Morgunblaðið - 25.07.1999, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1999 43 .
I DAG
BRIDS
Umsjðn (iuðmundnr
Páll Arnarson
í FYRSTU umferð Norður-
landamóts ungmenna kom
upp áhugavert spil, þar sem
allt snerist um tromplitinn.
Daninn Kasper Konow
missti af vinningsleið, eins
og spilið þróaðist í viðureign
Dana og Svía:
Austur gefur; AV á
hættu.
Norður
A KG7
V ÁK3
♦ DG3
*ÁD108
Vestur Austur
A3 AD1064
V D72 V 965
♦ Á862 ♦ K974
*KG965 * 42
Suður
♦ Á9852
VG1086
♦ 103
+ 73
Vestur Norður Austur Suður
— — Pass Pass
1 lauf Dobl Pass 1 spaði
Pass 2 grönd Pass 3 hjörtu
Pass 3 spaðar Pass
4 spaðar Pass Pass Pass
Vestur opnaði létt í þriðju
hendi og það hafði áhrif til
hins verra á spilamennsku
Danans. Útspilið var smár
tígull undan ásnum, sem
austur tók á kónginn og
spilaði tígli um hæl. Vestur
drap og spilaði þriðja tíglin-
um. Konow ákvað að henda
laufi heima í tígluldrottning-
una og spilaði síðan laufás
og trompaði lauf. Þar var
hann á réttri leið, því ef
hann fer heim á spaðaás og
spilar spaða að KG, fær
austur alltaf tvo slagi á
tromp. En Konow beið sem
sagt með spaðaásinn og
stakk lauf heim. Síðan spil-
aði hann spaða á gosann.
Austur drap á drottninguna
og spilaði tígli til að veikja
tromp sagnhafa. Nú er til
skemmtileg vinningsleið.
Sagnhafi verður að trompa
heima og henda laufi úr
borði. Svína svo hjartagosa
og taka ÁK í hjarta. Spila
loks laufi í þriggja spila
endastöðu þar sem austur á
1064 í trompi eftir. Suður
yfirtrompar með níu, sting-
ur síðasta hjarta sitt með
kóngi blinds og fær svo á
spaðaásinn. Austur þarf að
undirtrompa þrisvar í lokin!
Konow fann ekki þessa
leið. Hann trompaði fjórða
tígulinn í blindum og tók
spaðakóng. Þegar hann spil-
aði næst laufi úr blindum
gat austur losað sig við eitt
hjarta og tryggt sér þannig
slag á tromp.
Arnað heilla
f* r\ÁRA afmæli. Á morg-
DUun, mánudaginn 26.
júlí, verður sextug Margrét
Sigurðardóttir, matráður,
Skipholti 60, Reykjavíkur.
Eiginmaður hennar er Sig-
urður S. Steingrímsson,
kennari við Iðnskólann í
Reykjavik. I tilefni dagsins
taka þau á móti ættingjum
og vinum í Templarahöll-
inni, Stangarhyl 4, Reykja-
vík, kl. 20 á afmælisdaginn.
t fkÁRA afmæli. Á morg-
OUun, mánudaginn 26.
júh', verður fimmtugur Frið-
rik Friðriksson, sparisjóðs-
stjóri, Böggvisbraut 9, Dal-
vík. Eiginkona Friðriks er
Marína Jónsdóttir og eiga
þau 3 börn. Friðrik er að
heiman á afmæhsdaginn.
PERLUBRÚÐKAUP. Á morgun, mánudaginn 26. júlí
eiga 30 ára hjúskaparafmæli hjónin Guðrún Karlsdóttir
og tílfar Víglundsson, Lindarholti 10, Ólafsvík.
Hlutavelta
ÞESSIR duglegu
krakkar sem búa í
Eggertsgötu 12 söfn-
uði með tombólu 8.773
kr. til styrktar flótta-
mannahjálp Rauða
kross íslands. Þau eru
í fremstu röð f.v.: Þór-
hildur Eyþórsdóttir,
Orri Einarsson og Brí-
et Mörla Ómarsdóttir.
Miðröð f.v.: ída Páls-
döttir, Denise Margrét
Hannesdóttir og Hjör-
dís Halla Eyþórsdótt-
ir. Efsta röð f.v.: Aron
Einarsson, Veronika
Ómarsdóttir og Nadi-
ne Guðrún Hannesdóttir. Á myndina vantar: Agnesi
Ýr, Guðrúnu Jónu og Ernu Kristínu Stefánsdætur en
þær eru fluttar til Vestmannaeyja.
LJOÐABROT
I HLIÐARENDAKOTI
Fyrr var oft í koti kátt,
krakkar léku saman.
Þar var löngum hlegið hátt,
hent að mörgu gaman.
Úti um stéttar urðu þar
einatt skrýtnar sögur,
þegar saman safnazt var
sumarkvöldin fögur.
Eins við brugðum okkur þá
oft á milli bæja
til að kankast eitthvað á
eða til að hlæja.
Margt eitt kvöld og margan dag
máttum við í næði
æfa saman eitthvert lag
eða syngja kvæði.
Bænum mínum heima hjá
Hlíðar brekkum undir
er svo margt að minnast á,
margar glaðar stundir.
Því vill hvarfla hugurinn,
heillavinir góðir,
heim í gamla hópinn minn,
heim á fomar slóðir.
Þorsteinn
Erlingsson
(1858/1914)
Ljúðið í
Hlíðarenda-
koti
STJÖRIVUSPA
eftir Franees Drake
LJONIÐ
Afmælisbam dagsins: Þú
hefur mikil áhrif á fóik með
skoðunum þínum ognýtur
þín vel í hjálparstarfi vijj
aðra.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Verður er verkamaður launa
sinna og þú átt það svo sannar-
lega skilið að gera þér glaðan
dag. Leyfðu einhverjum að
njóta þess með þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Eitthvað það kann að gerast
sem kemur þér verulega á
óvart Reyndu að vera viðbú-
inn svo að þú getir dregið úr
afieiðingunum.
Tvíburar .
(21. maí - 20. júní)
Náinn vinur reynist kaldrifj-
aðri en þú hefur nokkumtím-
ann getað gert þér í hugar-
lund. Láttu vináttuna ekki
blinda þér sýn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Skilaboð sem þér berast kunna
að reynast áhrifamikil ef þú
ákveður að fara eftir þeim. Ef
ekki þá láttu vera að angra
sjálfan þig með þessu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) X*
Það er ósköp notalegt að finna
athygli annarra beinast að sér.
Gættu þess samt að misnota
ekki aðstöðu þína sem mundi
valda öðram sársauka.
MeyÍa
(23. ágúst - 22. september) (Dh.
Stundum getur manni virst
framþróunin ákaflega hægfara
en til allrar hamingju þarf ekki
alltaf miklar breytingar til að
sjá veralegan mun.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Vertu ekki svona harður við
sjálfan þig. Allir þurfa ein-
hvemtímann á hvíld að halda.
Að öðrum kosti er heilsan í
veði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Það getur valdið andvaraleysi
að allir hlutir gangi refjalaust
fyrir sig. Búðu þig undir að
fyrr eða síðar reyni á útsjónar
semi þína.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Það getur reynst erfitt að
greina á milli þess sem má og
hins sem ekki gengur. Reyndu
að gera upp hug þinn áður en
lengra er haldið.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Sumir eru tilbúnir til þess að
fallast á skoðanir þínar um-
yrðalaust en fyrir fylgi ann-
arra þarftu meira að hafa. Það
era þeir síðamefndu sem gefa
lifinu gildi.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) QSffi
Láttu ekki gylliboð ókunnugra
villa þér sýn. Lestu vel smáa
letrið og leitaðu þér sérfræð
ingsaðstoðar með vandasöm
úrlausnarefni.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Það er rangt að kætast við
ófarir annarra og aldrei að vita
nema að þú verðir sjálfur skot-
spónninn áður en þú veist af.
Stjörnuspína á að iesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi eru
ekki byggðar á traustum grunni
vísindaiegra staðreynda.
Afsláttardagar
26.-30. júlí
Efni, bækur og snið
BÚTASALA
‘3% tiétfiitður
Opið mán.-fös. kl. 10-18
Síðumúla 35, sími 553 3770
HUGUOMUN SJALFSÞEKKINGAR
„Enlightenment Intensive" í Bláfjöllum 16.-19. september.
Segðu mér hver þú ert
Öflugt og krefjandi 3 sólarhringa hugleiðslunámskeið þar sem
markmiðið er að öðlost beina upplifun á sannleikanum, um hver þú
raunverulega ert, hvað þú ert, hvað lífið er, hvað aðrir eru og hvað
kærleikur er.
Kennd er mögnuð og áhrifarík hugleiðslutækni. Fáðu sendan bækling.
Leiðbeinandi Guðfinna S. Svavarsdáttir, „Enlightenment lntensive"-meistari.
Nánari uppl. og skráning í sima 562 0037 og 869 9293.
Ragna, s. 564 3118 og 891 8186, Óttar, s. 554 3930 og 899 5589.
Vantar þig tösku?
Hjá okkur er stórt útsöluhorn
Einnig er 10% afsláttur
af öllum leðurtöskum
0rahgey
Laugavegi 58
sími5513311
Útsalan
í fullum gangi
Ný tilboð á
hverjum degi
Kringlunni, 1. hæð,
sími 568 9345.
UTSALA
SÍDVSIA VIKAX
v' 20%
AIJKAAFSLÁTTUR
s ÆL vkJFJL MsLÆiÆJk .
Qhmtv,
Tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi.
Sími 561 1680.