Morgunblaðið - 26.05.1999, Side 48
W 48 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Fæðingarorlof
opinberra
starfsmanna
í FRÉTTASKÝRINGU Morgun-
blaðsins á miðsíðu hinn 19. maí sl. er
fjallað um breytingar á fæðingaror-
lofi og í fyrirsögn segir að samstaða
sé að skapast um þær. í upphafi
fréttaskýringarinnar segir að
ástæða þess að svo illa gangi að ná
ca samkomulagi um breytingar sé að
réttindin séu mismunandi milli opin-
berra starfsmanna og annars launa-
fólks. í kjölfarið eru kjör kvenna á
almennum vinnumarkaði í fæðingar-
orlofi borin saman við meðaldag-
vinnulaun og meðalheildarlaun opin-
berra starfsmanna. Sá samanburður
er mjög villandi þar sem öllum sem
til þekkja er ljóst að meðallaun
kvenna í opinberri þjónustu eins og
á almennum vinnumarkaði eru því
miður enn töluvert fyrir neðan með-
Fæðingarorlof
Reglugerð um fæðing-
^ arorlof, segja Gísli
Tryggvason, Hannes
Þorsteinsson og Svan-
hildur Halldórsdóttir,
verður ekki breytt ein-
hliða - hvorki með
reglugerð frá ráðherra
né með lögum frá
* Alþingi.
allaun karla. Mismunurinn sem gef-
inn er til kynna er því rangur. Auk
þess fá konur í þjónustu ríkisins að-
eins dagvinnulaun síðari 3 mánuðina
í fæðingarorlofi.
Samráð um réttarbætur
I fréttaskýringunni segir: „Sam-
tök opinberra starfsmanna hafa ekki
léð máls á að jafna réttinn með því
að skerða fæðingarorlof opinberra
starfsmanna." Þetta eru orð að
sönnu en þar með er ekki öll sagan
sögð. Samtök opinberra starfs-
manna - Bandalag háskólamanna,
> BSRB og kennarafélögin - hafa í
vetur undirbúið sameiginlegar
áherslur í réttindamálum sem verða
kynntar opinberlega í kjölfar víð-
tækara samráðs í byrjun júní.
Aherslurnar að því er varðar fæð-
ingarorlof snúast vitaskuld um auk-
inn rétt - réttarbætur - svo sem
óskert kjör í fæðingarorlofi, lengra
fæðingarorlof, sérstakt fæðingaror-
lof feðra, sveigjanleika í töku fæð-
ingarorlofs, órofna réttindaávinnslu
og fortakslaust bann við uppsögn í
fæðingarorlofi. Enn fremur hefur á
þessum vettvangi eins og víðar í
samfélaginu verið rætt um stofnun
fæðingarorlofssjóðs sem jafni
greiðslum í fæðingarorlofi niður á
stofnanir samfélagsins í því skyni að
tryggja raunverulegt jafnrétti á
vinnumarkaði - bæði fyrir launafólk
og atvinnurekendur.
Fæðingarorlofsréttur er samn-
ingsbundinn
I fréttaskýringunni segir að
ágreiningur sé um hvort fæðingar-
orlofsréttur opinberra starfsmanna
sé hluti af samningsbundnum rétt-
indum þeirra. Husanlegur ágrein-
ingur um þetta grundvallaratriði
hlýtur að vera á misskilningi byggð-
ur en ritstjórn Morgunblaðsins hef-
ur ekki séð ástæðu til að hafa sam-
band við nein samtök opinberra
starfsmanna í tengslum við frétta-
skýringuna. í stuttu máli er enginn
vafi um að fæðingarorlofsréttur op-
inberra starfsmanna samkvæmt
reglugerð um bamsburðarleyfi
starfsmanna ríkisins frá 1989 er
ekki aðeins hluti af samningsbundn-
um réttindum þeirra heldur eru þau
réttindi varin af stjórnarskránni.
Ástæða þessa er ekki fyrst og
fremst sú - sem Morgunblaðið nefn-
ir með réttu - að fjármálaráðuneyti
hefur haft samráð við heildarsamtök
opinberra starfsmanna þegar reglu-
gerðir um þetta efni og annað hafa
verið settar eða þeim breytt en slíkt
samráð hefur frá árinu 1954 verið
skylda samkvæmt lögum um rétt-
indi og skyldur starfsmanna ríkis-
ins. í þeim lögum er nú tekið fram
að reglugerðin skuli gilda þangað til
gerður hefur verið kjarasamningur
um laun í fæðingarorlofi. Reglugerð-
in hefur sem sagt stöðu kjarasamn-
ings. Það er meginástæða þess að
fæðingarorlofsréttur opinberra
starfsmanna er hluti af samnings-
bundnum réttindum þeirra. I öðru
lagi er samningsrétturinn varinn af
eftirfarandi ákvæði sem sett var í
ÞÓR HF
ReykjHvík - Akurnyrl
' Reykjavík: Ármúla 11 - Sfmi 568-1500 - Akureyri: Lónsbakka - Simi 461-1070
mmm
LAWN-BuY
Garðsláttuvélar
Margreyndar við
íslenskar aðstæður,
nú með nýjum 4,5
HP tvígengismótor,
einfaldri og öruggri
hæðarstillingu, 48
cm sláttubreidd,
styrktum
hjólabúnaði, 60 I.
grassafnari fylgir
Gísli Hannes Svanhildur
Tryggvason Þorsteinsson Halldórsdóttir
stjórnarskrá árið 1995: „í lögum
skal kveða á um rétt manna til að
semja um starfskjör sín og önnur
réttindi tengd vinnu.“
Ekki einhliða breyting
Reglugerð um fæðingarorlof
verður með öðrum orðum ekki
breytt einhliða - hvorki með reglu-.
gerð frá ráðherra né með lögum frá
Alþingi. Aðeins kjarasamningur get-
ur breytt fæðingarorlofsrétti þess-
ara opinberu starfsmanna. Eins og
kunnugt er eru það stéttarfélög eða
samtök þeirra sem gera kjarasamn-
inga um kjör félagsmanna sinna en
slík félög njóta nú sérstakrar stöðu
samkvæmt stjórnarskránni.
Fæðingarorlofsrétturinn er
stjórnarskrárvarinn
Jafnvel áður en stjórnarskránni
var breytt í þessa veru og sérstök
jafnræðisregla jafnframt tekin upp
í hana árið 1995 hafa tilraunir til
þess að afnema samningsbundinn
rétt launafólks hlotið skipbrot í
Hæstarétti sem kvað upp úr um
það árið 1992 að löggjöf um ein-
hliða skerðingu á samningsbundn-
um kjörum tiltekins hóps launa-
fólks hefði ekki staðist óskráða
jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
Af framangreindu er ljóst að
samræming á greiðslum í fæðing-
arorlofi verður ekki gerð með því
að jafna niðurávið enda myndu
samtök opinberra starfsmanna
aldrei láta slíkt líðast.
Gísli er framkvæmdarsljóri Ilamlu-
lags káskólamanna,
Hannes er launafulltrúi Kennara-
sambands íslands og
Svanhildur er skrifstofustjóri
BSRB.
Fjármálaeftirlitið fari
strax í málið
í MORGUNBLAÐINU
sl. sunnudag er boðað að
tryggingafélögin séu
með í undirbúningi að
hækka iðgjöld lögboð-
inna bifreiðatrygginga.
Astæðan er sögð vera
gildistaka breytinga á
skaðabótalögum 1. maí
sl. Full ástæða er til að
fara nokkrum orðum um
þessi áform tryggingafé-
laganna, sem koma
munu við pyngju flestra
landsmanna. I allsherj-
amefnd Alþingis sem
fjallaði um málið lagði ég
mig sérstaklega fram
um að skoða hvort nauð-
syn væri á breytingu ið-
gjalda bifreiðatrygginga
áhrifa laganna.
Vátryggingaeftirlitið taldi ekki
þörf á iðgjaldahækkun
Meginviðfangsefni Alþingis hefur
þegai' fjallað um frumvarp til nýrra
skaðabótalaga var að tryggja að
tjónþolar fái sanngjarnar og eðlileg-
ar bætur. Auk þess hafði Alþingi
þær skyldur að reyna eins og kostur
var að leggja mat á hvaða áhrif
breytt lög hefðu á iðgjaldagreiðslur
bifreiðatrygginganna.
I þvi sambandi er ástæða til að
rifja upp að á árinu 1996 treysti alls-
herjarnefnd Alþingis sér ekki til að
afgreiða málið, þar sem ekki var
hægt að fá fram hvort og þá hvaða
áhrif breyttur bótaréttur hefði á ið-
gjöld tryggingafélaganna. Upplýs-
ingar sem þá komu fram á Alþingi
voru vægast sagt mjög misvísandi.
Annarsvegar töldu tryggingafélögin
að breytingar á skaðabótalögunum
gætu leitt til 30-50% hækkunar á ið-
gjöldum og hinsvegar taldi Vátrygg-
ingaeftirlitið (nú Fjármálaeftirlitið)
að ekki væri þörf á neinni verulegri
hækkun á iðgjöldum. Taldi Vátrygg-
ingaeftirlitið m.a. að nýta mætti 3-4
milljarða af 11 milljörðum sem þá
voru í bótasjóðum tryggingafélag-
anna ef kostnaður hlytist af breytt-
PALLALVFTUR
ÞÓR HF
Reykjavík - Akureyri
Reykjavlk: Ármúla 11 - slmi 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - slmi 461-1070
um lögum. Tryggingafé-
lögin héldu því aftur á
móti fram að þessir 11
milljarðar væru ein-
göngu skuldbindingar
vegna tjóna, sem ekki
væri búið að ganga frá.
Tryggingafélögin
hunsuðu óskir ráð-
herra og alþingis
Þessar deilur á árinu
1996 urðu m.a. til þess
að Alþingi treysti sér
ekki til að afgreiða mál-
ið. í stað þess var skip-
uð endurskoðunarnefnd
sem m.a. átti að kalla
eftir upplýsingum frá
tryggingafélögunum tO
þess að hægt væri að meta hvort og
þá hversu mikil þörf væri á hækkun
iðgjalda. Svo mikil var tregða trygg-
ingafélaganna að veita stjórnskip-
aðri endurskoðunamefnd upplýsing-
ar um forsendur og skýringar á þörf
fyrir breytingar á iðgjöldum, að
nefndin þurfti að leita atbeina við-
skiptaráðherra, dómsmálaráðherra
Tryggingagjöld
Ríkisstjórn og Fjár-
málaeftirlitið verða að
koma í veg fyrir það,
segir Jóhanna Sigurð-
ardóttir, að trygginga-
félögin knýi fram ið-
gjaldahækkun bifreiða-
trygginga.
og allsherjarnefndar Aiþingis til að
reyna að knýja tryggingafélögin til
að veita nauðsynlegar upplýsingar.
Og það dugði ekki tÖ þótt æðstu
yfirmenn málaflokksins, ráðherrarn-
ir, ásamt löggjafarsamkomu þjóðar-
innar reyndu að knýja tryggingafé-
lögin til samstarfs í málinu. Þannig
var því málið lagt á nýjan leik fyrir
Alþingi á síðari hluta árs 1998, án
allra nauðsynlegra upplýsinga, til að
hægt væri að meta hvort breytingar
á skaðabótalögunum kallaði á hækk-
un iðgjalda. Þetta ríki í ríkinu -
tryggingafélögin - hunsuðu því bæði
óskir ráðherra og löggjafarþings.
Mikill hagnaður og gildir
bótasjóðir
Nú ætla tryggingafélögin greini-
lega að geysast fram skömmu eftir
gildistöku laganna með hækkun á ið-
gjöldum bifreiðatrygginga, sem auka
mun álögur á nánast hvert einasta
heimili í landinu. Ríkisstjórnin og
Fjármálaeftirlitið verða að koma í
veg fyrir að tryggingafélögin knýi
fram iðgjaldahækkun bifreiðatrygg-
inga, en Vátryggingaeftirlitið sem
Fjármálaeftirlitið hefur leyst af
hólmi taldi á sínum tíma ekki þörf
fyrir iðgjaldahækkun þrátt fyrii'
breytingar á skaðabótalögunum. Ég
vísa líka í upplýsingar um stöðu
bótasjóða tryggingafélaganna sem
ég aflaði mér hjá Fjármálaeftirlitinu
fyrir lokaafgreiðslu málsins á Al-
þingi.
Þar kom fram að 31. desember
1993 hafi staða bótasjóðanna verið
9,9 milljarðar kr. Fjórum árum síðar
eða 31. desember 1997 var staða
bótasjóðanna 15,8 milijarðar kr. eða
um 5 milljörðum meira en á árinu
1996 þegar Vátryggingaeftirlitið
áætlaði að 3-4 milljarða króna af 11
milljörðum úr bótasjóðunum mætti
nota, ef breytingar á skaðabótalög-
unum leiddu til hækkunartilefna á
iðgjöldum. Athyglisvert er hvað
staða bótasjóðanna hefur batnað
mikið á þessu tíma eða um 6 millj-
arða á 4 árum, þrátt fyrir lækkun
tryggingagjalda vegna aukinnar
samkeppni og þrátt fyrir að í desem-
ber 1995 var réttur tjónþola aukinn
verulega með hækkun á reiknings-
stuðli úr 7,5-10. Rétt er einnig að
halda til haga gífurlegum hagnaði
tryggingafélaganna á undanfömum
árum, en á sl. tveimur árum var
hann vel á þriðja milljarð króna. Því
verður ekki trúað að þrátt fyrir gíf-
urlegan hagnað tryggingafélaganna
undanfarin ár og gilda bótasjóði ætli
þeir að hækka iðgjöldin á bifreiða-
eigendur í landinu. Það verður að
stöðva.
Fjármálaeftirlitið grípi
í taumana
I lokin vil ég vísa til álits minni-
hluta allsherjarnefndar frá síðasta
þingi, þar sem áhersla var lögð á að
Fjármálaeftirlitið, sé þess þörf, beiti
ákvæðum 2. mgr. 55. gr. laga um Vá-
tryggingareftirlit, þar sem kveðið er
á um að eftirlitið geti með rökstudd-
um hætti gert athugasemdir ef ið-
gjöld eru ósanngjörn og ekki í sam-
ræmi við áhættu sem í vátrygging-
unum felst. Með vísan til þess hefur
undirrituð þegar óskað eftir því við
Fjármálaeftirlitið að það leggi sjálf-
stætt mat á þær forsendur sem
tryggingafélögin leggja til grund-
vallar iðgjaldahækkun bifreiðatrygg-
inga. M.v. allan feril þessa máls er
það grundvallaratriði að Fjármála-
eftirlitið segi álit sitt á því hvort
breyting á skaðabótalögum kalli á
hækkun á iðgjöldum bifreiðatrygg-
inga. Ef svo er verður að fást á því
viðunandi skýring, hvers vegna digr-
ir bótasjóðir tryggingafélaganna geti
ekki staðið undir þeirri hækkun,-íÞað
hlýtur að vera skýlaus krafa allra
bifreiðaeigenda í landinu að Fjár-
málaeftirlitið og ríkisstjórn fylgist
náið með þessum áformum trygg-
ingafélaganna og grípi í taumana sé
þess þörf.
Höfundur er alþingismaður.
Sigurðardóttir
vegna