Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Gerðu sér glaðan dag fyrir próflestur STIJDENTSEFNI við Mennta- skólann á Akureyri eru nú að hefja próflestur en að venju verður brautskráð frá skólanum á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Verðandi stúdentar gerðu sér af þessu tilefni glaðan dag í gær og dimmiteruðu. Klæddu þeir sig upp á í búninga af ýmsu tagi og mátti sjá skrautlegar kynjaverur skjótast um lóð skólans fram eft- ir morgni, en eftir hádegið var ekið á milli heimila kennara skól- ans á dráttarvélum með vögnum og þeir kvaddir með virktum. Morgunblaðið/Gunnlaugur Búi Skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri gagnrýnir bæjaryfírvöld Fátt eitt gengið eftir af fyrirhuguðum breytingum ATLI Guðlaugsson skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri gagn- rýndi bæjaryfírvöld á Akureyri í ræðu sinni við skólaslit um helgina. Hann sagði fátt eitt hafa gengið eftir af fyrirhuguðum breytingum á starfsemi Tónlistarskólans á Akureyri sem kynntar voru síðast- liðið vor, en m.a. var gert ráð fyrir að öl forskólakennsla í tónlist færð- ist inn í grunnskólana og yrði að skyldunámi í fyrsta og öðrum bekk auk þess sem auka átti tónmennta- kennslu í grunnskólum verulega. Þá var gert ráð fyrir að byrjenda- kennsla í hljóðfæraleik, jafnvel fyrstu þrjú stigin, færðust á næstu fímm árum að mestu út í grunn- skólana, en var þeim annmörkum háð að boðlegt húsnæði fyndist fyr- ir slíka kennslu. í máli Atla kom fram að allt það hafi gengið eftir sem starfsfólki Tónlistarskólans var ætlað að framkvæma, en hið sama yrði ekki sagt um bæjaryfirvöld. „Sú mikla vinna sem þessar breytingar hafa kostað hefur því miður verið einskis metin og virðist því vænsti kosturinn í stöðunni vera sá að hætta við flutning tónlistarkennsl- unnar út í grunnskólana um ókom- in ár, því betra er að hætta starf- seminni heldur en vera með hálf- kák sem er öllum til vansa og skilar mjög takmörkuðum árangri," sagði Atli. Hann sagði tillögumar hafa vak- ið mikla athygli víða um land og skólastjórar og sveitarstjórnar- menn sem heimsótt hafa skólann hafí talið þær til fyrirmyndar. Allir hafí þó séð í hendi sér að meira kostaði að kenna 450 nemendum í einkakennslu og 540 nemendum í forskóla úti í 7 skólum heldur en sinna 450 nemendum í einka- kennslu í einum skóla. Draumsýn um tónleikasal í blámóðu Ijarskans Bæjaryfírvöld hafí einnig sett á oddinn að gera Tónlistarskólann sýnilegri í samfélaginu og hafí það tekist, því tónleikahald hafí marg- faldast á stuttum tíma. Alls voru haldnir 112 tónleikar á vegum skól- ans á síðasta skólaári. Atli gerði húsnæðismál Tónlist- arskólans á Akureyri einnig að umtalsefni, en mörg ár eru frá því rætt var um að hann flytti úr Hafnarstræti 81 í nýtt húsnæði, en þar er hann enn. „Draumsýnin um tónleikasal færist fjær og fjær, nú síðast út í blámóðu fjarskans, SLIPPSTOÐIN hf. hefur lokið vinnu við portúgalska frystitogar- ann Calvao og hélt hann frá Akur- eyri áleiðis á Reykjaneshrygg sl. sunnudag. Að sögn Antons Benja- mínssonar verkefnisstjóra Slipp- stöðvarinnar var þetta nokkuð stórt verk og snéri að vinnu við spilbúnað skipsins, svo og vinnslu- og vélbúnað. Um næstu helgi er, að sögn Ant- ons, von á öðrum frystitogara, Santa Mafalda, frá sömu útgerð til Slippstöðvarinnar og ráðgert að vinna við lagfæringar á honum í um einn mánuð. Ný vinnslulína með Marel-flokkara verður m.a. sett í skipið og fískimóttaka smíð- uð. Með haustinu er svo von á syst- urskipi Santa Mafalda til Akureyr- afturfyi-ir skautahöll og yfir- byggðan knattspyrnuvöll," sagði Atli. Hann hefur nú látið af störfum, en skólanefnd hefur mælt með því að Helgi Þ. Svavarsson hornleikari, sem búsettur er í Noregi, verði ráðinn í stöðu skólastjóra Tónlist- arskólans á Akureyri frá 1. ágúst næstkomandi. ar og verður unnið við svipaðar endurbætur um borð í því. Anton sagði að tengsl Slipp- stöðvarinnar við þetta portúgalska útgerðarfyrirtæki væru í gegnum fyrirtækið Fiskafurðir í Reykjavík, sem selur afurðir þess. Hann sagði þetta stærsta fyrirtækið í togara- útgerð í Portúgal, með 9 togara og væru þeir við veiðar í norðurhöfum og við Nýfundnaland. Togarinn Calvao fór til karfaveiða á Reykja- neshrygg með svokallað gloríutroll frá Hampiðjunni. Heldur er farið að hægjast um í Slippstöðinni og ekki mörg stór- verkefnin framundan, að sögn Ant- ons. Hann sagði að núorðið væri orðið meira að gera yfír vetrar- mánuðina en sumarið. Viðarvinnslufyrirtækið Aldin á Húsavík gjaldþrota Skuldir um- fram eignir um 50 millj- ónir króna Viðarvinnslufyrirtækið Aldin á Húsavík var úrskurðað gjaldþrota hjá Héraðsdómi Norðurlands 'eystra í gær. Tólf starfsmönnum sem hjá fyrirtækinu störfuðu var sagt upp í kjölfarið, en að sögn Ólafs Birgis Arnasonar hæstaréttarlögmanns, sem skipaður var skiptastjóri, munu 3-4 menn verða við vinnu til 1. júní til að halda vinnslu gangandi og forða framleiðslu frá skemmdum. Ólafur Birgir sagði ljóst að engar eignir væru til í búinu og skuldir umfram eignir væru tæplega 50 milljónir króna. Samkvæmt fyrir- liggjandi bráðabirgðauppgjöri nam tap fyrirtækisins yfír 100 milljónum króna 1998. Virðast skuldir hafa aukist tO muna á síðasta ári. Skiptastjóri sagði að byrjað yrði á að kanna hvort einhver rekstrar- grundvöllur væri fyrir fyrirtækið. Ef svo reyndist vera yrði í framhald- inu gert það sem hægt væri til að koma því í gang að nýju. Lands- banki Islands hefur gengið í ábyrgð fyrir greiðslu launa þeirra starfs- manna sem enn eru að störfum hjá fyrirtækinu til mánaðamóta. Aldin var stofnað 1995 og eru stærstu eigendur þess Kaupfélag Þingeyinga, Nýsköpunarsjóður og Kaupfélag Eyfírðinga. ------♦-♦-♦---- Jónasarkvöld í Deiglunni JÓNASARKVÖLD verður haldið í Deiglunni, Kaupvangsstræti, fimmtudagskvöldið 27. maí og hefst það kl. 20.30. Formaður menningarmálanefndar Akureyrarbæjar, Þröstur Asmunds- son, ávai-par gesti og þá lesa Þráinn Karlsson leikari, Erlingur Sigurðars- son forstöðumaður, Ólöf Ása Bene- diktsdóttir nemi, Baldur Heiðar Sig- urðsson nemi og Jón Laxdal Hall- dórsson listamaður. Rósa Kiistín Baldursdóttir og Hjörleifur Hjartar- son sjá um söng á Ijóðum Jónasar við undirleik Dórótheu Dagnýjar Tóm- asdóttur. Dúóið „Hundur í óskilum" kemur fram, en það skipa þeir Eirík- ur G. Stephensen og Hjörleifur Hjartarson. Amtsbókasafnið verður með opið útibú í Deiglunni af þessu tilefni, helgað Jónasi og ljóðalestri. Viðburður þessi er lokapunktur í mánaðarlegum bókmenntavökum Gilfélagsins, Amtsbókasafnsins og Húss skáldsins síðustu mánuði. Gilfélagið mun á Listasumri á Akureyri 1999 fylgja auknum áherslum á bókmenntum eftir með sérstakri bókmenntaviku frá og með verslunarmannahelgi. ------»♦♦------ Stéttskipt- ing nútíma- þjóðfélaga ERIK Olin Wright prófessor við há- skólann í Wisconsin, Madison, flytur opinberan fyrirlestur í boði heil- brigðisdeildar Háskólans á Akureyri í dag, miðvikudaginn 26. maí kl. 16 í stofu 14 í húsi háskólans við Þing- vallastræti 23. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og er heiti hans „Class, Ex- ploitation and the Shmoo“. í fyrir- lestrinum fjallar hann um stéttskipt- inu nútímaþjóðfélga, útskýrir hug- takið þjóðfélagsstétt og eðli sam- skipta stétta í nútímaþjóðfélagi. Hann mun einnig bera saman ólíkar skólastefnur varðandi stéttahugtak- ið og stéttagreiningu. Skipulagsmál og skólamál á Oddeyri Almennur kynningarfundur Skipulagsnefnd og skólanefnd Akureyrarbæjar boða til almenns kynn- ingarfundar í Oddeyrarskóla fimmtudaginn 27. maí kl. 20.00. Tiíefni fundarins er umsókn skólanefndar Akureyrar um að byggður verði fjög- urra deilda leikskóli að Iðavöllum í stað þriggja deilda eins og deiliskipulag suðurhluta Oddeyrar gerir ráð fyrir og leik- og útivistar- svæði austan hans verði tekið undir leikskólann. Þessi áform fela í sér breytingu á staðfestu deiliskipulagi suðurhluta Oddeyrar og Aðalskipu- lagi Akureyrar 1998 - 2018. Auk sem fjallað verður um skipulagsmál munu formaður skólanefndar, skólastjóri Oddeyrarskóla og leikskóla- stjóri Iðavalla fjalla um skólamál hverfísins. Skipulagsstióri Akurevar. Heldur farið að hægjast um í Slippstöðinni Unnið við portúgalska frystitogara
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.