Morgunblaðið - 26.05.1999, Qupperneq 47
I
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 47
UMRÆÐAN
Fjölgun ráðherra kostar
hundruð milljóna!
FATT ANNAÐ
kemst að í umræðum
um áframhaldandi rík-
isstjóm Sjálfstæðis-
flokksins og Fram-
sóknarflokksins en
hverjir munu verma
ráðherrastóla. Svo mik-
il er eftirspumin meðal
þingmanna þessara
flokka eftir ráðherra-
stólum, að nánast virð-
ist gengið út frá því að
þau vandamál verði
ekki leyst nema með
fjölgun ráðherra - úr
10 í 12 talsins. Og ein- _ , , t
faldar og otruverðugar _
skynngar, eða ollu
heldur afsakanir forsætisráðherra á
því, hvað eiginlega kalli á þessi við-
bótarútgjöld ríkissjóðs, þessa fjölg-
un ráðherrastóla, virðast ganga í
flesta fjölmiðla þessa lands gagn-
rýnilítið.
til sameiningar ráðu-
neyta og þar með
fækkunar ráðherra frá
því sem nú er í stað
fjölgunar þeirra.
Fækkun í
átta ráðuneyti
Skoðum nokkur at-
riði í þessu sambandi
og eitt módel sem vel
mætti skoða nánar.
Ráðuneytin yrðu átta
talsins - og ráðherr-
arnir jafnmargir.
Sparnaður yrði umtals-
verður. Ekki eingöngu
vegna kostnaður í
kringum ráðherrana
sjálfa heldur ekki síður í embættis-
mannakerfmu, því fækka mætti
æðstu yfirmönnum, ráðuneytis-
stjóram og fleiri æðstu embættis-
Ráðuneyti
Aukin yfirbygging
Þessi fjölgun ráðherra er með
öllu ástæðulaus og eykur útgjöld
umtalsvert fyrir ríkissjóð. Ohætt er
að fullyrða að 100 milljóna króna
aukakostnaður falli til á kjörtímabil-
inu vegna hvers nýs ráðherrastóls.
Með öðram orðum 200 milljónir
króna vegna hinna tveggja nýju
stóla á kjörtímabilinu - 50 milljónir
á ári. Og það er bara startkostnað-
ur, sem fólgin er í ráðherralaunum
umfram þingfararkaup, launum og
öðram kostnaði vegna aðstoðar-
manna ráðherra og bifreiðastjóra
þeirra. Að ógleymdum kostnaði
vegna bifreiða. Þama til viðbótar
gætu mjög flótlega fallið til nýir
kostnaðarliðir, áður óþekktir þegar
viðkomandi ráðuneyti var áður
stýrt af ráðherra sem hafði einnig
annað ráðuneyti.
Hér er því miður einfaldlega farin
gamla leiðin ljúfa í stað þess að
ganga nú til verka og einhenda sér í
það viðfangsefni að endurskoða frá
grunni verkaskiptingu ráðuneyta,
sem menn hafa verið að ræða í al-
vöra um langt árabil. í þeirri um-
ræðu hafa margar gagnlegar hug-
myndir komið fram, sem gætu leitt
Mikilvægt er að opna
þessa umræðu upp á
gátt, segir Guðmundur
Árni Stefánsson, í stað
þess að fara hallæris-
leiðina og fjölga bara
stólum til að mæta
eftirspurn.
mönnum og gera starfsemi stjórn-
arráðsins skilvirkari, skýrari og ár-
angursríkari en nú er.
1. Forsætisráðuneyti og hagstofan
2. Utanríkisráðuneyti
3. Fjármálaráðuneyti
4. Menntamálaráðuneyti
5. Atvinnuvegaráðuneyti (viðskipti,
sjávarútvegur, iðnaður og land-
búnaður)
6. Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneyti
7. Félagsmála- og samgönguráðu-
neyti
8. Umhverfis- og dómsmálaráðu-
neyti.
Þetta er vitaskuld aðeins ein hug-
mynd af mörgum og raða mætti
verkefnum upp með öðram hætti.
Til dæmis hefur réttilega verið á
það minnst að heilbrigðisráðuneytið
ásamt og með tryggingarmálunum
tekur til sín um 40% af útgjöldum
ríkisins og því verið nefnt að þar
þyrfti að færa til verkefni. Eins
mætti hugsa sér að brjóta upp ein-
stök verkefni í ráðuneytunum og
færa annað - það er ekki endilega
nauðsynlegt að núverandi verkefni
einstakra ráðuneyta eigi þar heima
fremur en annars staðar í sambýli
við önnur verkefni stjómsýslunnar.
Sú hugmynd sem hér er varpað
fram er engan veginn ný af nálinni.
Atvinnuvegaráðuneyti hefur verið í
umræðunni lengi. Eins fer ekki illa
á því að ráðuneyti félagsmála, sem
að hluta sýslar með málefni sveitar-
félaga taki til sín samgöngu- og
ferðamál, sem era auðvitað ofarlega
á baugi sveitarstjómarmálanna.
Umhverfismálin eru vaxandi mála-
flokkur og eiga að vera það.
Sambýli við dómsmálin er ekki
fjarri lagi, enda aðgát með náttúr-
unni löggæsla að vissu marki.
Skoðum málin
Allt að einu er mikilvægt að opna
þessa umræðu upp á gátt í stað þess
að fara hallærisleiðina og fjölga
bara stólum til að mæta eftirspum,
en líta ekkert á nauðsynlega upp-
stokkun í stjómkerfinu. Og svo má
einnig spyrja: Er það almennt starf-
hæfari og samstilltari ríkisstjóm
sem telur 12 ráðherra, en 10 - eða
ef til vill aðeins 8?
Einhvem tíma hefði Davíð Odds-
son ekki þurft að hugsa sig um áður
en hann svaraði slíkri spumingu. Ef
ég man rétt, stóð hún ekki í honum,
þegar hann taldi brýna nauðsyn á
því að fækka borgarfulltrúum, þeg-
ar hann og Sjálfstæðisflokkurinn
komust aftur til valda í borgar-
stjórn Reykjavíkur árið 1982. Og
það gerði hann. Nú hins vegar fjölg-
ar hann ráðherrrum!
Höfundur er alþingismaður
Samfyikingarinnar.
Fvrir allar stærðir af
gosplastflöskum
• Stórminnkar fyrirferðarmiklar
eosflöskur.
• Sparar geymslurými um 80%.
• Auðveld í notkun.
PFA F
cHeitmlistœkjaverslim
Grensásvegur 13 -Reykjavík
Síiru 533 2222
1. vinninqur!
vX ■ v:
2*s.
v** v
’
V'-?*. ■ ■ «S5r'
3:.
-"fe-, '-*%
■jSfe
‘
>121 v
•v.
: -
-r ' . V.
&£■
' - -Xðpv
*•- - ' st
- "X. '
, mm: \
Vsic y- \
í kvöld er dregið
í Víkingalottóinu um
tugi milljóna króna!
Fáðu þér miða fyrir kl. 16 í dag.
( ATH! Aðeins H3| kr. röðin )