Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
A
Ovissa og uggur hjá starfsmönnum vegna boðaðra uppsagna Vinnslustöðvarinnar
/ i /i -■ • • r*
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GUÐNÝ Jónsdóttir, Harpa Lind Pálsdóttir og Guðrún Eva Jónsdóttir.
Stór skellur en
ekki endalok
Kristín Anna
Karlsdóttir
Ásdís
Garðarsdóttir
Sigríður
Árnadóttir
hætt á
Þorlákshöfn iðaði ekki beint af lífí í gær.
„Við erum ekki sérstaklega kát vegna
þess að skipin, kvótinn og vinnan eru far-
in þó okkur hafi verið lofað á sínum tíma
að allt þetta yrði hér áfram,“ sagði
Sesselja Jónsdóttir, bæjarstjóri Ölfuss,
við Morgunblaðið. Steinþór Guðbjartsson
blaðamaður og Jón Svavarsson ljósmynd-
ari fengu að heyra ámóta tón hjá nokkr-
um starfsmönnum Vinnslustöðvarinnar.
Andrúmsloftið í
Vinnslustöðinni í Þorláks-
höfn var ekki gott eftir
fund forráðamanna fyrir-
tækisins, Sigurgeirs Brynjars
Kristgeirssonar framkvæmdastjóra
og Halldórs Arnarsonar fram-
leiðslustjóra, með starfsfólkinu í
gær. Reiðin skein úr hverju andliti
og þögult þusti fólkið úr kaffístof-
unni og út. Vinnudeginum lauk með
tilkynningu uppsagna 45 starfs-
manna í 40 stöðugildum.
Hefur legið í loftinu
frá sameiningu
Kristín Anna að fólk hefði um fátt
annað að velja. „Vegna þessa missa
útlendingamir hérna trúlega at-
vinnuleyfi sín en ljóst er að við sem
erum eldri förum ekki í flökun. Það
eru hreinar línur og bjóðist ekki
önnur vinna blasir ekkert við nema
atvinnuleysi. En útlitið er ekki
bjart. Vel flestar okkar hafa unnið
héma í tugi ára; fimmtugar konur
hafa verið hérna síðan þær vom 14
ára.“
Kristín Anna áréttaði að þessi
dagur hefði ávallt blasað við. „Hann
var alltaf í undii-meðvitundinni. Við
höfum horft á þetta gerast. Þegar
sameining verður er það alltaf litla
fyrirtækið sem lokar.“ Og henni
leist ekki á framhaldið í bænum.
„Þetta hefur skelfileg áhrif. Get-
urðu séð fasteignir seljast hér ef
fólk viU fara? Auðvitað fer yngra
fólkið frekar í burtu, fólkið sem hef-
ur ekki fest sér húsnæði, og ég
myndi fara ef ég væri yngri.“ Eigin-
maður hennar er ellilífeyrisþegi og
dóttir þeirra á tvær stúlkur, 12 ára
og sex mánaða. „Hún fer að vinna í
Amesi eftir fæðingarorlofið en það
er ekki mikið til skiptanna hjá okk-
ur.“ Hins vegar er ekki um uppgjöf
að ræða. „Nei, alls ekki. Eg geri ráð
JÓHANNA Guðmundsdóttir og sonur henn- Þorsteinn
ar, Guðmundur Bjarnason, sem er 12 ára. Gunnarsson
fyrir að mér verði sagt upp eins og
öðrum en þetta fer allt einhvern
veginn."
Verð að treysta á eiginmanninn
Tveir bónus-trúnaðarmenn vinna
hjá Vinnslustöðinni og er Ásdís
Garðarsdóttir annar þeirra. Hún er
42 ára og byrjaði hjá Meitlinum fyr-
ir 34 árum. „Ég var átta ára þegar
ég fór fyrst á launaskrá hjá fyrir-
tækinu, vann við að slíta humar,“
sagði hún og bætti við að uppsagn-
imar hleyptu illu blóði í fólk. „Mér
varð illa við eins og öðmm en átti
samt von á þessu. Þetta hefur heil-
mikil áhrif. Tilfinningin er ekki góð
að horfa fram á atvinnuleysi og
þetta getur líka haft nokkur fjár-
hagsleg áhrif nema launin verði
þeim mun betri hjá eiginmannin-
um.“ Hann heitir Einar Armanns-
son og er stýrimaður á Skálafelli
ÁR, sem er á humarveiðum.
Landfrystingu hætt á veg-
um Vinnslustöðvarinnar hf.
Á SAMA tíma og verið var að greina starfsfólki Vinnslustöðvarinnar í Þorlákshöfn frá yfirvofandi
uppsögnum var verið að landa 90 tonnum af þorski úr Jóni Vídalín ÁR fyrir Vinnslustöðina.
Um 90 manns sagt upp störfum
Meitillinn og Vinnslustöðin sam-
einuðust 1. september 1996 meðal
annars með því markmiði að stefnt
yi'ði að því að störfum í vinnslu yrði
ekki fækkað. Tæplega þremur árum
síðar blasir annað við.
„Þegar sameiningin varð vissum
við að svona færi,“ sagði Kristín
Anna Karlsdóttir, trúnaðarmaður
undangengin átta ár, við Morgun-
blaðið eftir fundinn. Hún hefur unn-
ið hjá fyrirtækinu í 20 ár en sér nú
fram á kaflaskipti. „Um 15 manns
verða eftir hjá fyrirtækinu en eftir
sameiningu gáfum við því tvö ár.
Samt sem áður er ljóst að öllum
varð mjög illa við fregnimar. En við
fengum að heyra ástæðumar og allt
var tínt til: Verðfall á mjöli, frysting
á loðnu gekk ekki, síldin kom ekki.
Auðvitað vonuðum við að svona færi
ekki en eftir því sem mér skilst
verður 16. júlí síðasti vinnudagur-
inn.“
Vinna í Þorlákshöfn hefur fyrst
og fremst snúist um fisk og sagði
STJÓRN Vinnslustöðvarinnar hf. í
Vestmannaeyjum hefur ákveðið að
grípa til ráðstafana í því skyni að
endurskipuleggja og breyta áhersl-
um í rekstri fyrirtækisins. Afkoma
félagsins fyrstu sex mánuði rekstr-
arársins var mun verri en gert hafði
verið ráð fyrir. Tap á rekstrinum
nam rúmum 600 milljónum króna.
I frétt frá fyrirtækinu kemur
fram ákvörðun stjórnarinnar um
breytingar á rekstrinum: „Ljóst má
því vera að stjóm félagsins á engan
annan kost en þann að endurskipu-
leggja reksturinn frá grunni til að
draga úr kostnaði, leggja af óarð-
bæra rekstrarþætti og styrkja þá
framleiðslu sem skilað hefur ár-
angri. Unnið hefur verið að endur-
skipulagningunni undanfama tvo
mánuði og því starfi verður fram
haldið næstu vikur og mánuði til að
tryggja fyrirtækinu viðunandi
rekstrargmndvöll.
Stjóm Vinnslustöðvarinnar er vel
Ijóst að ráðstafanimar sem nú em
kynntar valda sársauka hjá starfs-
fólki sem skilað hefur miklu og góðu
verki í þágu fyrirtækisins. Þær em
hins vegar óhjákvæmilegar svo
komið verði í veg fyrir að stórfelld-
ur hallarekstur leiði til skuldasöfn-
unar sem síðan sligi félagið með til-
heyrandi afleiðingum fyrir starfs-
fólkið og byggðarlögin.
Landfrystingu í núverandi
mynd hætt
Hætt verður á næstu vikum allri
landfrystingu í núverandi mynd á
vegum Vinnslustöðvarinnar.
Starfsfólki Vinnslustöðvarinnar
fækkar verulega og vinnustaða-
samningum við starfsfólk félagsins
verður sagt upp. Gert er ráð fyrir
að segja 34 starfsmönnum í 34
stöðugildum upp störfum í land-
vinnslunni í Vestmannaeyjum og
um 45 starfsmönnum í 40 stöðugild-
um í landvinnslunni í Þorlákshöfn.
Þá fækkar um samtals 10 stöðugildi
í yfirstjórn, á skrifstofu og á verk-
stæði í Eyjum. I nýrri yfirstjórn
Vinnslustöðvarinnar verða 5 en
voru 8 áður. Þegar á heildina er litið
fækkar starfsmönnum um 89 vegna
þeirra ráðstafana sem nú eru
kynntar. Þá ber þess að geta að fyrr
á þessu ári hafði nokkrum starfs-
mönnum fyrirtækisins í Vest-
mannaeyjum verið sagt upp störf-
um og aðrir sagt upp sjálfir, alls um
25 manns í 15 stöðugildum sem eru
í vinnu á uppsagnarfresti. Saman-
lagt fækkar því starfsmönnum í
Vinnslustöðinni um 114 frá því í árs-
byrjun 1999 en alls voru um 320
manns í 298 stöðugildum á launa-
skrá fyrirtækisins 12. maí sl.
Aukin áhersla verður lögð á salt-
fiskvinnslu í Eyjum auk áframhald-
andi vinnslu humars, sfldar og
loðnu.
Humyndir um vinnslu
ferskra flaka og bita
Ákveðið er að kanna ítarlega
hvort og þá hvernig nýta megi
tækjabúnað til landfrystingar í
annarri vinnslu sjávarafurða í
Vestmannaeyjum og Þorlákshöfn.
Þar má nefna hugmyndir um
vinnslu ferskra flaka og bita í Þor-
lákshöfn og karfavinnslu í Vest-
mannaeyjum. Ekkert liggur fyrir
um hvort af slíku verður en hug-
myndirnar eru nefndar hér til að
undirstrika þann vilja ráðamanna
Vinnslustöðvarinnar að leita allra
leiða við að skjóta styrkari stoðum
undir rekstur fyrirtækisins á
næstu misserum.
Að gefnu tilefni skal ítrekað að
aflaheimildir Vinnslustöðvarinnar
hf. verða ekki seldar til að fjár-
magna taprekstur fyrirtækisins.“