Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 32
MIÐVIKUDAGUR 26. MAI1999
MORGUNBLAÐIÐ
Sýnishorn úr söluskrá
1. Lítil, falleg og þekkt sælkeraverslun í miðborginni til sölu. Einstakt
tækifæri fyrir huggulegt fólk sem vill eignast notalegt framtíðarfyrir-
tæki.
2. Sérverslun fyrir krakka upp í 9 ára. Sú eina sinnar tegundar á land-
inu. Flytur að mestu leyti inn sína eigin vöru. Er á góðum stað. Laus
strax vegna veikinda.
3. Ritfanga- og leikfangaverslun í verslunarmiðstöð sem allir þekkja.
Skemmtileg atvinna fyrir snyrtilegan aðila sem leitar að skemmtilegu
og gefandi framfærslufyrirtæki.
4. Einstaklega falleg og nýleg blómabúð til sölu af sérstökum ástæðum.
Er staðsett í heitasta verslunar- og íbúðarhverfi landsins með vax-
andi íbúafjölda. Góð vinnuaðstaða, stór kælir.
5. Heimasala á matvörum. Þekkt og gott fyrirtæki með góð sambönd.
Auðvelt í framkvæmd. Miklir vaxtamöguleikar.
6. Veitingasala á Vesturlandi til sölu. Salirfyrir 100 manns. Bar. Öll
leyfi. Dansleikir um helgar allt árið. Brjálaður tími framundan. Góð
staðsetning á vinsælum stað.
7. Sérhæfð bílaleiga til sölu. Er með útleigu á húsbílum og húsvögnum.
Starfar aðeins yfir sumarmánuðina. Góð sambönd við erlendar ferða-
skrifstofur. Er á netinu.
8. Heildverslun með verkfæri. Vel skipulagt fyrirtæki með góð sambönd
innlend sem erlend. Hægt að margfalda veltuna.
9. Skyndibitastaður á frábærum stað. Er einnig með ísbúð og sælgætis-
verslun. Mikil íssala framundan. Opið aðeins til kl. 20.30 á kvöldin.
Rífandi fyrirtæki fyrir áhugasamt fólk.
10. Framköllunarþjónusta, Ijósmyndavöruverslun, Ijósmyndastúdíó og
innrömmun, allt á einum stað og mikil umsvif. Skapandi fyrirtæki með
mikla tekjumöguleika. Spennandi dæmi sem selst vegna veikinda.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
RYRIRTÆKIASAlAN
SUOURVERI
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
LISTIR
FIÐLAÐ FRAM AF
HENGIFLUGI
TO\IJST
Ilveragerðiskirkja
BJARTAR SUMARNÆTUR
Einleiksfíðluverk eftir Ernst, Biber,
Schubert/Ernst, O’Connor og Pagan-
ini. Amy Beach: Rómansa. Sarasa-
te/Waxman: Carmen fantasia. Bra-
hms: Kvintett í f-moll Op. 34. Rachel
Barton, fiðla; Edda Erlendsdóttir, pi-
anó. Tríó Reykjavíkur (Guðný Guð-
mundsdóttir, fiðla; Peter Máté, píanó;
Gunnar Kvaran, selló) ásamt Ragn-
hildi Pétursdóttur, fiðla & Junah
Chung, vióla. Sunnudaginn 24. mai
kl. 20:30.
ÞRIDÆGRUHATIÐ Hvergerð-
inga, „Björtum sumamóttum“,
lauk með fjölsóttum tónleikum, svo
vægt sé til orða tekið, á sunnudags-
kvöldið var, því grípa þurfti til
aukasæta og virðast færri hafa
komizt að en vildu. Orsök vand-
ræðanna var augljós - hinn ungi
fíðlusnillingur frá Chicago, sem
hreif svo eftirminnilega tónleika-
gesti í Háskólabíói á fimmtudags-
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Is-
forskot
í skólanum
Þáttur tölva í daglegu lífi fer æ stækkandi og tölvukunnátta því nauösynleg. Þess vegna er eins
gott að byrja snemma að auka við sig þekkingu til að ná forskoti. Tölvuskóli Reykjavíkur býður
upp á gagnleg og skemmtileg tölvunámskeið fyrir börn og unglinga í allt sumar.
1. Börn 6 -10 ára, 24 stundir.
Kynning á Windows og notendaforritum sem fylgja þvi. Ýmis kennslu- og
leikjaforrit skoðuð og þar á meðal forrit sem þjálfa rökhugsun. Kynning á
Netinu og kennd er leit þannig að nemendur getir sótt skrár, leiki o.fl.
inn á Netið. Nauðsynlegt er að nemendur séu orðnir læsir.
2. Windows 10 -14 ára, 24 stundir.
Megin áhersla er lögð á að nýta tölvu sér til gagns og er kennt á PC tölvur.
Farið er I fingrasetningu, vélritunaræfingar, Windows stýrikerfi,
ritvinnslu, teikningu, almenna tölvufræði, töflureikni, Netið og leiki.
Áhersla er lögð á að leita á Netinu og ná I skrár, eins og leiki o.fl. Námið
miðar að almennri tölvuþekkingu þannig að nemendur geta að því loknu nýtt
sér tölvuna við nám og leik.
3. Tölvuforritun fyrir 11-15 ára, 24 stundir.
Kennt er að forrita I Visual Basic. Farið er í grunnatriði forritunar og
stefnt að því að nemendur geti sett saman einfalda leiki með hreyfimyndum og
hljóði. (lok námskeiðs fá allir nemendur afrit af leikjunum sem hópurinn
smíðar á námskeiðinu og um 1 MB af forritunarkóðum sem eru lítil forrit eða
forritabútar sem nota má við frekari forritun.
4. Framhaldsnám fyrir 11-15 ára, 24 stundir.
Vefsíðugerð með Frontpage Express, vistun á Netið o.fl. Myndvinnsla með
Photoshop og Microsoft Gif Animator, kennt að ná I myndir af Netinu, breyta
þeim og laga og nota slur. Hljóövinna, tekin upp tónlist af geisladiskum,
hljóði breytt yfir í Mp3, vinnsla með hljóðbrot og tónlistarheimaslður.
Útvarpsstöðvar á Netinu skoðaðar.
Kr. 13.900.
Kr. 13.900
Kr. 15.900.
Kr. 15.900,-
Tölvuskóli
Reykjavíkur
Borgartúni 28, sími 561 6699
www.tolvuskoli.is
tolvuskoli @ tolvuskoli.is
lands og Vassilys Sinaiskys þrem
dögum áður. Rachel Barton átti
óskipta athygli áheyrenda í fimm
fyrstu dagskrárliðum, sem voru
fiðluverk án undirleiks, en naut pí-
anósamleiks Eddu Erlendsdóttur í
Rómönsunni og Carmen fantasí-
unni síðast fyrir hlé.
Það er óhætt að segja, að Rachel
Barton hafi sett glæsilegan loka-
punkt á Sumamóttum með kraft-
miklum leik og skemmtilegum
kynningum, enda voru undirtektir
með afbrigðum góðar. Hún endur-
flutti fyrst eitt aukalaga hennar á
sinfóníutónleikunum, tilbrigðin um
Síðustu rós sumarsins eftir H.W.
Ernst, með tilheyrandi flugelda-
fimi þar sem samtímis bogastrok
og vinstrihandarplokk voru greini:
lega minnsta mál í heimi. í
Passacaglíu miðbarokkmeistarans
Heinrichs Biber, höfundar
Rósakross-sónatnanna, nálgaðist
hún tjáningarmáta upphafs-
hyggjuflytjenda af sannfærandi
næmni, án þess þó að fara alla leið.
Alfakóngur Schuberts birtist
þamæst í sjaldheyrðri útgáfu
Heinrichs Emsts fyrir einleiks-
fíðlu, þar sem fiðluleikarinn verður
líkt og Sesar við Bibracte að gera
fernt í senn, í þessu tilviki að túlka
jódyninn, fóðurinn, drenginn og
álfakónginn - með þeim afleiðing-
um að allt ætlaði um koll að keyra.
Þamæst var síðasta Kaprísa am-
eríska þjóðlagafiðlarans Marks
O’Connors, sem samdi 6 slíkar
undir áhrifum frá Paganini; svip-
mikið og furðu klassískt lítið
virtúósaverk, þar sem neistandi
bogatækni Bartons nærri því
kveikti í milljónagripnum sem hún
lék á, Amati-fiðlu sem fjársterkur
kostunaraðilji fiðlarans hefði að
sögn bjargað úr dásvefni banka-
hvelfingar henni til handa. Það var
umhugsunarefni, að þetta forláta
hljóðfæri skyldi þegar hafa verið
hálfrar aldar gamalt, þegar Biber
samdi sónötur sínar launhelgu á
ofanverðri 17. öld.
Það minnti svolítið á þegar sov-
ézkur þungaviktarlyftari setti
ólympíumet um árið og hnykkti á
með því að standa einum fæti und-
ir farginu, þegar Rachel Barton
bauð áheyrendum að velja eina af
kaprísum Paganinis. Eftir nokkuð
hik var kallað „nr. 9!“, sem Barton
renndi í gegn af bragði. Oðara
bætti hún við nr. 1, og benti
áhyggjuleysi einleikarans til að
nm.
Kynning á kanad-
ískum rithöfundi
JÓHANN G. Thorarensen, MA í
ensku, kynnir kanadíska rithöfund-
inn Robertson Davies í fyrirlestri
sem haldinn verður á morgun, laug-
ardag kl. 14 í Odda, stofu 101.
Kynningin er á vegum enskuskorar
Háskóla íslands og íslandsdeildar
GÓLFEFNABÚÐIN
Borgartúni 33
^j^æða flísar
^jyæða parket
íjwóð verð
þjónusta
fingurbrjótar hins ítalska skjól-
stæðings myrkrahöfðingjans að
áliti fyrri tíma væri henni daglegt
brauð. Síðan léku þær Barton og
Edda Erlendsdóttur ljóðræna Ró-
mönsu Amyar Beach (1867-1944),
fyrsta kvenkyns sinfónista Banda-
ríkjanna („Gelíska“ sinfónían
1896) og klykktu út með blóðheitri
Carmen-fantasíu Sarasates í út-
færslu ameríska kvikmyndatón-
skáldsins Franz Waxmans við
dynjandi fagnaðarlæti hlustenda,
enda framúrskarandi flutt af báð-
um, þó að samæfingartími hljóm-
listarkvennanna hljóti að hafa ver-
ið naumur, eins og stöku sinni
heyrðist. Það var að sönnu
örvandi að heyra fiðluleik þar sem
teflt var á tæpasta vað og ekki
hikað við að taka áhættur. Slíkt er
a.m.k. fágætt í gerilsneyddum
geisladisksupptökum nútímans,
enda hengiflugið vísasta leiðin til
bjargar lifandi tónflutningi í
tæknivæddu neyzlusamfélagi
framtíðar.
Tríó Reykjavíkur ásamt Junah
Chung og Ragnhildur Pétursdóttir
léku síðast æskumeistaraverk Bra-
hms Op. 34 frá 1850 fyrir píanó og
strengjakvartett, sem hóf lífdaga
sem strengjakvintett og síðar pían-
ódúett, áður en Brahms rataði á
endanlega hljóðfæraskipan fyrir
ábendingu Clöru Schumann, hugs-
anlega með hliðsjón af 8 árum eldri
Es-dúr kvintett Róberts Op. 44.
Þetta er ótrúlega þroskað verk frá
stálpuðum táningi sem nálgast víða
sinfóníska breidd, einkum í loka-
þættinum, og ekki lítið afrek að
fullæfa á fáeinum dögum með
ókunnu viðbótarfólki, en hópnum
tókst merkilega vel upp, mest
áberandi í hottandi Scherzóinu og
enn meir í dýnamískum fínalnum,
sem var sérlega samtaka. Helzt
saknaði maður fyllri og heilstæðari
kvartettsamhljóms; það hefði að
öllu jöfnu mátt heyrast betur í inn-
röddum strengjanna. Lofsverður
nettleiki Peters Máté, sem stóð sig
eins og hetja í krefjandi píanópart-
inum, kostaði einstaka „loftnótu" á
veikustu stöðum, enda aðeins
hljómborðshlið flygilloksins opin
þetta kvöld - skynsamleg ráðstöfun
í hljómburði sem virðist henta söng
og strokleik dável, en vera full
rausnarlegur gagnvart slaghörpu-
Ríkarður Ö. Pálsson
norræna félagsins um kanadísk
fræði.
Davies er einn kunnasti rithöfund-
ur Kanadamanna á þessari öld, en
vinsælastar eru skáldsögur hans, þar
sem fremstar fara trílógíumar þrjár
sem kenndar eru við Salterton,
Deptford og Comish. Auk þess að
kynna ævi og störf Davies mun Jó-
hann ræða þá gagnrýnu siðvitund
sem liggur að baki ævintýra- og goð-
sagnakenndum sagnaheimi Davies.