Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Innilegar þakkir fyrir samhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
INGÓLFS ÁRNA GUÐMUNDSSONAR,
Norðurbraut 25b,
Hafnarfirði.
Sérstakar kveðjur til starfsfólks St. Jósefsspítala.
Fyrir hönd ættingja,
Unnur Kristjana Sigtryggsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, langafi og bróðir,
MAGNÚS LÁRUSSON
frá Brúarlandi,
Markholti 24,
Mosfellsbæ,
verður jarðsunginn frá Digraneskirkju í Kópa-
vogi í dag, miðvikudaginn 26. maí, kl. 13.30.
Hallfríður Georgsdóttir,
Georg Magnússon, Steinunn J. Steinarsdóttir,
Kristín Magnúsdóttir,
Guðbjörg Magnúsdóttir, Sigurður Ó. Lárusson,
Hallsteinn Magnússon, Sigrfður Jónsdóttir,
Sigríður Ótöf Magnúsdóttir Smeltser,
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini hins látna.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur,
bróðir og tengdasonur,
ÁGÚST NORDGULEN
verktaki,
Fannafold 24,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum að morgni hvíta-
sunnudags, verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju föstudaginn 28. maí kl. 13.30.
Ásta Þórunn Þráinsdóttir,
Halla Sjöfn Ágústsdóttir, Friðrik Már Steinþórsson,
Anna Rut Ágústsdóttir,
Ágúst Orri Ágústsson,
Lúðvík S. Nordgulen, Sigríður S. Einarsdóttir,
Þráinn Jónsson, Halla Gunnlaugsdóttir
og fjölskyldur.
+
Sambýlismaður minn og faðir okkar,
SIGFÚS ÞÓR BALDVINSSON,
Litla-Hvammi 1,
Húsavík,
áður Sandhólum, Tjörnesi,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
mánudaginn 17. maí, verður jarðsunginn frá
Húsavíkurkirkju í dag, miðvikudaginn 26. maí,
kl. 14.00.
Indiana Ingólfsdóttir,
Gréta Sigfúsdóttir,
Unnur Sigfúsdóttir,
Birna Sigfúsdóttir,
Jenný Sigfúsdóttir
og aðrir aðstandendur.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
KRISTJÁN FR. GUÐMUNDSSON
listaverkasali,
Njálsgötu 56,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík í
dag, miðvikudaginn 26. maí, kl. 15.00.
Birgir Kristjánsson, Elín Ellertsdóttir,
Agatha Kristjánsdóttir, Kristján Halldórsson,
Bóas Kristjánsson, Ragnheiður Kristjánsdóttir,
Sigurjón Kristjánsson, Mattfna Sigurðardóttir,
Friðfinnur Kristjánsson, Þórunn Ólafsdóttir
og fjölskyldur.
SIGFUS ÞOR
BALD VINSSON
+ Sigfús Þór Bald-
vinsson fæddist í
Flatey á Skjálfanda
16. nóvember 1915.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri 17. maí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Baldvin Friðfinns-
son, f. 24.11. 1879, d.
5.2.1961 og Margrét
Jónsdóttir f. 30.3.
1885, d. 1.2. 1973.
Sigfús átti sjö alsyst-
kyni og einn hálf-
bróður sem öll eru
látin. Sigfús kvæntist 13.6. 1942
Kristbjörgu Haraldsdóttur, f.
6.12. 1922. Foreidrar Kristbjarg-
ar voru Haraldur Sigurðsson og
Kristbjörg Stefánsdóttir. Sigfús
og Kristbjörg eignuðust fjórar
dætur. Þær eru: 1) Gréta, f. 13.3.
1943, hún á tvö börn og þrjú
barnaböm. 2) Unnur, f. 22.3.
1948, hún á þijú böra á lífi og tvö
barnaböra. 3) Biraa, f. 26.5.
1962, hún á tvo syni. 4) Jenný, f.
14.3. 1965, hún á þrjú börn.
Kveðja frá dætrum og
afabörnum.
Skjótt sMpast veður, félagar falla
Qarri er ltfsglíma hörð.
Býður nú þreyttum, að bijósti sér halla
brosandi móðir, jörð.
Skarð fyrir skildi, horfinn er hlynur
húmar, þó sólin skín.
AstríM faðir, afi og vinur,
ávallt, við minnumst þín.
(Guðmundur G. Halldórsson)
Elsku pabbi minn.
Þá ertu horfinn úr þessari áþreif-
anlegu veröld og yfír í aðra sem fyr-
ir okkur er heldur óáþreifanlegri en
ég sé fyrir mér ömmu Margréti í
blárósóttum kjól, afa Baldvin, öll
systkini þín og aðra horfna ástvini
taka á móti þér og fagna komu
þinni. Þú fórst frekar skyndilega,
gafst okkur ekki mikinn fyrirvara
en það var að vísu þér líkt. Þú varst
vanur að taka ákvarðanir einn með
sjálfum þér og framkvæma síðan án
fyrirvara. Ég man t.d. eftir því þeg-
ar þú tókst ákvörðun um að koma
suður í heimsókn til okkar systr-
anna, þá hringdir þú jafnvel bara
með eins til tveggja daga fyrirvara
og tilkynntir komu þína og sagðist
stoppa í þrjár vikur það skiptið eða
tvær vikur annað skiptið.
Syðri-Sandhólar á Tjömesi var
mitt æskuheimili og þar ólst ég upp
til tíu ára aldurs. Fyrstu tíu árin
mótuðu mig mikið að því sem ég er í
dag. Engan son eignaðist þú en
fjórar dætur og reyndir þú að gera
bændur úr okkur öllum. Að vísu
sagði mamma mér seinna að ég
hefði átt að verða strákur og heita
Jóhann. Við vorum látnar moka
flórinn, gefa á garðann, hjálpa til
við sauðburð og gyrða, ekki háar í
loftinu. Og alltaf stjómaðir þú með
ákveðni en hæglæti og enginn mót-
mælti enda hefði það lítið þýtt. Þú
varst vinnufús og þurftir alltaf að
hafa einhver verkefni og þér féll
aldrei verk úr hendi alveg fram á
síðasta dag. Eftir búskap í 30 ár og
vinnu við vegagerð til fjölda ára þá
varstu ekki hættur að vinna. Við tók
netagerð, bókband og hannyrðir.
Hver hefði trúað að þú kominn á
áttræðisaldur myndir fara að sauma
út og það engar smámyndir heldur
heilu listaverkin. Hér uppi á vegg
hjá mér hanga tvær myndir eftir
þig. Onnur af Burstafelli í Vopna-
firði sem þú stækkaðir upp eftir
mynd á konfektkassa og hin er af
þér sjálfum í sjóstakk á árabát,
mynd sem þú saumaðir eftir mál-
verki eftir Sigurpál ísfjörð. Eins
áttir þú stóra fallega mynd af
Bessastöðum sem þú hafðir saumað
eftir símskeyti og í júní 1995, eitt
skiptið er þú komst nánast fyrir-
varalaust til mín í Mosfellsbæinn,
Sigfús ólst upp í
Flatey til 5 ára ald-
urs en þá flutti hann
ásamt föður sinum
til Húsavíkur, en
foreldrar hans höfðu
skilið nokkru áður.
Faðir hans reisti
þeim hús er hann
nefndi Brekkubæ
sem síðan var endur-
byggður árið 1930
og nefndur Þórs-
hamar og er nú
Safnahús að Mánár-
bakka á Tjörnesi.
Sigfús og Kristbjörg
hófu búskap á Sandhólum á
Tjörnesi 1942. Stunduðu þau bú-
skap til ársins 1972 en brugðu þá
búi og fluttu til Húsavíkur þar
sem Sigfús starfaði fyrir Vega-
gerðina allt til sjötugs. Sigfús og
Kristbjörg skildu 1978. Síðast
liðin 13 ár hefúr hann búið með
Indíönu Ingólfsdóttur, f. 24.11.
1915.
títför Sigfúsar fer fram frá
Húsavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
þá varstu með þessa mynd undir
hendinni, vel innpakkaða í brúnan
papplr með snæri utan um og sagðir
mér að nú yrði ég að hringja í Frú
Vigdísi Finnbogadóttur því þú ætl-
aðir að gefa henni þessa mynd. Ég
gerði eins og mér var sagt, þó mér
þætti ótrúlegt að forsetinn hefði
tíma til að taka við þessu í eigin per-
sónu, en viti menn, þú fékkst þínu
framgengt og Frú Vigdís tók á móti
þér á Bessastöðum þar sem hún tók
við listaverkinu og dásamaði það
mikið. Við Nikki og Daði, sonur
okkar, þá þriggja mánaða, fórum
með og okkur var síðan öllum boðið
inn í stórt og einstaklega fallegt
bókaherbergi þar sem okkur var
fært kaffi og heimabakaðar
smákökur og þú fékkst tækifæri á
að spjalla við forsetann í um
klukkustund. Ég man hvað þú varst
glaður og upp með þér yfir þessum
fundum og talaðir ekki um annað
það sem eftir var dvalarinnar hér
fyrir sunnan og lengi eftir það. Við
eigum fallega minningu frá þessu
líka sem er stækkuð mynd af Frú
Vigdísi með Daða í fanginu og gest-
ir sem hingað koma reka upp stór
augu. Ég spurði þig að því hvað
hefði komið til að þú hefðir farið að
sauma og hanna þessar myndir
svona á gamals aldri, þá sagðirðu að
þú hefðir byrjað á þessu miklu fyrr
eða þegar þið mamma voruð ung, þá
hefðir þú eitt sinn hannað og sniðið
kjól á hana sem hún hefði síðan
saumað. Og þú varst enn að því, ég
frétti að þú hefðir verið byrjaður að
sauma mottur handa okkur systr-
unum.
Þú kenndir mér líka að verða
sjálfstæð. Bæði með þeirri vinnu
sem þú ætlaðist til af mér heima í
sveitinni og einnig eftir að við flutt-
um til Húsavíkur en þá léstu mig
mála þakið á Vilpu og húsið allt að
utan. Þú settir mér fyrir verkefni að
morgni áður en þú fórst í vinnu, síð-
an tókstu það út að kvöldi og settir
upp verkefni fyrir næsta dag. Þegar
ég fékk mitt fyrsta og eina reiðhjól,
ellefu ára gömul var ég látin borga
það sjálf að stórum hluta. Þú lagðir
fram u.þ.b. 25% og tilkynntir mér
jafnframt að þá ættir þú hlut í hjól-
inu. Þegar ég hins vegar sautján
ára, í námi, leigði mér mína fyrstu
íbúð og þurfti að borga leigu níu
mánuði fram í tímann þá leitaði ég
til þín þar sem ég átti ekki pening
til að borga þessa fyrirframgreiðslu
og þú „lánaðir“ mér en lést mig
jafnframt skilja að ég þyrfti ekki að
hafa áhyggjur af því að borga það
til baka. Þín hjálp var líka ómetan-
leg við að helluleggja kring um hús-
ið okkar og tyrfa alla lóðina, stuttu
eftir að við fluttum inn. Svo fannst
þér nauðsynlegt að við hefðum kart-
öflugarð og einn daginn er ég kom
heim úr vinnunni varstu búinn að
búa til kartöflugarð, senda Nikka
eftir útsæði og setja niður og ég átti
ekki til orð þegar ég kom heim; og
svipurinn á þér var svo sérstakur
þegar þér tókst að koma öðrum á
óvart. Já, þú hafðir húmor og varst
svakalega stríðinn og að þér hænd-
ust bömin, enda höfðu bamabömin
og barnabamabörnin alltaf gaman
af því að heimsækja afa Dodda. Og
þú áttir svo mikinn tíma handa
þeim og gast dundað við að spila við
þau, púsla eða vefja upp jójó aftur
og aftur. Og gilti einu hvort það
voru þínir eigin afkomendur eða
Indu. Þú varst afi þeirra allra.
Elsku Inda, Guð blessi þig og styrki
og þakka þér fyrir að hugsa svona
vel um pabba minn.
Kæri pabbi minn. Takk fyrir það
sem þú kenndir mér og að hafa lifað
það lengi að synir mínir fengju að
kynnast þér, því þó Róbert sé að-
eins á öðm ári og hafi ekki oft séð
þig þá eigum við svo mikið af mynd-
um af ykkur saman sem við skoðum
oft þannig að hann veit alveg hver
afi Doddi er. Ég veit þú munt fylgj-
ast með okkur og ég á eflaust eftir
að tala til þín eins og ég geri svo oft
til ömmu Margrétar. Þú ert eflaust
hvíldinni feginn og við biðjum al-
góðan Guð að passa þig. Hittumst
síðar.
Þín dóttir,
Birna.
Elsku afi.
Ég veit þér líður vel uppi hjá
Guði en samt sakna ég þín.
Ég veit að það er enginn fullkom-
inn en þú varst nálægt því. Þú varst
alltaf í góðu skapi og komst mér til
að brosa.
Ég gleymi þér aldrei því þú verð-
ur alltaf í hjarta mínu.
Þín dótturdóttir,
Birgitta Anný Baldursdóttir.
SVAVA
EYÞÓRSDÓTTIR
+ Svava Eyþórs-
dóttir fæddist í
Reykjavík 2. októ-
ber 1933. Hún lést á
gjörgæsludeild
Sjúkrahúss Reykja-
víkur 14. maí síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram frá Há-
teigskirkju 21. maí.
Til minnar elskulegu
„nanna“.
Þú vart svo um-
hyggjusöm og full af
kærleika og alltaf með
hugann við velferð okk-
ar. Það gaf mér öryggi að vita að þú
varst alltaf til staðar, tilbúin og viljug
að gefa allt án þess að vera spurð. Þú
skildir alltaf bágbomar tilraunir mín-
ar til að tjá mig á tungu þinni. Af því
að þú varst með hreint hjarta skildir
þú orð mín. Ég er þakklátur fóður
mínum á himnum fyrir
að þú skyldir hafa alið
upp svo ljúfa og yndis-
lega sonardóttur, sem
hefur sannarlega gefið
lífi mínu gildi. Eg á eftir
að sakna símhringing-
anna frá þér sem gáfu
mér tækifæri á að segja
„ég elska þig“. Þú hefur
snert líf fjölskyldu okk-
ar og vina sem upplifðu
góðvild þína og ást.
Ég mun minnast þín
sem engils sem gætti
okkar. Þú verður ávallt
„nanna“ mín og ég mun
ávallt minnast þín þegar ég borða
hafragraut. Megi Guð og englar hans
umvefja þig ást sinni þangað til við
hittumst aftur.
Astarkveðjur að eilífu.
Þinn tengdasonur,
Pauli.