Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 31
LISTIR
Hornakvaðning
TONLIST
íslcnzka óperan
KAMMERTÓNLEIKAR
Verk eftir Grieg, Botza, Stiegler,
Bratton og Hándel. Hornleikararnir
Anna Sigurbjörnsdóttir, Ella Vala
Ármannsdóttir, Emil Friðfinnsson,
Gylfi Guðnason, Jóhann Björn
Ævarsson, Joseph Ognibene, Kjartan
Ólafsson, Lilja Valdimarsdóttir, Run-
ólfur Eymundsson, Stefán Jón Bern-
harðsson, Sturlaugur Björnsson,
Svafa Þórhallsdóttir, Torfi Þór Gunn-
arsson og Þorkell Jóelsson. Stjórn-
andi: Joseph Ognibene. Laugardag-
inn 22. maí kl. 17.
HIÐ þriggja ára gamla Hornleik-
arafélag íslands efndi til sérkenni-
legra hljómleika sl. laugardag í and-
dyri Islenzku óperunnar sl. laugar-
dag. Samblástur allt að 14 hornleik-
ara (og eins túbublásara) er fráleitt
hvunndagskostur í annars marg-
breytilegu tónleikaframboði SV-
homsins, og hefði uppátækið því
mátt tendra meiri forvitni en raun
bar vitni. Auk þess heyrist vald-
homið afar sjaldan margraddað ut-
an lúðra- og sinfóníuhljómsveita, og
hefur þar á ofan svo vítt raddsvið,
að það ræður blásturshljóðfæra
bezt við viðfangsefni blandaðra
söngkóra.
Hálfur hornaflokkurinn hóf dag-
skrá á seiðandi Hyllingarmarsi Gri-
egs í útsetningu Róars Kvam, úr
leikhústónlist Griegs við Sigurð
Jórsalafara. Því næst var annað
verk eftir Grieg, hæglát „Land-
kjenning“ eða Landsýn, einnig
þokkalega flutt, þótt veikustu staðir
væra aðeins of háværir. 4 hornistar
úr Sinfóníuhljómsveitinni léku síðan
skemmtilega þríþætta Svítu eftir E.
Botza, þar sem glettinn dreifbýl-
isandi II. og veiðihomaköll III.
þáttar komu glæsilega fram í at-
vinnumannslegri túlkun. Sakamálið
um dularfulla kynningarstefið við
Hitchcock-sjónvarpsþættina (6/8: /
Ia=la=sí=fí ‘ sí. la=re ) upplýstist,
þegar 5 aðrir hornleikarar tottuðu
léttilega „Gounod at the Teddybe-
ars’ Picnic“, sem reyndist eftir J.W.
Bratton (úts. Martinet). Allur
homaskarinn þeytti þvínæst langa
Allegro-þáttinn úr Vatnasvítu
Handels í F-dúr frá 1715, en þar
notaði hann tónskálda fyrst vald-
hom á Bretlandseyjum, enda burð-
argeta þessa víðavangslúðurs slík,
að flest önnur hljóðfæri mættu vera
spanskgræn af öfund. Þegar mest
gekk á ætlaði þakið að rifna af
Gamla bíói, og eyra manns þóttust
KRISTALL
iprttteýt úvjat húrJkaitjiuf jfrf/i
wetmumn
Sólheimum 35, sfmi 533 3634.
Allan sólarhringinn.
greina sneriltrommuþyrl í rifnasta
cuivré- blæstrinum, sem ekki var til
staðar í reyndinni.
Að endingu var bragðið upp
bæverskri Oktoberfest-stemmningu
með þýzkri lagasyrpu, sem lauk
með „Feierliehem Marsch“ er hóp-
urinn blés með miklu trukki. Auka-
lögin voru Abschied vom Walde eft-
ir Mendelssohn og alþekktur
Schuhplattler-vals sem undirr. náði
ekki að nafngreina, en sem er sjálft
inngrip þýzkra alpatónmennta.
Hvað Bretar hafa séð svona
„franskt“ við þýzka valdhomið, er
eiginlega opin spurning.
Ríkarður O. Pálsson
@IiniyLæ
26.-29. maí
Við kyiinuin: „Self-tanning“ brúnkukrem sem
gefafallegan litáandlitog líkama á innan við klukku-
tíma. Prófaðu sólbrúnku sem ekki skaðarþig.
Við bjóðum þérípruful
Efþúverslarfyrir 3.500 kr. Jylgir
taska og aukahlutir með (sjá mynd).
Hafnarstræti 5
Reykja vík
sfmi: 552 9070
Föstudaginn 28. maí,frá kl. 13.00 -18.00 og
laugardaginn 29. maí kl. 11.00 -15.00 verða CLINIQUE
ráðgjafarmeð húðgreiningu. Húðgreiningin erókeypis.
Pantaðu tíma í síma 552 9070 straxl
Nýr stciður fyri
notciðci bílci