Morgunblaðið - 11.08.1999, Síða 1

Morgunblaðið - 11.08.1999, Síða 1
178. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS AP EFTIR skotárásina beið fólk í örvæntingu eftir fréttum af af- drifum þeirra sem voru inni í félagsmiðstöðinni. Ódæðisverk í Los Angeles Iétkúl- unum rigna yfír fólk Los Angeles. Reuters. MAÐUR vopnaður hálfsjálfvirkri byssu lét kúlunum rigna yfir granda- laust fólk í félagsmiðstöð gyðinga í einu úthverfa Los Angeles í gær. Urðu fímm fyrir skoti og þar á meðal átta ára gamall drengui', sem særð- ist mjög alvarlega. Komst byssumað- urinn undan og var hans ákaft leitað er síðast fréttist. Talsmaður lögreglunnar sagði að ódæðismaðurinn, ungur, hvítur karl- maður, hefði ruðst inn í anddyri fé- lagsmiðstöðvarinnar og hafið skot- hríðina um leið. Urðu fimm manns fyrir skotum úr byssunni eins og fyrr segir, þar á meðal þrír drengir, tveir átta ára og einn sex ára. Börð- ust læknar í gær fyrir lífi drengsins, sem særðist mest, en hitt fólkið var ekki talið í lífshættu. Byssumanninum tókst að flýja af vettvangi og í gær var hans leitað hús úr húsi í nágrenninu. Var lög- reglan í Los Angeles með mikinn viðbúnað vegna ódæðisins og fékk enginn að fara af vaktinni fyrst um sinn. Þetta er í þriðja sinn á skömm- um tíma, sem atburður af þessu tagi kemur upp í Bandaríkjunum og er mikill óhugur í fólki. Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, sagði í gær að árásin væri við- urstyggilegt verk, sem sýndi enn einu sinni nauðsynina á strangari löggjöf um byssueign. Skæruliðahreyfíng múslíma í Dagestan lýsir yfír sjálfstæði héraðsins Pútín heit- ir skjótum viðbrög’ðum Moskva. Reuters. VLADÍMÍR Pútín, sem Borís Jeltsín Rússlands- forseti tilnefndi í embætti forsætisráðherra á mánu- dag, hét í gær skjótum við- brögðum við uppreisnartil- raun múslímskra skæru- liða í Dagestan. Skærulið- amir lýstu í gær yfir sjálf- stæði héraðsins sem múslímaríkis. Pútín sagði fréttamönn- um eftir fund sinn með Jeltsín í gær að forsetinn hefði lagt blessun sína yfir áætlun um aðgerðir til að koma á lögum og reglu í Dagestan og yrði þeim hrint í framkvæmd. Sagðist hann vænta þess að uppreisnartil- raunin yrði kveðin niður innan tveggja vikna. Fulltrúar hreyfingar múslíma í Dagestan, er nefnist Islamska ráð- ið, tjáðu fréttamönnum í Grosní, höfuðborg Tsjetsjníu, í gær að liðs- menn hreyfíngarinnar hefðu lýst yf- ir sjálfstæði Dagestans sem múslímaríkis. Hefði það verið gert á leynilegum fundi, er haldinn var á fjallasvæði sem skæruliðamir náðu á sitt vald um helgina. Blésu þeir til heilags stríðs múslíma gegn yfirráð- um „vantrúaðra" Rússa í Dagestan. Talsmaður lögreglunnar í Dagestan sagði í gær að hreyfingin væri ekki viðurkennd og nokkrir leiðtogar hennar hefðu verið handteknir. Vladímír Putm Lögreglan í Moskvu hef- ur hert öryggisgæslu í borginni vegna ótta um að skæruliðar múslíma grípi til hryðjuverka þar. Stjórnmálaskýrendur gera ráð fyrir því að dúm- an, neðri deild rússneska þingsins, muni samþykkja tilnefningu Pútíns í at- kvæðagreiðslu á mánudag, þar sem þingmönnum sé fyrst og fremst í hug að búa sig undir þingkosningarnar, sem fara fram í Rússlandi 19. desember næstkomandi. Kosningabaráttan hófst formlega í gær. Ef dúman fell- ir tilnefningu forsætisráðherra Reuters RUSSNESKUR hermaður mundar vélbyssu á eftirlitsflugi í Dagestan. þrisvar í röð verður forsetinn að leysa upp þingið, og haft var eftir formanni yfirkjörstjómar í gær að hugsanlegt væri að kjördegi yrði frestað yrði tilnefning Pútíns ekki samþykkt. Rússneskir fjölmiðlar höfðu í gær eftir Pútín að hann vildi hafa vam- armálaráðherrann Igor Sergejev áfram í ríkisstjórninni en að Jeltsín hefði síðasta orðið um skipan ráð- herra. Jeltsín heiðraði í gær Sergejev fyrir þátt sinn í lausn Kosovo-deilunnar. Nokkur dagblöð í Rússlandi skýrðu frá því að Pútín myndi reka nokkra ráðherra en hann hefur neitað því. Markaðir í Rússlandi náðu sér aftur á strik í gær eftir lækkun á gengi rúblunnar og verði hlutabréfa sem varð í kjölfar tilkynningarinnar um stjórnarskiptin á mánudag. ■ Fjórði rússneski/24 Embættismenn í Dagestan sögðu að skæruliðar hefðu verið hraktir frá tveimur þorpum í gær, en náð einu þorpi á sitt vald. Sögðu þeir að 44 uppreisnarmenn hefðu látið lífið í átökum í gær, en það hefur ekki fengist staðfest. Að minnsta kosti sex rússneskir hermenn hafa beðið bana síðan uppreisnin hófst um helgina. Tilnefning Pútíns talin verða samþykkt Indverjar grönduðu pakistanskri flugvél Aukinn herviðbúnaður Reuters Beðið eftir sólmyrkvanum Nýju Delhi. Reuters. STJÓRNVÖLD í Pakistan sökuðu Indverja í gær um fyrirvaralausa árás á Pakistan og sögðust áskilja sér rétt til að grípa til „viðeigandi ráðstafana“ eftir að indverskar her- þotur höfðu skotið niður pakist- anska eftirlitsflugvél í gær. Atburð- urinn magnar á ný upp spennu milli landanna en minnstu munaði að stríð brytist út fyrr í sumar vegna Kasmírdeilunnar. Hefur herjum ríkjanna verið skipað í viðbragðs- stöðu. Stjómvöld í Islamabad héldu því fram í gær að Indverjar hefðu skot- ið vélina niður í pakistanskri land- helgi og að allir þeir sextán, sem um borð voru, hefðu farist í árásinni. „Þessi árás Indverja á sér enga réttlætingu,“ sagði Mushahid Huss- ain, upplýsingaráðherra Pakistans. Hann sagði Indverja hafa rofið loft- helgi Pakistans og gat sér þess til að Indverjar hefðu viljað hefna þess, að pakistanskir skæruliðar skutu niður indverska herþotu í vor í Kargil. Óvíst um landamæri „Pakistan áskilur sér allan rétt til að grípa tO viðeigandi ráðstafana í varnarskyni," sagði Sartaj Aziz, ut- anríkisráðherra Pakistans, við fréttamenn í Islamabad. Indverjar sögðu hins vegar, að vélin hefði rofið lofthelgi Indlands undan ströndum Gujarat-ríkis í Vestur-Indlandi og að skotið hefði verið á hana eftir að flugmaður hennar hafði hunsað tilmæli um að snúa við eða lenda vélinni. Pakistanar sýndu í gær myndir af braki úr vélinni á pakistönsku landi en Indverjar segja brakið aðallega vera innan sinna landamæra. Þykir líklegt, að það hafi dreifst yfir all- stórt svæði en deilt er um landa- mærin á þessum slóðum. MEÐLIMIR Samtaka breskra stjörnufræðinga (BAA) komu sjónaukum sínum og myndavél- um fyrir við Truro-háskóla í Suð- vestur-Englandi í gær, en þaðan ætla þeir að fylgjast með sói- myrkvanum, er verður sjáanleg- ur í Evrópu og Miðausturlöndum í dag. Talið er að um tveir milljarðar manna muni geta virt myrkvann fyrir sér, en aldrei í sögunni hafa jafn margir haft tækifæri til að fylgjast með siíkum atburði. Astæða þess er sú að almyrkvi á sólu hefur aidrei orðið á svo fjöl- býlu svæði. Skuggi tunglsins fell- ur á jörðina undan ströndum Nova Scotia í Kanada og færir sig á ógnarhraða yfir Mið-Evr- ópu, Miðausturlönd og Indiand, en sólmyrkinn mun taka enda yf- ir Bengalflóa. Helsta rannsóknarefni vísinda- manna verður athugun á sól- kórónunni, sem er efnishjúpur umhverfís sólina, er verður sýni- leg við sólmyrkva. Enn er ekki vitað hversu heitur þessi efnis- hjúpur er. ■ Sólmyrkvi/22

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.