Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ________________ERLENT Barak hugar að stj órnar my ndun Á næstu dögum munu formlegar stjórnar- ----------------------------?---------- myndunarviðræður hefjast í Israel. Að sögn Sigriínar Birnu Birnisdóttur í Israel hefur Ehud Barak, nýkjörinn forsætisráð- herra, lýst því yfír í viðræðum undanfarna daga, að hann sé reiðubúinn að ganga til samstarfs við þá flokka sem lúta vilja grundvallarstefnu Verkamannaflokksins. FORMLEGAR stjórnarmyndunar- viðræður hefjast í Israel á næstunni en undanfama daga hafa óformlegar viðræður farið fram milli fulltrúa Verkamannaflokksins og annarra flokka á ísraelska þinginu. Ehud Barak, nýkjörinn forsætis- ráðherra landsins, hefur enn ekki tekið beinan þátt í viðræðum en er þó sagður hafa bæði tögl og hagldir á bak við tjöldin. Þá hafa áhrifamenn innan flokksins, svo sem Yossi Beil- in, ekki tekið þátt í viðræðunum og er ástæðan sögð sú að Barak óttist að þeir reyni að beina viðræðunum inn á aðrar brautir en hann hefur gefið fyrirmæli um. Hingað til hefur samninganefnd Verkamannaflokksins annars vegar lagt áherslu á að fá fram sjónarmið hugsanlegra samstarfsflokka til samstarfs við Shas-flokkinn og hins vegar til breytinga á lögum um emb- ættisskipan á þingi. Þannig er Barak sagður hafa hug á að fella úr gildi lög sem takmarka fjölda ráðherra og setja ný lög að norskri fyrirmynd, þar sem þingmönnum er gert að gefa eftir þingsæti sín er þeir taka við ráðherraembætti. Slíkar laga- breytingar myndu annars vegar gera nokkrum þeirra frambjóðenda Verkamannaflokksins sem féllu út af þingi í síðustu kosningum kleift að taka sæti á þingi að nýju og hins vegar róa áhrifamenn innan flokks- ins sem sagðir eru óttast að hug- myndir Baraks um myndun stjómar með sterkum meirihluta muni leiða til þess að áhrifamenn annarra flokka verði skipaðir í ráðherraemb- ætti og að því verði fá ráðuneyti eftir til skiptanna íyrir þingmenn Verka- mannaflokksins. Barak hefur marglýst því yfir að hann sé reiðubúinn til að ganga til samstarfs við alla þá flokka sem séu reiðubúnir til að vinna samkvæmt grundvallarstefnu Verkamanna- flokksins. Þannig er hann bæði sagður hafa áhuga á samstarf! við Likud-flokkinn og Shas-flokkinn en með samstarfi við þá gæti hann hugsanlega tryggt sér stuðning allt að 95 af 120 þingmönnum auk þess sem hann mun geta reitt sig á stuðn- ing araba í mörgum málum þótt þeir verði ekki þátttakendur í stjórnar- samstarfinu. Þannig var haft eftir Limor Livnat, talsmanni samninganefndar Likud-flokksins, í gær að samninga- menn Verkamannaflokksins hefðu sagt að þeir vildu byrja á því að ganga til samninga við Likud-flokk- inn. Þrátt fyrir að áhrifamenn innan Likud-flokksins séu klofnir í afstöðu sinni til hugsanlegs stjórnarsam- starfs telja fréttaskýrendur góða möguleika á því að Barak takist að fá flokkinn til samstarfs. Samstarfið muni þó sennilega kosta það að hann verði að láta Likud-flokknum eftir utanríkisráðuneytið sem áhrifamenn innan Verkamannaflokksins eru einnig sagðir sækjast eftir. Flestir eru hins vegar sammála um að öllu erfiðara muni reynast að ná samstöðu um þátttöku Shas- flokksins í stjórnarmyndun, enda hafi helstu samstarfsflokkar Verka- mannaflokksins lýst yfir andstöðu við samstarf við flokkinn. Þannig hafa vinstriflokkurinn Meretz, Israel Ba’aliya, Miðjuflokkurinn og Shinui allir lýst því yfir að þeir muni ekki Taktu þátt í léttum leik á mbl.is og þú gætir unnið GSM-síma frá Símanum, bol, hiífu eða miða á myndina frá stjörnubío. Um þessar mundir frumsýnir Stjörnubíó myndina lllur ásetningur (Cruel Intentions). Myndin fjallar um stjúpsystkini sem eru í meira lagi undirförul. Taktu þátt í leiknum og hver veit! Hmbl.ÍS —ALLTVKf* e/TTHV/KÐ IStÝTi yr SÍMINN EHUD Barak, nýkjörinn forsætisráðherra fsraels, fagnar sigri með stuðningsmönnum í Tel Aviv. Um þessar mundir standa yfir óformleg- ar viðræður um stjórnarmyndun á milli fulltrúa Verkamannaflokksins og annarra flokka á ísraelska þinginu. ganga til samstarfs við flokkinn á meðan Arye Deri leiðir hann. Að Shinui frátöldum hefur þó enginn þessara flokka útilokað samstarf við Shas komi Deri, sem nýlega var dæmdur til fjögurra ára fangelsis- vistar fyrir spillingu, hvorki að stjórn flokksins á þingi né utan þess. Deri, sem tilkynnti í síðustu viku að hann hefði ákveðið að láta af þing- mennsku, hefur hins vegar marglýst því yfir að hann sé langt frá því hættur afskiptum af málefnum flokksins og talsmenn Shas lýstu því yfir í gær að þeir myndu ekki láta ut- anaðkomandi aðila ráða því hver leiddi flokkinn. Staða Deris mun hins vegar ekki verða eina hindrunin í vegi fyrir stjómarþátttöku Shas þar sem ljóst er að stefnuskrá flokksins stangast í mörgum meginatriðum á við þau stefnumál sem Barak lagði áherslu á í kosningabaráttu sinni. Þannig hefur Barak m.a. barist fyrir því að strang- trúuðum verði gert að gegna her- þjónustu og lagt áherslu á nauðsyn þess að endurskoða ýmis fríðindi sem strangtrúaðir njóta. Shas hefur hins vegar sett fram það skilyrði fyrir stjómarþátttöku að engar breytingar verði gerðar á stöðu strangtrúaðra. Þá hefur mikið farið fyrir slagorð- unum „Shas-kontrol“ og „Nash- kontrol“ í ísraelskum stjórnmálum að undanfómu. Slagorðin vísa til baráttu Shas-flokksins annars vegar og Israel Báaliya hins vegar um völdin í innanríkisráðuneytinu, en báðir þessir flokkar em fyrst og fremst byggðir upp í kringum hags- muni afmarkaðra þjóðfélagshópa. Þannig leggur Shas-flokkurinn áherslu á réttindabaráttu gyðinga af austrænum uppruna sem þeir segja að hafi orðið að búa við mismunun áratugum saman. Israel Báaliya er hins vegar stærsti flokkm' rúss- neskra innflytjenda. Þrátt fyrir að Barak hafi gefið samninganefnd sinni ströng fyrir- mæli um að taka ekki þátt í neinum viðræðum um hugsanlega skipun í embætti lýsti talsmaður Israel Ba’aliya því yfir eftir viðræður samninganefnda flokkanna í gær að hann væri þess fullviss að Israel Ba’aliya hefði sitt fram í málinu, enda hefði flokkurinn stutt Barak í kosningabaráttunni en Shas lýsti yf- ir stuðningi við Benjamin Netanya- hu, fráfarandi forsætisráðherra. Það er því ljóst að Barak, sem hef- ur 45 daga til að mynda nýja ríkis- stjóm, mun eiga fullt í fangi með að sætta ólík sjónarmið, bæði innan flokks og utan, er raunverulegar samningaviðræður hefjast. Bætt samskipti við N-Kóreu? Tókýd, Peking. Reuters. WILLIAM Perry, sendifulltrúi Bandaríkjaforseta og fyrrverandi varnarmálaráðherra, hélt í heim- sókn til Norður-Kóreu í gær, sem talin er marka tímamót í samskipt- um ríkjanna. Perry er hæst setti bandaríski embættismaðurinn sem heimsækir N-Kóreu síðan á dögum Kóreustríðsins í upphafí sjötta ára- tugarins. Tilgangur farar hans er endurskoðun á stefnu Bandaríkja- stjómar gagnvart N-Kóreu. Perry flaug til Pyongyang, höfuð- borgar N-Kóreu, frá Tókýó, þar sem hann hafði átt fundi með japönskum og suður-kóreskum embættismönnum í því skyni að samhæfa stefnu ríkjanna gagnvart stjómvöldum í Pyongyang. Heim- sókn Perrys til N-Kóreu mun standa í þrjá daga, og væntir Perry þess að hitta að máli Kim Jong-il, forseta landsins, auk annarra emb- ættismanna. Bandaríkjastjórn ákvað í desem- ber sl. að endurskipuleggja stefnu sína gagnvart N-Kóreu í ljósi þess að N-kóresk stjómvöld neituðu að hverfa frá flugskeytaáætlun sinni og svöraðu engu ásökunum um að þau hyggðu á smíði kjamorku- vopna. Kínversk stjómvöld tilkynntu í gær að næstæðsti ráðamaður N- Kóreu, Kim Yong-nam, myndi koma í heimsókn til Kína í byrjun næsta mánaðar, og er það haft til marks um aukin tengsl ríkjanna, en samskipti beggja við Bandaríkin em stirð. Stjómvöld í Peking hafa mót- mælt harðlega auknum hernaðar- legum tengslum Bandaríkjanna og Japans, og áætlunum þeirra um sameiginlegar flugskeytavarnfr í Norðaustur-Asíu. Segir Kínastjórn ætlan Bandaríkjanna að auka völd sín á svæðinu og sporna við því að Kína verði stórveldi. Líföndun^n Að anda er að lifa \ Guðrún Arnalds verður með námskeið í líföndun helgina 29. og 31. maf. Hvernig væri að taka á móti sumrinu með því að fylla þig af orku, losa um það gamla og búa til pláss fyrir meiri gleði og kærleika? Líföndun hjálpar við að ná djúpri slökun, takti við okkur sjálf og er góð leið til að kynnast okkur sjálfum. Guðrún Arnalds,símar 551 8439 og_896 2396 Ef við lærum að anda léttar, verður líf okkar ósjálfrátt léttara.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.