Morgunblaðið - 26.05.1999, Page 18

Morgunblaðið - 26.05.1999, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Baugur hf. kaupir Vöruveltuna hf.y rekstraraðila 10-11-verslananna „ÉG TEL að á þessum tímapunkti sé þetta rétt ákvörðun fyrir Baug. Okkur hefur vantað þessar litlu þægindaverslanir í Reykjavík, með hnitmiðuðu vöruúrvali og löngum opnunartíma, og í stað þess að fara að byggja upp Hraðkaupsverslanir á Reykjavíkursvæðinu þá töldum við þetta betri leið,“ segir Jón Ás- geir Jóhannesson, forstjóri Baugs hf., en um helgina var tilkynnt að Baugur hefði keypt öll hlutabréf í Vöruveltunni hf., sem rekur mat- vöruverslanakeðjuna 10-11. Selj- endur eru Fjárfar ehf., Helga Gísla- dóttir, íslandsbanki hf. og Kaup- þing hf. Kaupverðið fæst ekki upp- gefið en óstaðfestar heimildir segja að það hafi verið um 1.500 milljónir króna. Til að fjármagna kaupin mun Baugur selja eignir og þ.á m. tvær verslanir Baugs en að sögn Jóns Ás- geirs hefur ekki verið ákveðið hvaða verslanir eða eignir verði seldar. Auk þess mun kaupverðið að hluta verða greitt með hlutabréfum í Baugi hf. Stjórn Baugs mun á næst- unni boða til hluthafafundar þar sem óskað verður eftir heimild til aukn- ingar hlutafjár um 65 milljónir af þessu tilefni. Með kaupunum hefur markaðs- hlutdeild Baugs, að sögn Jóns Ás- geirs, aukist um 7,5% en hann gerir ráð fyrir að þegar upp verði staðið og tvær Baugsverslanir seldar, þá nemi aukningin um 4,7%. „Við höfum talið hlutdeild okkar á markaðnum vera góða rétt undir 50% og teljum að þessi viðbót sé óveruleg." Baugur hf. rekur fjórar gerðir verslana, verslanakeðjurnar Hag- kaup, Nýkaup, Hraðkaup og Bónus. Hraðkaupsverslanirnar eru með lík- an afgreiðslutíma og 10-11 en þær eru allar úti á landi á meðan 10-11 verslanimar eru allar á höfuðborgar- svæðinu. Hraðkaup og 10-11 i eina sæng Jón Ásgeir segir það ljóst að 10-11 og Hraðkaup verði ein rekstrarein- ing. Hraðkaup muni verða lands- byggðarnafnið og 10-11 Reykjavík- umafnið. Aðspurður um hvort fyrirtækið Baugur sé ekki í stöðugri samkeppni við sjálft sig svarar Jón Ásgeir: „Auðvitað era þessi fjögur andlit Baugs á markaðnum að keppa sín á milli enda sést það á auglýsingum hvaða keðjur em að bítast mest á, Aðalfundur Vinnu- málasambandsins Tillögur um samruna samþykktar samhljóða AÐALFUNDUR Vinnumálasam- bandsins, sem nýlega var haldinn, samþykkti samhljóða tillögu um samrana Vinnumálasambandsins og Vinnuveitendasambands íslands ásamt fleirum í tengslum við stofnun nýrra heildarsamtaka, Samtaka at- vinnulífsins. Þá samþykkti aðalfund- urinn einnig tillögur að heildarskipu- lagi nýrra samtaka og féllst á megin- efni samrunasamningsins og frum- varps að samþykktum fyrir Samtök atvinnulífsins. Á aðalfundinum var ársreikningur Vinnumálasambandsins íyrir árið 1998 samþykktur, en hann sýnir m.a. 21% rekstrarhagnað á árinu. Eigið fé jókst um tæp 40% og tekjur um rúm 9% á árinu. Öðrum aðalfundarstörfum var frestað til 15. september næstkom- andi er ný heildarsamtök verða það eru okkar keðjur. En til að þetta gangi upp þá verða þær að fá algjört frelsi úti á markaðnum. Ef við ætlum að fara að miðstýra markaðssetning- unni þá verður það upphafið að end- inum. Keðjumar eiga að keppa. Hlutverk eigandans, Baugs, er að tryggja þeim vörur á lægsta verð- inu.“ Kom samkeppninni ekki á óvart Stærsti keppinautur Baugs er Kaupás, rekstraraðili Nóatúns, KÁ og 11-11. Þorsteinn Pálsson, forstjóri Kaupáss, sagði í samtali við Morgun- blaðið að aðilum á matvörumarkaði hafi ekki komið á óvart að Baugur skyldi kaupa Vöraveltuna. Þegar Vöruveltan fór í samstarf við Baug um innkaup sl. haust þá hafi sam- keppnisaðilar gert ráð fyrir því að á stofnuð og var umboð stjórnar fram- lengt að sama skapi, að því er fram kemur i fréttatilkynningu frá Vinnu- málasambandinu. Katzenberg sigrar i máli gegn Walt Disney Co. Los Angeles. Reuters. JEFFREY Katzenberg, áður einn æðsti maður Disney fyrirtækisins í Los Angeles, hefur sigrað í máli, sem hann höfðaði gegn fyrirtækinu til að fá sinn skerf af hagnaði af Disney-kvik- myndum. Katzenberg kann að fá meira en 250 milljónir dollara í skaða- bætur. Paul Brecken- ridge dómari dæmdi Disney í óhag og sagði að Jeffrey Katzenberg hefði ekki afsalað sér bónusgreiðslum þegar hann hætti störfum hjá fyrir- tækinu. Disney hafði haldið því fram að Katzenberg hefði fyrirgert rétti sín- um til að fá álitlegan bónus, þegar hann lét af starfi yfirmanns kvik- myndadeildar fyrirtækisins án þess að notfæra sér tveggja ára framleng- ingu samnings. Urskurður Breckenridge dómara táknar að nú verða dómstólar að ákveða hve mikið Disney skuldi Katzenberg. Katzenberg gæti fengið 250 millj- ónir dollara í bónusgreiðslur, sé reiknað með 2% hlutdeild í tekjum af kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og varningi, sem seldur var á tíu ára tímabili þegar hann starfaði hjá Dis- ney. Katzenberg fór frá Disney 1994 einhverjum tímapunkti yi’ði samein- ast. Aðrir aðilar á matvörumarkaði taka í sama streng og segja að kaup- in hafi ekki komið á óvart. Þorsteinn segir að ekki standi tO að grípa til aðgerða en Kaupás muni halda þeim stefnu að vera í fullri samkeppni við Baug. „Þegar einn aðili er kominn með um 50% hlutdeild þá er að mínu mati besti kosturinn að þeir sem minni eru, reyni að ná saman til að veita harðari samkeppni. Þróunin í Evr- ópu hefur verið í þá átt að 2-3 keðjur eru stærstar á markáðnum og ég held að það sé að verða hérna líka. Við ætlum okkur að stækka á þess- um markaði og erum að opna nýja Nóatúnsverslun í Hafnarfirði. Síðan verður tíminn að leiða í Ijós hvert framhaldið verður.“ Guðmundur Sigurðsson hjá Sam- keppnisstofnun hafði lítið um málið að segja á þessu stigi. Hann sagði stofnunina vera að rannsaka kaupin og hugsanleg áhiif þeirra á sam- keppnina. Lítil hækkun á gengi hlutabréfa Hlutabréf í Baugi styi’ktust lítil- lega í gær en ekki var um nein veru- leg viðskipti að ræða. Stofnanafjárfestar hafa haldið að sér höndum á síðustu mánuðum varðandi fjárfestingar í Baugi og kaupin á Vöruveltunni virðast ekki hafa breytt miklu þar um. Um þetta segir Jón Ásgeir: „Það er alveg ljóst að kaupin styrkja félagið mjög mikið. Sér í lagi í ljósi þess að greiðslan er að hluta í formi hlutabréfa og félagið er því ekki að taka á sig stórar skuldbind- ingar í lánum. í mínum huga er fyr- irtækið nú mun verðmætara en það var fyrir helgi. En það er svo sem skiljanlegt að stofnanafjárfestar bíði fram yfir 6 mánaða uppgjör. Mér finnst það ekkert óeðldegt fyrst þeir tóku þessa afstöðu á sínum tíma. En eftir að það liggur fyrir þá held ég að menn geti ekki annað en tekið þátt í þessu, þar sem þetta er nú orðið eitt af stærri fyrirtækjum landsins." þegar Michael Eisner stjórnarfor- maður neitaði að gera hann að for- stjóra fyrirtækisins. Síðan stofnaði hann DreamWorks kvikmyndaverið ásamt David Geffen og Steven Spiel- berg. Murdoch vill kaupa 50,5% í Fox-rás New York. Reuters. RUPERT Murdoch, forstjóri News Corp., vill kaupa meirihluta í sam- eignarfyrirtæki, sem á fjöl- skyldurásina Fox Family Channel, því að áhorfendum hennar hefur fækkað. Murdoch íhugar að greiða aðal- framkvæmdastjóra Fox Family, Haim Saban, 1,8 mdljarða dollara, fyrir þau 50,5% í rásinni, sem News Corp. á ekki, að sögn USA Today. Fox Famdy hefur misst þriðja hvem áhorfanda síðan í ágúst í fyrra. Áhorfendur voru 242.000 á hverjum degi á fyrstu þremur mánuðum árs- ins, færri en auglýsendum hafði verið talin trú um að sögn blaðsins. Murdoch vUl umskipti í rekstri fyrirtækisins og hefur yfir að ráða 2,8 milljörðum dollara, sem hann fékk með útgáfu hlutabréfa í Fox Entertainment Group. Innan vé- banda þess fyrirtækis er öU kvik- myndastarfsemi News Corp., sjón- varpsþáttagerð og dreifing og eignir í íþróttafélögum í Bandaríkjunum auk 2,5 milljarða dollara í reiðufé og hlutabréfum eftir sölu dagskrár- blaðsins TV Guide. Murdoch og Saban keyptu fjöl- skyldurásina 1997 af sjónvarpsprest- inum Pal Robertson fyrir 1,9 mUlj- arða dollara í reiðufé og skuldum. Þeir gáfu rásinni nafnið Fox Family Channel og rásin tók aftur til starfa í ágúst í fyrra. „Er nú með um 50% markaðshlutdeild“ Ráðstefnan Getting Ahead í R e y k j a v í k M a í 2 8 1 9 9 9 Duysjkfú fúújLBÍnumif Háskólabíó sal 4 A: Markaðssigrar. Fundarstjóri Ingjaldur Hannibalsson prófessor HÍ. 09:00-09:10 Setning. Forseti fslands Herra Úlafur Ragnar Grímsson 09:10-09:40 Lykilatriði árangurrfkrar vðruþróunar. Poul Bellveau forstióri, PDMA USA 09:40-10:10 Fjármögnun nýsköpunar og framkvæmda. Páll Kr. Pálsson framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs. Kaffi 10:40-11:10 11:10-10:40 11:40-12:00 Hádegisverður Nýjar vörur fyrir alheimsmarkað. Oscar E. Pena iðnhönnuður, Philips (taífu. Hönnun í heilstæðu vöruþróunarferli. Per Boelskifte prófessor, NTNU Noregi. Umræður B: Rannsóknir og aðferðafræði vöruþróunar. Fundarstjóri Magnús ÞórJónsson prófessor, HÍ. 13:00-13.25 13:25-13.50 13:50-14:15 14:15-14:30 Kaffi Heilsteypt og markviss vöruþróun. Mogens Myrup Andreasen prófessor, DTU Danmörku. Stjórnun þróunarverkefna. Karl Friðriksson framkvæmdastjóri, Iðntæknistofnun. Hönnun og stefnumótun, Hilmar B. Janusson þróunarstjóri, Össur hf. Umræður C: Leiðir tii árangurs Fundarstjóri Davíð Lúðvlkssson framkvæmdastjóri, Samtökum iðnaðarins 15:00-15:20 Árangur krefst samstarfs. Sofia Bitzen Lic.tec. KTH Svíþjóð. 15:20-15:40 Vöruþróun á (slandi. Jóhannes Sigurjónsson Dr.ing, HÍ/NTNU. 15:40-17:00 Panelumræður um framtíð vöruþróunar og hönnunar á íslandi. Þáttakendur frá Iðnaðarráðuneyti, iðnfyrirtækjum, hönnuðum og Háskólanum. 18.00 Kvöldverður, Hótel Bláa Lónið Fimmtudaginn 27. maí kl. 18.30 verður móttaka í Ráðhúsinu fyrir gesti ráðstefnunnar. Samhliða ráðstefnunni verður sýning í andyri Háskólabíós þar sem kynntar verða m.a. nýjungar í tölvuvæddri hönnun og framleiðslutækní. Verð: 14.000,- (7.000,- fyrir stúdenta). Þ Nánari upplýsingar og skráning í símaj5254648, royndsfma 5254632 og lillá@verk.hi.is 1 h ii lðaU»k»l*tof Btm

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.