Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 56
56 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 MORGUNBLADIÐ MINNINGAR + Hugheilar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, MAGNÚSAR Á. GUÐNASONAR. Jón Ólafur Jónsson, Sigurbjörg Gunnarsdóttir, Finnur Magnússon, Guðrún B. Magnúsdóttir, Einar Jónatansson, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir mín og amma, SIGRÍÐUR GUÐNÝ HÓLMFREÐSDÓTTIR frá Núpshlíð, Vestur-Húnavatnssýslu, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum föstudaginn 14. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum veitta samúð og hlýhug. Guðrún Magnúsdóttir, Sigríður Hreiðarsdóttir. + Af alhug þökkum við öllum þeim, sem vottuðu okkur samúð vegna andláts og jarðarfarar ÞÓRHÖLLU STEINSDÓTTUR Litla-Garði, Akureyri, Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki hjúkr- unardeilda á dvalarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun hin síðustu ár. Halldór K. Karlsson, Steinn Þ. Karlsson, Katrín H. Karlsdóttir, Ágúst B. Karisson, Anna H. Karlsdóttir, Ásgrímur Karlsson, Þórhildur Karlsdóttir, Guðmundur Karlsson barnabörn Halla Guðmundsdóttir, Þórunn Jónsdóttir, Andrés Valdimarsson, Svanhildur Alexandersdóttir, Aðalheiður Yngvadóttir Björn Axelsson, Guðlaug Gunnarsdóttir, Matthías Garðarsson, , Valgerður Sigfúsdóttir, og barnabarnabörn. + Við þökkum af alhug þeim fjölmörgu, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, dóttur, tengdadóttur og systur, CAMILLU BJARNASON. Guð blessi ykkur öll. Garðar Sverrisson, Hrönn Garðarsdóttir, Bryndís Garðarsdóttir, Hörður Garðarsson, Bryndís Bjarnason, Hrönn Rasmussen og systkini. Við þökkum af alhug alla þá samúð, sem okkur hefur verið sýnd, vegna andláts okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, JÓNS HEIÐARS ÞORSTEINSSONAR, Brautarhóli, Glerárþorpi, Akureyri, sem lést á FSA laugardaginn 15. maí sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks FSA og heimahjúkrunar. Guð blessi ykkur öll. Júlía Kristjánsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. * ARNI JÓNSSON + Ágúst Árni Jónsson var fæddur á Dalvík 14. janúar 1924. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur S. maí sjðastliðinn. títför Árna var gerð frá Háteigskirkju mánudaginn 10. maí. Elsku afi. Af hverju þú og af hverju núna? Þegar amma er nýfarin. Þetta hefur verið erfitt hjá okkur öllum. Það er mér mikils virði að þú komst í ferminguna mína. Eg sakna þín. Hvíldu í friði. Þín Helga Guðný Fyrir hönd starfsmanna Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins langar mig að minnast Árna Jóns- sonar með nokkrum orðum. Árni Jónsson starfaði í tæplega 30 ár á Rf sem sérhæfður rannsóknarmað- ur eða til ársins 1992. Ég kynntist honum fyrst fyrir um 20 árum þeg- ar ég hóf störf á Rf sem sumar- maður. Á þessum tíma réð Árni ríkjum í tilraunaeldhúsi stofnunar- innar og vann með fyrirtækjum að þróun ýmissa afurða úr sjávaraf- urðum. Ami var mjög góður vöru- þróunarmaður og hafði einstakt lag á að gera gómsæta rétti úr oft á tíðum óásjálegum fiskum og auka- afurðum - reynsla hans sem mat- reiðslumanns var ómetanleg í þessu starfi. Margar af þeim upp- skriftum sem Ámi átti þátt í að þróa í samvinnu við ýmis lagmetis- fyrirtæki era í framleiðslu enn þann dag í dag. Árni var mikið ljúf- menni og gekk honum einstaklega vel að vinna með öðra fólki. Fólki leið vel í návist hans; hann hafði gott verklag og átti auðvelt með að leiðbeina fólki, sagði skemmtilega frá og hafði mikla kímni- gáfu. Yngri starfs- menn leituðu gjarna til hans eftir tilsögn og þjálfaði hann marga i meðhöndlun fisks. Árni var mjög bóngóð- ur og var ætíð hægt að leita til hans eftir aðstoð og reynslu hvort sem það var við flökun, reykingu, niðurlagningu eða niðursuðu. Snyrtilegur var hann með afbrigð- um og vora allir hlutir í röð og reglu hjá honum og vei þeim manni sem ekki skildi við tilraunaeldhúsið í því ástandi sem hann kom að því. Eitt áhugamál áttum við Árni sameiginlegt en það var fluguveiði. Árni var góður fluguveiðimaður sem hnýtti sínar eigin flugur og stundaði bæði silungs- og laxveiði. Árni þekkti vel vötn og ár í grennd Reykjavíkur og veitti hann mér og öðram ómetanlega innsýn í leynd- ardóma ýmissa vatnasvæða m.a. Brúarár og Hólaár. Eftir að Árni fór á eftirlaun árið 1992 kom hann gjarna í heimsókn ekki eingöngu til að spjalla við félaga um vinnuna heldur líka til að leita frétta af veiði og segja skemmtilegar veiðisögur. Um leið og við þökkum Áma Jóns- syni fyrir samstarfið, félagsskap- inn og skemmtileg kynni íyrr og síðar vottum við sonum hans og öðram aðstandendum samúð okk- ar. Guðmundur Stefánsson. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ÓLAFS INGÓLFS MAGNÚSSONAR frá (safirði. Magnús Helgi Ólafsson, Hildur Bergþórsdóttir, Ólafur Magnússon, Sæbjörg Richardsdóttir, Lára Magnúsdóttir, Rúnar Þór Magnússon, Kristinn Þeyr Magnússon og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, systur, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, KARÍTASAR GUÐBJARGAR GUÐLEIFSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahússins á Isafirði. Agnes Guðmundsdóttir, Þórður Sveinsson, Ásgeir Guðmundsson, Sigrún Guðbjartsdóttir, Jón Guðmundsson, Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Guðlaug Guðmundsdóttir, Kristinn Briem, Gabriel Guðmundsson, Auðbjörg Hannesdóttir, Haraldur Guðmundsson, Brynja Gunnarsdóttir, Guðmann Guðmundsson, Ragnheiður Jóhannsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Einar Benediktsson, Bárður Guðmundsson, Ólafur Guðmundsson, Helga Aðalsteinsdóttir, Sólrún Guðmundsdóttir, Guðfinna Guðleifsdóttir, Magnús Guðnason, barnabörn og barnabarnabörn. Afmælis- og minningar- greinar MIKILL fjöldi minningargreina birtist daglega í Morgunblaðinu. Til leiðbeiningar fyrir greina- höfunda skal eftirfarandi tekið fram um lengd greina, frágang og skilatíma: Lengd greina Um hvem einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar minningargi-einar um sama ein- stakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksentimetr- ar í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Formáli Æskilegt er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvai' og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útfór hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Undirskrift Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur og móttaka Mikil áherzla er lögð á að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textamenferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er ennfremur unnt að senda greinar í símbréfi - 569 1115 - og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Skilafrestur Eigi minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I mið- vikudags-, fimmtudags-, fóstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Þar sem pláss er takmarkað, getur þurft að fresta birtingu minnmgar- greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. UTFA RARSTOFA OSWALDS sími 551 3485 ÞjÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN ADAI.S I It l' i I íH • 101 REVKJAVÍK I.ÍKKISTUVÍNNUSTOI-A FYVINDAR ÁRNASONAR 1899
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.