í ríkisstjóm og skipta þeim jafnt milli þingflokkanna, þannig að hvor fengi sex ráðherra, segir hann að engin ákvörðun hafi verið tekin um það ennþá. „Menn era að ræða málin í heild og þetta er einn af þeim þáttum sem þar koma til athugunar," segir hann. En er búið að ákveða hvaða þingmenn fái hvaða ráðuneyti? „Nei,“ segir Davíð, „það ákveður hvor flokkur fyrir sig og gert er ráð fyrir því að sú ákvörðun verði ekki tekin fyrr en allt annað er klárt.“ DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, lauk í gær viðræðum við einstaka þingmenn Sjálfstæðisflokksins um hverjir kæmu til greina sem ráð- herraefni flokksins í næstu ríkis- stjóm en búist er við því að Halldór Asgrímsson, utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, klári að ræða við þingmenn Fram- sóknarflokksins um sama málefni í Vefur vegna Smáþjóða- leikanna SÉRSTAKUR vefur hefur verið opnaður á mbl.is vegna Smáþjóða- leikanna sem fram fara í Liechten- stein. A forsíðu Fréttavefjar Morg- unblaðsins er sérstakur hnappur til að tengjast Smáþjóðavefnum en þar má finna stutt ágrip af sögu leik- anna, skiptingu verðlauna frá upp- hafi þeirra og fréttir af gengi ís- lenskra keppenda þar. Morgunblaðið/jtn HÉR er Jóhannes R. Snorrason, fyrrverandi flugstjóri hjá Flugfélagi íslands og Flugleiðum, við breiðþotu Atlanta sem nú ber nafn hans. Sjöunda þota Atlanta fær nafn frumkvöð- uls úr flug- sögunni SJÖUNDA breiðþota flugfélags- ins Atlanta hefur fengið nafn ís- lensks frumkvöðuls í flugsögunni og var nú komið að Jóhannesi R. Snorrasyni, fyrrverandi flug- stjóra hjá Flugleiðum. Breiðþotu af gerðinni Boeing 747-200 var gefið nafn hans í gærkvöld. Atlanta hefur síðustu árin gef- ið þeim þotum félagsins sem fljúga til íslands og frá nafn frumkvöðuls úr flugsögunni. Arngrímur Jóhannsson, stjórn- arformaður Atlanta, var flug- stjóri í þessari ferð þotunnar frá Spáni og sagði hann við heim- komuna að ætlunin væri að halda þessum sið félagsins áfram, nóg væri eftir af nöfnum. Með þessu vildi fyrirtækið leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrir að nöfn þessara frumkvöðla gleymdust. Jóhannes R. Snorra- son sagði í samtali við Morgtm- blaðið, að sér væri heiður sýndur með þessu og þakkaði eigendum Atlanta, Þóru Guðmundsdóttur og Arngrími. Niðurstöður samræmdra prófa í 10. bekk 270 kennarar sagt upp störfum Hæst meðal- tal í skólum í Reykjavík MEÐALEINKUNNIR á samræmd- um prófum í 10. bekk grunnskóla í vor vora hæstar í Reykjavík í öllum greinum. Meðaleinkunn yfir landið allt í stærðfræði var 5,7; í íslensku 6,4; í dönsku 6,6 og í ensku 6,3. I Reykjavík var meðaleinkunnin 6,0 í stærðfræði, 6,7 í íslensku, 7,0 í dönsku og 6,8 í ensku. Lægstar vora meðaleinkunnir á Vestfjörðum, 4,8 í stærðfræði, 5,9 í íslensku, 6,0 í dönsku og 5,7 í ensku. Þegar athugaðar eru upplýsingar um einstaka námsþætti á prófi í ís- lensku kemur fram að landsmeðaltal einkunna í stafsetningarþætti prófs- ins var 7,3; landsmeðaltal í ritun 5,3; meðaltal í málfræði var 6,6; meðaltal í fombókmenntum 6,0, meðaltal í ljóðum 6,0 og meðaltalseinkunn úr spumingum úr skáldsögunni Englar alheimsins var 6,7. Úr verinu inni í Fasteignablaði FJÖGUR sérblöð fylgja Morgunblað- inu í dag, þar sem blaðið kom ekki út í gær, þriðjudag, vegna hvítasunnunn- ar. Þessi blöð eru Iþróttablað, B-blað, Bamablað, C-blað, Fasteignablað, D- blaði og Ur verinu, sem er E-blað og er inni í miðju Fasteignablaðsins. Auk þess fylgir Dagskrárblað Morg- unblaðsins blaðinu í dag. Jf Meðaleinkunn á samræmdum prófum Í10. bekk eftir fræðsluumdæmum 1999 Stærðfræði íslenska Danska Enska Umdæmi 1998 1998 1998 1998 Reykjavík 6,0 6,7 7,0 6,8 Nágr. Reykjav. 5,8 6,5 6,8 6,6 Suðurnes 5,2 6,0 6,4 5,9 Vesturland 5,7 6,3 6,4 5,8 Vestfirðir 4,6 5,9 6,0 5,7 Norðurl. vestra 5,8 6,4 6,6 6,1 Norðurl. eystra 5,0 6,2 5,9 5,7 Austurland 5,3 6,4 6,5 6,1 Suðurland 5,6 6,2 6,2 5,9 Landið allt 5,7 6,4 6,6 6,3 Nemendur sem tóku samíæmt próf í norsku eða sænsku í stað dönsku eru ekki reiknaðir inn í meðaltal. Yænta tilboðs frá borgarstjóra TRÚNAÐARMENN kennara og kennarar sem hafa sagt upp störfum við grannskólana í Reykjavík héldu fund í Breiðholtsskóla í gær. A fund- inum var samþykkt ályktun til Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur borg- arstjóra þar sem kennarar lýsa því yfir að það viðbótarfjármagn sem borgarstjóri er tilbúinn að leggja fram til að rétta kjör kennara nægi engan veginn til að mæta kröfum kennara í Reykjavík um sambærileg kjör og bjóðast í öðrum sveitarfélög- um. Kennarar muni því ekki draga uppsagnir sínar til baka. Þuríður Óttarsdóttir, sem var fundarstjóri, segir að kennarar vænti þess nú að borgarstjóri geri kennuram tilboð. Þuríður segir að rætt hafi veríð um uppsagnimar og aðra sérkjara- samninga á fundinum. Góð stemmn- ing hafi verið og kennarar verið ein- huga um að draga uppsagnir sínar ekki til baka. „Okkur hefur ekki borist neitt til- boð og höfum því ekki tekið ákvarð- anir eða sett fram kröfur," sagði Þuríður. Aukafj árveiting’ til grunnskóla Fá 170 milljónir fst^ ÍSLENSKA Meðaleinkunnir námsþátta Lands- Vægi meðaltal (%) Stafsetning 7,3 15 Málfræði 6,6 36 Fornbókmenntir 6,0 15 Ritun 5,3 10 Ljóð 6,0 9 Englar alheimsins 6,7 15 Heildareinkunn 6,4 100 BORGARRÁÐ samþykkti í gær til- lögu Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt- ur borgarstjóra um að verja skuli 170 milljónum króna til grannskóla Reykjavíkur ó næsta skólaári. Verða 90 milijónir notaðar á þessu ári en 80 á því næsta. Fjárveitingunni er ætlað að standa straum af kostnaði við að inn- leiða nýja starfshætti, m.a. huga að breytingum á vinnutímakerfi kenn- ara og starfstíma skóla, efla sam- vinnu kennara, efla foreldrasamstarf og efla sjálfstæð vinnubrögð nem- enda. Þá eiga 10 milljónir af þessari upphæð að renna hvort ár til að efla stjórnun. Heimilt er að verja 30% af heildar- fjárveitingu þessa árs til greiðslu til kennara tfl að laga skólastarf að nýrri aðalnámskrá. Gert er ráð fyrir að viðbótarfjárveitingin skiptist milli grunnskólanna eftir fjölda stöðu- gilda kennara og skólastjórnenda. 270 fastráðnir kennarar og kenn- arar með eins árs ráðningu, sem ætla ekki að endurnýja samninga sína, hafa sagt upp störfum. Flestar eru uppsagnirnar í eftirtöldum skól- um: Yfir 20 uppsagnir eru í Folda- skóla, 20 í Austurbæjarskóla, 19 í Grandaskóla, 18 í Selásskóla, 17 í Fossvogsskóla, 16 í Vogaskóla, 16 í Melaskóla, 14 í Ölduselsskóla, 14 í Hagaskóla, 12 í Hlíðaskóla og 11 í Háteigsskóla. „Nú höfum við kastað boltanum til borgarstjóra og væntum þess að hann geri okkur tflboð eða ræði mál- in við okkur,“ sagði Þuríður. Hún sagði að krafan væri 230 þúsund kr. eingreiðsla fyrir það skólaár sem nú er að ljúka og að kjörin verði jöfnuð við það sem gerist í öðrum sveitarfé- lögum. Sérblöð í dag IúrVERJNU\ ►í Verinu í dag er mest fjallað um mat Hafrannsóknastofnunar á veiðiþoli nytjastofna við landið og ráðleggingar um hæfilegan afla næsta fiskveiðiár. Einnig er hefð- bundin umfjöliun um markaði, veið- ar, afla og staðsetningu skipanna. m -J 16 SfeUíl Shell - Ferrari Classico Líta- leikur íslendingar með sex gullverðlaun í Liechtenstein- / B1 ,B4,B5,B6,B16 Heimíli ►tími sumarhúsanna er genginn ■ garð. I Fasteignablaðinu er m. a. fjallað um sumarhúsalóðir á Vesturlandi, cn með Hvalfjarðargöngunum hefur leiðin þangað stytzt mikið. Einnig er fjallað um fyrirhugaða Suðurbyggð á Selfossi. HÁLFUR MÁNUÐUR AF DAQSKRÁ FRÁ MIÐVIKUDEQI TIL ÞRIDJUDAGS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.