Morgunblaðið - 11.08.1999, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Norsku og íslensku forsætisráðherrahj ónin fóru saman á Yatnajökul í gær
Morgunblaðið/Ásdís
RIKULEGT fiskihlaðborð beið ferðalanganna að lokinni vélsleðaferðinni.
RÁÐHERRARNIR leggja f ann. Ástríður og Davíð voru saman á sleða en Björg og
Kjell Magne kusu að vera ein á sleða.
NORSKU forsætisráðherrahjón-
in, Björg og Kjell Magne
Bondevik, fóru í gær í Jökulsár-
lón og á Vatnajökul, í fylgd
Ástríðar Thorarensen og Davíðs
Oddssonar. I samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins kváðust
þau vera sérstaklega ánægð með
daginn og sögðu ferðina hafa
verið stórfenglega.
Ráðherrarnir, eiginkonur
þeirra og fóruneyti flugu til Fag-
urhólsmýrar snemma í gærmorg-
un. Þaðan var haldið að Jök-
ulsárlóni þar sem siglt var á milli
ísjaka. Siðan var haldið upp á
Vatnajökul. Þegar þangað var
komið klæddust allir göllum og
hjálmum og svo dreif hópurinn
sig á vélsleða. Var ekið um jökul-
inn drjúga stund og stoppað ann-
að slagið til að skoða jökul-
sprungur. Loks var áð á jöklinum
ferð“
og nutu svangir ferðalangar veit-
inga af glæsilegu fiskihlaðborði.
Að borðhaldi loknu var ekið til
Hafnar og flogið þaðan til
Reykjavíkur.
I samtali við Morgunblaðið
lýsti norski forsætisráðherrann
mikilli ánægju með ferðina og
kvað hana hafa verið stórfeng-
lega. Hann kvaðst snortinn af
fegurð Jökulsárlóns og að
vélsleðaferðin hefði verið afar
skemmtileg enda hefði hann ekki
áður farið í sambærilega ferð.
Norsku forsætisráðherrahjón-
in halda af landi brott árdegis í
dag.
Mannbjörg
er bátur
sökk í
Hvalfirði
SKELBÁTURINN Margrét AK
sökk við Hnausaskersbauju, rétt
við mynni Hvalfjarðarganganna,
um klukkan hálftvö í gærdag.
Áhöfninni, tveimur körlum og einni
konu, var bjargað um borð í nær-
staddan bát. Varð engum meint af.
Það voru skipverjar í bátnum
Erlu AK sem sendu út neyðarkall
um að Margrét AK væri að sökkva.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
um það bil að hefja sig á loft þegar
fréttir bárust um að skipverjar
Erlu hefðu náð að bjarga áhöfn-
inni. Varðskip var sent á staðinn.
Kristján Friðriksson, trillukarl
og eigandi Öggurs AK, varð vitni
að atburðinum og sagði hann að
það hefði líklega aðeins tekið bát-
inn um 5 til 10 mínútur að sökkva.
Hann sagði að Erlan hefði verið
mjög nálægt og því átt hægt um
vik að bjarga áhöfninni. Kristján
kvaðst hafa tekið nákvæmar stað-
setningartölur og látið Landhelgis-
gæsluna vita.
Rannsóknarnefnd sjóslysa hefur
fengið málið til rannsóknar. Mun
hún taka skýrslur af skipverjum
Margrétar. Skipverjarnir vildu
ekki tjá sig við fjölmiðla í gær. Þá
reyndi Morgunblaðið að ná tali af
Ingólfi F. Geirdal, skipstjóra á
Erlu AK, en hann var farinn á sjó á
nýjan leik.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VARÐSKIP á slysstaðnum í Hvalfirði síðdegis í gær.
Verðbréfaþing sendir Fjármálaeftirliti
erindi vegna viðskiptahátta Orca S.A.
Niðurstöðu að
vænta fljótlega
VERÐBREFAÞING Islands sendi
í gær erindi til Fjármálaeftirlitsins
varðandi viðskiptahætti við kaup
eignarhaldsfélagsins Orca S.A. í
Lúxemborg á hlutabréfum í Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins.
Helena Hilmarsdóttir, forstöðu-
maður aðildar- og skráningarsviðs
Verðbréfaþings Islands, segir til-
ganginn að vekja athygli á því að
viðkomandi flöggun til Verðbréfa-
þings hafi, að mati Verðbréfaþings,
ekki samræmst lögum um starf-
semi kauphalla og skipulegra til-
boðsmarkaða, eins og fram kom í
frétt Morgunblaðsins á laugardag.
„Markmiðið með erindinu er að
vissu leyti að vísa málinu frá okk-
ur. Við erum búin að gera það sem
við teljum okkur geta í málinu og
að óbreyttu komumst við ekki
lengra með það. Við vísum málinu
þvi til Fjármálaeftirlitsins," segir
Helena.
Niðurstaða væntanleg
fyótlega
Páll G. Pálsson, forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins, staðfesti í samtali
við Morgunblaðið að erindið hefði
borist Fjármálaeftirlitinu. „Við
höfum fengið í hendur erindi þar
sem Verðbréfaþing gerir grein fyr-
ir afstöðu sinni til flöggunarreglna
á Verðbréfaþingi, en þetta hefur
verið til umfjöllunar að undan-
förnu. Við munum taka erindið til
skoðunar og getum ekki sagt til um
hver niðurstaðan verður en hún
mun liggja fyrir fljótlega." Páll
segir að viðskiptaráðherra hafi
ekki verið gerð sérstaklega grein
fyrir þessu af hálfu Fjármálaeftir-
litsins, „en við höfum ekki tekið af-
stöðu til þess hvort og á hvaða stigi
honum verður greint frá okkar
þætti í málinu."
Flöggunarreglur og
tilkynningaskylda
Páll G. Pálsson segir að spurn-
ingin um upplýsingagjöfina sé tví-
þætt. „Annars vegar er það sem
snýr að Verðbréfaþinginu, það er
að segja flöggunarreglurnar í
kauphallarlögunum um það hvern-
ig viðskipti með hlutabréf eru til-
kynnt inn á Verðbréfaþingið. Hins
vegar er það tilkynningaskyldan til
okkar, sem við höfum þagnar-
skyldu um.“
Páll segir að Fjármálaeftirlitinu
hafi verið gerð grein fyrir málinu
og það sé nú til skoðunar hjá stofn-
uninni hvaða frekari upplýsinga sé
þörf.
Sérblöð í dag
r Itlovrtuu tlrtbib BSBfflB
] ÚR WA ^ »
Á MIÐVIKUDÖGUM Á MIÐVIKUDÖGUM
Enn glata Framarar
góðu forskoti/B2
Martha Ernstdóttir fer
ekki á HM í Sevilla/B3
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is