Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 76
Drögum næst 10. júní HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings Heimavörn Sími: 533 5000 MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 26. MAI1999 VERÐ I LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Bæjarstjori Ölfuss um aðgerðir stjórnenda Vinnslustöðvarinnar Skipin, kvótinn og vinnan farin frá okkur VINNSLUSTÖÐIN hf. tilkynnti í gær að á næstu vikum yrði allri land- frystingu í núverandi mynd á vegum fyrirtækisins hætt og gert væri ráð fyrir að segja upp 89 starfsmönnum í Vestmannaeyjum og Þorlákshöfn. Aðgerðimar mæltust illa fyrir hjá bæjarstjóra Ölfuss og starfsfólki sem benti á að uppsagnimar væra þvert á viljayfírlýsingu vegna sam- einingar Meitilsins í Þorlákshöfn og Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna- »£_ > eyjum 1. september 1996, þar sem meðal annars kom fram að stefnt væri að því að ekki yrði fækkun á störfum við sameininguna. Sj ómannadagnrinn í Reykjavík Prescott aðalræðu maður „Það er sjónarmið sem ég heyri líka en ég held að svarið sé að við getum ekki haldið óbreyttum rekstri og farið á hausinn vegna þess að við geram ekki neitt, látum reka á reið- anum,“ sagði Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. „Það yrði nátt- úralega mesti ábyrgðarhlutinn og það versta sem við gerðum." „Við lítum á yfírlýsingu stjómar, sem gefin var vegna uppsagnanna, sem svik við okkur. Þegar Meitillinn og Vinnslustöðin vora sameinuð voru gefin þau loforð af hálfu stjómar og aðalhluthafa Vinnslustöðvarinnar að það yrði bæði útgerð og landvinnsla hér í Þorlákshöfn. Þess vegna er yf- irlýsingin nú svik,“ sagði Sesselja Jónsdóttir, bæjarstjóri Ólfuss. „Við eram ekki sérstaklega kát vegna þess að skipin, kvótinn og vinnan era farin.“ Kristín Anna Karlsdóttir trúnað- armaður sagði að þessi dagur hefði ávallt blasað við. „Hann var alltaf í undirmeðvitundinni. Við höfum horft á þetta gerast. Þegar sameining verður er það alltaf litla fyrirtækið sem er lokað.“ Og henni leist ekki á framhaldið í bænum. „Þetta hefur skelfíleg áhrif. Geturðu séð fasteign- ir seljast hér ef fólk vill fara? Auðvit- að fer yngra fólkið frekar í burtu, fólkið sem hefur ekki fest sér hús- næði, og ég myndi fara ef ég væri yngri.“ „Eg vann hjá Vinnslustöðinni í fyrrasumar, um jólin og um pásk- ana, er nýbyrjuð aftur og treysti á þessa vinnu í sumar; hafði síðan hugsað mér að fara í bæinn og læra förðun en nú veit ég ekki hvað ég á að gera,“ sagði Guðný Jónsdóttir, sem verður 17 ára í haust. I Viðbrögð/10-11/38-39 JOHN Prescott, aðstoðarforsætis- ráðherra Bretlands, verður sérstak- ur gestur á Hátíð hafsins, sem hald- in verður í Reykjavík 4.-6. júní nk. Sjómannadagsráð Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, Reykjavíkurborg, Reykjavíkurhöfn og Utvegsmanna- félag Reykjavíkur standa að hátíð- inni sem nú er haldin í fyrsta sinn. Guðmundur Hallvarðsson, for- maður sjómannadagsráðs, segir að rétt hafi þótt að laga sjómannadag- inn að nútímanum. Sjómannadagur- inn hefur verið haldinn hátíðlegur í ♦Reykjavík frá árinu 1938, en nokk- uð hefur dregið úr þátttöku í hátíð- arhöldunum undanfarin ár. Það átti meðal annars þátt í að tekin var ákvörðun um að sameina daginn hafnardeginum og halda Hátíð hafs- ins. Guðmundur er ánægður með að fá Prescott hingað á þessum tíma- mótum. „Þema sjómannadagsins í ár er að minnast þeirra sjómanna sem farist hafa hér við land á öldinni," sagði Jón Hákon Magnússon kynn- ingarráðgjafi í samtali við Morgun- blaðið. Hann segir vel við hæfi að Preseott flytji aðalræðu dagsins, því honum sé öryggi sjómanna afar hugleikið. John Prescott er þingmaður Hull og var á áram áður formaður í stétt- arfélagi sjómanna. Hann hefur beitt sér fyrir öryggismálum sjómanna í starfi sínu sem aðstoðarforsætisráð- herra. Prescott kemur til íslands laug- ardaginn 5. júní og mun þá eiga fund með Halldóri Asgrímssyni ut- anríkisráðherra. Morgunblaðið/Jón Svavarsson STARFSFÓLK Vinnslustöðvarinnar í Þorlákshöfn var þungbúið eftir fund með forráðamönnum fyrirtækis- ins í gær, enda fjöldauppsagnir ekki ástæða til fagnaðar. Morgunblaðið/Davið Pétursson Rúta með 44 ungling- um á hliðina RÚTA lagðist á hliðina utan í barð í Skorradal laust eftir klukkan ellefu í gærmorgun. 44 böm á aldrinum 13-16 ára vora í rútunni ásamt þremur kennuram og bflstjóra. Eng- in meiðsli urðu á bömunum og skemmdir á bifreiðinni vora óvera- legar. Bömin era nemendur í Tjamar- skóla í Reykjavík og vora á leið í skátaskálann í Skorradal þegar veg- kanturinn á þröngum veginum með- fram vatninu að sunnanverðu gaf sig. Rúður brotnuðu í rútunni. Böm- in vora síðan flutt í skátaskálann og undu sér þar hið besta í gær við að grilla mat. ---------------- Lífríki Mývatns rannsakað RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gærmorgun að fá er- lenda sérfræðinga til þess að meta hugsanlega áhættu af kísilgúrnámi í Syðri-Flóa Mývatns á lífríki vatns- ins. Samkvæmt upplýsingum frá iðn- aðarráðuneytinu verður leitað eftir samningum við þrjá norska sérfræð- inga í vatnalíffræði og einn hollensk- an séi’fræðing í setlagaflutningum. Aætlað er að kostnaður vegna þess- ara rannsókna nemi um fimm millj- ónum króna og gert er ráð fyrir því að niðurstöður liggi fyrir í árslok. Heildarafli næsta fískveiðiárs ákveðinn á fundi ríkisstiórnariimar I megindráttum farið að til- lögum Hafrannsóknastofnunar RÍKISSTJÓRN íslands ákvað í gær leyfilegan heildarafla fyrir næsta fiskveiðiár í kjölfar veiðiráðgjafar Hafrannsóknastofnunar sem kynnt var sl. laugardag og er í megindrátt- um farið að tillögum stofnunarinnar. Þó er þorskafli aukinn um 3.000 tonn frá þvi sem tillögumar kváðu á um, eða í 250.000 tonn, sem er sami þorskafli og á yfirstandandi fisk- veiðiári. Ennfremur er leyfilegur heildarafli af ufsa aukinn um 5.000 tonn frá tillögum Hafrannsókna- stofnunar eða í 30.000 tonn. Er um að ræða samdrátt i flestum tegund- um frá yfirstandandi fiskveiðiári. Út- flutningsverðmæti sjávarafurða dregst saman um 3% frá yfirstand- andi fiskveiðiári að mati Þjóðhags- stofnunar. Það samsvarar um 3 milljarða króna samdrætti eða um 0,5% af landsframleiðslu. Guðjón A. Kristjánsson, formaður FFSÍ, segir veiðiráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar vera viss vonbrigði, enda hafi menn haft væntingar um fi-ekari uppbyggingu þorskstofnsins. Niðurstöður stofnunarinnar hljóti að vekja ýmsar spurningar um hvort verið sé að gera rétt eða hvort Leyfilegur heildarafli ifiskv.árið 1999/2000 Komnir yfir Grænlandsjökul '„ÞETTA eru mikil tíðindi og sér- staklega fyrir Grænland. Nú er búið að tengja saman austur- og vestur- ströndina landleiðina sem enginn hefur látið sér detta í hug áður,“ sagði Arngrímur Hermannsson, einn leiðangursmanna í ICE225-jeppa- leiðangrinum. Leiðangursmenn urðu í gær fyrstir til þess að fara á jepp- ♦im yfir Grænlandsjökul. „Við voram að ná landi og eram bókstaflega uppi í skýjunum," sagði Arngrímur þegar Morgunblaðið náði tali af honum seint í gærkvöldi. „Okkur leist ekki vel á þetta þegar við misstum bfl niður strax í 1.200 m hæð. En það var heiðskírt og gott veður og við þurftum á því að halda til þess að komast niður af jöklinum. Við sáum sprangusvæðið og hvernig jökullinn fellur og þannig áttuðum við okkur betur á því hvar sprang- urnar væra.“ Leiðangurinn er tveimur dögum á undan áætlun yfir jökulinn en ráð- gert var að hann kæmi niður af jökl- inum á morgun. I dag ætla leiðangursmenn að fara að þorpinu Isortoq en þangað er um 15 km leið frá tjaldbúðum þeirra. Tegund Þorskur Ýsa Ufsi Karfi Grálúða Steinbftur Skarkoli Langlúra Sandkoli Skrápflúra Þykkvalúra Síld Úthafsrækja Humar Hörpuskel Innfjarðarækja Aflamark, tonn 250.000 35.000 25.000 60.000 10.000 13.000 3.000 1.100 7.000 5.000 1.400 100.000 20.000 1.200 9.800 3.200 Akvörðun um leyfilegan heildarafla af úthafsrækju og innfjarðarækju verður endurskoouð að fengnum nyjum tillögum Hafrannsóknastofnunar. standa eigi öðravísi að málum. Jó- hann Sigurjónsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, vísar því á bug að ekki sé sjáanlegur árangur af uppbyggingu þorskstofnsins hér við land og bendir á að frá fiskveiðiárinu 1995/1996 hafi heildaraflamark verið aukið úr 155 þúsund tonnum í 250 þúsund tonn. Tillaga stofnunarinnar um þorskafla á næsta fiskveiðiári sé ennfremur í fullu samræmi við fyrri áætlanir. Alþjóðahafrannsóknaráðið hefur lagt til að úthafskarfaafli árið 2000 verði takmarkaður við 85.000 tonn. Verði það niðurstaðan skerðist kvóti Islendinga veralega. Kristján Ragn- arsson, formaður LÍÚ, segir að dregið hafi úr sókn annarra þjóða í úthafskarfa og því hafi margar þjóð- ir ekki náð að veiða úthlutaðan afla. íslendingar hafi hins vegar alltaf sótt kvóta sinn og ættu því í raun að fá úthlutað meiri kvóta en áður. ■ 3 milljarða/12 ■ Stærri árgangar/E3 ■ Leggja tiI/El ■ Bein sókn/E5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.