Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 42
MORGUNBLAÐIÐ
42 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999
*
' *
Morð í þús-
undatali
Enn hefur umrædan um áhrif ofbeldis
í sjónvarpi á hegðun barna og unglinga
fengið byr í kjölfar tveggja skotárása í
bandarískum framhaldsskólum.
Eftir Hávar
Sigurjónsson
■ jarni umræðunnar
um áhrif alþjóðlegr-
ar sjónvarpsvæðing-
ar, alþjóðlegrar
ringamyndunar á
sviði dreifmgar efnis um heims-
byggðina og einsleitni efnisins
sem dreift er, snýst um hver
áhrif þetta hefur á þjóðarvitund
einstakra þjóða. Um víða veröld
fer þessi umræða fram á svipuð-
um nótum, megnið af því efni
sem almenningur horfír á, hvort
sem er hér uppi á íslandi eða
annars staðar, er hið sama og
speglar jafnilla veruleika áhorf-
andans, menningarlegt umhverfí
hans, hugmyndaheim, þjóðemi,
sjálfsvitund og tungumál. Vegna
yfírburðastöðu sinnar í fram-
leiðslu og dreifíngu afþreyingar-
UIRUADE efnis íyrir sjón-
VIÐnUnr varp hafa
Bandaríkin
orðið sjálfsagð-
ur sökudólgur í
málinu; nútímaheimsvaldastefn-
an hefur jafnvel verið skilgreind
sem hnattvæðing amerískrar af-
þreyingar sem leggist yfír öll
byggð veraldarinnar ból. Á móti
hefur verið sagt að áhrif alþjóð-
legrar afþreyingar séu með
þessu stórlega ofmetin, hinn al-
menni áhorfandi meðtaki afþrey-
inguna sem slíka og geri skýran
greinarmun á gildi sjónvarpsefn-
is eftir uppruna þess og inni-
haldi. Þeir sem líta afþreyingar-
efnið mestu hornauga draga upp
mynd af áhorfandanum sem
vamarlausu fómarlambi for-
heimskandi áhrifa lágkúrannar.
Þetta sjónarmið er á undanhaldi
og hinu vex fylgi að áhorfandinn
vinni úr því efni sem fyrir hann
er borið, dragi ályktanir og
ákvarði vægi þess í hugmynda-
heimi sínum; af sumu megi
hreinlega hafa ánægju án þess
að lítilfjörlegt innihaldið liti við-
horf viðkomandi til umhverfisins
um aldur og ævi.
Fyrirbærið „staðlaður áhorf-
andi“ er ekki til fremur en að
hugtakið „hinn almenni áhorf-
andi“ er til einhvers gagns.
Áhorfandinn er alltaf einstak-
lingurinn sem um ræðir hverju
sinni og forsendur hans fyrir vali
á sjónvarpsefni og hvernig hann
meðtekur það er háð bakgranni
hans, kyni, aldri, stöðu o.s.frv.
Því verður að gera skýran grein-
armun á börnum sem áhorfend-
um og fullorðnum einstakling-
um. Gera verður ráð fyrir að
fullorðinn einstaklingur hafí
sæmilega mótaða mynd af sjálf-
um sér og umhverfi sínu. Börn
eru eðli málsins samkvæmt í
mótun, hugmyndir þeirra um
samskipti og kynhlutverk taka
mið af því sem þau heyra og sjá í
kringum sig. Hversu mikil áhrif
sjónvarpið hefur beinlínis á slíka
mótun hefur aldrei verið hægt
að ákvarða með neinni vissu,
enda sjálfsagt ómögulegt. „Sumt
sjónvarpsefni getur verið skað-
legt sumum börnum undir sum-
um kringumstæðum. Fyrir önn-
ur böm við sömu kringumstæð-
ur, eða fyrir sömu börnin undir
öðrum kringumstæðum getur
sjónvarpsefnið verið bæði gott
og gagnlegt. Fyrirflest börn, við
flestar kringumstæður, er flest
sjónvarpsefni sennilega hvorki
skaðlegt né sérstaklega gott og
gagnlegt." Kjarni þessarar
frægu tilvitnunar í rannsókn frá
sjöunda áratugnum er sá að fé-
lagslegar aðstæður bamsins
ráða mestu um hver áhrif sjón-
varpsefnið hefur á þroska þess
til góðs eða ills.
Enn hefur umræðan um áhrif
ofbeldis í sjónvarpi á hegðun
barna og unglinga fengið byr í
kjölfar tveggja skotárása í
bandarískum menntaskólum í
vor. Ekki virðast menn lengur
deila um hvort sjónvarpsofbeldið
hafí áhrif, umræðan er vaxin upp
úr því, heldur er nú tekist á um
hversu mikil áhrif sjónvarpsof-
beldið kunni að hafa. Spurt er:
hvaða áhrif hefur það á banda-
rísk börn að hafa séð fjöratíu
þúsund morð í sjónvarpi, af
myndböndum og í kvikmynda-
húsum þegar þau ná 18 ára
aldri? Þá era auðvitað ótalin öll
ofbeldisatriðin sem leiða ekki til
dauða einnar eða fleiri af per-
sónunum. Vafalaust er hægt að
svara því til að miðað við allan
fjöldann, hafi þetta sviðsetta
mannfall hverfandi áhrif. í öllu
falli verða hlutfallslega fáir að
morðingjum þrátt íyrir sjón-
varpið sbr. setninguna „Fyrir
flest börn, við flestar kringum-
stæður...“. Hin endanlega
ábyrgð um hvort tiltekið bam
beri mikinn, lítinn eða engan
skaða af því að horfa á sjón-
varpsofbeldi hefur hingað til að
mestu hvílt á foreldranum.
Líklegt er að þau böm sem setn-
ingin „Sumt sjónvarpsefni getur
verið skaðlegt sumum börnum
undir sumum kringumstæð-
um...“á við, búi einmitt við þær
kringumstæður að njóta hvað
minnstrar forsjár eða aðhalds
við áhorf á ofbeldi í sjónvarpi.
Réttmætt rök eru það því að lík-
lega hefðu enn færri orðið morð-
ingjar ef ekki væri ofbeldið í
myndmiðlunum. Hversu gegn-
sýrt ofbeldi samfélagið er orðið
og hversu ofbeldishneigð börnin
verða er kannski ekki lengur
jafnfréttnæmt og fjöldamorð í
menntaskóla, en það segir þá
nokkra sögu ef unglingur kemst
ekki í heimsfréttirnar fyrr en
hann hefur myrt a.m.k. tvo.
Við getum vafalaust huggað
okkur við að heldur færri ofbeld-
isatriði ber fyrir augu bamanna
okkar sem horfa á sjónvarp hér
á Islandi. Engum blöðum er
samt um það fletta að ofbeldi í
sjónvarpsefni íslensku stöðvanna
er mikið og hvort það ræður úr-
slitum að íslenski unglingurinn
hefur séð tíu, fímmtán eða tutt-
ugu þúsund morð í stað fjörutíu
þúsund skal ósagt látið. Skot-
vopnadýrkun Bandaríkjamanna
á sjálfsagt stóran þátt í hversu
grófir ofbeldisglæpir hafa þar
verið framdir en við ættum samt
ekki að láta það blekkja okkur til
þess að telja íslenska (innflutta)
sjónvarpsofbeldið áhrifalaust.
Það vekur óneitanlega furðu
okkar sakleysingjanna hér uppi
á Fróni að í bandaríska þinginu
hafí verið tekist á um það hvort
leyfa eigi unglingum að kaupa
skotvopn eða ekki. Þarf eitthvað
að ræða það? Til hvers þarf 15
ára unglingur að eiga skamm-
byssu? Eða til hvers þarf 17 ára
unglingur að eiga hálfsjálfvirkan
riffíl? Era þetta spurningar sem
þarf að ræða í alvöru? Eru svör-
in ekki borðleggjandi?
HESTAR
Ungur stóðhestur slær í gegn
Fimmtíu pantanir eftir
sýninguna á Ingólfshvoli
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
SUÐRI tveggja vetra undir hlöðuvegg heima í Holtsmúla.
STJÖRNUR skjótast alltaf öðra
hvora upp á himin hrossaræktar-
innar og það gerðist á fóstudags-
kvöldið í Ölfushöllinni að Ingólfs-
hvoli þegar Sigurður Sæmundsson
hrossabóndi í Holtsmúla og lands-
liðseinvaldur mætti með eitt af-
sprengi ræktunar Holtsmúlabús-
ins, sem er í eigu Sigurðar og fjöl-
skyldu hans. Var þar á ferðinni
Suðri frá Holtsmúla, fjögurra vetra
foli undan Orra frá Þúfu og Skálm
frá Köldukinn, sem er klárhryssa
með fyrstu verðlaun. Suðri var
taminn í vetur af verknámsnema
frá Hólum, Þórami Eymundssyni,
sem vann hjá búinu í vetur. Þess
má get að Þórarinn hlaut Morgun-
blaðsskeifuna á Hólum á síðasta
ári.
Bókstaflega
frísneskur
Suðri var sýndur án knapa þar
sem hann var látinn hlaupa frjáls
um reiðhöllina. Vakti hann þvílíka
hrifningu meðal fjögur hundrað
sýningargesta að annað eins hefur
vart þekkst. Viðbrögð þeirra sem
sáu hestinn voru mjög sterk, yfir-
náttúrulegar fótahreyfingar, bók-
staflega frísneskur hestur, undra-
hestur.
Sagði Sigurður að strax að lok-
inni sýningu um kvöldið hefðu
komið pantanir fýrir 50 hryssur
undir hestinn í sumar og síminn
hefði vart stoppað heima í Holts-
múla. Það vekur athygli, að hestur-
inn skuli slá svo rækilega í gegn án
þess að vera riðið né hafa í dóm
komið. Hingað til hafa folar ekki
getið sér mikla frægð né vakið eft-
irtekt með þessum hætti.
Óvenju mikil hreyfingafegurð
ásamt góðu sköpulagi var það sem
heillaði sýningargesti og þótti fol-
inn óvenju léttbyggður miðað við
að vera undan Orra frá Þúfu sem
hefur gefið háls í þykkara lagi.
Fótahreyfingar hestsins era mjög
háar og rúmar og sér í lagi þykir
góð spyrna í afturfótasporinu.
Ekki verður farið með Suðra í dóm
þetta árið að sögn Sigurðar frekar
en önnur hross frá Holtsmúla. Sig-
urður varð fyrir óhappi á miðjum
vetri þegar trippi sem hann reið
fór að stinga sér og lenti hann
óþyrmilega á hnakknum með þeim
afleiðingum að hann tognaði illa og
hefur lítið getað sinnt útreiðum síð-
an. Af þessum sökum hefur öllum
yngri hrossum verið sleppt og ljóst
að dómar á hrossum frá Holtsmúla
verða að bíða betri tíma.
Sef alveg rólegur
„Ég sef nú alveg rólegur yfir
þessum fola þótt hann fari ekki í
dóm þetta árið. Ég held að sú
tamning sem hann fékk í vetur sé
hæfileg. Það var aðeins opnað tölt-
ið í lok tamningatímans og sýndist
mér það vera í góðu lagi, fór vel á
hægu tölti og alveg upp í góða
milliferð með góðum hreyfingum.
Það verður að gæta sín á að hvell-
gangsetja ekki hross með svona
miklar hreyfingar því lítið mál er
að ríða alla hreyfingu úr svona
trippi. Það er mikilvægt að við-
halda og vernda þessa miklu aftur-
fótaspyrnu sem folinn hefur,“ segir
Sigurður og bætir við að lengi hafi
legið ljóst fyrir að hér væri hestur
á ferðinni sem hefði mjög miklar
hreyfingar.
Pöntunum undir Suðra rigndi yf-
ir Sigurð á föstudagskvöldið og fol-
inn að sjálfsögðu valinn hestur
kvöldsins af sýningargestum og
sagði Sigurður að fullbókað væri
undir hann og nú þegar kominn
langur biðlisti og ekkert þýddi að
vera að hringja lengur. Þá upplýsti
hann að mjög tæpt hefði staðið að
Suðri hefði verið seldur úr landi.
„Utlendingar hafa legið í mér að fá
folann keyptan og munaði litlu í
eitt skiptið að ég léti hann róa,“
segir Sigurður.
Hár í kynbótamati
Suðri er feikna stigahár í kyn-
bótamati og má þar nefna 131 fyrir
tölt, 132 fyrir brokk, 135 fyrir vilja
og 136 fyrir fegurð í reið svo eitt-
hvað sé nefnt. Af sköpulagsatrið-
um fær hann hæst 123 fyrir hófa.
Aðaleinkunn kynbótamats er 124.
Orra, föður Suðra, þekkja allir en
móðirin, Skálm, er minna þekkt.
Hana fékk Sigurður á næsta bæ,
Köldukinn, en hún er undan þeim
ágæta hesti Hrafni frá Öndólfs-
stöðum og Skessu frá Þverlæk.
Hún hefur hlotið 7,98 fyrir sköpu-
lag, hæst 8,5 fyrir háls, herðar og
bóga. Fyrir hæfileika hefur hún
hæst hlotið 8,07, þar af 9,5 fyrir
stökk, 9,0 fyrir brokk og fegurð í
reið og 8,5 fyrir tölt. En nú fer
Suðri að sinna hryssum og fer
sjálfsagt litlum sögum af honum
þar til að ári liðnu og má gera ráð
fyrir að fylgst verði vel með hon-
um næsta vetur.
Það má svo skjóta því með að
Holtsmúlabúið á einn tveggja vetra
fola, albróður Suðra, en sá er rauð-
glófextur og tók Sigurður fram að
hann væri alveg snjakahvítur á fax
og tagl.
Valdimar Kristinsson
V eraldarfengur
í framför
VERALDARFENGUR, sem
tengdur er gagnagranni Bænda-
samtaka íslands, hefur nú verið
betrambættur. Er þar fyrst að
nefna að gagnagrunnurinn verð-
ur uppfærður mjög reglulega og
því mögulegt að fá nýjustu upp-
lýsingar í gegnum Veraldarfeng í
sumar. Segir í fréttatilkynningu
frá BÍ, að ætlunin sé að uppfæra
hann fljótlega eftir hverja kyn-
bótasýningu eða á eins til tveggja
vikna fresti. Veraldarfengur hef-
ur sem kunnugt er verið á ís-
lensku og ensku en fljótlega
munu þýskumælandi áhugamenn
geta skoðað síðuna án tungu-
málaerfiðleika.
Þá er þess getið að hægt er að
finna mikið af upplýsingum
tengdar íslenska hestinum á
heimasíðu BI þar sem slóðin er
www.bondi.is. Með því að velja
búgreinar og síðan hrossarækt
má finna margt sem kann að
vekja áhuga hestamanna. Má þar
nefna stigakvarðann fyrir dóm-
skalann sem notaður er við kyn-
bótadóma. Þar geta menn lesið
rökstuðning fyrir hverri einkunn
fyrir hvert atriði í dómstiganum.
Nú þegar era á síðunni dómar frá
sýningunni í Gunnarsholti um
síðustu mánaðamót og sömuleiðis
frá dómum í Þýskalandi frá því í
apríl sl. Ætlunin er að upplýsing-
ar um allar kynbótasýningar
verði á þessari síðu í framtíðinni
og verður reynt að birta dóma
samdægurs eða sem fyrst.
Einnig verða sýningarskrár á
síðunni, sem gefur kost á að sjá
hvaða hross munu mæta til dóms
á hverjum stað. Auk þess verður
reynt að bæta við vefinn öllum
öðram áhugaverðum upplýsing-
um varðandi kynbótadóma sem
kunna að berast til Bændasam-
takanna.
Slóðin inn á Veraldarfeng er:
www.bondi.is/fengur og eru þrír
möguleikar varðandi áskrift.
Hægt er að vera áskrifandi í
þrjá mánuði, sem kostar þá
1,900 krónur eða 3,000 krónur í
sex mánuði og þriðji möguleik-
inn er ársáskrift, sem kostar
5.500 krónur. Eigendur forrits-
ins Islandsfengs fá ókeypis
áskrift.