Morgunblaðið - 26.05.1999, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 26.05.1999, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 13 FRÉTTIR Sala ríkisjarðarinnar Kambssels í Alftafírði Bændur ósáttir við framkvæmd sölunnar BÆNDUR í Djúpavogshreppi, leigjendur eyðijarðarinnar Kambssels í Suður-Múlasýslu, eru ekki sáttir við hvernig landbúnað- arráðuneytið stóð að sölu jarðar- innar Kambssels á síðasta ári. Jörðin, sem var í eigu ríkisins, var seld með afsali til einkaaðila hinn 9. febrúar sl. en samkvæmt upp- lýsingum frá landbúnaðarráðu- neytinu var gengið frá kaupsamn- ingi sl. haust með fyrirvara um samþykkt Alþingis. Heimild AI- þingis fyrir sölunni fékkst síðan undir lok síðasta árs. Bændurnir sem fyrr greindi frá hafa leigt jörðina af ríkinu til sauðfjárbeitar frá árínu 1993 og átelja þeir m.a. að jörðin skyldi ekki hafa verið auglýst til sölu þannig að þeim eða öðrum hefði gefist kostur á að bjóða í hana. Þeir segjast fyrst hafa fengið staðfestingu á kaupun- um frá ráðuneytinu hinn 17. maí sl. og um leið fengið upplýsingar um að kaupendur hefðu við kaupin yf- irtekið leigusamning þeirra við landbúnaðarráðuneytið. Sigríður Norðmann, lögfræðing- ur hjá landbúnaðarráðuneytinu, bendir á að samkvæmt jarðalögum þurfi ekki að leita samþykkis sveit- arstjórnar og jarðanefndar áður en ríkisjarðir eru seldar, ólíkt því sem krafist er þegar um einkajarð- ir er að ræða. Þrátt fyrir það segir Olafur Ragnarsson, sveitarstjóri Djúpavogshrepps, að eðlilegt hefði verið að láta leigjendur jarðarinn- ar Kambssels vita. Jörðin værí bændum það mikilvæg sem beitar- land. „Þá hefði verið eðlilegt að tala við sveitarstjórn og jarða- nefnd,“ bætir hann við. Aðstoðarmaður landbúnaðar- ráðherra, Jón Erlingur Jónasson, tekur fram að Kambssel hafi áður tilheyrt jörðinni Geithellnum í Geitfjalladal, en að síðar hafi henni verið skipt í fjórar jarðir, sem auk Kambssels bera heitin Geithellnar I, Geithellnar II og Blábjörg. Hann segir að eigendur Geithellna II, þeir Atli Arnason, læknir á Seltjarnarnesi, og Helgi Jensson, lögfræðingur á Egils- stöðum, hafi óskað eftir því að kaupa Kambssel og því hafi ráðu- neytið ákveðið að ganga til samn- inga við þá. „Það var ákvörðun ráðuneytisins að verða við ósk eig- enda Geithellna II og selja þeim Kambssel með fyrirvara um sam- þykki Alþingis,“ segir hann og bendir á að Alþingi hafi veitt sína heimild undir lok síðasta árs. Kaupverðið, segir hann, var 750 þúsund krónur og bætir því við að hún sé lítill hluti af upphaflegu Geithellnajörðinni. „Vitum ekkert um framhaldið“ Asgeir Asgeirsson er annar þeiira bænda sem leigt hafa jörð- ina Kambssel í Alftafirði. Asgeir segir að hann og Jóhann Einars- son bóndi hafi gert samning við landbúnaðarráðuneytið um leigu á jörðinni áríð 1993 og tekur fram að hún sé leigð frá ári til árs. „Leigan framlengist ár frá ári nema annar hvor eða báðir aðilar segi henni upp,“ segir hann og kveðst undr- andi á því að þeim skyldi ekki hafa verið sagt frá því að það stæði til að selja jörðina. Hann kveðst auk þess ekkert vita um það hvort nýir eigendur hyggist segja upp leigu- samningnum eða ekki. „Við vitum ekkert um framhaldið og okkur hefur ekki verið boðið neitt. Ráðu- neytið hefur bara tilkynnt okkur að það hafi selt þessum mönnum jörðina." Hann segir auk þess að verði jörðin Kambssel tekin af þeim verði búið að þrengja ansi mikið að möguleikum þeirra til sauðfjárbeitar. Ásgeir bendir á að eyðijarðir í eigu ríkisins séu úti um allt land og segir að miðað við þessa reynslu virðist sem hægt sé að selja landið undan bændum án þess að þeir fái nokkuð að vita um þá fyrirætlan. „Eg sit hérna sjálfur á ríkisjörð [Blábjörgum] og gæti þess vegna átt von á manni á morgun sem segðist vera búinn að kaupa jörð- ina.“ Þetta, segir hann, er ekki beinlínis til þess að styrkja byggð- ina í landinu. Þegar Jón Erlingur er spurður hvers vegna jörðin hafi ekki þrátt fyrir allt verið auglýst til sölu bendir hann m.a. á að Geithellnar II hafi verið stærsti hlutinn af upphaflegu jörðinni, Geithellnum, og því hafi þótt eðlilegt að reyna að stuðla að því að þessar jarðir yrðu sameinaðar að nýju. Jón Erl- ingur bendir auk þess á að þeir sem hafa keypt Kambssel hafi staðið fyrir skógrækt á Geithelln- um II og hyggist nota Kambssel sömuleiðis til skógræktar. „Það munu ekki skerðast neinir beitar- möguleikar þarna að öðru leyti en því að nýir eigendur, sem eiga Geithellna II, munu sjálfsagt girða sína skógrækt af,“ segir hann. Nýjar reglur tóku gildi í maí Aðspurður hvers vegna eigend- um hinna jarðanna í dalnum'hafi ekki verið boðið að kaupa jörðina segir Jón Erlingur að „miðað við það hve beitarhagsmunir skertust lítið“ hefði það ekki verið talið nauðsynlegt. I byrjun maímánaðar undirrit- aði Guðmundur Bjamason land- búnaðarráðherra nýjar reglur um sölu ríkisjarða á forræði landbún- aðarráðuneytisins. Að sögn Jóns Erlings var reglunum komið á í samræmi við tillögur Ríkisendur- skoðunar í skýrslu sinni frá því í vetur. I fyrstu grein reglnanna er m.a. kveðið á um að ríkisjarðir á forræði landbúnaðarráðuneytisins sem losni úr ábúð skuli að jafnaði selja nema ef um sé að ræða ætt- liðaskipti eða jarðir sem ríkið telji rétt að nýttar verði áfram til land- búnaðar í sömu búgreinum svo og ef ríkið telji sérstaka þörf á að ráð- stafa jörðum til annarra nota, til dæmis fyrir opinberar fram- kvæmdir. „Ríkisjarðir sem selja skal skv. 1. gr. skal auglýsa til sölu í dagblöðum eða með öðrum al- mennum hætti,“ segir í 2. gr. reglnanna. „Fela skal Ríkiskaup- um að auglýsa ríkisjarðir sem selja skal samkvææmt 1. gr., taka við tilboðum, opna tilboð, tilkynna val á bjóðendum, annast skjalagerð, veita viðtöku kaupverði svo og önnur verkefni eftir því sem við á.“ Þá segir í reglunum að hægkvæm- asta tilboði skuli tekið nema sér- stakar ástæður mæli gegn því. Jón Erlingur segir að áður en vinnureglurnar tóku gildi hafi óskrifaðar og sveigjanlegri vinnu- reglur verið við lýði. Áður hafi því verið hægt að selja ríkisjarðir án þess að auglýsa þær til sölu en með fyrirvara um samþykkt Al- þingis. Nýju reglumar taki hins vegar mið af þeim athugasemdum og leiðbeiningum sem komið hafi fram í fyrrgreindri skýrslu Ríkis- endurskoðunar. 16 ventla vél með fjölinnsprautun, 85-96 hestöfl Vökva- og veltistýri • Hæðarstillanleg kippibelti Rafstýrðar rúður og speglar • Öryggisloftpúðar Samlæsing • Krumpusvæði að framan og aftan Þjófavörn • ABS hemlar • Styrktarbitar I hurðum Upphituð framsæti • Útvarp með segulbandi Rafstýrð hæðarstilling framljósa Litaðar rúður • Samlitaðir stuðarar Bfll sem er algjörlega hannaður fyrirþig. Og það leynir sér ekki... Fæst í tískulitnum í ár: aluminium silver metallic. SUZUKIBÍLAR HF Skeifunni 17. Simi 568 51 00 Heimasíða: www.suzukibilar.is Ertu að hugsa um: • Rými? • Þægindi? • Öryggi? • Gott endursöluverð? • Allt þetta sem staðalbúnað: TEGUND: VERÐ: Renndu við hjá okkur i dag 13 gl 3d 1.195.000 kr. J s 1.3 GL 4d 1.295.000 KR. og reynsluaktu Suzuki Baleno. i,6GLX4d,ABs 1.445.000 kr. Hann kemurperþægilega a ovart. 1,6glxwagon.abs 1.495.000KR. 1,6 GLX WAGON 4x4, ABS 1.675.000 KR. Sjálfskipting kostar 100.000 KR.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.