Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 33
LISTIR
Fólk hættir vegna samstarfsörðugleika við leikhússtjóra LR
Framkvæmdastj órinn
segir andrúmsloftið
mjög gott í húsinu
„ÞEGAR ég kom hér
var Leikfélag Reykja-
víkur í rústum. Undan-
farin tvö ár hefur hins
vegar gengið mjög vel.
Síðasta leikár var metár
hér í Borgarleikhúsinu
og stefnir í að þetta
verði enn betra. Aðsókn
hefur margfaldast,
starfsemi aukist og
starfsfólki íjölgað
menningarstofnun hefur
risið úr rústum. Eftir
þessu virðist enginn
taka en þegar örfáir
starfsmenn hætta þykir
það fréttnæmt. Frá mín-
um bæjardyrum séð er
þetta bara stormur í
vatnsglasi," segir Þórhildur Þorleifs-
dóttir, leikhússtjóri Leikfélags
Reykjavíkur, en nokkrir starfsmenn
hafa ýmist látið af störfum nýverið
eða eru að hætta hjá Leikfélaginu.
Einn þessara aðila, Jóna Finns-
dóttir framkvæmdastjóri, segir ekk-
ert óeðlilegt við þetta brotthvarf.
Hjá stofnun með á bilinu 160-200
manns á launaskrá sé ekkert undar-
legt að nokkrir starfsmenn hverfi á
braut um svipað leyti. „Reyndar hef-
m- þetta fólk, sem tínt hefur verið til,
verið að hætta á undanförnum sjö
mánuðum og sumir, eins og Robert
Clifford sviðsstjóri, voru bara ráðnir
í einstök verkefni.“
Að sögn Jónu er andrúmsloftið í
Borgarleikhúsinu mjög gott um þess-
ar mundir og mikill kraftur í fólki.
Fyrir sitt leyti vill Jóna, að gefnu
tilefni, taka það sérstaklega fram að
samstarf hennar við leikhússtjórann
hafi verið ákaflega
gott. „Astæðan fyrir.
því að ég er að hætta
er ekki sú að ég sé að
forðast Þórhildi Þor-
leifsdóttur. Öðru nær.
Það hefur ekki borið
skugga á okkar sam-
starf. Astæðan er sú að
ég er að fara í aðra
vinnu, var reyndar
bara ráðin tímabundið
héma og ætlaði mér
ekkert frekar að ílend-
ast,“ segir Jóna en hún
tekur senn við starfi
framkvæmdastj óra
Listaháskóla Islands.
Hafliði Arngrímsson
leiklistarráðunautur,
sem einnig er á förum frá LR, hefur
aðra sögu að segja. Segir hann eink-
um tvær ástæður fyrir uppsögn
sinni. Annars vegai- hafi þekking
hans, reynsla og menntun ekki nýst
sem skyldi í Borgarleikhúsinu og
hins vegar sé því ekki að leyna að
hann hafi ekki getað sætt sig við „yf-
irbragð stjómunarstílsins“ þai- á bæ.
„Þetta er ekki skyndiákvörðun af
minni hálfu. Mælirinn hefur smám
saman verið að fyllast. Ég nýt þess
að vinna í leikhúsi og hef fyrir stórri
fjölskyldu að sjá, þannig að ákvörð-
unin var mjög erfið, en á móti kemur
að maður getur ekki unnið til lengd-
ar á stað þar sem manni líður illa.
Þess vegna segi ég hljóðlega bless og
óska leikhúsinu um leið bjartrar og
gleðilegrar framtíðar."
Valdís Gunnarsdóttir, sem lét af
starfi leikhúsritara fyrr á leikárinu,
tekur í svipaðan streng og Hafliði.
„Ég sagði upp vegna þess að ég var
ósátt yið stjórnunarstíl leikhússtjór-
ans. Ég geri þá kröfu til stjórnanda í
leikhúsi að hann örvi sitt fólk og
virki krafta þess. Það gerir Þórhild-
ur Þorleifsdóttir ekki. Þess vegna
fékk ég ekki notið mín í þessu
starfi."
Ingibjörg Elfa Bjarnadóttir sýn-
ingarstjóri, sem lét af störfum 1.
mars síðastliðinn, staðfestir einnig
að hún hafi hætt vegna óánægju
með stjórnunarstíl leikhússtjórans.
„Það er ákaflega erfitt að vinna með
Þórhildi. Hún öskrar á fólk og niður-
lægir það - helst fyrir framan aðra,
fyrirvaralaust og oft út af smámun-
um. Það er engin tilviljun að svona
margir hafa yfirgefið Leikfélagið
eftir að Þórhildur kom til starfa.
Þetta vandamál hefur hins vegar
ekki farið hátt, enda er fólk skít-
hrætt við að gagnrýna þessa konu
opinberlega.”
Um þessa gagnrýni segir Þórhild-
ur: „Hver og einn verður að eiga það
við sig hvort hann er ánægður eða
óánægður á þessari góðu siglingu
sem skútan hefur verið á. Það eru
tvær hliðar á hverju máli. Annar að-
ilinn kýs að lýsa sinni, ég kýs að lýsa
ekki minni í fjölmiðlum.“
Friðrika Benónýsdóttir hefur þeg-
ar leyst Valdísi Gunnarsdóttur af
hólmi sem leikhúsritari og Guðrún
Vilmundardóttir leikhúsfræðingur,
sem lært hefur í Frakklandi og Belg-
íu, hefur verið ráðin leiklistarráðu-
nautur LR frá og með næsta hausti.
Umsóknarfrestur um stöðu fram-
kvæmdastjóra er runninn út og
verður, að sögn Þórhildar, ráðið í
starfíð fljótlega.
SAMKEPPNI
UM HÖNNUN
SÝNINGA í
ÞJÓÐMINJASAFNI
ÍSLANDS
Dómnefnd, sem
Menntamálaráðherra
skipaði vegna samkeppni
um sýningar í
Þjóðminjasafni íslands,
óskar eftir tillögum um
gerð nýrra grunnsýninga
í safninu.
Nú standa yfir umtalsverðar endurbætur á húsnæði Þjóðminjasafnsins
við Suðurgötu. Ný viðbygging mun rísa við suðurenda hússins og
þar verður aðalinngangur þess. Sýningarsvæði í safninu stækkar
og verður í heild um 2.500 m2. Hluti af endurbótum í
Þjóðminjasafninu felst í hönnun og uppsetningu nýrra sýninga og
er þessi samkeppni hluti af því verkefni. Þjóðminjasafnið verður
opnað eftir endurbætur á húsnæðinu og uppsetningu nýrra sýninga
um mitt ár 2001.
Samkeppnin er svokölluð tveggja þrepa keppni. Fyrra þrepið er
hugmyndasamkeppni en á síðara þrepi útfæra þeir keppendur sem
dómnefnd velur úr fyrra þrepi tillögur sínar nánar.
Samkeppnin er haldin samkvæmt keppnisreglum í samkeppnis-
lýsingu og reglum um innkaup ríkisins. Sérstök athygli er vakin á
því að öllum er heimil þátttaka (fyrra þrepi samkeppninnar, að
undanskildum þeim sem hafa komið að undirbúningi hennar.
Samkeppnin er auglýst á evrópska efnahagssvæðinu (EES).
Öll útgefin gögn í samkeppninni eru á íslensku en finna má helstu
upplýsingar um keppnina á bæði íslensku og ensku á vefsíðu
samkeppninnar http-J/syning.natmus.is.
Samkeppnislýsing er afhent án endurgjalds en önnur samkeppnisgögn
verða seld gegn skilatryggingu kr. 5.000,- frá og með 27. maí 1999
hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík. Tillögum í fyrra þrepi
skal skiia til trúnaðarmanns eigi síðar 15. september 1999.
Já, hver er hann?
KVIKMYIVPIR
Stjörnubfó
HVER ER ÉG? „WHO AM I?“ ★★
Leikstjóri: Benny Chan og Jackie
Chan. Handrit: Jackie Chan og Susan
Chan. Framleiðandi: Jackie Chan.
Aðalhlutverk: Jackie Chan,
Michelle Ferre, Mirai Yamamoto,
Ron Smerzack. 1998.
HONG Kong hetjan Jackie Chan
spyr að því í titli nýjustu myndar
sinnar hver hann sé. Hún heitir
einfaldlega Hver er ég? eða „Who
Am I“, „Ngo hai sui“ á kínversku.
Margs konar svör koma upp í hug-
ann en einfaldast væri að segja
hann einráðan B-myndasmið sem
leikur sjálfur í sínum miklu
áhættuatriðum. Annars er hann
svo margt. í þessari nýju mynd
sinni t.d. gegnir hann hlutverki
handritshöfundar, leikstjóra, fram-
leiðanda og aðalleikara og minnir
að því leytinu á Clint Eastwood nú
eða bara Ed Wood.
Sem handritshöfundur hefúr
hann búið til óhemju mikið og und-
urfurðulegt alþjóðlegt plott varð-
andi CIA og ég held loftsteina
gæddum ótrúlegum orkumassa;
auk þess hefur hann upphugsað
þetta frábæra nafn á myndina.
Sem framleiðandi hefur hann fund-
ið einhverja þá verstu B-mynda-
leikara sem hægt er að ímynda sér
og sett þá í burðarhlutverk. Sem
leikstjóri blandar hann þessu
tvennu saman svo úr verður eins
konar James Bond mynd fyrir við-
vaninga. Sem aðal- og áhættuleik-
ari rennir hann sér á rassinum nið-
ur stórbyggingu í Rotterdam. Það
er stóra eintalið hans í myndinni.
Jackie Chan býr til afþreyingar-
myndir og þykist vita hvað áhorf-
endur vilja. Það verður ekki annað
sagt en það sem hann geri, gerir
hann af einstakri alúð og ástríðu
fyrir hasarmyndum. I Hver er ég?
tekst honum betur upp en oft áður
og gerir mjmdina á sína vísu að
sæmilegustu afþreyingu. A sína
vísu.
Arnaldur Indriðason
^mb l.is
ALLTAf= etTTH\SA& NÝTl
CLINIQUL
ofnæmisprófað
mongethappy.
Lífsgleði njóttu!
Frábær ilmur
frá Clinique fyrir konur.
clinique happy
Angan af ávöxtum
og ótal blómum.
Lífsgleðin sjálf!
Nýtt — Nýtt
200 ml. Clinique
Happy Body Mist.
CLINIQUE
SUMARBÚBiR SKATA
ÚLFUÚTSVATNI
SCMARBÚÐIR SKÁTA ÚLFLIÓTSVATNI
VIKU ÚTILÍFS- OG ÆVINTÝRANÁMSKEIÐ
Innritun er hafin fyrir 6-16 ára í Skátahúsinu Snorrabraut 60 í síma 562 1390